Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DES. 1967 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Jphannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Rifstjórn og afgreiðsla: Aðalstrseti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Símf 22-4-80. I lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. FJARHA GSAÆTL UN REYKJA VÍKURBORGAR Ij'j árhagsáætlun Heykjavík- * urborgar fyrir árið 1968 var til fyrri umræðu í borg- arstjórn Reykjavíkur s.l. fimmtudag. Samning fjár- hagsáætlunarinnar var að þessu sinni mjög erfið, vegna þeirrar óvissu sem ríkti um framvindu efnahagsmálanna, ■og enda þótt gengislækkunin hafi að verulegu leyti skýrt línurnar, er þó enn toluverð óvissa um hver þróun kaup- gjalds- og verðlagsmála verð- ur á næsta ári. Fjárhagsáætl- un borgarinnar er því miðuð við, að kaupgjald hækki ekki frá því sem var hinn 1. des. s.l. og verðlag hækki ekki meira, en beinlínis leiðir af gengisbreytingunni. Ljóst er að verðstöðvunin, sem ríkti um eins árs skeið, hefur reynzt opinberum að- ila, eins og Reykjavíkurborg, mjög hagkvæm að mörgu leyti, m.a. vegna þess, að vegna hennar reyndist kleift að hafa miklu strangara að- hald með útgjöldum borg- arinnar og hinna ýmsu borg- 'arfyrirtækja en áður og erf- iðara fyrir forstöðumenn ein- stakra borgarstofnana að gefa skýringar á útgjaldaaukn- ingu. Að þessu sinni hækka heild arútgjöld til rekstrar og fram kvæmda um 4,8%, en útsvars- upphæðin er hækkuð um 4,6%. í ræðu sinni við fyrri umræðu fjárhagsáætlunarinn ar sagði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri m. a.: „Markmiðið er að geta veitt -jafnmikinn afslátt á útsvör- um næsta ári eins og í ár. Þetta er sagt með þeim fyrir- vara, að kaupgjald hækki ekki frá því sem nú er, og verðlag hækki ekki meira en beinlínis leiðir af gengis- breytingunni. Ef í ljós kemur, þegar skattaframtöl eru kom- in fram, og álagningu lokið, að útsvarsupphæðin náist ekki með sama afslætti og fyrrgreindum skilyrðum er fullnægt, þá tel ég ekki annað vera fyrir hendi, en að draga úr framkvæmdum til þess að geta veitt afslátt. Á hinn bóg- inn er ég þeirrar skoðunar, að ef útsvarsálagning með sama afslætti gefur hærri út- svarsupphæð, þá beri að end- urskoða fjárhagsáætlunina með það fyrir augum að hækka útsvarsupphæðina í krónutölu. Annað væri ekki verjandi, þar sem reksturs- kostnaður allur er mjög lágt áætlaður og einnig bíða margar framkvæmdir úr- lausnar.“ Af þessum ummælum borg- arstjóra er ljóst, að rík á- herzla verður lögð á að halda sömu eða svipuðum álagning- arreglum útsvars á næsta ári og gert var í ár. Útsvörin eru enn lang hæsti tekjuliður borgarinnar og nema þau um 65% af heild artekjum borgarinnar. Að- stöðugjöld nema 15%, fram- lag úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga 10%, fasteignagjöld 5% og ýmsar tekjur 5%. Af þessari tekjuskiptingu er ljóst, að brýna nauðsyn ber til að breikka tekjugrundvöil sveitarfélaganna, og hefur þó verulega áunnizt í þeim efn- um á undanförnum árum. SÍLDARÚTVEGS- NEFND Á SIGLUFIRÐI ingmenn úr öllum stjórn- málaflokkunum hafa nú flutt frumvarp á Alþingi, þess efnis að heimili Síldar- útvegsnefndar, varnarþing og aðalskrifstofa skuli vera á Siglufirði. Tildrög þess, að frumvarp þetta er flutt eru þau, að Síldarútvegsnefndar- menn hafa haft við orð, að þeir teldu