Morgunblaðið - 01.12.1967, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.12.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DES. 1967 3 FYRSTI þjóðgarðurinn, eða nátt- úruvemdarsvæðið í Vestur Indí- um var opinberlega opnað sunnu daginn 5. nóvember á Trinidad, og ber nafnið „The AsAa Wright Nature Centre". Sir Hugh Wood- ing, yfirdómari opnaði þjóðgarð- inn, og er hann einn fegursti staður á Trinidad. Sjóður hefur verið stofnaður til styrktar viðhalda á svæ’ðinu og nefnist sá „Ása Wringht Centre Fund“. Svæði þetta er meir en 193.000 ekrur og er efst í Arima dalnum. Frú Ása Wringht, sem allt þetta gefur, er íslendingum áður að góðu kunn, og hefur einnig gefið stórgjafir til íslands, svo sem allt bókasafn sitt til Bessa- staða, ýmsa dýrgripi úr búi sínu til Þjóðminjasafnsins, og margt fleira. Hún er ættuð úr Stykk- ishólmi, dóttir hjónanna Guð- mundar Guðmundssonar og Arn- dísar Jónsdóttur, konu hans. Frú Ása giftist enskum plantekru- eiganda, Wringht að nafni, og settust þau að á Trinidad. Frú Asa er nú ekkja, en rekur plant- ekru sína enn, þótt hún sé orðin 76 ára. Frú Wríght hefur áður byggt við heimili sitt, Spring Hill Estate, hús, sem hún hefur hýst fuglafræðinga og fuglasko’ðara í, og vill hún halda því áfram og, að þjóðgarðurinn verði nokkurs konar Mývatnssveit Trinidad. Talsvert hefur verið af svo- nefndum olíufugli á Trinidad, merkilegum feitum fugli, sem aðallega lifir á kakóbaunum, og sem íbúðar Trinidad hafa drepið mikið af vegna fitunnar, og uiot- að í ljósmeti. Nú hefur gengið tvöluverí á stofninn á Trinidad, annarsstaðar en á landareign frú Wringht. wBk ' Mynd af frú Ásu Wringht og Sir Hugh Wooding er hann sskrifar í gestabók á heimili hennar á Spring Hill Estate. Brautrv^jendastarf íslenzkrar konu á Trinidad Fred Whitehead verður um sjónarmaður stofnunarinnar. Hlutverk sjóðs frú Asu Wringht verður einnig það, að vernda náttúru Trinidad og Tobago me’ð því að glæða áhuga á náttúrufræði í samvinnu við Háskólann í Vestur Indíum í St. Augustine. Nefnd var kosin til að annast mál stofnunarinnar, og var Dr. Brian Aianscough, náttúrufræð- iijgur við Háskólann í Vestur Indíum kosinn formaður, en Mr. í opnunaræðu sinni skoraði Sir Hugh á íbúa á Trinidad að gefa fé til stofnunar þessarar, og sagði það álit sitt, að þeir ættu að vera þessum framkvæmdum skyldir á jákvæðan og hag- kvæman hátt, og með gjöfum gætu þeir vottað þakklæti og virðingu í garð frú Ásu Wright, og sýnt náttúru lands síns til- hlýðilega athygli og þannig tryggt framtíð þessarar stofnun- ar. Hann talaði af mikilli að- dáun um frú Wright, sjötíu og sex ára, sem hefði varðveitt náttúru landareignar sinnar með ágætum síðustu tuttugu og tvö árin. Hann minntist einnig á. Mr. Don Nckleberry, sem er amerískur fuglafræðingur og listamaður, nokkurskonar Peter Scott Ameríkana. Hann kvað hann hafa veitt frú Wright ómet anlegan styrk og stuðning. Mr. Eckleberry sagði einnig nokkur orð við þetta tækifæri. Meðal gesta er viðstaddir voru þessa hátíðlegu áthöfn voru brezki landsstjórinn Sir Peter Hampshire og Ladly Hamphire, Höfuðsmaður, Roy Alston og frú Alston. Kúrdar setja Iransstjórn úrslitakosti Kúrdar í Norður-írak' hafa nú sett íraksstjórn úrslitakosti og segja þeir að verði stjórnin ekki við kröfum Kúrda íyrir fimmtu dag n.k. muni Kúrdar hætta öll- um afskipum af innanríkismál- um, ráðherrar þeirra í stjórn landsins segja af sér, Kúrdar all ir hverfa aftur til víggirtra þorpa sinna nyrzt í landinu