Morgunblaðið - 22.11.1967, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 22.11.1967, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. NÓV. 1967 17 - ÞINGFLOKKUR Framlhald af bls. 1 segja af sér. Var það Austen Al'bu, sem sagði, að nýir menn ættu að hefja nýja stefnu — en ekki þeir, sem hefðu neytt Breta út í síðustu gryfjuna. Houghton sagði, að flokkur- inn stæði að baki þeim Gallag- han og Wilson, að minnsta kosti í bili, — hinsvegar hefðu heyrzt raddir, sem ékki væru samþykk ar frekari kauþbindingu, sér- staklega innan vinstri armsins. Stjórnmálasérfræðingar hafa hinsvegar rætt mjög um, að kaupbinding sé nauðsynleg til þess að ekki verði að engu gert það, sem áunnizt getur með geng isfellingunni. Einn af helztu framiámönnum í brezka iðnaðin- um sagði í gærkveldi eftir funu með fulltrúum stjórnarinnar, að gripa yrði til róttækra áðstaf- ana til þess að koma í veg fyrir launakröfuöldu, er skylli í kjöl- far gengisbreytingarinnar. IHoughton sagði, að Gallag'han hefði sagt á flokksfundinum, að launahækkanir mundu alger- lega grafa und-an hinum já- kvæðu áhrifum gengislækkunar- innar. Hann taldi, að nokkur tími mundi líða, áður en ljóst yrði, hver stefna yrði i launa- kröfum og þann tíma mundi stjórnin nota til þess að ræða miálin við framleiðendur og verkalýðinn og kanna' hvað þess ir aðilar vildu sjáilfviljugir á sig leggja. Atkvæðagreiðsla annað kvöld í NTB-frétt segir, að búast megi við víðtækum breytingum í brezku stjórninm. Hefur þó ekkert komið fram hjá brezkum ráðherrum er réttlætir þá skoð- un, sem sögð er ríkjandi meðai stjórnmálasérfræðinga, og fyrst og fremst byggð á ummælum Gallaghans í Neðri málsstofunni í gær, er hann varði gengislækk unina. Sem fyrr segir hófust í dag tveggja daga umræður um geng- islækkunina. Búizt var við, að stjórnarandstaðan mundi leggja fram vantrauststillögu í upþhafi, en það gerði hún ekki, svo að umræðurnar fóru fram á grund- 'velli tillögu ríkisstjórnarinnar um, að þingið samþykkti geng- isfellinguna. Ljóst er, að hún verður samþykkt, þar sem Verkamannaflokkurinn hefur yfirgnæfandi meirihiuta. Einnig. er hugsaniegt, að þingmenn frjálslyndra, tólf talsins, styðji tillöguna éða sitji hjá en íhalds- menn greiða ugglaust atkvæði á móti. Atkvæðagreiðsla fer fram annað kvöld. Áður en sjálfar umræðurna. hófust í dag, var spurningatími, þar sem ráðherrar, þar á meðal Wilson og Gallaghan, svöriíðu spurningum þingmanna. Wilson sagði þá, að Bretar ættu nú eftir gengisfellinguna að hafa miklu meiri möguleika en áður á að fá inngöngu í Efnahagsbandalag Evr'pu. >eir, sem svo hefðu lit- ið á, að staða pundsins, eins og hún var, stæði í vegi fyrir aðild, hlytu nú að endurskoða afstöðu sína. Einn þingwianna spurði Wil- ison, hvort ekki væri ráð, að hann tæki upp persónulegt sam- band við De Gaulle, forseta Frakklandfi, og fengi hann ;il að gera fultkomna grein fyrir afstöðu sinni til aðildar Bret- - MINNING F. amhald af bls. 18. svo mjög einkenndi ömmu og aia. Eftir lát Tómasar bjó Guðrún enn um nokkurt skeið, í Bröttu- götu og síðan í húsi sonar síns, Þorgrims og Ingibjargar, tengda- dóttur sinnar, — í lítilli en mjög vistiegri íbúð. Þangað lá leiðin oft cg þótt Guðrún, hin síðari ár, hafi oft átt við heilsubrest að striða var hún ávallt söm við sig, æðrulaus, síveitandi og sífræð- andi. í>að er mikið lífslán, og mér- til ' maél'ds ávinnings, að hafa átt þess kost að kynnast og eiga að vini jafn ágæta konu. Þ.