Morgunblaðið - 21.01.1968, Page 22
#«•■
«*>' kaíiví at ts jTTTOAnrrwvfTip mvfTmfln*,#
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1968
22
Oþarfí
MIÐVIKUDAGINN 17. þ.m. birt
ist í Morgunblaðinu grein eftir
Kristján G. Gíslason, stórkaup-
mann. Greinina nefnir höfundur
„óþarfi". Tilgangur greinarinnar
virðist vera sá að afsaka og
skýra innflutning á kökubotnum,
en ástæða er til að ætla, að þegar
á allt er litið, sé niðurstaðan af
t
Eiginmaður minn, faðir
okkar og sonur,
Ólafur Björnsson
héraðslæknir
lézt í Landsspítalanum föstu-
daginn 19. þ.m.
Katrín Elíasdóttir
börnin og
Jónína Þórhallsdóttir.
t
Sigurður H. Briem
Laufásvegi 6
andaðist að Hrafnistu 19. jan.
F. h. ættfólks og vina.
Gunnlaugur E. Briem.
t
Faðir okkar,
Jóhann Þórðarson
Vitastíg 9A
andaðist í Landsspítalanum
föstudaginn 19. jan.
F. h. aðstandenda.
Sigurður Jóhannsson.
innflutningi þessum neikvæð fyr
ir verzlunarstéttina.
í greininni gerir höfundur
mjög óverðskuldaða tilraun til
að afsaka innflutning þennan á
kostnað íslenzku bakarastéttar-
innar, en þar segir orðrétt:
. . . Kökubotnar virðast hins
vegar hafa orðið verzlunarstétt-
inni hvað hættulegastir. Ef
dæma má þá eftir vinsældum
virðist þó fé til þeirra kaupa vel
varið. Um hitt má deila hvort
æskilegra sé frá þjóðhagslegu
sjónarmiði að kökubotnamir séu
framleiddir hér með íslenzkum
höndum og hyggjuviti. Að álasa
kaupmönnum fyrir það, að hinir
útlendu eru teknir framyfir þá
íslenzku, ef þeir á annað borð
eru á boðstólum, finnst mér nálg
ast að hengja bakara fyrir smið,
eða réttara sagt í þessu tilfelli
kaupmann fyrir bakara ...
Þar sem telja verður greinar-
höfund ábyrgan aðila í verzlun
arstétt, verður að átelja þær ó-
smekklegu dylgjur, sem fram
koma í ofanritaðri málsgrein.
Það er nú einu sinni svo, að bak
arar hafa verið mjög háðir inn-
flytjendum vegna framleiðslu
sinnar, og koma því aðdróttanir
t
Hjartkær móðir okkar,
Kristín Jónsdóttir
lézt að heimili sínu Kapla-
skjólsvegi 7, laugardaginn 13.
janúar. Verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn
23. jan. kl. 1,30 e.h.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Börn og tengdabörn.
t
Maðurinn minn
Jón Eyjólfsson
kaupmaður
verður jarðaður frá Dómkirkj
unni miðvikudaginn 24. jan.
kl. 1,30. Blóm vinsamlega af-
beðin, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á styrkt
arsjóð vistmanna á Hrafnistu.
Sesselja Konráðsdóttir.
Kristjáns úr hörðustu átt. Þá
má jafnframt minna á, að bak-
arar hafa ekki mótmælt eða ótt-
ast þennan innflutning.
Brauð er lifandi fæða og kök-
ur eru það líka, ef þær hafa
ekki verið kæfðar langtímum
saman í loftþéttum umbúðum. Ó-
neitanlega virðist mér, að við-
skiptavinir bakara vilji helzt fá
brauðin ný, svo og flest annað
það, sem við framleiðum. Það er
því andstætt reynslu bakarans,
að neytendur taki eldri vöru
fram yfir það sem nýtt er.
Reyndar virðast vinsældir þess
ara svokölluðu tertubotna dvín-
andi og ástæða er til að efast um
að þeir hafi náð verulegum vin-
sældum, og þætti mér ekki ótrú
legt, að ýmsir þeir, sem lagt hafa
fjármuni til kaupa á þessum
varningi, vildu gjarnan, að vin-
sældir hans væru snöktum meiri.
Þá leyfi ég mér að efast um, að
Kristján hafi gert sér glögga
grein fyrir, hve mikið magn af
Norskur
ndmsstyrknr
NORSK stjórnarvöld hafa ákveð
ið að veita íslenzkum stúdent
styrk til háskólanáms í Noregi
næsta skólaár, þ.e. tímabilið 1.
sept. 1968 til 1. júní 1969. Styrk-
urinn nemur 800 norskum krón-
um á mánuði, og er ætlazt til,
að sú fjárhæð nægi fyrir fæði
og húsnæði, en auk þess greið-
ast 400 norskar krónur vegna
bókakaupa o. fl.
Umsækjendur skulu vera á
aldrinum 20—30 ára og hafa
stundað nám a.m.k. tvö ár við
Háskóla íslands eða annan há-
skóla utan Noregs. Þá ganga
þeir fyrir um styrkveitingu, sem
ætla að leggja stund á náms-
greinar, er einkum varða Nor-
eg, svo sem norska tungu, bók-
menntir, réttarfar, sögu Noregs
eða norska þjóðmenningar- og
þjóðminjafræði, dýra-, grasa-
og jarðfræði Noregs, kynna sér
norskt atvinnulíf o.s.frv.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þennan, sendi
menntamálaráðuneytinu umsókn
fyrir 15. marz 1968 ásamt afrit-
um prófskírteina og meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu og hjá sendiráðum ís-
lands erlendis.
t
Konan mín
Gyða Guðjónsdóttir
lézt að heimili sínu Rauðarár
stíg 22 að morgni 19. þ.m.