eðlilegt að flytja aðalstöðvar nefndarinnar til Reykjavíkur og einkum fært fram þau rök, að nefndar- menn væru flestir búsettir í Reykjavík og þess vegna þyrfti skrifstofan að vera þar. Aðalskrifstofa Síldarútvegs nefndar hefur frá fyrstu tíð verið í síldarbænum Siglu- firði, og hefur því ekki áður verið hreyft að flytja skrif- stofuna þaðan, þótt fyrrum væri erfitt um samgöngur til Siglufjarðar. Vægast sagt er það ein- kennilegt, að þessu máli skuli nú vera hreyft, þegar góður vegur er kominn til Siglu- fjarðar og sjálfvirkt símasam band, svo að í rauninni eru þau rök, sem áður hefðu e.t.v. mátt færa fyrir því, að eðlijegra væri að hafa aðal- stöðvar Síldarútvegsnefndar í Reykjavík, ekki lengur fyrir hendi. örir fólksflutningar til Reykjavíkur og nágrennis skapa mikla erfiðleika fyrir höfuðborgina og nágranna- byggðarlög, en flutningur stofnana, sem staðsettar hafa 11 * ■iii rAki iíd uriMi u IAN UK HtllVII Fjórir menn reyna að bjarga Mígeríu VONIR Afríku eru nú mjög festar á hæfileikum h.nna fjögurra þjóðhöfðingja, sem eru fulltrúar fyrir Samein- ingarsamband Afríku (OAU), til þess að draga úr hinu ó- heillavænlega borgarastríði í Nígeríu og endureisa eitthvað, sem líkiist einingu í síærsta ríki álfunnar. En jafnvel þótt von yirðist lítil um árangur, þá váeri það heimska að gera lítið úr dugn- aði og reynslu hinna fjögurra afrísku forystumanna — hins ægilega keisara Ethiopíu, For- seta Niger, Hamani Diori, for seta Cameroon, Ahidjo og An- krah, herslhöfðingja frá Ghana. Þrír hinir fyrstnefndu eru I hópi slyngustu samn- ingamanna álfunnar og An- krath hershöfðingi nýtur þe5rr- ar aðstöðu að vera sjálfur æðsti maður hermannastjórn- ar og njóta virðingar foringja Biafra, Odumengo Ojukwu of- ursta. Upphaflega áttu að vera sex menn í þessari sendi- nefnd. En forseti Kongo, Mo- buto hershöfðingi, og forseti Lilberiu Tutomann, drógu s:g í hlé — líklega vegna ástæðn- anna heima fyrir., Sennilega er þetta rétt til getið, hvað Mobuto snertir, en gagnrýni Tufomans forseta á Biafra, sem hann hafði í frammi ný- lega, vakti slíka mótmæla- öldu gegn honum aí hendi forustumanna Iboa, að frá- hvarf hans á þessu stigi náls- ins ætti fremur að vera til gagns en ógagns. Frá því að upphaflega var ákveðið að senda þessa OAU sendinefnd og þangað til hún kom til Lagos, liðu tveir mán uðir, en sú töf stafaði mest af því að uppfoaflegu nefndar mennirnir gátu ekki komið sér saman um tíma, sem þeim væri öllum hentugur. Þessi töf hefur styrkt stöðu samfoandsstjórnar Nígeríu, sem tókst í millitíðinni að reka Ojukwu ofursta út úr Biafra-höfuðborg sinni, En- ugu, og ná á sitt vald, annari tveggja hafna hans, Calabar. Hinsvegar halda Biaframenn enn aðalhöfninni, Port Har- oourt, og verja nú af miklu kappi hina mikilvægu borg Onitsha. Þeim hefur einnig tekizt — þó án árangurs — að gera áhlaup á Enugu og Bonny, þar sem eru mikdvæg ar olíustöðvar. Gowan hershöfðingi, forsæt- isráðherra Nigeriu. Borgarastyrjöldin er nú stödd á nýju stigi. Frá ríkis- stjórnarinnar bæjardyrum séð, væri taka Port Har- court — síðasta tengilið Bi- afra við umheiminn — veru lega mikilvæg. En sálrænt séð væri taka Onitcfoa drama tískari. Stjórnarfoerrarnir hafa enga löngun til að teygja ó- friðinn langt inn í uppland Iboa, sem yrði hreinasta kival ræði fyrir báða aðila. Það, sem þeim kæmi bezt, væri að