Þ. landfi. Því svaraði Wilson til, að samkvæmt Róimarsáttmálanum skyldu viðræður um aðild fara fram við bandalagið í heild en ekki einstök aðildarríki þess. Gallaghan svaraði fyrirspurn- um um hlutverk pundsins sem alþjóðlegs gjaldmiðils: Hafa Frakkar m.a. gert þá kröfu, að hætt verði að nota pundið þanniig, áður en Bretar fái aðild að Efnahagsbandalaginu. Það sagðí Gallaghan ekki koma til greina, a.m.k. ekki fyrr en einbver önnur leið hefði verið fundin, sem fulilnægjandi væri fyrir þær þjóðir, er miðuðu við sterlingspundið. Að því er NTB segir, má búast við, að gengisfellingin í Bret- landi komi þar niður, sem áhrif- anna gæti hvað mest og beinast — Þ.e.a.s. í búri Bretans. Mat- vörukaupmenn staðhæfa, að matarreikningar húsmæðranna fyrir vikuna muni hækka þegar um að minnista kosti þrjú pró- sent og jólin verði þeiim eflaust dýr. Talið er, að verðhækkunin komi fyrst fram á inntfluttum þurrkuðum ávöxtum, niðursoðnu kjöti, ávöxtum í dósum og grænmeti. Áhrifin frá öðrum löndum Margar þjóðir hafa fylgt í. kjölfar Breta og lækkað gengi gjaldmiðils síns. í gær var sagt, að Danmörk, ísrael, írland, Spánn., Hong Kong, Malawi og Malta hefðu farið að dæmi Breta. Síðan hafa bætzt í hóp- inn Nýja Sjáland, Kýpur, Gambia, Jamaica, Br. Houduras og eyjaklassinn Mauritius — sem fær sálfstæði 12. marz nk. Grískum bönkum hefur verið bannað að kaupa sterlingspund og er uppi hávær orðrómur um væntanlega gengisfeillingu. . En talsmaður stjórnarinnar neitar og segir, að á morgun. verði aftur leyfð kaup á pundum, enda hafi felling gengis sterlingspundsms engin áhritf á verðgildi gríska gjaldmiðilsins, þar sem hann sé varinn gulli og dollurum. í frétt frá Nairobi í Kenya segir, að stjórnir Kenya, Uganda og Tanzaniu hafi ákveðið að fella gengið. Áður hafði stjórn Ghana tilkynnt hið sama — en þar var gengið fellt um 30% í júlí sl. í Hong Kong er viðbúið, að gengisfelling verði mjög til að rýra kjör íbúanna, þar sem 99% eru Kínverjar og 90% þeirra búa við bág launakjör. Er óttast, að afleiðingarnar verði ekki glæsilegar, aukin ólga og e.t.v. uppþot og óeirðir. Þegar í dag höfðu hundruð smáverzl- ana hækkað vöruverð um allt að því 18—20%. Líta embættis- menn og stjórnmálamenn til þess með kvíða, sem gerast kann á komandi vikum, þegar verð á hrísgrjónum, kjöti og grænmeti fer að hækka. Stjórn Sýrlands hefur til- kynnt, að þar verði ekki gengis- lækkun. Hinsvegar var takmörk- uð gengisfelling í Malaysíu og Singapore. Þar hafa stjórnarvöld smám saman verið að fella úr gildi hinn gamla Malayadollar, sem var sterlingstryggður og inn leiða þess í stað gulltryggðan dolíar. Sá fyrrgreindi féll í verði um leið og sterlingspundið og kom til vandræða í dag, þegar verzlanir neituðu að taka við öðru en gullvörðu myntinni. Þar sem ekki er ennþá nóg af henni í umferð, var stundum