Morgunblaðið - 28.01.1968, Side 7
I
RAVMAT. 8£ HTJOA.CÍIÍWMU? .ííTGAJffVnJOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2«. JANÚAR 1968
7
Rúna spennt fyrir sorpeyðingavél bónda síns
Cobey-sorpeyðingarvélin vinnur á sorpinu utan dyra í tilraunastöð Heilbrigðismálastofnunar
Bandaríkjanna í Johnson City í Tennessee.
Rúna Brynjólfsdóttir heitir
kona, sem fiestir Reykvíkingar
könnuðust við fyrir nokkrum
árum, vegna þátttöku hennar í
fegurðarsamkeppnum og tízku-
sýningum. Nú býr Rúna inni í
landi i Bandaríkjunum, gift
manni að nafni Herbert Cobey,
á litla dóttur og hugsar um
heimili. Hún er í heimsókn á
íslandi og kom og sagði okkur
hér frá merkilegri vél, sem
maður hennar hefur búið til og
er farinn að framleiða og sem
þau hjón binda miklar vonir
við. Þetta er hinn svonefndi
Cobey-sorpeyðari.
Herbert Cobey átti áður með
bróður sínum verksmiðju, sem
framleiddi vörubílasturtur, stein
mulningsvélar, landbúnaðar-
vagna, sorpflutningabíla o. fl.
Fyrir þremur árum sneri hann
sér alveg að því að leysa það
vandamál að koma á hagkvæm-
ari hátt sorpi fyrir kattarnef,
ekki sízt þar sem hið stóra Erie
vatn þarna á staðnum er nú
orðið dautt af fiski vegna hins
mikla magns af úrgangsefnum,
sem i það fer og orðið óhæft til
að baða sig í og þessháttar. —
Hann seldi því sinn hlut í verk-
smiðjunni, fór að finna upp
sorpeyðingarvél og reisti verk-
smiðju og tilraunastöð. Nú er
vélin komin á markaðinn, hef-
ur verið seld sorpeyðingardeild
Heilbrigðisstofnunar Bandaríkj
anna, þar sem hún verður not-
uð í tilraunaskyni í Johnson
City í Tennesee. Kanadamönn-
um, sem hafa keypt hana til
reynslu, — til Chicagoborgar,
þar sem á að nota hana til að
mala í brennsluofnana o. fl.
Vél þessi er eins og stór vinnu
vél og ekur yfir sorphaugana,
þar sem sorpið er lagt í rennur.
Það malar hún með 300 snún-
ingum á mínútu og minnkar
sorpmagnið í fyrstu atrennu um
að minnsta kosti helming. Sum-
ir láta þar við sitja, þar sem
þeir koma rusli fyrir í gryfjum
og þurfa þannig færri gryfjur.
Aðrir láta vélina halda áfram
að rífa niður og fá loft í sorpið
og láta lífrænu efnin breytast í
áburðarmold, stundum fyrir á-
hrif kemískra efna. Og siðan
eru brúsar, gler og dósir sigtað
frá, en áburðarmoldin seld í
pokum í garða.
Aðalkosturinn við að nota
svona vél, að því er Rúna sagði,
þykir vera sá umfram verk-
smiðjur, að ódýrara er að aka
vélinni yfir hauginn. Einn mað-
ur getur unnið við véliná. Hún
malar 1000—4000 tonn niður á
klukkutíma, og virðist geta unn
ið áttfalt á við ýmsar gerðir
af sorpeyðingartækjum, sem
Banadaríkjamenn nota.
— Við erum mjög spennt
fyrir því hvernig þetta gengur,
sagði Rúna. Vélin hefur vakið
athygli, enda sama vandamálið
hvarvetna í Bandaríkjunum
með að eyða og koma frá sér
sorpi, sem víða hefur eyðilagt
jafn ágæta staði og Erie-vatn
hjá okkur.
FRÉTTIR
Bahái-trúarbrögðin
Upplýsingar um Bahái-trúar-
brögðin eru veittar þeim er óska
í síma 35246 eða að Bústaðavegi 73
á miðvikudögum milli kl. 8—10 e.h.
— Monika Guðmundsson.
Breiðfirðingafélagið í Reykjavík
Hið árlega þorrablót félagsins
verður haldið laugardaginn 3.
febrúar í Sigtúni og he£st kl. 7.
KFUK — Vindáshlíð
Árshátíð okkar verður að þessu
sinni föstudaginn 2. febrúar kl.
18.00 fyrir 12 ára og yngri og laug-
ardaginn 3. febrúar fyrir eldri. —
Aðgöngumiðar fást í húsi KFUM
og K nk. miðvikudag og fimmtu-
dag frá kl. 5—7 e.h. Aríðandi er að
vitja miðanna á tilteknum tíma.
Árnesingamótið 1968 verður að
Hótel Borg laugardaginn 10. febr.
og hefst með borðhaldi kl. 19,30.
Minni Árnesþings flytur Helgi
Sæmundsson. — Árnesingakórinn
syngur. — Heiðursgestur mótsins:
Einar Pálsson bankastjóri á Sel-
fossi. Miðar afhentir í suðurdyrum
Hótel Borgar sunnudaginn 4. febr.
milli kl. 3 og 5.
Bænastaðurinn Fálkagata 10.
Kristilegar samkomur sunnudaginn
28. jan. Kl. 11. Sunnudagaskóli A1
menn samkoma kl. 4. Bænastund
alla virka daga kl. 7 e.h. Allir vel
komnir.
Æskulýðsstarf Neskirkju. Fundur
stúlkna og pilta, 13—17 ára, verð-
ur í Félagsheimilinu mánudags-
kvöldið 29. jan. Opið hús frá kl.
