Morgunblaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 1. DES. 1967 Spyrjum að leikslokum ÆSISPENNANDI SAGA eftir metsöluhöfundinn ALISTAIR MACLEAN. — Leynilögreglumanninum Philip Calvert er falið að leysa gátuna um skip hlaðin gulli, er hurfu með dularfullum "hætti af yfirborði sjávar. Leynilegar athuganir brezku lög- reglunnar og eðlisávísun beindu athygli hans að afskekktum stað á vesturströnd Skotlands. Þar gerast margir undarlegir at- burðir, en lausn gátunnar virðist þó ekki á næsta leiti. Eftir hraða og viðburðaríka atburðarás koma svo hin óvæntu sögu- lok. — Alistair MacLean er í essinu sínu í þessari sögu. Ib. kr. 325,00. Læknir kvenna ENDURMINNINGAR MIKILHÆFS og gáfaðs læknis, FRED- ERIC LOOMIS. — Hið mikilsvirta bandaríska tímarit, Satur- day Review of Literature, segir um bókina m.a. á þessa leið: „Konur, ungar sem eldri, munu finna í þessari bók ótalmargt, sem þær þurfa að vita og vilja gjarnan vita um sjálfar sig, og flest hugsandi fóik mun finna óblandna ánægju í leiftrandi kímni hennar og giöggum skilningi á mannlífinu". Ib. kr. 278,00. Svörtu hestarnir RISMIKIL OG SPENNANDI ÁSTAR- OG ÖRLAGASAGA eftir TARJEI VESAAS einn nafnkunnasta núlifandi höfund á Norð- urlöndum. Með útkomu þessarar sögu hófst frægðarferill höf- undarins og náði hámarki, er honum voru veitt bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1963. Óhætt má fullyrða, að per- sónur þessarar sögu og örlög þeirra muni verða lesandanum eftirminnileg, svo og þáttur hestanna, gæðinganna góðu, sem áttu ríkan þátt í að skapa eiganda sínum örlög. Ib. kr. 275,00. Beverly Gray ÞETTA ER FYRSTA BÓKIN UM BEVERLY GRAY eftir CLARIE BLANK sem nú kemur út öðru sinni eftir að hafa verið ófáanieg og mjög eftirspurð árum saman. Bækurnar um Beverly Gray eru óskabækur allra ungra stúlkna, enda bæði skemmtilegar og góðar bækur. Ib. kr. 220,00. Verð bókanna er tilfært án söluskatts. Sendum burðargjalds- frítt gegn póstkröfu um land allt. I Ð IJ N N Skeggjagötu 1. Símar 12923 og J9156. Pósthólf 561 Vinsælasti höfundut barna- og unglingabóka,\ sem nú er uppi: % Tvaer nýjar bækur eftir þennan vinsæla höfund eru komnar á markað, Fimm í strandþjófaleit og Dularfullu sporin, og ennfremur er komin út að nýju bókin Baldintáta - óþægasta telpan í skólanum. Auk þess fást enn eftirtaldar bækur sama höfundar: JfM< ránið rr Fimm á Fagurey Fimm í ævintýraleit Fimm á fiótta Fimm á Smyglarahæö Fimm á feröalagi Fimm á fornum slóðum Fimm í útilegu Fimm komast í hann krappan Fimm í hers höndum Fimm í skólaleyfi Fimm í Álfakastala Dularfulli húsbruninn Dularfulla kattarhvarfið Dularfulla herbergiö Dularfullu bréfin Dularfulla hálsmeniö Dularfulla jaröhúsiö Duiarfulla leikhúsrániö Ævintýraeyjan Ævintýrahöllin Ævintýradalurinn Ævintýrahafiö Ævintýrafjalliö Ævintýrasirkusinn Ævintýraskipiö Ævintýrafljótið Verð bókanna er kr. 85,00—170,00 án söluskatts. Sendum burðargjaldsfrítt gegn póstkröfu. IÐUNN Skeggjagötu 1 - Símar 12923 og 19156 - Pósthólf 