Morgunblaðið - 03.10.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKT. 1967
Valsmenn í 2. umferð Evrdpukeppninnar
Jafntefli í Esch 3 - 3 en Valur
vann á betra markphlutfalli
VALUR hefur fyrst íslenzkra liða tryggt sér rétt til keppni
í 2. umferð keppninnar um Evrópubikar meistaraliða. — Á
sunnudaginn léku þeir síðari leikinn við Jeunesse d’Essh
í Luxemborg og varð jafntefli, 3 mörk gegn 3. Fyrri leikn-
um hér í Reykjavík lauk einnig með jafntefli, 1:1, en þar
sem Valur skoraði fleiri mörk á útivelli telst sigurinn Vals-
manna og þeir halda áfram í keppninni. Hvaða lið þeir fá
í næstu umferð er ekki vitað enn, en dregið verður um það
hvaða lið leika saman.
Valsmenn náðu snemma góðum
tökum á leiknum og náðu for-
ystu þegar eftir 10
mín leik. Lagði Hermann Gunn-
arsson vel fyrir Reyni Jónsson,
sem skoraði af stuttufæri..
En Hermann lét ekki við þetta
sitja heldur jók forystu Vals á
35. mín með fallegu marki.
Staðan var 2:0 Val í vil í leik-
hléi.
Stundarfjórðungi eftir að síð-
ari hálfleikur hófst skoraði di
Genova (sá hinn sami og skor-
aði mark liðs síns hér í Reykja-
vík). En um miðjan hálfleikinn
eða á 22. mín bætti Hedmann
þriðja margi Vals við og leit nú
út fyrir öruggan sigur Vals.
En síðustu mínútur leiksins
voru Valsmönnum örlagaríkar.
Fjórum mínútum fyrir leikslok
skoraði de Genova annað mark
Jeunesse og á síðustu mínútu
leiksins var dæmd vítaspyrna á
Ensku
knottspyrnun
10. umferð ensku deilda-
keppninnar fór fram sl. laugar-
dag og urðu úrslit leikja þessi:
1. deild.
Burnley — Fulham 2-0
Cbelsea — Coventry 1-1
Leichester — Everton 0-2
Liverpool - - Stoke 2-1
Manchester C. — Manchester TJ.
1-2
Newcastle — Arser.ai 2-1
Sheffield W. — Wolverhampton
2-2
Southampton — N. Forest 2-1
Toitenham •— Sunderiand 3-0
W.B.A. — Sheffield U. 4-1
2. deild
Birmingham — Millwall 2-3
Bolton — Blackpool 1-2
Bristol City — Hull 3-3
Charlton — Plymouth 1-0
Crystal Palace — Q.P.R. 1-0
Derby — Portsmouth 0-1
Huddersfield — Blackburn 2-1
Ipswieh — Carlisle 3-1
Middesbrough — Aston Villa 1-1
Preston — Cardiff 3-0
Rotherham — Norwich 1-3
í Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Rangers — Hearts 1-1
Stirling — Celtic 0-4
Staðan er þá þessi:
1. deild.
1. Liverpool 15 stig
2. Sheffield W. 14 —
3. Arsenal 13 —
4. Tottenham 13 —
5. Manchester U. 12 —
í neðsta sætinu eru Leieester
með 5 stig og Sheffield U. og
Coventry með 6 stig hvort félag.
2. deild
1. Crystal Palace 16 stig
2. Blackf>ool 16 —
3. Portmouth 15 —
4. Q.P.R. 15 —
6. Derby 14 —
Val og Langer skorar — og jafn
ar.
Leikurinn var að sögn AP
fréttastofunnar spennandi og á
köflum vel leikinn. 7000 manns
voru á áhorfendabekkjunum.
Sannarlega er það vel af sér
vikið hjá Valsmönnum að hafa
tryggt sig í 2. umferð þessarar
miklu keppni um Evrópubikar-
inn, en vandamálin eru mörg og
erfitt að koma leikjum fyrir hér
heima þegar þessi árstími er
kominn. Benda. allar líkur til
að Valsmenn verði að Iieika báða
leikina í næstu umferð á útivelli,
þó ekkert sé um það ákveðið
ennþá. Yfirleitt er vont að fá er
lend lið til að leika um helgar
vegna fastra skor'ða á deildar-
keppni erlendis, en hér kemur
vart annað til greina en að leika
um helgi, þar sem lýsing er ekki
til á leikvelli hér og eins vegna
áhorfenda.
- SAS
Framhald af bls. 32
Grænlands, sem jafnframt mundi
styrkja Flugfélag íslands, sem
SAS hefur þegar samvinnu við,
m.a. um Færeyjaflugið. Hinsveg
ar hefur SAS mikinn áhuga á
að fá sinn ihlut í ágóðanum af
fyrirsjáanlega vaxanði áhuga
ferðamanna á Grænlandi. Fyrir-
■hugsað er að ráðast í tölu verðar
gistiihúsabyggingar á Grænlandi.
Landsráðið samþykkti nýlega
með þrettán atkvæðum af saut-
ján að leggja út í gistihúsabygg-
ingar á þann veg, að það legði
fram fjórðung hlutafjár í hluta-
félagi sem stofnað yrði í þessu
skyni. Aðrir hluthafar yrðu
grænlenzka flugfél. Grænlands-
flug, SAS og danska ferðaskrif-
stofan Aerolioyd. — Gistilhúsin
yrðu reist á Suður-Grænlandi og
á svæðinu við Godthaabsfjörð.
— Rytgaard.
Morgunblaðið hafði í gær-
kveldi samband við Örn John-
son framkvæmdastjóra Flugfé-
lags Islands og spurði hann frek
ari fregna af þessu máli. Hann
kvaðst ekki vita nema lítið um
þessar hugmyndir SAS-manna
og litið geta um þær sagt, nema
að þessi fregn fréttaritara Morg
unblaðsins gæti vel átt við rök
að styðjast. — „Við höfum
heyrt á þeim hjá SAS, að þeir
hyggi á flug til íslands og þeir
hafa einnig fært í tal við okk-
ur möguleika á einhverri sam-
vinnu um flutmnga til Græn-
lands. En eins og ég sagði, veit
ég ekki mikið um þetta. — Hugs
anlegt er þó, að viðræður fari
fram milli SAS og Flugfélags
íslands um þetta mál innan tíð
ar, væntanlega þá 5 þessum mán
uði, en við höfum hvorki ákveð
ið stað né stund fyrir þær við-
ræður. Hvernig þessu samstarfi
eða flutningum yrði hagað, ef
til kæmi, get ég ekkert um sagt
— við viljum vita betur hvað
fyrir þeim vakir, áður en við
segjum nokkuð ákveðið um und
irtektir.
120 millj. kr.
boði hafnað
AÐ vísu kemur vafalaust á sín-
um tíma að íslenzka sjónvarpið
þarf að semja við knattspymu-
forustuna hér, um beint sjón-
varp frá knattspyrnukappleikj-
um og er því fróðlegt að fylgj-
ast með því sem gerist erlendis
á þessu sviði.
Á vegum knattspyrnusam-
bands Evrópu er starfandíi nefnd
4 manna, sem hefur m.a. það
verkefni að semja um greiðsl-
ur fyrir sjónvarp frá stórleikj-
um sem fram fara undir stjórn
Knattsp.sambands Evrópu (UEF
A). Björgvin Schram, formaður
KSI á sæti í nefnd þessari og
er hann nýkominn heim frá
Genf, en þar fóru samningaum-
ræður milli nefndarinnar og
fulltrúa frá samtökum sjón-
varpsstöðva Evrópu, um sjón-
varp frá helztu ieikjum á árinu
1968.
Til marks um hve hátt sjón-
varpið metur beinar útsending-
ar frá knattspyrnukappleikjum,
má geta þess að samtök sjón-
varpsstöðva í Vestur-Evrópu
buðu sem svarar 10 milljónum
ísl. króna fyrir rétt til að fá
að sjónvarpa- frá tveim úrslita-
leikjum á næsta ári, þ.e. úrslit-
um í keppni meistaraliða og
meistaraliða og bikarmeistara.
Það skilyrði fylgir tiiboðinu að
öll knattspyrnusambönd þeirra
landa (15 lönd alls) sem hlut
eiga að máli, lejdi beint sjón-
varp frá þessum úrslitaleikjum.
Tilboð þetta er nú til athugun-
ar og mun verða borið undir
viðkomandi knattspyrnusam-
bönd á næstunni.
Þá má geta þess til fróðleiks
að BBC sjónvarpið í Englandi
mun hafa boðið 120 milljónir
ísl. kr. fyrir rétt til að fá að
sjónvarpa beint frá 25 kappleikj
um í ensku deildarkeppninni nú
í vetur. Tilboði þessu var hafn
að þar sem það var ekki talið
aðgengilegt.
