Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1967. Wolsesy KVENNYLON SOKKAR 12, 26 og 36 denier. PARÍSARBÚÐIN Austurstræti 8. — Almennur félagsfundur á morgun MIKILL ágreiningur virðist mcð al verkakvenna í Vestmannaeyj- um vegna verkfalls Verkakvenna félagsins þar, sem boðað var til þess að knýja fram breytta greiðslutilhögun á launum, en þau eru lögð inn á reikning í útibúi Útvegsbankans þar. Á fimmtudag var boðað til samningafundar, en án árangurs. í dag verður fundur með stjórn- um og trúnaðarráðum verkalýðs félaganna í Eyjum og á morgun verður almennur félagsfundur í Verkakvennafélaginu Snót. Mbl. sneri sér til þriggja aðila í gær út af venkfallinu, Ágústu Ólsen, verkakonu, Guðmundu Gunnarsdóttur, formanns Verka- kvennafélagsins Snótar og Ósk- ars-Gíslasonar forstjóra. Fórust þeim svo orð: Ágústa Ólsen, verkakona: — Tildrög þessa verkfalis voru þau, að Verkakvennafélag- ið Snót boðaði til fundar, þar sem fundarefnið var: Kjaraskerð ing og önnur mál. Ailar konur í fisikvinnslustöðvunum voru í vinnu þennan sunnudag og gátu þar af leiðandi ek-ki mætt, en hins vegar aflýsti Vebkalýðs- félag Vestmannaeyja sínum fundi tii næsta kvölds, þegar miennirnir gátu mætt. — Við (heyrðum það svo í út- varpinu, að verkakvennafélagið hefði boðað til verkfalls á þeirri forsendu, að iaunin væru lögð inn á reikning í Útvegsbankan- um. Var mikill úlfa'þytur á stöðv unum yfirleitt út af verkfallinu. Við vildum allar mótmæla því og vorum að tala um, hvað ihægt væri að gera. Það varð að ráði, að við í ísiðjunni skrifuðum und ir mótmæii, sem við fórum með til formanns verkakvennafélags- ins, þar sem við lýstum þeirri skoðun okkar, að ekki væri nægi leg ástæða til verkfalls og að við hefðum í rauninní ekki verið spurðar, hvort við vildum fara í Framhald á bls. 30. Ráðherror komnir heim FORSÆTISRÁÐHERRA dr. Bjarni Benediktsson og utanxik- isráðherra Emil Jónsson komu til landsins í fyrrakvöld með flug- vél Flugfélags íslands frá Finn- landi, þar sem þeir voru í boði ríkisstjórnar Finnlands í tilefni af 50 ára fuiiveidi landsins. í för með þeim var Guðmundur Benediktsson deildars'tjóri í For- sætisiráðuneytinu. JÞað er ekki affeins mannfólkið, sem þjáist vegna kutdanna þessa daga. í frosthörkunum í fyrradag frusu tvær tjarnar- álftanna fastar viff ísinn og varff lögreglan að fara á stúfana, til þess aff frelsa þær úr prísundinni. (Ljósm: Mbl. Sv. Þ.) Rafknúið skip fyrir Islendinga Ágreiningur meðal verka- kvenna um verkfall í Eyjum Kveikt á jólatrjám ELLEFU jólatré verða sett upp á vegu/m Reykjavíkurborgar í ár. Jólatréð á Austurvelli verður tendrað á sunnudaginn kemur, en hin trén tíu eru á eftirtöldum stöðum: Við Réttarholitsskólann, Kirkjuból, Miklubraut innan Kringlumýrar, Heilsuverndar- stöðina, Fæðingarheimilið, á Landakotstúninu, Miklatorgi, Hlemmtorgi, Sunnutorgi og á barnaleikveilinum við Hring- braut. Efnahagsráðstafanir og fjárstjórnartœki hins opinbera SAMBAND unga Sjálfstæffis- manna og Heimdallur efna í dag til ráðstefnu um Efnahagsráð- stafanir og fjárstjórnarfyrirtæki hins opinbera. Jónas Haralz, for stjóri Efnahagsstofnunarinnar flytur erindi og svarar fyrir- spurnum. Þá verffa frjálsar um- ræffur. Ráðstefnan verffur haldin í Tjarnarbúð og hefst með 'oorff- haldi kl. 12,30. — Smíði nýs hafrannsóknarskips senn hoðin út UNDIRBÚNINGUR að smíði nýs hafrannsóknarskips fyr- ir fslendinga er á lokastigi. Aðalnýjungarnar við þetta skip, sem þegar hefur hlotið nafnið Bjarni Sæmundsson, eru þær, að skipið verður raf- knúið og að leitartækjunum