og hefja aftur rekstur ólöglegrar út- varpsstöðvar Kúrda. Segja Kúrd- ar að loforð þau sem íraksstjórn hafi gefið þeim, legðu þeir nið- ur vopn og sættust við aðra lands menn, hafi ekki verið efnd en í samningum þeim sem gerðir voru með Kúrdum og íraks- stjórn var kveðið á um sjálf- stjórn Kúrda í ýmsum héruðum þeirra. Ekki hóta Kúrdar vopna viðskiptum að sinni, enda vetrar riki of mikið í norðurhéruðun- um til þess að þar verði barizt svo nokkru nemi fyrr en að vori. Frú Ása Wright, Slr Hugh Wooding og fleiri tignir gestir á opnunardaginn. STAKSTEIMAR Með blandinni gleði Það var eftir því tekið, þegar Tíminn birti í fyrradag frétt af fundi í Framsóknarfélagi Reykja víkur, þar sem Kristján nokkur Thorlaciutý, formaður B.SJtB., lýsti því yfir, að forseti ASÍ hefði „brugðizt forustuhlutverki KÍnu“ í samningaviðræðum við ríkisjtjórnina. Miðstjórn ASt kom saman til fundar þegar sama dag og gaf út yfirlýsingu, sem nndirrituð var af öllum mið s'íjornarmönnum ASÍ að forset- anum sjálfum undansikildum, þar sem þesgum ummælum for- manns B.S.R.B. var lýsit sem „til hæfulausum og ósönnum” »g jafnframt tekið fram, að slík ummæli mundu „valda tor- tryggni“ milli þessara tveggja félagasamtaka og loks lýst yfir trausti á núverandi forseta ASÍ. Undir þetta skrifar m.a. Óðinn Rögn valdsson ,einn af frambjóð- endum Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosningarnar í fyrra, og er ekki vafi á því, að honum hefur verið það einskær ánægja að skrifa undir þessa yf- irlýsingu. Það er hins vegar ekki jafnvist, að Þjóðviljinn hafi birt þessa yfirlýsingu með jafn óblandinni ánægju og Óðinn hef ur skrifað undir hana. -Geð- vonzka Þjóðviljaritstjóranna leynir aldrei á sér, og ekki þarf að efast um að slík yfirlýsing hefði hlotið meira rúm á síðum Þjóðviljans, ef sá sem veitzt var að hefði t.d. heitið Eðvarð Sig- urðsson. Það var því blandin gelði á þeim báe þegar þessi yf- irlýsing barst Þjóðviljanum í hendur í fyrrakvöld. Hvers vegna var íréttin birt? Viðbrögð Þjóðviljans skipta þó minnstu máli í þesisu efni. Mun fróðlegra er að velta fyrir sér hvers vegna Tíminn yfirleitt birti þessa frétt því að blaðið er ekkert feimið við að stinga und- ir stól fréttum, sem þvi líkar illa. Augljóst er að þessi um- mæli formannis B.S.RiB. voru mjög til bess fallin að vekja úlf- úð innan ASÍ og í ljusi þess að B.S.R.B. hefur mjög leitazt við að hengja sig afían í ASÍ að undanförnu eru þessi ummæli mjög klaufaleg, nema þau hafi einungis verið ætluð til innan- flokksneyzlu. Það er eina skyn- samlega skýringin á slíkum um- mælum formanns B.S.R.B. — jafnvel þótt hann heiti Kristján Thorlacíus. En hv.ið hefur þá gerzt? Eins og kunn_át er, eru fréttir Tímans yfirleitt einkennd ar með stöfum þess blaðamanns, sem fréttina skrifar. Einsiaka sinnum kemur þó fyrir að þetta er ekki gert og bregzt ekki að í slíkum tilvikum er um fregnir að ræða, sem megn ólykt er af og kallar Timinn þó ekki aUt ömmu sína í þeim efnum. Skyn- samlegasta skýringin á þessari frétt Tímans er því sú, að hún hafi verið birt til þess að gera formanni B.S.R.B. bölvun, því að vitað er að hann nýtur engra sérstakra vinsælda á ritstjórnar- skrifstofum Tímans og í ýmsum hópum Framsóknarmanna. Með þessum klaufalegu ummælum hefur formaður B.S.R.B. gefið auðveldan höggstað á sér og hann hefur umsvifalaust verið notaður af „,samherjum“ sínum og „stuðningsimönnum” á ritstjórn- arskrifstofum flokksblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.