7.30. Frank M. Halldórsson.
Laangholtssöfnuður. Kynnis og
spilakvöld verður í safnaðarheim-
ilinu sunnudaginn 28. janúar kl.
8.30. Kvikmyndir fyrir börnin og
þá, sem ekki spila.
Kristniboðsvikan
í Keflavík
Samkoma í kirkjunni sunnudag kl.
8,30 e.h. Ólafur Ólafsson, kristni-
boði og Þórir S. Guðbergsson, skóla
stjóri, tala. Söngur og hljóðfæra-
sláttur.
Á mánudag: Konráð Þorsteins-
son og Jónas Þórisson tala.
Kristniboðsþáttur.
Kvenfélag Háteigssóknar heldur
aðalfund í Sjómannaskólanum
fimmtudaginn 1. febrúar kl. 8,30.
Fíladelfía, Reykjavík. Vakninga
samkoma sunnudaginn 28. jan. kl.
8. Ólafur Sveinbjörnsson og Hólm-
fríður Hanna hjúkrunarkona tala.
Tvisöngur.
Heimatrúboðið. Almenn samkoma
sunnudaginn 28. jan. kl. 8,30.
Allir velkomnir.
HHjálpræðisherinn. Laugard. kl.
Keflavík Ný sending samkvæmis. kjólaefni. Hrannarbúðin. Ung hjón með tvö börn vantar 2ja— 3ja herb. íbúð Skilvís mán. aðargreiðsla. Uppl. í síma 18943.
Árshátíð Loðhúfur
Fél. Snæfellinga og Hnapp dæliniga á Suðurnesjum heldiur árshátíð föstud. 9. febr. í Félagsheimilinu Stapa. — Nefndin. úr ekta skinnum á börn og unglinga, kjusur með dúsk. um, nýjasta tízka. Póstsend um. Kleppsvegi 68, 3. hæð til v. Sími 30138.
Aðstoða námsfólk Skerpingar
í stærð-, eðlis- og efnafræði o. fl. fyrir tækniskóla-, gagnfræða-, lands- og stúd enspróf. Árm. Ö Ármannss. stud. oecon, sími 15801. Skerpum allar gerðir bit- verkfæra, carbit harðmálm og skauta, skæri, hnífa og fl. Sækjum, sendum. Símar 18860, 82797. Grjótagötu 14.
Hestur — píanó Vil skipta á góðum reið- hesti og vel með förnu pí- anói. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt: „5224. Herbergi til leigu í Hraunbæ 14, 3 herbergi ásamt baði leigjast saman eða sitt í hvoru lagi. Uppl. í síma 34441.
Bílaviðgerðir Pels
Geri við grindur í bílum, og alls konar járnsmíði. — Vélsm. Sigurðar V. Gunn- arssonar, Hrísateig 5, sími 34815 (heima). Glæsilegur nýr Biasam pels til sölu, nr. 42, litur blac dia mond. Uppl. á Nýja Garði (herb. 30), sími 14789 frá æl. 2—6 e. h.
Tek saum Aðstoð
Sauma síða og stutta kjóla, sníð, máta og háTfsauma. Sauma einnig gluggatjöld, Sigríður Ásmundsdóttlr, Álftamýri 8, sími 38201. við skattframtöl einstakl- inga. Opið um helgina. HÚS & EIGNIR, Bankastræti 6, sími 16637.
Isskápur óskast Tveir rútubílar
Vil kaupa notaðan ísskáp. Uppl. í síma 35298. til sölu. Uppl. í síma 18285 og 30872.
Gl 22-24
-322 G2
Parket gólfflísar
Stærð 10 cm x 90 cm og 23 cm x 23 cm.
GOTT VERÐ
20,30 Hermannasamkoma. Sunnud.
kl. 11. Helgunarsamkoma. kl. 20,30
Hjálpræðissamkoma. Flokksforingj
arnir og hermennirnir taka þátt í
samkomum dagsins. Allir velkomn
ir. — NB.: Næsta sunnud. byrjar
Æskulýðsvikan. — Heimsókn frá
Noregi.
Færeyska Sjómannaheimilið,
Skúlagötu 18. Samkomur eru hvern
sunnudag kl. 5.
Kristileg samkoma verður í sam
komusalnum Mjóuhlíð 16 sunnud.
kvöldið 28. jan. kl. 8 Allt fólk vel
komið.
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn,
Keflavík, heldur aðalfund fimmtu
daginn 1. febrúar kl. 9 í Æskulýðs
húsinu. Á eftir verður spilað bingó.
Frá Bridgedeild Borgfirðingafél.
Nýlokið er sveitakeppni. Efst varð
sveit Sævins Bjarnasonar. — Ein-
menningskeppni hefst mánudaginn
29. jan. í Domus Medica kl. 8 e.h.
Þátttakendur mæti stundvíslega. —
Kristniboðssamkoma
í Hafnarfirði
Kristniboðssamkoma í Hafnarf.
verður í húsi KFUM, Hverfisg. 15
sunnudagskvöldið kl. 8,30. Litmynd
ir frá Konsó. Ingunn Gísladóttir
hjúkrunarkona talar. Kristniboðs-
deild KFUM og K, Hafnarfirði.
Allir velunnarar félagsins velkomn
ir.
Boðun fagnaðarerindisins. — Al-
menn samkoma að Hörgshlið 12,
Reykjavík sunnudaginn 28. jan.
Skóútsolo
Kvenskór
á kr. 9®.00.
Drengjaskór
st. 27—41
á kr. 150.000—250.00.
Kvenkuldaskór
frá kr. 198.00.
Drengjasnjóbomsur
kr. 150.00.
Kvenbomsur
frá br. 50.00.
Kvenskóhlífar
og tn. fl.
f7\amnesií<?.qi Q
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu