Morgunblaðið - 01.12.1967, Side 14

Morgunblaðið - 01.12.1967, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 1. DES. 1967 ÞJÓÐMENNING Kínverja er hin elzta í heimi. Hún var orðin gömul og rótgróin áður en menning Forn-Grikkja hófst. Og fram á þessa öld helzt hún í sömu skorðum. Ástæð- urnar til þessa er að leita í lynd- iseinkunn Kínverja, því að þeir eru í eðli sínu ákaflega vana- fastir og íhaldssamir. Auk þess má nefna forfeðradýrkun þeirra, því að hún tengir hverja kyn- slóð órjúfandi böndum við allar þær kynslóðir sem á undan eru gengnar. Saga ICínverja hefst aftur í forneskju, eða fyrir um það bil 5000 árum. Þá höfðu margir ætt- flokkar slegið sér saman og myndað nokkurs konar ríki með fram Gulá, en það voru sam- eigin trúarbrögð og töfrasiðir, sem tengdu þessa ættflokka sam- an. Síðan færðu þeir út kvíarn- ar og nú er kínverska þjóðin fjölmennust allra þjóða í heimi. Kínverjar hafa eignazt marga merkilega spámenn og er Kon- fusius talinn þeirra elztur og merkastur og hann hefir mest mótað lífsskoðun Kínverja. En grundvöllur þeirrar lífsskoðunar er eindrægni, maður verður að 'kappkosta að lifa í friði og skiln- ingi við náunga sinn og náttúr- una. Þessi Iífsskoðun hefir verið svo rótgróin meðal þeirra um þúsundir ára, að einn af keis- urusm þeirra sagði einu sinni, að hún væri þeim jafn nauð- synleg og fuglum er loftið en fiskum vatn, Boðorð spámannanna hafa Kínverjar kappkostað að rækja. Þar á meðal eru þessi boðorð: Breyttu við aðra eins og þú vilt að þeir breyti við þig; vertu ihófsamur í hvívetna; vertu ætíð háttprúður; legðu alla stund á að læra sem mest; en framar öllu öðru áftu að heiðra for- eldra þína og forfeður, einnig kennara þína og yfirboðara. Það var skylda yfirboðara og ríkisstjórnar að gefa almenningi gott eftirdæmi með breytni sinni, miklu fremur en að stjóma með lögum og refsing- um. Þess vegna þurfti þjóðin að £á góða valdsmenn og til þess að tryggja það var fyrir 2000 árum lögfest, að þeir, sem vildu gerast yfirboðarar, skyldu ganga undir mjög strangt próf. Það var þyrjað á því að loka þá inni í mjög þröngum klefum og þar urðu þeir að dúsa í 9 daga. Á þessum tíma urðu þeir að gera grein fyrir því hvað þeir vissu um kínverskar bókmenntir, sagnfræði, skáldskap og heim- speki, og þó fyrst og fremst um kenningar Konfúsíusar. Ár- angurinn af þessu varð sá, að Kínverjar eignuðust hámennt- aða embættísmenn og stjórnend uir, sem voru gagnkiunnugir sið- fræði og hugsunarhætti þjóðar- innar. Með þessu móti helzt þjóðmenning Kínverja óbreytt þótt breytt væri um stjórnend- ur og embættismenn. Saga kínversku þjóðarinnar heifr gengið í stórbylgjum, stundum hafa verið þar löng og merkileg blómaskeið, en stund- um hefir syrt í álinn, er her- iskáar nágrannaþjóðir hafa ráð- izt inn í landið, lagt það undir sig, vegna þess að hún stóð föst um fótum í fornri menningu. Seinasta yfirgangsþjóðin var Japanir. Þeir lögðu mikinn hluta landsins undir sig á þessari öld. Þegar svo var komið átti er- lendur sendiherra ta’ við kín- verskan menntamann og spurði hvort hann óaði ekki við horfun- um. En Kínverjinn svaraði: „Vel getur farið svo, að Japanir leggi undir sig allt landið, það gerir okkur ekki svo mikið til, því að þeir geta alls ekki haldið því lengur en svo sem 500 ár.