(Frétt frá KSÍ).
Ellert Schram vann
leikinn fyrir KR
KR vann Keflavík í Bikar-
keppni KSÍ á sunnudag með 2
mörkum gegn 1. Lengi framan
af ieit út fyrir sigur Keflvík-
inga, en KR-ingar tóku það til
bragðs í síðari hálfleik að setja
Ellert Schram í sóknarlinu og
hann skoraði þau tvö mörk er
þurfti til sigurs.
Leikurinn var slakur að því
er varðar allar hliðar knatt-
spyrnu. Keflvíkingar áttu fram
an af allt frumkvæði leiksins
og skoruðu eina markið sem
skorað var í fyrri hálfleik. Það
var Einar Gunnarsson, sem not-
færði sér vel varnarmistök á
miðju KR-varnarinnar.
Sigur Keflvíkinga virtist aug-
Ijós allt þar til 15 mín. voru
eftir af leik. Þá hafði Ellert
Schram tekið sér stöðu í fram-
línu og skoraði þegar mark af
vítateig með þrumuskoti sem
Kjartan markvörður Keflvík-
ingá fékk ekki ráðið við. Tveim
mín. fyrir leikslok tryggði Ell-
ert svo sigur KR í leiknum með
marki, skorað upp úr þvögu við
mark Keflavíkur.
Sigurmarkið var að vísu
heppnismark, en sannarlega
geta KR-ingar þakkað Ellert
unna dáð — og sigur í þessum
leik.
Það var kalt á Melavellinum 'á
sunnudaginn, haustaði að í
knattspyrnunni.
1:1 í leik, 4:4 í vítaspyrnum
en Fram vann á hlutkesti
Góður og skemmtilegur
leikur á Akureyri
AKUREYRINGAR og Fram háðu
skemmtilegan og spennandi leik
í bikarkeppninni á laugardag-
inn. Svo fór að lokum að varpa
varð hlutkesti um það hvoru
megin sigurinn skyldi vera og
kom upp hlutur Fram. „Það var
orðið all skuggsýnt, en við sáum
fyrirliða Fram hoppa í loft upp
af gleði, þá er dórnarinn varp-
aði hlutkestinum — tveggja
króna peningi. Það leyndi sér
ekki hvoru megin sigurinn hafði
lent“, sagði fréttaritari Mbl.
Bæði lið sýndu góðan leik.
Fram liðið sþtti meira í byrjun
leiksins en smám saman snerist
hlutverkið, við og er á leið voru
Akureyringar nær óslitið í sókn.
Bæði mörk leiksins voru skor-
uð í síðari hálfleik. Fram skoraði
hið fyrra upp úr aukaspyrniu og
var skotið algerlega óverjandi.
Þetta gerðist á 11. mín. síð. hálf-
leiks.
Jöfnunarmarkið var skorað er
10 mín. voru til leiksloka. Magn-
ús Jónatansson spyrnti að marki
af 25-30 m færi og' knötturinn
þaut gegnum allan varnarmúrinn
í um það bil meteráhæð frá
jörðu og snerti ekkert fyrr en
hann hitt marknetið. „Þetta er
eitt voldugasta markskot, sem
ég hef séð“, sagði fréttamaður
Mbl.
Eftir að Framarar náðu for-
ystu í leiknum snemima í fyrri
hálfleik drógu þeir allt lið sitt
í vörn. En þá er Akureyringum
tókst að jafna breyttist leikurinn
og færðist í hann nýtt líf og
fjör.
En allt kom fyrir ekki og liið-
in voru jöfn — eftir jafnan leik
— að venj.ulegum leiktíma lokn-
um. Var þá framlengt í 2x15
mín. en ekkert skeði á þeim
tíma.
Kotm þá til vítaspyrnúkeppni
og skoraði hvort lið 4 mörk. Eitt
skot hjá hvoru liði hæfði ekki
markið.
Samkvæmt reglum keppninn-
ar kom þá til hlutkestis um sig-
urinn og Jóhannes Atlason fyrir-
liði Fram valdi „kórónuna" og
hún kom upp. Fram var með því
komið í 4 liða úrslit í Bikar-
keppni KSÍ 1967. Svona mjótt
getur verið á roununum og slík
heppni ráðið gengi liða.
Marktækifæri Akureyringa
voru hins vegar bæði fleiri og
hættulegri. Bæði Skúli og Kári
komust í „dauðafæri“ en mis-
tókst herfilega.