Morgunblaðið - 12.01.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1968
3
SA sem hefur eldspýtustokk
við hendina ætti að virða fyr
ir sér myndina á bakhlið
hans,. Urn leið og hann keypti
stokkinn lét hann tuttugu
aura af hendi rakna til þess
málstaðar, sem þar er aug-
lýstur. — „Hjálpið lömuðum“.
— Þetta er göfugur boðskap-
ur og í dag ræddum við við
Svavar Pálsson, endurskoð-
anda, sem er formaður
„Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra“, en sá félagsskapur
framkvæmir það, sem í fyrr-
greindum orðum felst.
Styrktarfélagið var stofnað
1952, segir Svavar, en um
virka starfsemi var vart að
ræða fyrr en árið 1955, en
þá keypti félagið húseigninc
Sjafnargötu 14.
Þar hefur félagið síðan rek
ið æfingastöð fyrir fatlað
fólk og einnig hafa margir
hlotið þar eftirme'ðferð vegna
slysa.
Nú höfum við selt Sjafn-
Nýja æfingastöðin, sem Slyrklarfélag lamaðra og fatlaðra er að byggja við Háaleitisbraut.
(Ljósm.: Mbl: Sv. Þ.)
„Hjálpið lömuðum"
— rætt við Svavar Pálssoei,
form. Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra
argötu 14 og ráðist í byggingu
að Háaleitisbraut 13, sem við
vonumst til að geta tekið í
notkun seint á þessu ári. Þessi
nýja bygging er um 600 fer-
metrar, á einni hæð, og með
tilkomu hennar batna starfs-
skilyrði okkar verulega.
I húsinu verða: æfingaher-
bergi, stór æfingasalur með
búningsklefum og sundlaug,
sérsalur fyrir börn, kaffistofa,
sem jafnframt verður fundar-
herbergi, skrifstofur lækna og
skoðunarstofur og föndurher-
bergi.
Þessi bygging er stórt átak,
ég gæti trúað að byggingar-
kostna'ðurinn nemi allt að 10
millj. króna.
— Hvernig safnið þið fénu?
— Við fengum 2 millj. kr.
lán úr erfðafjársjóði. Þessi
auglýsing — og Svavar sýn-
ir okkur bakhlið eldspýtu-
stokksins — færir okkur um
1% millj. kr. á ári og svo
er ágóðinn af símahappdrætt-
Svavar Pálsson virðir fyrir sér teikningar af nýju æfingastöðinni ásamt Kjartani Tómas-
syni, byggingarmeistara (t.v.) og Rögnvaldi Þórðarsyni. (Ljósm. Mbl.: ÓI. K. M.)
inu, sem hefur verið eitthvað
á aðra milljón undanfarin ár.
— Varla dugir þetta til.
— Nei, en þeir eru margir
sem muna eftir málefninu og
okkur berast alltaf gjafir ann
að slagið. Nú síðast í gær
komu til mín hjón ofan af
Akranesi og afhentu félaginu
10.000 krónur að gjöf.
— Á þetta hús sér ein-
hverja ákyeðna fyrirmynd?
— Nei, það held ég varla.
Þegar vfð byrjuðum á Sjafn-
argötunni fengum við til
landsins danskan lækni, dr.
Eskesen. Hún skipulagði fyr-
ir okkur æfingastöðina á
Sjafnargötu og gaf okkur ýms
holl ráð viðvíkjandi þessari
nýju byggingu. Sjafnargatan
var alltaf hugsuð sem bráða-
birgðahúsnæði, þó við séum
nú búnir að vera þar í 12 ár.
Læknarnir okkar, þeir Hauk-
ur Kristjánsson og Haukur
Þórðarson réðu einnig miklu
um skipulag nýja hússins.
— Þið hafið líka rekið sum
ardvalarheimili í Mosfells-
sveit.
— Já, það eru nú liðin fjög
ur ár síðan við hófum rekst-
ur sumardvalarheimilis fyrir
fötluð börn i Reykjadal. Þar
hafa um 40 börn dvalið 214
mánuð á hverju sumri, en
draumur okkar er að koma
þar á fót heimavistarskóla fyr
ir fötluð börn. Það verður
næsta verkefni okkar, þegar
þetta hús er fullfrágengið.