gripið til vöruskipta í stað peningavið- skipta. Síðar í dag kom til óeirða og varð lögregla að beita tára- gasi til þess að dreifa hóp manna er mótmæltu gengislækk- uninni. Stjórnin telur að ennþá séu í umferð gamlir sterlings- tryggðir dollarar fyrir upphæð, sem nemur um 200 milljónum bandarískra dala. Eru það tveir fimmtu hlutar alls gjaldmiðils i umferð. Á peningamarkaðinum í Par- ísarborg bar mikið á gullkaup- um í dag. Komst 20 franka Napoleons gullpeningurinn, sem hefur síðustu daga staðið í 50.80 frönkum upp í 52.10 franka eða 10.42 dollara. 20 dollara gullpen. ingar seldust á 247.60 franka, 49.52 dollara en voru áður í 244.40 frönkum eða 48.88 doll- urum. Þá segir í AP-frétt frá Jóhann esarborg, að þar hafi gull hækk að í verði um 10% og mikill æsingur verið í fjármálalífinu í dag. í gær var allt með kyrr- um kjörum, þar eð gjaldeyris- afgreiðslum var lokað. Vaxtahækkanir víðar? Fjármálaráðherra Japans lýsti því yfir í dag, að hann væri uggandi um, að vaxtahækkunin í Bretlandi mundi valda vaxta- hækkun í fleiri löndum. Hann kvað stjórn lands síns reiðubúna a‘ð taka þátt í ráðstöfunum til þess að styrkja sterlingspundið og stöðu þess í alþjóðaviðskipt- um. Vaxtahækkuninni hefur þ.egar fylgt vaxtahækkun í Bandaríkj- unum. Hækkuðu fyrstir vexti ,,The National City Bank otf New York“, þriðji stærvsti banki í Bandaríkjunum og „Manufac- turers Hanover", úr 5%% upp í 6%. Er líklegt talið, að aðrir bankar fylgi á eftir. Gengisfellingin í Bretlandi er töluvert áfall útibúum banda- rískra bílaframleiðenda í Bret- landi. Þar sem kaupgeta Breta verður nú minni, verður allt kapp lagt á að auka útflutning. Með gengisfellingunni verða bif- rei'ðar, smíðaðar í Bretlandi, í betri samkeppnisaðstöðu á banda ríska márkaðinum gagnvart t. d. Volkswagen-bifreiðinni þýzku, sem þar hefur verið söluhæsti evrópski bíllinn. Sem dæmi um bílverð segir AP, að fjögurra dyra Ford Cortina, sem kostaði í Bandaríkjunum 1943,93 doll- ara muni nú lækka niður í 1666 dollara, og verða ódýrari en Volkswagen. Danmörk og Noregur. Svo sem frá var skýrt í frétt- um í gær, felldu Danir gengi dönsku krónunnar, þegar eftir að brezka pundið var fellt. I gærkveldi samþykkti danska þingið stjórnarfrumvarp um það, sem Danir kalla ,,avancestop“, en samkvæmt því, er komið í veg fyrir, að þegar í stað hækki ver’ð á þeim vórum, sem fyrirsjáan- legt er að gengisfellingin valdi hækkun á — þ.e.a.s. að verð- hækkunin má ekki koma fyrr en á næstu vörusendingar, en þær vörur, sem þegar eru til á lager, verða að seljast með gamla verð- inu. Er búizt við allmiklu hamstri danskra kaupenda á næstunni. SAS flugfélagasamsteypan hef ur þegar hækkað fargjöld, sem seld eru fyrir danskar krón- ur. Er hækkunin 7.9% og til þess gerð að halda samræmi milli far- miðaverðs í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Að lokum skal geti'ð um- mæla viðskiptamálaráðherra Noregs er hann viðhafði á fundi norska stórþingsins í dag. Hann sagði, að gengisfellingin í Brét- landi mundi baka Norðmönnum geysimikið tjón, þar sem þeir ættu talsverðar innstæður í pund um — sérstaklega vegna skipa- flutninganna — sem yrði að breyta í annan gjaldeyri. „Það liggur í hlutarins eðli“, sagði Willock að ekki er hægt að reikna slíkt tap nákvæmlega út, en óhætt mun að segja, að Nor- egur hafi í heild orðið allmiklu fátækari en áður eftir gengisfell inguna í Bretlandi. Og breyting á norsku krónunni getur með engu móti bætt upp þetta tap“. Hann taldi ekki, að gjaldeyris- staða Norðmanna mundi batna við gengisfellingu — hins vegar væri því ekki að neita, að rpjög mundi harðna samkeppnisaðstaða norska útfl.ingsins nú að brezka genginu felldu. Fyrst og fremsit mundi þetta bitna á þeim aðil- um, sem seldu til Bretlands og Danmerkur en fyrirtæki í þess- um tveimur löndum, svo og öðr- um löndum, sem felldu gengi Gísli Gíslason stór- kaupm. fimmtugur GÍSLI Gíslason er fæddur í Vest- mannaeyjum 22. nóvember 1917. Foreldrar hans voru hjónin Rannveig Vilhjálmsdóttir og Gísli Þórðarson, vélstjóri og sjó- maður í Vestmannaeyjum. Gísli missti föður sinn þegar hann var barn, að aldri, .en móðir hans giftist aftúr, Viggó Björnssyni, bankastjóra í Vestmahnaeyjum. Hefur Gísli oft minnst þess, að stjúpfaðirinn hafi verið honum mjög góður. Gísli útskrifaðist úr Verzlun- arskóla íslands 1936. Hann starf- aði í Útvegsbankanum í Vest- mannaeyjum á árunum 1936 til 1939. Hann- stofnaði heildverzl- un i Vestmannaeyjum á þessum árum, og hefir stjórna'ð henni síðan með miklum dugnaði og myndarskap. Árið 1945 stofnaði Gísli prent- smiðjuna „Eyrún h.f.“, og er hann stjórnarformaður í því fyrirtæki. Árið 1958 var Haf- skíp h.f. stofnað, og er Gísli stjórnartformaður í því tfélagi og hefur sýnt þar, eins og annars staðar, mikinn dugnað og ár- vekni. Hann var forseti bæjar- stjórnar Vestmannaeyja 1962— ’66 og er enn i bæjarstjórn. Gísli er í stjórn Oddfellow-stúkunnar „Iíerjólfur" í Vestmannaeyjum. Hann er í fulltrúaráði Sjálfstæð- isflokksins í Vestmannaeyjum og er mjög áhugasamur um flokks- málin. Af því, sem hér hefur verið á minnst, sem er þó ekki nema lítill hluti af þeim störfum, sem Gísli hefur með höndum, er aúg- ljóst að hann hefur nóg áð starfa. Gísli hefir sagt, að tíminn væri dýrmætur og dagurinn oft of stuttur, til þess að ljúka öllum þeim verkefnum, sem fyrir liggja. Því hefir hann tamið sér algjörlega reglusemi og gengur að hverju verki með dugnaði og fyrirfram gerðri áætlun um, hvernig verkefnin skuli verða leyst. Það er ánægjulegt til þess að vita, þegar- ungir menn skipu- leggja þannig störfin, og verja tímanum eins og bezt verður á kosið. Fimmtugur maður er enn á bezta aldri og það er því af- mælisósk mín, að heilsa Gísla megi næstu áratugina verða þannig, a'ð hann hafi starfsþrek til þess að vinna eins og að undanförnu. Það er öruggt, að hann vill láta gott af sér leiða og byggðarlagið og þjóðin munu njóta starfanna meðan starfsþrek hans endist. Þessi sívinnandi athafnamað- ur, hefir áunnið sér traust allra sem hafa kynnst honum og sam- skipti hafa við hann. Gísli er giftur ágætri konu, Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, rafstöðvar- stjóra Jónssonar frá Vestmanna- eyjum. Eiga þau fjögur mann- vænleg börn og fyrirmyndar heimili. Oft er gestkvæmt hjá