Morgunblaðið - 21.01.1968, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 21. JANUAR 1968.
■ ■ ■
;
Þetta er fyrsta myndin af Pósthússtræti frá þessu sjónarhorni, að því er við bezt vitum. —
Myndina tók Ólafur K. Magnússon til suðurs ofan af nýju tollstöðinni við Reykjavíkurhöfn
Leitinni haldið áfram að morðingjanum
Yfirheyrzlur í Hegningar-
húsinu við Skdlavörðustíg
Skorað á fólk að veita rannsóknarlög-
reglunni upplýsingar, sem að gagni
geta orðið
ÞEGAR Morgunblaðið fór í
prentun síðdegis í gær hafði
ekkert nýtt gerzt í morðmál-
inu, en mjög umfangsmikil
leit hélt áfram að morðingj-
anum, að því er Ingólfur Þor
steinsson skýrði blaðinu frá.
Maður sá, sem blöðin
skýrðu frá í gær að lögregl-
an vildi ná tali af, hafði þá
ekki fundizt, en þess má geta,
að ekki var hann grunaður
um verknaðinn frekar en aðr
ir.
Ástæðan til þess, að lög-
reglan vill ná tali af mann-
inum er sú, að henni hefur
verið skýrt frá því, að hann
hafi verið að bjóða sænskar
sígarettur, John Silver, til
sölu fyrir skömmu, en síga-
rettustubbur af þeirri tegund
fannst í öskubakka bifreiðar
hins myrta leigubílstjóra. —
Þessi sígarettutegund er
mjög óalgeng hér á landi
nema smygluð, eða þá farþeg
ar fá leyfi til að taka með
sér eitt karton.
Morgunblaðið vill enn einu
sinni skora á alla þá, sem
gætu gefið einhverjar upp-
lýsingar um mál þetta
hversu lítilsverðar sem þær
kunna að virðast, að skýra
rannsóknarlögreglunni þegar
í stað frá hugmyndum sín-
um, þar sem þær geta komið
í góðar þarfir við lausn máls-
ins.
Við skulum vera minnug
þess, að enn leikur morðing-
inn lausum hala á meðal okk
ar og því mikill ábyrgðar-
hluti að skýra rannsóknar-
lögreglunni ekki frá öllu því,
sem upplýst gæti málið.
Síðustu fréttir . . .
Yfirheyrslur stóðu yfir í
Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg allan daginn í gær
og stjórnaði þeim Þórður
Björnsson, yfirsakadómari.
Ekki hafði neinn verið úr
skurðaður í gæzluvarðhald,
er blaðið fór í prentun, en
vitað er að útlendingur var
þar til yfirheyrslu. Hann var
enn í yfirheyrslu, þegar Morg
unblaðið spurðist síðast fyrir
um gang mála í Hegningar-
húsinu.
15000 krónum stolið
UM 15000 krónum í peningum
var stolið úr Afurðasölu SÍS á
Kirkjusandi aðfaranótt laugar-
dags. Innbrotsþjófarnir gengu
þar um með exi og mölvuðu
upp fimm hurðir og brutu nokkr
ar rúður.
í afgreiðslunni á fyrstu hæð '
fundu þeir lítinn peningakassa
með um 15000 krónum í og
höfðu þeir kassann á brott með
sér. Innbrotsþjófarnir komust
inn í bygginguna með því að
brjóta tvöfalda rúðu í þak-
glugga.
317 á alvinnuleysisskrá
317 manns voru skráðir atvinnu-
lausir hjá Ráðningarskrifstofu
Reykjavíkurborgar, þar af 279
karlar og 38 konur. Eru þetta
tölurnar frá því á fimmtudag að
viðbættum þeim er létu skrá sig
í fyrradag og gær. í fyrradag
létu skrá sig 39 karlmenn og 7
konur, en í gær fram til hádeg-
is ö karlar og 2 konur.
Ragnar Lárusson forstöðumað
ur Ráðningarskrifstofunnar
sagði að ekki hefði veri'ð strik-
ið út af skránni síðan á fimmtt
dag. Ýmsir hefðu fengið atvinnu
síðan, m.a. fyrir tiLstilli skrif-
stofunnar sjálfrar, en saman-
tekt á þ.ví yrði ekki gerð fyrr en
á mánudag. Þar af leiðandi er
talan 317 ef til vill of há.
Tjónobætur tryggingaiélagnnnu
566 milljónir krónn 1965
— Tekjur námu 938 millj. kr.
