Morgunblaðið - 27.08.1967, Page 2
2
MORGUNBLAÐEÐ, SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1967
1
IMáttúrufræðifélagið mot-
mælir kísilgúrveginum
HIÐ íslenzka náttúrufræðifélag
mótmælir lasning'u kísilgúrveg-
arins við Mývatn og minnir á lof
orð stjórnar verksmiðjunnar um
það, að hún taki tillit til náttúr-
unnar við vatnið. Ennfremur
væntir félagið þess að stjómin
gefi út yfirlýsingu varðandi gef-
in loforð. Mbl. barst í gær frétta
tilkynning frá félaginu og fer
hún hér á eftir:
„Náttúruverndarnefnd Hins
£sl. náttúrufræðiifélags mótmæl-
ir fyrirhugaðri lagningiu Kisil-
gúnvegar við Mývatn á þeim
stað, sem skipulagsstjórn hefur
ákveðið. Nefndin telur, að veg-
ur á þessum stað mu:ni valda
stórfelldum náttúruspjölium.
Netfndin vill minna á margend-
urtekin loforð stjórnar Kísilgúr-
verksmiðjunnar um að fylLsta
tillit verði tekið til náttúru-
verndar við allar framkrvæmd-
ir í sambandi við verksmiiðjuna
og rekstur hennar. Við væntum
þess fastlega að verlksmiðj.u-
stjórnin gefi nú þegar út jnfir-
lýsingu um það, hvort hún bef-
ur í hyggju að efna þessi lof-
orð.
Við viljum einnig benda á, að
fjólmargir þeirna erlendu nátt-
úruskoðara, sem gista hótelin
við Mývatn, standa framarlega í
náttúruverndaraamtökum heim-
kynna sinna. Vegurinn yrði
þessu fólki nærtækt og ömur-
legt dæmi þess, hve skammt við
íslend.ingar erum komnir í nátt-
úruvernd.“
Svíarnir fjórir ásamt Sveini Björnssyni við Saabbifreiðina, árgerð 1968. Frá hægri: John Carls-
son, Sveinn Björnsson, frú Carlsson, en þau bjónin munu aka bifreiðinni, og kvikmyndatöku-
mennirnir Bolin og Dalunde. (Ljósm.: Sv. Þ.).
Skutan Delight.
Hjónin í Geographic-ieið-
angrinum fyrir Austurlandi
UM þessar mundir sigla
bandarísku hjónin Patricia
og Wright Britton lítilli
seglskútu sinni kringum
Island í kynningarferð, en
Mr. Britton, sem er pró-
fessor í ensku og þau hú-
sett í New York, mim
skrifa um ferð þeirra fyr-
ir hið heimskunna tímarit
National Geographic.
Áður en þau hjón lögðu
upp í för sina hér austur
með Suðurlandinu litu þau
inn hér á Mbl. og gafst oikk-
ur tækifæri til að ratoba við
þau ofurlitla stund. Raunar
snerist talið meira upp í
spurningar þeirra um ýmis-
legt varðandi landið en að
við spyrðuim þau um þeirra
hagi. Hinsvegar komuimst við
að því að frúin er fædd í
Canada í Toronto og er fæð
ingarnafn hennar Copeland.
Kynni þeirra urðu, er fram
fóru vetrartkappsiglingar,
sem mikið eru stundaðar í
New York. Mr. Britton vant-
aði skipsfélaga á tiveggja
manna bát sinn og Patrica
varð fyrir valinu. Síðan hafa
þau siglt saman. Þessar veir
arsiglinigar eru kallaðar
bite siglingar og þykja kal-
samair, en eru þó. mjög vin-
sælar.
Nú í þessum mánuði áttu
þau brúðkaupsafmæli ein-
mitt meðan þau voru hér
stödd, eða hinn 8. ágúst, en
þau giftu sig í Danmörku ár
ið 1960.
Skútan þeirra hjóna heitir
Delight og er byggð 1957 af
Paiul E. Luke í East Booth-
bay, Maine. Skútan er 39 fet
og 8 tommur á lengd og rist
ir 4 fet.
Enn sem komið er hefir
ferð þeirra hjóna gengið veí
og síðast vissum við að þau
voru komin til Seyðisfjarðar.
Delight í Reykjavíkurhöfn
Brittonhjónin milli ambassadjrahjónanna bandarisku hér
Karl F. Rolvaag (lengst t.v., en frú hans lengst t.h.).