þeim hjónum, enda gestrisni og hjálp- semi við þá, sem til þeirra leita, löngu viðurkennd. Það er fyrir löngu kunnugt, að margir leita ráða hjá Gísla þegar að vanda ber að höndum, og hef- ir hann lagt sig mjög fram um að verða þeim, sem til hans leita að liði. Vinsældir Gísla eru mjög miklar, bæði í Vestmannaeyjum og víðar. Aðalstarfssvið Gísla hefir ver- ið í Vestmannaeyjum, þótt hon- um í seinni tíð hafi verið falin mikilvæg störf utan heimabyggð arinnar. Tryggð hans vfð Vest- mannaeyjar og Vestmannaeyinga er mikil og annars staðar en í Vestmannaeyjum getur hann ekki hugsað sér að eiga heima. í dag munu margir heim- sækja Gísla og færa honum og og fjölskyldunni heillaóskir í til- efni afmælisins. Ég vil, með þessum fáu línum, færa Gísla og skylduliði hans mínar beztu heillaóskir, með þökk fyrir ágæta viðkynningu á liðnum árum. í. J. sitt, fengju hagstæðari sam- keppnisaðstöðu en áður á norsk um markaði. Þó maétti gera ráð fyrir, að útflutningsvörur þess- ara landa mundu hæk-ka eitt- hvað í verði, vegna hækkandi verðlags á vörum, er þangað væru fluttar og útflutningsfram- leiðsla þessara landa þyrfti á að halda. Hann ræddi m.a. um fiskveiðar Norðmanna, sem mundu fá verri samkeppnisaðstöðu en áður, en þar mundi á móti koma hækk- andi tilkositnaður í löndunum, sem fellt hefðu gengið, og óhjá- kvæmilega kæmi aftur fram í út- flutningsverðiniu. Norskur fiskiðnaður verður fyrir miklu tjóni af völdum geng isfellingarinnar, að því er NTB segir. Fyrir utan hreint og tafar- laust gjaldeyristap kemur þetta niður á birgðum, sem þegar eru tilbúnar til að senda á Bretlands- markað. Formaður norska fiski- mannasambandsins hefur lýst því yfir, að fiskimenn geti ekki ein- ir tekið á sig það tap. sem verði vegna lægra fiskverðs og telur einsýnt, að norska stjórnin verði að gera einhverjar gagnráðstafan ir. Ljóst er, að tapið kemur einn- ig niður á skreiðarsölunni til Nígeríu, enda þótt Nigería hafi ekki fellt sitt gengi, — því að salan hefur alltaf farið fram um London og greiðslur verið í | Sterlingspundum... - SNJOKARLINN Framhald af bls. 11. riðið með Dodda ofgert frá hötf- undarins hendi. Síríus var leik- in atf Jónínu M. Ólafsdóttur, tfuSI- trúi Sólar af Stefaníu Svein- bjarnardóttur og pörupiltarnir Mars og Merkúr (eða Palli og Pési í vöku) af Þórunni Sig- urðardóttur og Soffiu G. Jaik- obsdóttur, og er þá upptalið uppheimalið, nema sjö ungar dainsmeyjar undir stjórn Bryn- dísar Schram sem fóru með hlut- verk Sjöstjörnunnar og gerðu það laglega. Óli og Ása voru leikin atf ungum og lítt reyndum leikend- um, Gunnari Borgarssyni og Sigrúnu Björnsdóttur sem fóru með hlutverk sín af furðumiklu öryggi, þó fraimsögnin væri nokkuð óskýr með köflum. Kom það einkum að sök þegar þau sneru sér friá áhorfenduni, og ætti að vera létt verk að leið- rétta þau mistök. Foreldra þeirra léku Guðrún Ásmunds- dóttir og Karl Guðmundsson, lit.il hlutvenk en launkímin. Sýningunni á sunnudaginn var vel tekið atf hinum ungu áhorfendum, og var leikendum, leikstjóra, höfundi og tónskáldi j vel fagnað í leiikslok. | l Sigurður A. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.