561 Námsbækur - Fræðibækur ■ Handbækur Hundrað ár í Borgarnesi Saga Borgarness í hundrað ár eftir Jón Helgason. Mikið rit, prýtt fjölda mynda, fróðlegt og skemmtilegt. Sálarfræði Ný útgáfa á sálarfræði dr. Símonar Jóh. Ágústssonar, en bókin er svo mjög aukin og breytt, að segja má, að um nýja bók sé að ræða. Þetta er mikið rit og gagn- merkt, þar sem gerð er skil almennri og hagnýtri sálarfræði. Fjöldi mynda er til skýringar efninu. Barn á virkum degi Víðkunn bók um barnauppeldi eftir barna- sálfræðinginn Áse Gruda Skard, dósent við háskólann I Osló. Þetta er bókin um vanda- mál barnanna og foreldra þeirra og ein- hver bezta handbók foreldra og annarra uppalenda, sem völ er á. — Frú Valborg Sigurðardóttir skólastjóri Islenzkaði. Lagastafir Ritgerðasafn eftir dr. jur. ÞórS Eyjólfsson, fyrrum hæstaréttardómara, einn fremsta og virtasta mann sinnar stéttar, sem löngu er þjóðkunnur sem fræðimaður í lögum, há- skólakennari og siðan hæstaréttardómari um þrjá áratugi. Persónuréttur Ný útgáfa á riti dr. Jur. ÞórSar Eyjólfssonar um persónurétt. Kaflar úr kröfurétti Ný útgáfa á riti Ólafs Lárussonar prófess- ors. Útgáfuna annaðist Magnús t>. Torfa- son prófessor. fslenzkar dómaskrár I Komið er út 1. bindi af Islenzkum dóma- skrám, þar sem reifaðir eru dómar á sviði réttarheimilda, persónuréttar, sifjaréttar, erfðalaga, sjóréttar og skaðabótaréttar. Arnljótur Björnsson, Ármann Snævarr og Gaukur Jörundsson tóku saman. Ritstjóri verksins er Ármann Snævarr háskólarekt- or. Áður er komið út III. bindi, Refsiréttur. II. bindi er í undirbúningi. Hrafnkels saga Freysgoða og Egils saga Gefnar út af Óskari Halldórssyni námsstjóra með nútímastafsetningu og ýtarlegum skýringum torskilinna orða, vísna og kvæða. Útgáfur þessar eru gerðar til notk- unar ( framhaldsskólum, en jafnframt eru þær heppilegustu útgáfur, sem völ er á, til lestrar fyrir aimenning, ekki sizt ungl- inga, sem kinoka sér við að lesa Islend- ingasögur vegna gömlu stafsetningarinnar. Skólaritgerðir Leiðbeiningar um ritgerðasmið eftir Baldur Ragnarsson kennara. Bókin er fyrst og fremst ætluð til notkunar ( skólum, en hún getur ekki sfður orðið til stuðnings öllum þeim, er temja vilja sér að orða hugsan- ir sínar skýrt og skipulega í rituðu máli. Áður er komin út bókin Mál og málnotkun eftir sama höfund; Eru báðar þessar bæk- ur ánægjulegt nýmæli ( tslenzkunámi. Þýzk málfræði Ný kennslubók I þýzkrl málfræði eftir Baldur Ingólfsson menntaskólakennara. Mjög nýstárleg námsbók, sem hlotið hefur hinar beztu undirtektir. ÍSLBNZKAR DÓMASKRÁR Þekkingu og menntun má öðlast án skólavistar, ef menn leita þekkingar í völdum náms- og fræðibókum. Og ofan á þann grund- völl, sem lagður er meS skólanámi, verður sífeltt aS byggja meS lestri og sjálfsnámi. Minnizt þess, aS nútíminn krefst síaukinnar þekkingar og menntunar. HLAÐBÚÐ • IÐUNN • SKÁLHOLT Skeggjagötu 1 — Reykjavik — Símar 1 29 23 og 1 91 56 WBSB3.L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.