Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 1
54. árg. 281. tbl. LAUGARDAGUR 9. DESEMRER 1967. Prentsmiðja Morgunblaðsins JEMEN: Sovétstjórnin varar við þróuninni í V-Þýzkalandi Telur tilvist þjóðernissinnaflokksins brot á Potsdam samkomulaginu Moskvu, 8. des. NTB — AP. • SOVÉTSTJÓRNIN hefnr sent Vesturveldunum orSsendingu um ástandið í V-Þýzkalandi, sem hún telur orðið býsna hættulegt, einkum á sviðum stjómmála og hermála. Vísar stjórnin þar í Potsdam samninginn, þar sem sagði, að útrýma skyldi nazisma og hernaðarstefnu þar i landi og segir, að sér þyki mikið á skorta að ákvæði hans hafi verið hald- Ráðherra skorar á harnsræningja Versölum, 8. des. — AP-NTB FRANSKI innanríkisráðlherr- ann, Christian Fouchet, kom fram í sjónvarpi í kvöld og skoraði á glæpamenn þá, sem rændu litla drengnum Ema- nuel Malliart, sl. mánudag, að sikila honum samstuádis aft- ur til foreldra sinna. Ráðherr ann kvaðst gefa ræningjun- um frest til morguns að koma barninu aftur herm til for- eldra sinna. Ráðherrann sagði, áð hann hefði samvinnu við föður drengsins, en bætti við, að það væri ekki sitt 'hlutverk að tala við barnsræningja, Framh. á bls. 31 in. Til dæmis telur Sovétstjórnin að stefna v-þýzku stjórnarinnar sé i ýmsum atriðum hin sama og stefna nýja hægri flokksins, flokks þjóðernislýðræðissinna — NDP. „Sovétstjórnin neyðist til þess að benda á“, — segir í yfirlýs- ingunni — „að í Vestur-Þýzka- landi virðisit vera að þróast ástand, þar sem hefndarstefna og hernaðarstefna grípa inn á æ fleiri og víðtækari svið stjórn- mála- og féla,gslífs“. Vísað er til yfirlýsingar Sovétstjórnarinnar frá því í janúar sL, þar sem varað var við vaxandi starfsemi og áhrifum óheppilegra afla og sagt, að þessi þróun hafi síður en svo stöðvazt, öfl þessi verði sífellt sterkari. Sérstaklega tilgreinir Sovét- stjórnin flokksþing NDP í Hann- over. sem hún segir, að hafi ekki einasta verið leyft með lögum heldur beinlínis notið verndar veetur-þýzkra yfirvalda. Nauð- synlegt sé, að stjórnarvöldin endurskoði afstöðu sína til þessa flokks, m.a. vegna þeirrar kröfu NDP, að endurskoðuð verði landamæri Evrópu. NDP krefjist opinberlega iandsvæða annarra rikja og hafi lýst því yfir, að tiilviist austurrísku þjóðarinnar sé ekki fullnægjandi. Augljóst sé, að áætlanir NDP og stefnu- Framh. á bls. 31 Ógæftir hafa hamlað veið- um að undanförnu og má segja að flotinn sé í reiði- leysi. Myndin sýnir síldarbát á siglingu og er hann með nótina innanborðs. Sjófugl- arnir fylgja í humátt á eftir í von um æti, því að hver verður víst að hafa sitt. Mynd ina tók Sigurgeir Jónasson ljósmyndari Mbl. í Vestmanna eyjum. — Samtöl eru við nokkra sjómenn og útgerðar menn á bls 10 og 11 í blað inu í dag. Sanaa í umsátri konungssinna Kairo, Beirut, 8. des. KONUNGSSINNAR í Jemen segjast hafa náð á sitt vald öðr- um flugvelli höfuðborgar lands- ins, Sanaa, og halda þeir áfram aðför að borginni er þeir hafa setið um síðustu daga. Talsmenn lýðveldisstjórnarinnar segja, að árás konungssinna hafi verið hrundið og þeir verið hraktir brott. Utanríkisráðherra Jemens, Hassan Mackey, viðurkenndi í dag, að konungssinnar hefðu set ið um höfuðborgina og hefðu um þrjú þúsund manns fallið í gær í bardaga við Bani Bahloul, sem er tæpa 20 km. frá borginni. Ben Hashem, talsmaður kon- ungssinna, sagði í Beirut í Líb- anon í dag, að flugvöllurinn, sem konungssinnar hefðu tekið væri i aðeins 5 km. fjarlægð frá borgar mörkunum, og þeir hefðu hafið lóftárásir á hinn flug'völlinn, sem væri nær. Ennfnemur sagði hann, að þeir hefðu handtekið 13 her- foringja lýðveldishersins í gær, er þeir reyndu að flýja úr borg- inni. Lýðveldisstjórninni hafa verið settir úrslitakostir að því er hann sagði, og verði hún ekki við þeim, lýsa konungssinnar ábyrgð á hendur henni fyrir það tjón, sem borgarbúar kunna að verða fyrir i væntanlegum bar- dögum um borgina. Blaðið ,.A1 Ahram“ í Kairo, segir, að bandaríska leyniþjónust an — CIA — hafi ráðið erlenda málaliða til þess að stjórna aðför ini að Sanaa. Séu þetta sömu málaliðar og áður hafi starfað í Kongo og Angola. Samkvæmt út- varpsfréttum frá Sanaa voru sex málaliðar teknir af lífi þar í gær. 400 grískir hermenn iarnir frá Kýpur Nicosia, Kýpur, 8. des. — NTB-AP — f DAG fóru um það bil 400 grísk ir hermenn frá hafnarbænum Famagusta á Kýpur og eru það fyrstu hermennirnir, sem það- an eru fluttir samkvæmt sam- komulagi stjórna Grikklands og Tyrklands frá siðustu viku. Þá var samið um, að fluttir skyldu brott allir hermenn, sem þar væru umfram það, sem leyft væri samkvæmt samkomulagi ríkjanna frá 1960. Skyldi þetta gert innan 45 daga. Á Kýpur munu vera um tólf þúsund grískir hermenn, um- fram það sam samkomulagið frá 1960 leyfði, en samkvæmt því áttu grískir hermenn ekki að vera fleiri en 950 og tyrk- neskir ekki fleiri en 650. Makarios, erkibiskup, kom til Famagusta og ávarpaði her- mennina áður en þeir fóru. Hann þakkaði þeim dvölina á eynni. Það gerðu einnig blöð- in á eynni, sem hrósa hermönn unum mjög, en gagnrýna grísku stjórnina harðlega fyrir að hafa látið undan kröfum Tyrkja. Hættir Arthur Goldberg hjá SÞ? Washington, 8. des. NTB- Reuter. * ARTHUR Goldberg, fasta- fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, mun láta af því embætti innan skamms, að því er heimildir í Washington greina. Það fylgir fréttinni, að Goldberg hafi rætt málið við Johnson, forseta í dag og einnig átt viðræður við Dean Rusk utanríkisráðherra sl. miðvikudag. Af hálfu stjórnarinnar var tal ið æskilegast- að Johnson for- seti, skipi nýjan varnarmálaráð herra í stað Roberts MacNam- ara, áður en hann taki afstöðu til þess, hver verði eftirmaður Goldbergs. Þeir Goldiberg og MacNamara hafa báðir verið fylgjandi var- færinni stefnu í Vietnam styrj- öldinni og þykir nú allt benda til aukinna áhrifa hinna her- skárri í þeim leik. Framhald á bls. 31. Arthur Goldberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.