Kvikmynda Saab ’68
í íslenzku umhverfi
FRÉTTAMÖNNUM gafst í gær
kostur á að skoða árgerð 1968 af
Saab — bifreiðum. Með bifreið-
inni hingað til lands komu fjórir
Svíar, sem munu taka kvikmynd
af Saab í íslenzku umhverfi.
Aðal útlitsbreyting frá fyrri ár-
gerðum felst í stærri fram- og
afturrúðu. Nemur stækkun rúð-
anna samtalg 30%. Þá hafa og
verið gerðar ýmsar hreytingair til
að forðast endurskin, sem gæti
truflað ökumanninn. Bæði fólks-
bilfreiðin og station — bifreiðin
hafa nú fengið ofin gólfteppi í
stað gúmmímottna, sem áður
voru. Bremsukerfið er endur-
bætt og miða flestar breytingar
frá fyrri árgerðum að auknu ör-
yggi þeirra, sem í bifreiðinni eru.
Þetta er í átjánda sinn, sem ný
árgerð af Saab kemur á markað-
inn og í október n. k. munu Saab
verksmiðjurnar kynna nýja teg-
und bifreiða, sem væntanlega er
á markaðinn næista ár.
Saabverksmiðjurnar láta á
hverju ári gera kvikmynd utn
nýja árgerð og að þessu sinni
verður myndin tekin á íslandL
Með bifreiðinni hingað komu fjór
ir Svíar, sem á næstu þremur
vikum munu ferðast um landið
og mynda árgerð 1968 í íslenziku
umhverfi. Sýningartími þessarar
kvikmyndar verður um þrjátíu
mínútur og verður hún sýnd víða
um heim.
Umboð fyrir Saabbifreiðar á
íslandi hafa Sveinn Björnsson
& Co.
Héraðsmot Sjálfstæðis-
flokksins á Snæfellsnesi
HÉRA.ÐSMÓT Sjálfstæðisflokiks
ins á Snæfellsnesi verður hald-
ið í Röst á Hellissandi sunnu-
daginn 3. sept. næstk. Ræður
flytja Bingir Kjaran, alþingis-
maður og Magnús L. Sveinsson,
verzlunarfulltrúi.
Skemimftiatriði annast Ómar
Ragnarsson og hljómsveif Maign-
úsar Inigimarss'onar. Söngvarar
með hlijómsveitinni eru Þuríðlur
Sigurðardóttir og Vilih.jálmur
Vilhjiálmssoin.
Að loknu héraðsmótinu fer
fram dansleikur, þar sem hljóm-
sveit Magnúsar Ingimanssoniar
Leikur fyrir dansi.
Haförninn hefur flutt
30 þús. lestir af síld
SÍLDARFLUTNINGASKIP Síld
arverksmiðju ríkisins, Haföm-
inn, hóf eins og kunnugt er flutn
inga hinn 20. júní síðastliðinn.
Hefur rekstur skipsins gengið
mjög vel, það sem af er og hef-
ur það þegar farið um 20 ferðir
til Siglufjarðar og flutt alls
30.000 lestir af síld.
Sigurður Jónsson. hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins tjáði Mhl.
í gær, að skipið hefði fyllzt
strax og það hefði komið á mið-
in og í síðustu ferð var skipið
sérstaklega fljótt, þar eð síld-
veiðiskipin komu til móts við
það við Jan Mayen frá Sval-
barða.
í fyrra gekk rekstur skipsins
ekki eins vel og nú, en þá flutti
það 16000 lestir af síld frá því
í ágúst og þar til 10. desember.
Fyrri hluta ársins í ár var það
i lýsisflutningum fyrir SR og 1.
apríl fór skipið utan í viðgerð,
en þar var og sett á það bóg-
skrúfa.
Skipið kom til Siglufjarðar
um miðjan maí í vor og var þá
unnið að breytingum á löndun-
arútbúnaði skipsins, enda kom
þá og til verkfalls yfirmanna á
skipunum um svipað leyti.
• •
Olvaður veltir
bíl og slasast
í FYRRINÓTT um kl. 03.40 var
hringt frá Varmadal í Mosfells-
sveit og tilkynnt að þair ihefði bif-
reið oltið. Er lögreglan kom á
staðinn var ökumaður ölvaður og
haifði siasast. Var hann fluttur i
Slysavarðstofuna og síðan í
Landakotsspítala, þar eð hann
reyndist kjálkabrotinn. Bifreiðin
var flutt í bæinn af Vöfcu.
>