Morgunblaðið - 28.01.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968
11
ÚTSÝNARFERÐIR 1968:
SEBiNiS OG ÁÐIiR - BEZTA OG
FJÖLBREYTTASTA FERÐAIJRVALIÐ
NYJUNG: Farþegar, sem panta fyrir
1. apríl fá ókeypis ferða- og farangurs-
tryggingu, sem einnig tryggir endur-
greiðslu fargjalds, ef farþegi verður að
hætta við för sína vegna veikinda.
★ Þægilegar flugferðir fram og aftur, svo að
þér getið notað allan tímann í sólskininu
til hvíldar og skemmtunar.
★ 12 daga dvöl á úrvalsbaðstað með fullu uppi-
haldi á völdu nýtízku hóteli. Flest hótelin
með sérkaði, svölum og einkasundlaug.
★ Völ á skemmtilegum ferðum til fagurra og
merkra staða í nágrenninu.
★ 3 dagar í heimsborginni London í öllum
ferðum.
★ Reyndur íslenzkur fararstjóri í öllum ferð-
um.
FERfiiH vro m\ HÆFI
ALASSIO — skemmtilegasti baðstaðurinn
á BLÓMASTRÖND ÍTALÍU. Úrvalsbaðströnd og
margir fagrir staðir í nágrenninu. Þeir, sem
panta snemma, komast á hið nýja, vistlega
HOTEI, CONTINENTAL.
Brottför: hálfsmánaðarlega frá 12. júlí —
9. ágúst.
LLORET — að flestra dómi, sem til þekkja,
er Lloret de Mar á hinni fögru Costa Brava vin-
sælasti baðstaður Spánar á sumrin, með úrvals-
baðstrendur og nærri 60 næturskemmtistaði.
Skammt til stórborgarinnar BARCELONA og
margra fagurra staða í grennd. Val um ný,
vönduð hótel: IIOTEL FLAMINGO og HOTEL
INTER, 1. flokks.
Brottför: hálfsmánaðarlega 26. júlí — 6. sept.
Aukaferð 18. júní.
BENIDORM — einn vinsælasti baðstaður Spánar
á seinni árum í heillandi umhverfi.
Nýtt hótel: TORRE DORADA.
Brottför: 17. maí og 21. sept.
TORREMOLINOS — á Costa del Sol, Sólar-
strönd Spánar, er tilvalinn staður vor og haust
og íslendingum að góðu kunnur úr páskaferð-
um Útsýnar. Hotel ALTA VISTA og AL
ANDALUS í luxusflokki.
Brottför: 21. sept. — 18 dagar.
RÓM/SORRENTO — Margir kjósa að dveljast
nokkra daga í Róm — borginni eilífu — og
njóta síðan sjávar og sólar í Sorrento í heillandi
umhverfi Napoliflóans. Það er vandi að velja
betur.
Brottför: 16. og 30. ágúst.
Það er ótrúlegt en satt, að þrátt
fyrtT gengisfall ísl. krónunnar,
býóur ÚTSÝN enn 15 daga ferðir
til London og Miðjarðarhafs-
landanna fyrir aðeins kr.
13.900 - Allt innifalið.
L A N D —
Aldrei áður hefur yður boðizt Grikklandsferð
með slíkum kostakjörum. Flogið er um London
til Ítalíu, en siglt þaðan með 26 þús. tonna far-
þegaskipi, Heleanna, um fagurblátt Adríahafið
meðfram strönd Júgóslavíu til Grikklands og
dvalizt í viku á baðstað skammt frá Aþenu, en
einnig er kostur á skoðunarferðum, t. d. til
Aþenu, Delfi o. fl. Verð frá 17.900.
Brottför: 23. ágúst og 13. sept.
PÁSKAFERÐ
★ Pantið snemma, fjöldinn er takmarkaður.
I fyrra gat Útsýn ekki annað eftirspurninni.
I ár eru ferðirnar enn hagstæðari.
Allir vita, að hópferðir Útsýnar hafa notið einróma trausts og
vinsælda um 12 ára skeið, en hafið þér kynnt yður þjónustu
ÚTSÝNAR við þá, sem ferðast á eigin spýtur.
Hinn reyndi ferðamaður skiptir við trausta ferðaskrifstofu með
allt, sem við kemur ferðalaginu, sér til þæginda og hagsbóta.
ÚTSÝN er alþjóðleg ferðaskrifs tofa, þar sem þér getið fengið
alla farseðla, og með TELEX-þj ónustu okkar stöndum við í sam-
bandi við hótel um allan heim og getum fengið pöntun staðfesta
um hæl.
11. — 26. apríl Aðeins fá sæti laus
FERÐATILHÖGUIM:
í'lug um London til Malaga. 15 áhyggjulausir sólskinsdagar
í TORREMOLINOS, frægasta baðstað á Sólarströnd Spánar.
HOTEL ALTA VISTA, HOTEL AL ANDALUS og HOTEL
RIVIEItA.
Til tilbreytingar gefst kostur á ferðum til nokkurra fegurstu
og kunnustu staða Spánar, t.d. MALAGA, GRANADA, og
yfir sundið til TANGIER í AFRÍKU.
Stanzað í London á lieimleið, og hægt að framlengja dvöl þar.
í TORREMOLINOS er bezta loftslag Evrópu, meira en 300
sólskinsdagar á ári. í apríl er hftinn 20—30° C í skugga.
Tryggið yður sæti tímanlega.
SÍMAR:
20-100 og 2-35-10.
FERÐASKRIFSTOFAN