'I SKÝRSLU um starfsemi trygg-
ingafélaganna, sem Hagstofan
hefur unnið að og birt í Hagtíð-
indum, kemur m.a. fram að árið
1065 (sem eru nýjustu tölur)
voru tekjur tryggingafélaganna
aðrar en af líftryggingum alls
kr. 938,7 millj. kr. Þar af námu
iðigjöld gjaldfallin á árinu kr.
425.6 millj. og yfirfærð frá næsta
ári á undan kr. 146,7 millj. Tjóna
bætur greiddar á árinu námu kr.
276,5 millj. og ógreiddar í árslok
•290 millj. eða samanlagit kr. 566,5
millj. króna.
Yfirlit þetta um almennar
tryggingargreinar nær til allra
innlendra tryggingarfélaga, sem
ráku tryggingarstarfsemi hér á
landi á þessum tínaa. Tjónabætur
og iðgjöld hækkuðu frá árunum
á undan. Námu tekjuLiðir trygg-
ingarfélaganna árið 1964 kr.
777.7 millj., þar af gjaldfaUin
iðgjöld 353,1 (frá fyrra ári 119,3
millj), en tjónabætur greiddar
Mnður höiuð-
kúpubrotnar
LÖGREGLAN var kvödd út
klukkan 01:30 í fyrrinótt vegna
ölvaðs manns, sem talið var að
hefði dottið fyrir utan hús núm-
er tíu við Lokastíg. Var maður-
inn fluttur í slysavarðstofuna og
þaðan í Landakotsspítala. Hafði
hann hlotið áverka á höfði og
við rannsókn reyndist hann
vera höfuðkúpubrotinn.
Leitin uð mönn-
unum þremur
heldur úirum
EKKERT það hefur emn komið
fram, sem varpað getur ljósi á
hvarf mannanna þriggja, sem
hafin var leit að í síðustu viku.
í gær leituðu HjáLparsrveitÍT
skáta í Hafnarfirði í nágrenni
bæjarins og gegnar voru fjörur
sunnan kaupstaðarins, en þessi
leit hafði engan árangur borið,
þegar Mbl. síðast vissi.
í dag á svo að leita að Reyk-
víkingunum fcveimur og verður
aöallega leitað í nágrenni borg
arinnar.
og gjaldfallnar kr. 264,7 millj.
Árið 1963 námu tekjurnar kr.
6411,4 millj., þarf af gijaldfallin
iðgjöld 275,1 millj. (frá fyrra ári
103 millj.) og greiddar og gjald-
fallnar tjónabætur námu 397,7
millj. kr.
Líftryggingar hér á landi eru
a-ð langmestu leyti hjá 3 félögum
og er það lagt til grundvallar
eftirfarandi tölum. Árið _ 1965
námu tekjur þeirra 13 millj. kr.
og voru iðgjöld þar af 6,5 millj.
en greiddar og gjaldfallnar tjóna
bætur 4,5 millj. Til samanburðar
námu tekjurnar árið 1964 12,6
millj., þar af iðgjöld 6,4 millj.
og tjónabætur 3,1 millj. Og árið
1963 námu tekjurnar 11,9 millj.
kr., þar af iðgjöld 6,4 millj og
tjónabætur rúmar 3 millj. kr.
Sjúlfstæðiskonui
ú Akrunesi
huldu fund
Sjálfstæðiskvennafélagið Bár-
an á Akranesi heldur fund,
miánudaginn 22. janúar kl. 8.30
í félagsheimil templara.
Ekiöákyrr-
stæða bíla
EKIÐ var á R-2893, sem er
Volkswagen 1967 Ljósbrúnn að
lit, þar sem bíllinn stóð við
Holtagerði 8 í Kópavogi milli kl.
20:30 og 23:00 s.l. föstudag. Við
ákeyrsluna beyglaðist afturbretti
bílsins.
Þá var ekið á R-17130, sem er
Volkswagen 1300 1967 brún-
drappur að lit, þar sem hann
stóð á bílastæði við Grófina
gegnt verzlun Björns Kristjáns-
son. Ákeyrslan átti sér sta'ð 18.
janúar á tímabilinu frá klukkan
09:30 til 12:30 og var hægra fram
bretti bílsins beyglað.
Rannsóknarlögreglan biður
ökumennina, sem tjónunum ollu,
og vitni, ef einhver voru að gefa
sig fram.