verður komið fyrir á palli, sem stendur alltaf láréttur, þannig að leitargeislarnir haldast ætíð stöðugir. Verð- ur Bjarni Sæmundsson ann- að skipið í V-Evrópu með þann útbúnað. Áætlað er að smíði skipsins ljúki á árinu 1969. Agnar Norland skipaverkfræð- ingur teiknaði skipið, sem verð- ur tæp 800 tonn. Þrjár áðalvél- ar verða í skipinu og knýja þær þrjár rafala, sem gefa 1800 hest- öfL Verður skipið fyrsta Taf- knúna skipið í eigu íslendinga, en s>á útbúnaður á að valda min,ni hristingi. Allur vélaútbúnaður skipsins og rafbúnaður hefur þegar verið keyptur, svo og öll fiskileitar- tæki og vindur. Þessi tæki eru keypt frá Noregi og Þýzkalandi, en verð þeirra nemur allt að ein- um þriðja af kostnaðarverði skipsins. Smiði þessa nýja skips verður boðin út eftir nokkra daga og gert er ráð fyrir að henni ljúki á árinu 1969. Ótið og aflaleysi Hauganesi 8. desember , HÉR hefur verið ótíð undanfar- ið eins og annars staðar, en sam göngur eru samt ágætar enn þá. Annað slagið hefur verið farið á sjó, en afskaplega lítið að hafa. — Gunnar. Annar ketill nýju kyndistöðvarinnar Bjarni Sæmundsson, fyrsta rafknúna skip Islendinga. (Teikning: Agnar Norland.) Kennsla féll niður í tveimur skólum ÁSTANDIÐ í hitaveitumálunum var óbreytt í gær og féll kennsla niður í tveimuir skólum Gagnfæðaskóla Vesturbæjar í Vonarstræti og Barnamúsíkskól anum. Kennt var tvo fyrstu tim fékk, á kuldunum þar allt ann að en skemmtilegar. Albert í sjúkra- flutningum VARÐSKIPIÐ Albert var I sjúkiraflutningum í gær mdOli Grímseyjar og Akureyrar. í fyrrakvöld varð kona í Grímsey fyrir því slysi, að lærbrotna og var Albert sendiur út i eyjuna í gær til að sækja konuna. Héraðsvötn flæða tekinn í notkun í gær í GÆR var annar ketill nýju kyndistöðvarinnar I Árbæ tekinn í notkun en hinn ket- illinn veriur væntanlega tek- inn í notkun á morgun. Kyndi stöðin í Árbæ er mikið mann- virki og var mikið um að vera þar í gær um kl. 16.00 þegar ketillinn var tekinn í notkun. Fréttamaður Mbl. bað Karl Omar Jónsson verkfræðing hjá Fjarhitun sem er ráðgefandi aðili Hitaveitunnar, að skýra fyr- ir lesendum blaðsins með hverj- um hætti nýja kyndistöðin get- ur orðið til þess að bæta úr varmaskorti í borginni. Karl Ómar sagði, að þessi nýja kyndistöð mundi hita allt vatnið, sem kemur frá Reykjum. Sá ketill sem tekinn var í notkun í gær hitar það um 15 gráður og hinn hitar það um aðrar 15 gráður. Áhrifin koma svo Framhald á bls. 31. ana í Gagnfræðaskóla Vestur- bæjar, en að þeim loknum var kennsla felld niður . Hitinn í skólastofunum var 10-12 stig. Ekkert er kennt í Bamamúsík- skólanum í dag, en kennsla í Gagnfræðasikóla Vesturbæjar fellur niður vegna prófa í næstu viku. í Miðbæjarskólanum hefur tekizt að kenna óslitið, þar sem hægt er að grípa til ko'.akynd- ingar, þegar hitaveita bregzt. Enn sem fyrr eru það íbúar í Gamla bænum og á Melunum, sem harðast verða úti og voru sumar lýsingarnar, sem Mbl. yfir þjóðveginn Sauðárkróki, 8. desember. FYRIR þrem dögum brutu Hér- aðsvötnin í Skagafirði af sér ís neðan við bæinn Miðhús í Blönduóshreppi og tóku að flæða yfir þjóðveginn. Liggja þau nú með miklum þunga a’ð jarðbakka á 100—200 metra svæði skammt frá þjóðveginum og hefur bilið milli vegarins og Vatnanna smá- minnkað á undanförnum árum. f dag flæddu vötnin enn þá yfir veginn og er hann illfær nema stærri bílum. Dalsá í Blönduhlið hefur einn- ig runnið yfir þjóðveginn und- anfarna daga. en vatnið í henni fór sjatnandi í dag. — Guðjón. DAGAR TIL JÖLA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.