Morgunblaðið - 27.08.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1967
23
likamsþrótti lengur en teJJast
mátti skynsamlegt og holt.
Sólbjörg var gestrisin og góð
heim að sækja og stóð heimili
hennar jafnan opið vinum
hennar og vandamönnum. Hún
var alvörugefin trúkona og unni
öllu því sem hreint var og fag-
urt, enda sjálf fjölhæf og góð-
um gáíum gædd. Það er að von-
um stórt skarð er naumast verð-
ur fyllt sem höggið er í vina
og venzlahópinn og það er naum
ast að við trúum því að hún Sól-
björg í Baldursheimi sé horfin
okkur sjónum svo skyndilega og
á góðum aldri hún sem ávallt
var svo hraust og þróttmikil i
glaðværö jafnt sem alvöru.
Við vinir Sólbjargar þökkum
guði fyrir að hafa þekkt hana
um áratugi og hafa fengið að
njóta ótakmarkaðrar vináttu
hennar og órofa tryggðar og
hjarta okkar er fullt af þakk-
læti fyrir allar björtu og fögru
minningarnar sem hún hefur
eftirlátið okkur á umliðnum ár-
um.
Börnum hennar, barnabörnum
svo og öðrum vinum og vanda-
mönnum vott ég innilegustu
samúð mína. Þegar ég nú stend
við hinzta hvílubeð þessarar
góðu og mikilhæfu konu bið
ég guð að blessa ástvinum henn-
ar minninguna um hana. Því að
ég er sannfærður um að það
verður ein.mitt hún sem verður
ástvinum huggun gegn harm-
inum.
Guð blessi þig að ieiðar'ok-
um Sólbjörg mín og hafrtí
hjartans þökk fyrir allt og allt.
Vinur
Frá barnaskólum Kógavogs
Öll skólaskyld þörn sem flutt hafa á síðastliðnu
hausti í Kópavogi og ekki hafa þegar verið inn-
rituð í skólana mæti til skráningar miðvikudag-
inn 30. ágúst kl. 2 e.h. hvert í skóla síns hverfis.
Einnig eru foreldrar beðnir að láta vita um þau
börn sem flytjast burt úr bænum eða á milli
skólahverfa.
Skóli fyrir yngri deildirnar hefst 1. sept. og mæti
aldursflokkarnir sem hér segir:
Börn fædd 1960, komi kl. 2 e.h.
Börn fædd 1959, komi kl. 3 e.h.
Börn fædd 1958, komi kl. 4 e.h.
Skóli fyrir eldri deildirnar byrjar 18. sept.
Nánar auglýst síðar. Kennarafundur verður í öll-
um skólunum 1. sept. kl. 1 e.h.
FRÆÐSLUFULLTIÍÚI.
kr. 19850
MJQQ VQNDUÐ
OB tbaustbyggo
EIIMFÖLD I IMOTKUIM
Sýnd á þvotta- og saumavélasýningunni
að
Hallveigarstöðum
ÓTTAR’ YNGVASON, hdl.
BLÖNDUHLfÐ 1, SÍMI 21296
VIÐTALST. KL. * — 6
MÁLFLUTNINGUR . LÖGFRÆÐISTÖRF
Hús til sölu á Skagaströnd
Húseign mín Sólvangur, Skagaströnd ásamt gripa-
húsum of 5 V2 hektara túns er til sölu, ef viðunandi
tilboð fæst. Húsið er laust nú þegar.
Ingibjörg Lárusdóttir.
Upplýsingar gefur Guðmundur Lárusson, Skaga-
strönd.
Hin vinsælu
RCA sjónvarpstæki
fáanleg í mörgum stærðum. Tveggja ára ábyrgð.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
Georg Ániundasyni og Co., Suðurlandsbraut 10.
Símar 35277 og 81180.
FORD CORTINA 1968 er lítið breyft eftir
hinor gagngerðu breytingar fyrra drs. —
Hinir fjölmörgu CORTINA - eigendur eru
beztu meðmælendurnir.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur
bifreiðinni mjúkan og öruggan akstur.
Gúmmihlífar yfir höggdeyfurum varna
skemmdum vegna óhreininda. Kraftmikil
miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður.
Mikið farangursrými.
SVEINN EGILSS0N H.E
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
UMBOÐSMENN AKRANES: BERGUR ARNBJÖRNSSON
OKKAR ÚTI Á LANDI- BOLUNGARVÍK: BERNÓDUS HALLDÓRSSON
SIGLUFJÖRÐUR: GESTUR FANNDAL
VESTM.EYJAR: BÍLALEIGAN A S.
GOLFKLÆÐNING
í FLÍSUM OG RULLUM
FRÁ DLW
FÆST I ÖLLUM GÓÐUM SÉRVERZLUNUM UM LAND ALLT