Morgunblaðið - 27.08.1967, Side 28

Morgunblaðið - 27.08.1967, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 1967 Alan V/iUiams: PLATSKEGGUR — Hvað heldurðu, að þeir geri? sagði Neil. — Reyna að kála þér. Báðum aðilum finnst þeir hafa orðið fyrir svikum af þinni há'lfu. Og svona kallar sleppa mönnum ekki með áminningu eina sam- an. Neil saup duglega á glasinu og Hudson veinaði: — Hvað er eig- inlega með þig, Tom: — Þú smakkar ekki á glasinu þínu, urraði Mallory. Svo sneri hann sér að Neil: — Sá af- greiðslumaðurinn þig koma inn. — Já. — Hvenær? — Fyrir svona kortéri. Mallory hristi rauða faxið og sagði: — Það er nú ekki lík- legt, að þeir hafist neitt að með- an bjart er — að minnsta kosti ekki fyrr en ró er komin á í borg inni. Það gefur okkur ofurlítinn gálgafrest. AUar lestir eru stöðv- aðar og vegirnir lokaðir. Þú gæt ir kannski reynt að komast burt á bátnum. En flugvöllurinn er þó beztur — ef hann opnast nógu snemma. Winston St. Leger kom nú inn, snyrtur og surfusaður, eins og hann væri að fara í boð. — Ég heyri, að þeir séu búnir að gef- ast upp, sagði hann og lagði hatt- inn sinn á barinn og stakk upp í sig einni ólívu. — Er það opinbert? hvæsti Hudson. — Svo skilst mér. — Fáðu þér einn lítinn, Win- ston, sagði Mallory. — Þakka þér fyrir einn gin, sagði St. Leger. — Við vorum í svolitlu kunn- ingjarabbi um hann Ingleby okkar, hélt Mallory áfram. — Hann er í ofurlítilli beyglu. Drykkurinn og félagsskapur- inn hressti Neil talsvert við. Hann sagði nú aftur sögu sína og nákvæmar en áður, þeim Hud- son og St. Leger. Hudson ham- aðist við að hraðrita niður það, sem hann heyrði og að því loknu sagði hann með spekingssvip: — Jæja, við erum búnir að vara þig við. Þú situr fallega í súpunni! — Haltu kjafti! sagði Mallory illkvitnislega. Svo sneri hann sér að St. Leger. — Hvað finnst þér? — Mér finnst þetta furðuleg saga, sagði St. Leger og kreisti ofurlítið úr tannsápuskáálápi á ólívu, — að yfirvöldin skuli enga vernd veita þér. Það er beinlín- is hneyksli. — Ef þú kemur sjálfum þér í svona vandræði, geturðu ekki bú izt við hjálp frá neinum, sagði Hudson. — Þú ert viss um, að Ali La Joconde sé dauður? Gott ......ég verð að komast í síma. — Skiptu þér eki af honum, sagði Mallory og hallaði stólnum óvarlega, svo að 'hann stóð á ein um fæti. — Þetta er fréttastofu- blesi, sem fær í magann, þegar hann heyrir einhver tíðindi. — Hefurðu reynt ræðismanns skrifstofuna? sagði St. Leger og saug stútinn á tannsápuskálpn- um. — Fjandinn 'hirði alla ræðis- menn, sagði Mallory, — iþeir eiga eins hægt með að drepa þig þar eins og hér. En það er bara meira varið í þða hér og hér er- um við fleiri. Neil mundi eftir uppástungu Pols: — Ræðismannisskrifstofan kynni að geta fengið stjórnina til að koma mér burt. — Það kynni að vera, en bara ekki eins fljótt og þú þarft. Þú verður að komast burt héðan fyrir miðnætti, eða í allra síð- asta lagoi í býtið á morgun. — Það gæti nú verið réttara formsins vegna að hafa tal af ræðismannsskrifstfunni, nauðaði St. Leger. — Formsins vegna! Neil gretti sig. — Það er nú lítið gagn í því með kúlu gegn um hausinn. — Jú, það er nokkuð til í því — Fáðu þér einn enn, sagði Mallory. — Ég ætti að vera farinn, sagði Neil. Hann var farinn að finna vel á sér. Röddin í Hudson heyrðist gegn um mikið þvarg af erlendum röddum. „Já, í guðs bænum, JOCON......... eins og Mona Lisa með J“. Mallory hélt upp tómu glasi sínu að barþjóriinum og væ'.di: — Þó ég sé ekkert unglamb lengur get ég sagt þér það, að bak við þetta peningaveski slær heitt hjarta og gjafmilt. — Fóstra! Stóllinn hans valt nú loksins fyrir alvöru og hafði næstum velt St. Leger um koli. — Ég sá, að svona mundi fara, sagði St. Leger önuglega, og Nei'l sagði aftur: — Ég verð að fara......taka saman dótið mitt..... — vertu kyrr og fáðu einn enn. Þú hefur nógan tíma. — Hann ætti að fara, til þess að vera viss, sagði Winston. — Viss! sagði Neil — Þú ge'- ir ofmikið að því að taka vægi- legia til orða. Nokkrir blaðamenn voru að koma ofan af þaki. Bardaganum hafði verið algjörlega hætt. Neil fór upp í lyftunni og gekk eftir ganginum. Hann hitti engar. og Lang-mest seldu filter sígarettur Ameríku Ávallt nýjar og ferskar frá U.S.A. Reynið Winston strax í dag eina hljóðið var í vindsnældun- um. Hann minntist þess, þegiar hann var síðast í þessu he^bergi. Þá höfðu mennirnir verið þar og beðið efíir honum, Afgreiðslu menniinir höfðu hleypt þeim Skólafatnaður Mikið úrval af Nælonúlpum Stretcihbuxum Peysum Pilsum Kjólum í daglegu starfi er hann háður þróun tímans — þeim öru breytingum, sem g e r a s t kringum hann. Hann les Frjálsa Verzlun — því hann er maðurinn, sem fylgist með. FRJALS VIERZLUIM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.