— Þú sagðir áðan, að á
Sjafnargötunni hefði fólk líka
getað fengið eftirme'ðferð
vegna slysa.
— Já, við einbeitum okkur
að því að hjálpa lömuðum
sem bezt við getum, en æf-
ingastöðina rekum við einn-
ig sem almenna aðstoð til að
viðleitni okkar geti komið
sem flestum til góða, sagði
Svavar a'ð lokum.
Sœmileg fœrð
víða um land
FÆRÐ er yfirleitt sæmileg á
Iandinu. Hjörleifur Ólafsson, hjá
Vegagerð ríkisins, sagffi Morgun
blaðinu, að færð um Norðurland
væri allsæmileg, vel væri fært
milli Reykjavíkur og Akureyrar,
fært væri vestur í Borgarfjörð
og Dali, en á Snæfellsnesi væri
hinsvegar töluverður snjór.
Var ætlunin að reyna að ryðja
þar í dag (föstudag). Um Suð-
urland var víðast fært nema
hvað Þrengslin voru erfið í gær
vegna veðurofsa. Fært var inn-
an fjarða fyrir vestan og svip-
að á Austfjörðum. Fært var um
Hérað, Fagradal og sunnanverða
Austfirði, frá Reyðarfirði. Átti að
reyna að opna Oddsskarð í dag
ef veður yrði sæmilegt. Hins-
vegar er Fjarðarheiðin ófær, eins
og segir frá á öðrum stað í blað-
inu, og ekki nema snjóbílar sem
geta brotizt yfir hana.
Ölkössum stolið
FJÓRUM kössum af Polo-gos-
drykk var stolið úr verksmiðj-
unni Sanitas við Köllunarklett í
fyrrinótt. Braut þjófurinn rú'ðu
og gat teygt sig þar í gegn í
kassana, en annað aðhafðist
hann ekki.
PRH VDM gagnrýnir
Matti Virkkunen
Moskvu, 11. jan. NTB.
★ MÁLGAGN sovézka komm-
únistaflokksins, „Pravda“. gagn-
rýndi harðlega í dag einn af fram
bjóðendum til forsetakosning-
anna í Finnlandi Matti Virkk-
unen að nafni. Sagði blaffið að
hann væri fjandsiimlegur Sovét-
ríkjunum og efaðist um réttmæti
hlutleysisstefnu Finnlands.
Blaðið segir, að Virkkunen sé
fulltrúi fjármálaaflsins og iðn-
jöfra í finnsku þjóðliffi og fram-
bjóðandi hinna afturhaldssöm-
ustu afla. Tæpast sé það tilvilj-
un. að maðurinn sé talsmaðux
aukinna útgjalda til landvarna,
eflingar hersins og annarra ráð-
stafana, sem ógni hlutleysi lands
ins, enda sé hann fulltrúi sam-
bands varaliðsforingja.
Á hinn bóginn hrósar Pravda
Kekkonen fonseta. mjög og seg-
ir, að vaxandi álit Finna á al-
þjóðavettvangi. efnahagsleg þró-
un ríkisins og efling sjálfstæðis
þjóðarinnar séu órjúfanlega
tengd nafni Kekkonens. Hann
njóti ekki aðeins virðingar í
beimalandi sínu heldur og langt
út fyrir landamæri þess, segir í
greininni, að forsetakosningarnar
nú boði ,.val milli fortíðar og
framtiðar".
1
STAKSTEIMR
„Jákvæður skerfur"?
í ÁRAMÖTAGREIN sinni setti
Eysiteinn Jónason, formaður
Framsióknarflokksins m.a. fram
þá hæpnu fullyrðingu, að sam-
tök ungra framsóknarmanna
væru „þróttmestu" æskulýðs-
samtök ungs fólks í landinu, sem
leggðu fram, „jákvæðan skerf"
til íslenzkra stjórnmála. Sú full-
yrðing fráfarandi formanns
Framsóknarflokksinis að samtök
ungra Framsóknarmanna séu
„þrekmestu“ pólitisku æskulýðs-
samtökin stenzt að visu engan
veginn próf staðreyndanna, en í
ljósi hennar er þó athyglisiveirt að
vitna í greinarkorn, siean einin af
forsprökkum þesBara æskulýðs-
samtaka skrifar í Tímann í gær,
en þar segir hann: „Sjálfur æðsti
presitur óðapólitíkurinnar er
meistari skæra stjórnmálanna
útúrsnúninganna og hins mark-
lausa kjaftháttar, forseetisráð-
herra viðredsnarinnar, Bjarni
formaður Benediktsson, sean í
pólitiskum verkum beitir hinu
fornkveðna að ekkert imannlegt
sé honum, flokknum né valda-
klíkunni óviðkomandi. Vikulega
birtir hann í bréfum sánum boð-
skap hins alsjáandi auga og gef-
ur flokksmönnum og landslýð
öllum linuna um hin ólíklegustu
efni: Verk ungskalda, erjur
menntagkólastráka, trúmáladeil-
ur, ævisiögur, máiverkasýningar,
útgerð og aflabrögð, vexti og
lánastefnu, ferðalög fyrirmanna,
styrjaldir og byltingar tvist og
bast um veröldina, verðbólgu og
vísitöiuuppbætur, slkepnuhátt og
ósvifni andstæðinganna, „kölk-
un“ Einars Olgeirsisonar, „holl-
ustu“ HamiibaJsi og urmui af
öðru, nánast flest miUi himins
og jarðar. Það er skýrasta dæm-
ið um vanþróun islenzkra
stjórmnála, drottnun óðapólitík-
urinnar á íslandi, að í háseeti
rí kisst j ór nar innar skuii sitja
valdasjúkur Tumi þumall, sem
aUa ævi hefur barizt miskunn-
arlaust fyrir flokksliagsanunum
og flokkamati á öllum sviðum og
vitl eif hægt er berja bókstaflega
alla til hlýðni við pólitískan
vilja sinn, hvort aem það eru
þingmenn eða skáld, forstjórar
eða erlendir ferðamenn, fræði-
mertn eða embættissjúkir ung-
pjlitikusar".
Er þetta nýi tíminn?
Ungir Framsóknarmenn hafa
um nokkurt íjaeið lagt áherzlu á,
að þeir væru boóberar nýrra
tima í isilenzkum stjurnmálum og
haldið marga íundi viðsvegar
um landið, þar aem ujuræöuefn-
iff hefur verið „ný viðhorf í ís-
lenzkum stjornmalum". Þessi
tjlvitnun í grein eins forsiprakka
ungra Framsoknarmanna í Tím-
anjum í gær gefur vissulega 40-
efni til þess aff spyrja, hvort
þesai ummæli hansi séu tákn
„hinna nýju tíma“ innan Fram-
soknarflokksins. Eru þetta þær
„nýju“ baráttuaffferðir, sem ung-
ir Framsóknarmenn vilja beita
sér fyrir og er þetta sú „nýja“
og heilbrigða blaðamennska, siem
ungum mönnum er sæmandi?
Sannleikurinn er sá, að þessá um-
mæli hefðu betur átt heima í
málgagni Fiamsoknarflokksins
fyrir 30-40 árum, þegar sóða-
sikapurinn var seim mestur í
blaöamennsisu og sijornmálabar-
áttu Framsoknarmanna. Ungir
Framsoknarmenn eru greinilega
ekki boffberar nýrra tíma í ís-
lenzkum stjórnmálum, þeir eru
menn gamalla tíma og úreltra
barattuaðferða, menn aftur-
haldssteifnu, sean margir höfðu
vonað að væri úr sögunni. JaJn-
ved Evsteinn Jónsson, þótt staðn-
aður sé í vandamálmii og hugs-
unarhætti millistriðsáranna,
kæmisrt i afturhalds-.emi ekki í
hálfkvist við þá menn, sem að
hans mati leggja fram einna
,jákvæðastan skerf“ til islienzkra
stjórnmála.