finna einfoverja áíbyrga lbo- höfðingja, sem væru á önd- verðum meiði við Ojukwu of ursta, og neyttu nærveru sendinefndar OAU til þess að taka boðum hennar um frið- arsamninga. Af því mundi leiða, að hætt yrði við aðskiln að Biafra, og viðurkenndur þessi tólf rtkja rammi, sem Nigeria hefur verið skipu- lögð í. Þrjú þessara fyrirfoug uðu ríkja liggja innan endi- marka Biafra. En stjórnendum sambands- ríkisins er það auðvitað mjög í mun, eins og skiljanlegt er, að sendinefndin verði ekki notuð til þess að draga taum Biafra. Hér af stafar hið upp runalega skilyrði hennar, að OAU séndinefndin skyldi ekki reyna að taka sér að miðla málum, eins og um tvö sjálfstæð ríki væri að ræða. Þeir halda því fram, að ófrið urinn sé innanlandsmál milli löglegrar stjórnar landsins og uppreisnarflokks. En ef svona milliganga er úr sögunni, hvaða hlutverki i hefur sendinefndin þá að gegna? Ojukwu ofursti, leiðtogi Bi- aframanna. Afstaða sambandsstjórnar- innar er hrein og greinileg. Hún vill að sendinefndin sannfærist um það, að hve miklu leyti hermannastjórnin hafi töglin og hagldirnar í Nígeríu og komi síðan í kring hjálp, bæði frá Afríku og svo alþjóðlegri, til þess að styðja hana. Yrði þessu framgengt, trú- ir hún því, að árangurinn yrði tvöfaldur: Allan mátt mundi draga úr stuðnings- mönnum Biafra, og í öðru lagi mundu Ibofoöfðingiarnir leita samninga við stjórnina, í trássi við Ojukwo ofursta, og auk þess yrði lokað r»ki- legra fyrir hernaðarihjálpina, sem enn kemst til Biafra. Þannig lítur sambands- stjórnin raunverulega á sendi nefndina sem tæki til bess að styrkja afstöðu hennar gagn- Framh. á bls. 22 verið úti á landi, til Reykja- víkur, hlýtur mjög að ýta undir fólk að flytja suður og draga kjark úr þeim, sem vilja sporna á móti þessari óæskilegu þróun. Þess vegna ber mjög að fagna samstöð- unni um flutning þessa frum- varps. ÍSLENZKUR IÐNAÐUR engislækkun íslenzku krón unnar mun að sjálfsögðu bæta mjög samkeppnisað- stöðu íslenzks iðnaðar, sem hefur versnað á undanföm- um árum vegna hækkandi til kostnaðar innanlands og vax- andi vöruframboðs og vöru- úrvals erlendis frá. íslenzkur iðnaður hefur þó brugðizt við þeim vandamálum svo sem einkaframtakinu sæmir, og lagt mikið fjármagn til endurnýjunar á tækjakosti og iðnaðarhúsnæði. Nú má búast við, að tolla- lækkanir fylgi í kjölfar geng- islækkunarinnar og er þá að sjálfsögðu eðlilegt og nauð- synlegt ,að þær tollalækkan- ir nái ekki síður til hráefnis- vara iðnaðarins heldur en fullunninna iðnaðarvara, sem fluttar eru inn erlendis frá. Slíkar aðgerðir, ásamt sam- eiginlegu átaki verkalýðs- samtakanna og vinnuveitenda um að halda niðri verðlags- og kaupgjaldshækkunum í landinu mundu að sjálfsögðu styrkja mjög aðstöðu íslenzks iðnaðar. Gengislækkunin hefur skap að íslenzkum atvinnuvegum og þá ekki sízt sjávarútvegi, fiskiðnaði og innlendum verk smiðjuiðnaði tækifæri til nýrrar framfarasóknar. Það tækifæri er nauðsynlegt að nota með réttum hætti og um leið og undirstrikuð er þýð- ing þess að skapa sjávarút- vegi og fiskiðnaði traustan starfsgrundvöll, má ekki gleyma því, að innlendur iðn- aður veitir fleira fólki at- vinnu en nokkur önnur at- vinnugrein í landinu og þess vegna ber við þær aðgerðir, sem framundan eru að hafa hagsmuni iðnaðarins mjög í huga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.