Morgunblaðið - 28.01.1968, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.01.1968, Blaðsíða 32
Mikil ófæri vestur um til Austurlands — Reynt að opna fjallvegi á þriðjudag — ef veður leyfir MIKIL ófærð var á Vestur-, Norður- og Norð-Austurlandi í gær, og og á Vestfjörðum. Yfir- leitt átti ekki að aðstoða bif- reiðir, fyrr en á þriðjudag og verður það því aðeins gert, að veður leyfi. Ekki var vitað um bifreiðar fastar á heiðum uppi, en allmikill hópur bifreiða mun hafa beðið færis við Fornahvamm og ætlaði Vega- gerðin að aðstoða þær í gær yfir heiðina, en ekki átti að ryðja veginn fyrir umferð fyrr en á þriðjudag. Fyrirhugað hafði verið í fyrradag að aðstoða bifreiðar yfir Fróðárheiði og Kerlingar- skarð en á föstudagsmorguninn var komin stórhríð á Vestfjör’ð- um, sem færðist suður eftir og var byrjað að snjóa á Snæfells- nesi síðari hluta dags. Varð því að hætta allri aðstoð. Þá má geta þess að Vestfjarðaleið komst ekki lengra en í Búðar- dal í fyrradag og sneri þar við. Komst bifreiðin sfðan ekki lengra en að Bröttubrekku og var hún þar enn í gær. Á Holtavörðuheiði var geysi- legur lausasnjór og útlit fyrir versnandi veður. í fyrradag skall svo á þar mikil hríð og Síldveiðiskipin enn í höfn vegna veðurs Hin fœreysku stunda veiðar í Norðursjó ÍSLENZKU síldveiðiskipin, sem verið hafa að veiðum skammt fyrir norðan Færeyjar að und- anförnu voru enn öll í höfn í gær, er Mbl. hafði tal af Arge, fréttaritara sínum í Færeyjum. Var þá vonzkuveður að norðan 8 til 9 vindstig um allar eyj- arnar og snjókoma. Slysavarna- félagið 40 ára SLYSAVARNAFÉLAG ís- lands á fjörutiu ára afmæli á morgun. Þegar hefur verið ákveðið að ekki skuli haldið upp á afmælið fyrr en Lands- þing félagsins hefst 25. apríl næstkomandi, til þess að sem flestir fulltrúar utan af landi geti tekið þátt í hátíðinni. Það er ógerningur að rekjn sögu félagsins í stuttri frétt, en hinsvegar áreiðanlega óhætt að segja að landsmenn allir sameinast í hamingju- óskum og þakklæti fyrir vel unnin störf. Þegar svo af- mæiisins vcrður minnst verð- ur nánar skýrt frá félagsstofn un og starfsemi í Morgun- blaðinu. Færeysku síldveiðiskipin voru öll nema 2 við veiðar á Norður- sjó í gær, en þar var veður einnig óhagstætt og sildin smá. Togarar Færeyinga eru allir við Vestur-Grænland og afla sæmi- lega, en missa þó alltaf dag og dag úr vegna veðurs. 15 bátar stunda nú línuvei'ðar frá Fær- eyjum og hafa aflað sæmilega. Selja þeir aflann á Bretlands- markaði og hafa sölur þeirra verið þolanlegar. biðu fjölmargir bílar báðu meg in heiðarinnar. Yfirleitt lögðu menn ekki á heiðina, en biðu átekta. Um hádegisbil í gær var komið sæmilegt veður í Forna- hvammi með 18 stiga frosti, en norðan við heiðina — Hrúta- fjarðarmegin var mikill skaf- bylur. í Skagafirði gerði mikið vonzkuveður í fyrrakvöld með stórhríð í Vatnsskarði. — Nokkrir bílar voru aðstoðaðir yfir Öxnadalsheiði, en þeir komust ekki lengra en í Varma hlíð. 1 gærmorgun var verið að aðsto'ða þessa bíla til Blöndu- óss. Flestir vegir í Skagafirði voru ófærir í gærmorgun, en verið var að ryðja Sauðárkróks braut, svo og veginn yfir Hegra nes. í Eyjafirði var mjjíil snjó- koma í logni í fyrradag og er á kvöldið leið var snjór orðinn um 15 til 20 sm., jafnfallinn. Síðan gerði stórhrið, en í gær- morgun hafði veðrinu slotað eitt hváð og var ófært til Dalvíkur og út á Svalbarðsströnd. Eitt- hvað var reynt að greiða fyrir mjólkurflutningum í gærmorg- un. Frá Akureyri var ófært til Húsavíkur og á Austurlandi var Fagridalur jeppafær, niður á Eskifjörðr. Oddsskarð var ófært. Fært var um Hérað í nágrenni Egilsstaða. Um Suðaustur- og Suðurland var góð færð. Blaðamenn gæða sér á þorramta í Naustinu. Þorramatur í Nausti ÞORRINN er hafinn og í gær byrjaði veitingahúsið Naust að bera á borð fyrir gesti sína þorramatinn, eins og verið hef- ur undanfarin ár. Trogin hafa að geyma vel útilátinn skammt af ýmsum tegundum þjóðlegs matar, svo sem svið, slátur, há- karl, hangikjöt, súran hval, sels- hreifa, svo að eitthvað sé nefnt. Þetta er 11. árið í röð, sem Naust býður uipp á þorramat, en allur maturinn er undirbúinn atf starfsfólki veitingahússins. Geir Zoegai, forstjóri Nausts, lllviðri á Akureyri Akureyri, 27. janúnatr. í GÆltMORGUN var hér mikil snjókoma, en hægviðri, sem hélzt fram undir nónbil, en þá rauk hann upp á norðvestan og herti frostið. Varð frostið mest 9 til 10 stig og