“ Þenn an hugsunarhátt skildi Evrópu- imaðurinn ekk; og munu fæstir hvítir menn hafa get&ð skiiið hann. En þarna kom íram traust Kínverjans á siðme.m.ogu þjóð ar sinnar, har.a var ekki hægt að kúga né brjóta niður að hans dómi, enda þóti hún yrði að lúta erlendum yfirráðum um 500 ár. Japanir urðu að yfirgefa Kína eftir nokkur ár, en síðar náðu kommúnistar öllu landinu undir sig með vopnavaldi. Það var svo sem ekkert nýtt í sögu þjóðar- innar að vopnin væri látin ráða úrslitum. Og svo virðist sem al- menningur hafi tekið því með jafnaðargeði. Þetta var bylting og þjóðin hafði áður staðið ann- að eins af sér. En þessari byltingu fylgdi önnur bylting enn geigvænlegri, ný og ókunn bylting í sögu þjóð- arinar, og heimurinn hefir verið áhorfandi að henni um nokkur ár. Tilgangur hennar er að afmá hina fornu kínversku menningu, sem hefir verið höfuðstyrkur þjóðarinnar um 30. aldir, eða lengur. Það á að afmá trú og silðfræði þjóðarinnar, heimspeki og kenningar spámannanna. I stað þess á að koma hugmynda- fræði Maós. Það er fyrst á þessu ári að þess fer að gæta, að þjóðin veiti þessari byltingu viðnám. Víða hefir skorizt í odda og svo alvar- lega, að Maó hefir orðið smeyk- ur og reynt að bjarga sér með því að senda „rauðu varðlið- ana“ á þjóðina. Þær fregnir, sem borizt hafa af framferði þessara „varðliða" sýna nógsam- lega hvað þarna er að gerast. Hin forna kínverska menning er að rísa upp til sjálfsvarnar gegn dýrkun Maós og hugmynda fræði hans. „Eigi má ég enn fyrir annan enda sjá hvar lendir“ kvað Kolbeinn Tumason forðum og sama má segja um það hvern- ig þessari nýju byltingu í Kina muni ljúka — hvor muni sigra, Maó eða Konfúsíus. í Vesturbænum Til sölu eru eins og tveggja herbergja íbúðir á jarðhæð á góðum stað í Vesturbænum. íbúðirnar afhendast nú þegar. Sameign úti og inni frágengin. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sími 14314. Kvöldsími 34231. Barnafataverzlunin Hverfisgötu 41 auglýsir: Hjá okkur fáið þið jólakjólinn á dótturina, fáir af hvérri gerð, fást aðeins hér. Einnig terylene-skokkar, hvítar blússur og undir- kjólar, drengjaskyrtur, úlpur, nærföt, náttföt og allan ungbarnafatnað. Póstsendum. BARNAFATAVERZLUNIN Hverfisgötu 41 — Sími 11322. TILKYNNING Nr. 16/1967 Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á „jurta-smjörlíki“ frá Afgreiðslu smjörlíkis- gerðanna, frá og með 29. nóv., að telja: í heildsölu, hvert kg. í 500 gr. pk. Kr. 51,85 í smásölu með sölusk. hvert kg. 500 gr. pk. — 63,00 í heildsölu hvert kg. í 250 gr. pk. . — 52,85 í smásölu með sölusk. hvert kg. 250 gr. pk. — 64,00 í heildsölu, hvert kg. í 250 gr. dósum . . — 55,25 t smásölu m/sölusk. hvert kg. í 250 gr. dós. — 67,00 Óheimilt er þó að hækka smásöluverð á því smjör- líki, sem keypt er af smjörlíkisgerðum fyrir þann tíma. Reykjavík, 29. nóv. 1967 VERÐLAGSSTJÓRINN. NJÓSNARIIMIM í ÞOKUNNI Skyndileg hugmynd fékk George Smiley til aö hringja á dyrabjöllunni á húsi sínu í stað þess að nota húslykilinn og ganga rakleiðis inn. Ókunnur maður lauk upp og bauð húsráðanda að ganga í bæinn. En Smiley gekk ekki inn. Hann taldi, að hann hefði mesta möguleika á að halda lífi, ef hann forðaði sér í skyndi .... Snilldarlega skrifuð njósnabók eftir meistara slíkra skáldsagna, John Le Carré, höfund metsölubókarinnar „NJÓSNARINN, SEM KOM INN ÚR KULDANUM.“ JOHN LE CARRÉ höfundur þessar njósnasögu, er fæddur í Englandi árið 1930 og heitir réttu nafni David Cornwell. Hann stundaði nám í nú- tímamálum við háskólana í Oxford og Eern, gerðist síðan kennari við Etonskóla, en varð að því búnu starfsmaður utan- ríkisráðuneytis Breta. Hann þekkir því það svið, sem hann fjallar um í bókum sínum, sem selzt hafa í risaupplögum víða um lönd. NJÓSNARINN í ÞOKUNNI þykir með öll- um einkennum hins góða höfundar, sem gerþekkir viðfangsefnið sitt og kann þá list að halda athygli lesandans frá upp- hafi til enda. Bókaútgáfan Vörðufell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.