Bjarni Oddsson.
t
Útför
Guðmundu Björnsdóttur
sem lézt 16. þ.m. að Elliheim-
ilinu Grund í Reykjavík fer
fram frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 24. janúar kl. 1,30
e.h. — F. h. vandamanan.
Jónas Pálsson.
t
Innilegar þakkir vil ég færa
sveitungum mínum í Reyk-
holtsdal og Flókadal og félög
um úr Garðyrkjufélagi Borg-
arfjarðar fyrir höfðinglegar
peningagjafir við fráfall eigin
manns míns
Magnúsar Jóhannessonar
Sigurborg Þorleifsdóttir,
Björk.
t Eiginmaður minn og faðir Björn Henry Ólsen Otrateig 50 andaðist á Borgarsjúkrahús- inu 19. þ.m. Gunnþóra Gísladóttir, Hafliði Ólsen. t Eiginmaður minn, faðir, fóst urfaðir, tengdafaðir og afi, Sigurður Ólafsson Snorrabraut 40 verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 24. jan. kl. 3 e.h. Ágústína Sigurðardóttir, böm, fóstursynir, tengda- börn og barnabörn. t Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns og stjúpföður, Jens Margeirs Jenssonar frá Bolungarvík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Vífilsstöð- um. Ingibjörg Þórðardóttir, Enika Enoksdóttir.
t Bálför móðurbróður míns, Kristjáns Stígssonar sem lézt að heimili mínu Laugavegi 105 16. jan. fer fram frá Fossvogskirkju 23. jan. kl. 10,30 f. h. Fyrir hönd aðstandenda. Sigurbjörg Kristófersdóttir. t Maðurinn minn og faðir okkar, Lárus Lárusson trésmiðameistarí, sem lézt að heimili sínu 17. jan., verður jarðsettur frá Fossvogskirkju 24. jan. kl. 3. Blóm afþökkuð. Jónína Levy, Þórdís Lárusdóttir, Kristín Lárusdóttir, Lárus Lárusson. t Alúðarþakkir til allra þeirra er sýndu samúð við andlát og jarðarför Guðjóns Guðbrandssonar frá Rauðalæk Margrét Sigrún Guðjónsd., Gróa Árnadóttir, Hannesína Sigurðardóttir, Ágúst Guðbrandsson, Sigurbjörg V. Guðbrandsd., Guðmundur B. Guðmundss.
þessari vöru er óselt hjá kaup-
mönnum, svo ekki sé minnst á
það magn, sem aldrei kemst alla
leið til neytenda.
Það er virðingarvert að halda
uppi vörnum fyrir sína stétt og
það er ekkert athugavert við til-
raunir innflytjenda til að auka
fjölbreytni í vöruvali, þó því
verði seint trúað að innflytjend-
um hafi verið efst í huga að full
nægja tertuþörf þjóðarinnar með
þessum innflutningi. Ef á hinn
bóginn verða mistök eða von-
brigði við slíkar tilraunir, er ó-
líkt stórmannlegra að viður-
kenna mistökin og eðli þeirra en
að gera tilraun til að „hengja
bakarann“.
Þrátt fyrir veruleg vonbrigði
sem afstaða Kristjáns G. Gísla-
sonar til bakarastéttarinnar hef-
ur valdið, er umræðum um þetta
mál lokið af minni hálfu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sigurður Bergsson.
Matvöruverzlun í Miðbænum
Vil kaupa eða taka á leigu matvöruverzlun.
Upplýsingar í síma 82937.
Sérverzlun í Miðbænum
til sölu með eða án vörulagers, laus strax eða eftir
samkomulagi. Þeir sem óska nánari upplýsinga
sendi tilboð til Morgunblaðsins merkt: „5507“.
Stulka óskast
til starfa á lögfræðiskrifstofu frá 1. febrúar n.k.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
þriðjudagskvöld, merktar: „Skrifstofustörf 5506“.
Rýmingarsala,
stórlækkað verð
LJÓS OG HITI
Garðastræti 2.
Kaupfélagsstjórastarf
Starf framkvæmdastjóra við Kaupfélag Húnvetn-
inga og Sölufélag Austur-Húnvetninga, Blönduósi
er laust til umsóknar. Umsóknum ber að skila til
stjórnarformanns, Guðmundar Jónassonar, Ási eða
Gunnars Grímssonar, starfsmannastjóra SÍS, en
þeir munu veita nánari uppýsingar. Umsóknar-
frestur er til 14. febrúar 1968.
Stjórnir Kaupfélags og Sölufélags
Austur-Húnvetninga.
HÚSMÆÐUR
Seljum næstu daga nokkur
SÝNISHORN AF:
PRJÓNAKJÓLUM,
TÁNINGAKJÓLUM,
BARNAFATNAÐI,
KVENPEYSUM,
KVENSLOPPUM og ýmsu öðru.
S. óskazsson &i. Oo.,
Heildverzlun, Garðastræti 8. — Sími 21840.
Oezt að auglýsa í Morgunblaðinu