veðurhæð komst upp í 9 vindstig. Fylgdi mikill skaf- renningur, þannig að bílar á Akvöröun SH um umbúöirnar óbreytt Bœjarútgerðin segir 5H ábyrga fyrir tjóni, sem úfgerðin kann að verða fyrir SAMKVÆMT upplýsingum frá Bæjarútgerð Reykjavíkur hefur stjórn Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna tilkynnt, að fyrri ákvörðun um að neita að af- henda umbúðir fyrir frystan fisk sé óbreytt, og muni stjórn- in ekki koma saman fyrr en eft- ir helgi til að ræða þetta mál frekar. Hins vegar hefur Bæjarútgerð- in ákveðið að leita réttar síns Sjópróí standa enn yiir vegrna Suðra SJÓPRÓF standa enn yfir vegna flutningaskipsins Suðra, sem lenti í erfiðleikum út af Stafnesi aðfaranótt miðviku- dagsins, þegar sjór komst í olí- una og vélarnar drápu á sér. Rmil Ágústsson, borgardóm- ari, sagði Morgunblaðinu í gær að rannsókn stæði yfir á olíu- kerfi skipsins og eins þyrfti lík lega að rannsaka prammann sem það tók olíu úr. Þá kæmi einnig til væntanleg krafa um björgunarlaun og því ekki víst hvenær sjóprófum lyki. fyrir dómsstólum og krefjast þess, að umbúðir fyrir frystan fisk verði afhentar og jafnframt verði SH gerð ábyrg fyrir því tjóni, sem Bæjarútgerðin kann að verða fyrir vegna þessa. Brezki togarinn talinn af BREZKI togarinn St. Romanus er nú talinn af, en víðtæk leit að honum hefur ekki borið neinn árangur. Slysavamafélagið í Osló hafði samband við Slysa- vamafélag Islnnds í gær og til- kynnti að leit hefði verið hætt. Búið er að sannreyna að gúmmí- báturinn sem fannst í Norðursjó var af Romanusi, og augljóst að enginn hefur komizt í hann. Með St. Romanus fórust 20 sjómenn. þjóðvegum í nágrenni Akureyr- ar áttu í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar, aðallega vegna blindu og hríðarkófs. Um tíma urðu einnig Ieigubílar í bænum að leggja niður akstur vegna skafrennings. Voru bílar skildir eftir á veg- um unnvörpum, þar sem þeir strönduðu, öðrurn og öflugri bíl- um ti:l mikilla tafa. Víða voru þess dæmi t. d. á Svalbarðs- strönd, að fólk sem yfirgatf bíln sína leitaði gistingar á nélægum bæjum. Ekki er vitað um nein óhöpp eða slys af völdum veðursins, nema hvað tunnuflutningabíll á leið frá Hjalteyri mun hafa lent út af veginum. Þegar á leið kvöldið tíók veður heldur að lægja og birti jafn- framt í lofti. — Sv. P. Sæmdur orðu KONUNGUR Svía, Gustaf VI Adolf 'hefur sæmt f.'V. sænska ræðismanninn á Siglufirði, ólaf Ragnars, riddarakrossi hinnar Konunglegu Vasaorðu. Horuum var afhent heiðursmerkið á heim ili sænska sendiherrans 25. þ.m. tjáði blaðamönnutn, þegar þeir fengu að bragða á góðgætinu sl. fimmtudag, að ve"ðið á troginu yrði hið sama og síðustu ór. * Ohugnanleg kímnigáfa MAÐUR í Reykjavík fékk sl. | miðvikudag sendan sorgar- krans með nafni konu sinnar , og á borða við kransinn stóð: Hizta kveðja — frá Ástu og ( Jóni. Manninum brá óþægi- lega í brún, þar sem hann vissi ekki til, að neitt hefði komið fyrir konu sína, enda var hún við beztu heilsu. Manninum þótti þetta að vonum heldur grátt gaman og sneri sér til rannsóknar- lögreglunnar og nú eru það tilmæli hennar, að þeir seim geta gefið upplýsinigar um sendanda kransins, gefi sig fram h;ð fyrsta, svo sá eða þeir, sem þessa óhugnanlegu kímnigáfu hafa, fái ekki ann ' að tækifæri til að hrella sak laust fólk. Sjötta umferð tefld í dug í DAG kilukkan tvö verður teifld 6. umferð á Skákþingi Reykj aivíkur. Teflt er í hinum nýju húsakyninum Tafltfélags Reykijavíkur að Grensásvegi 46. Keppni á mótinu er mjög hörð en eftir í hvorum riðli eru nú Gunnar Gunnarsson og Björn Þorsteinsson báðir með 4% vinn- ing. Miklar ógæftir hjá línuhátum MIKLAR ógæftir það sem af er janúar hafa hamlað mjög veið- um hjá línubátum. Þeir hafa þó fengið sæmilegan afla margir hverjir, þegar tíð hefur verið sæmileg. Tveir bátar hafa róið frá Stokkseyri, og vegna ótíðar aðeins farið tvo róðra. Afii hefur verið lítill, tvo til þrjú tonn í róðri. Ellefu bátar hafa hafið róðra á línu frá Kefla víik, en þeir háfa aðeins farið út sex sinnum vegna ógæftanna, og verið með 2—4 tonn í róðri. Sömu sögu er að segja frá Reykjavík. Þaðan hefur verið sáralítið hægt að róa vegna veðr- áttunnar. Þó kom Garðar inn i fyrradag og hatfði fengið 22 tonn. Þá ikoom Ásbjörn inn í gær með 4 tonn. Á Snæfellsnesi hafa bátamir líka lítið getað róið vegna táðarfarsins — aðeins far- ið tvo eða þrjá róðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.