Morgunblaðið - 16.01.1968, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 16.01.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1963 5 GRÆNLANDI Semur Krag viö borgarflokkana? (Jtilokar samvinnu við SF Kaupmannahöfn, 12. janúar REYNSLA danskra jafnaðar- manna af samstarfinu við Sósial- iska þjóðaflokkinn (SF) gerir það að verkum, að þeir hyggjast semja við róttæka, Liberalt Centrum, eða hina borgaraflokk- ana um stefnuna í etfnahagsmál- um eftir kosningarnar, að þvi er Ritzau-fréttastofan hermir. Jens Ottio Krag, forsætisráð- herra, sagði á blaðamannafaindi í Óðinsvéum í gær, að jafnaðar- mienn gætu ekki komizt að sam- k'omulagi við vinstri-sósíalista eða SF um samvinnu milli flokk anna. Hann sagði, að þessi mögu- leiki væri „ó’hugsandi". Það er bjargföst sannfæring omiín að ekki sé hægt að byggja á vinstri- sósíalistum, sagði hann. Henry Greuenbaum, fjármála- ráðherra, sagði á fundi í Árósum, að jafnaðarmenn gætu ekki al- gerlega vísað á bug allri sam- vinnu við vinstri-sósíalista. For- maður SF, Axel Larsen sagði í gærkvöldi, að hann væri reiðu- búinn til stjórnarsamvinnu með jafnaðarmönnum ef það hefði i för með sér aukna möguleika á að framfylgja stefnu SF. Larsen taldi ósennilegt að vinstri-sósíal- istum tækist að fá fulltrúa kjörna á þing í kosningunum. Formaður Vinstri flo’kksins, Poul Hartling, sagði á fundi í Rödore, að núverandi forsætis- ráðherra þyrfti ekki endilega að taka að sér stjórnarmyndun eftir kosningarnar. Hann sagði, að réttast væri að stjórnin segði af jér strax eftir kosningarnar ef þingfylgi hennar rýrnaði. Verkfræðingar — tæknifræðingar Isafjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða verk- fræðing eða byggingatæknifræðing. Krafa um launakjör og upplýsingar um nám og störf fylgi umsókn. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar. Staðan veitist þá strax eða eftir samkomulagi. ísafirði 10. janúar 1968. BÆJARSTJÓRINN Á ÍSAFIRÐI. BLADBURÐARFOLK OSKAST í eftirtalin hverti Laugavegur neðri — Laugavegur efri — Sjafnargata — Hverfisgata II — Seltjarn- arnes — Melabraut — Hagamelur. Talið v/ð afgreibsluna i sima 10100 Mótmælir brottför brezka herliðsins — Forsœtisráðherra Singapore rceðir við brexku stjórnina FORSÆTISRÁÐHERRA Singa- pore, Lee Kuan Yew, kom á laugardagskvöld til London til viðræðna við brezku stjórnina um þá ákvörðun hennar áð flýta brottflutningi herliðs Breta frá Singapore. Lee Kuan Yew ræddi við Harold Wilson forsætiisróðherra í Downing Street 10 á sunnudag og voru þeir George Brown, utnríkiisráðherra og Dennis Healey, landvarnaráherra, við- staddir viðræðurnar. Áður hafi Lee rætt við þingmenn úr Vertoamannaflokknum og enn- fremur ýmsa brezka kauipsýslu- menn. Stjórn Singapore hefur fengið stuning stjórnar Ástralíu við mótmæli sín gegn því, að Bretar hraði flutningi herliðs síns fró Suðaustur-Asíu. Forsætiisráð- herrann sagði í viðtali við frétta- menn, að hann hetfði engar áhyggjur atf hdnni efnahagslegu hlið miálsins. Hinsvegar heíði hann miklar áhyggjiur af ör- yggi eyríkisins, hann vildi £á tírna til þess að byggja upp eigin varnir þess, en menn mættu skilja að það væri ekki gert í einu vetfangi að breyta lið- þjáltfa í hershötfingja. Lee var að því spurður hvort hann mundi fallast ó að Japanir tækju við þeim herstöðvuim, sem Bretar legðu niður, og svaraði því neitandi, sagði að það væri óheppilegt m. a. af sólrænum ástæðum. Vincent IHassey látinn VINCENT Maasey, fyrrum lands stjóri Kanada, lézt í sjúkrahúsi í London um áraimótin. Hann var 80 ára að aldri. Massey var búsettur i Kanada og gegndi þvi embætti. Áður en Vincent Massey smeri sér að stjórnmálum árið 1925 var hann forstöðumaður Massey Harrisi félagsing, sem þekkt er víða um heim fyrir landbúnað- arvélar sínar. Lét hann af þeirri stöðu er hann var kjörinn á þing, þar sem hann sat aðeins eitt ár. Árið 1926 tók hann svo við eim bætti sem sendiherra Kanada i Washington, og var þar til 1930. Árin 1935—46 var hann sendifulltrúi Kanada í London, og árið 1936 sat hann þing Þjóð bandalagsins sem fulltrúi Kan- ada, Rúmlega 20 háskólar víða um heim heiðruðu hann með doktorsinafnbót, og um sex ára Vincent Massey skeið var hann rektor Toronto háskóla. Vineent MasSey var bróðir k vikmyndaleikarans Raymonds Massey, og í æsku hafði hann sjálfur hugsað sér að leggja út á leikarabrautina. Það var áð- ur en Raymond bróðir hans hóf lisitaferil sinn, emda hafði Ray- mond þá hugsað sér að gerast stjórnmálamaSur. UTSALAN Bankastræti 10 er í fullum gangi Mikið úrval af kjólaefnum, fatnaði og skóm Daglega eitthvað nýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.