Morgunblaðið - 28.01.1968, Qupperneq 31
31
'i harrviar. *• Ptrnkavvtti’)?. eriGA.mMnr'HO-\í
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968
í ÞÆ'ITINUM „Stundin okkar“
verðoir m.a. sýnd kvikmjynd af
ferðalagi tveggja barna, þeirra
Maríu Jónisdóttur og Ingólfs Arn
arsonar til Ka.upmannahafnar,
Þau uirðu .hluts.körpuist í ritgerð
arsamkeppni, sem barnablöðin
Æskan og Vorið efndu til á
liðnu ári í samvinnu við Flug-
félag fslands. Sjónvarpið gerði
þrjá þættd um ferð þessa og
nefndist myndatflokkurinn
„Ævintýraferð til Hafnar“. Að
þessu sinni verður fluttur fyrsti
þátturin-n og nefnist hamn „Með
Gullfaxa til borgarinntar við
Sundið".
Stjórnarmyndun í Dnnmörku
í fyrstu lugí á þriðjudag
Kaupmannaihöfn, 27. jan.
LEIÐTOGAR stjórnarflokkanna
dönsku halda áfram viðræðum
sínuim um stjórnarmyndun nú
um helgina og er tæpaist að bú-
ast við úrslitum í því máli fyrr
en á þriðjudag. Hvað mestar lík
ur eru taldar á stjórnarsam-
viinnu íhaldisflokksins. Radikale
Venistre og Venstre en til þess
að svo geti orðið, þurfa tveir
- N-KÓREA
Framh. af bls. 1
SOVÉZKT NJÓSNASKIP
í frétt frá Tókíó segir, að sjö
bandarísk herskip hafi siglt út
frá bandarísku flotastöðinni i
Yokosuika fyrir sunnan Tókíó.
Hefur talsmaður flotastöðvarinn-
ar hvorki staðfest né neitað
þeirri frétt. Hinsvegar hefur
fréttamaður frönsku fréttastof-
unnar AFP það eftir talsmanni
varnarmálaráðuneytisins í Was-
(hington, að sovézkt herskip
fylgdist með ferðum bandaríska
flotans við strendur Norður-
Kóreu. Er hér um könnuharskip
að ræða, sem ber nafnið „Gidro-
log“. Ekki hefur þessi frétt feng-
izt staðfest, en bent er á, að það
væri ekki óeðlilegt að Sovétríkin
vildu fylgjast með nú, þ.ví venju-
lega fylgist sovézkt skip með
flestum flotaæfingum banda-
risikra herskipa og flotadeilda At
lants'hafsbandalagsins.
Um borð í flugvélamóðurskip-
inu Enterprise er.u 90 herflug-
vélar, orustu og sprengjuþotur.
Auk 'þess hafa tvær sveitir or-
ustuþota verið sendar til flug-
valla í Suður-Köreu frá stöðvum
í Japan og á Okinawa. Meðal
fylgiskipa Enterprise er svo
kjarnorkuknúna freigátan Trux-
tun og þrír tundurspillar.
„VIÐTAL“ VIÖ BUCHER
Útvarpsstöðin í Pyongyang,
höfuðborg Tíorður-.Kóreu, sendi
í dag út viðtalsþátt, og sagði
þulurinn, að þar væri Lloyd
Mark Bucher, skipherra, að ræða
vi*ð fréttamann. Er þetta í annað
skipti sem „viðtali" við Bucher
er útvarpað frá Pyongyang, og
var fyrra viðtalið tekið upp á
segulband í Bandaríkjunum og
þar leikið fyrir konu Buchers,
sem ekki taldi sig kannast við
röddina.
í viðtalinu í dag, játar BuCher,
eða sá sem talar fyrir hans hönd,
að Fueblo hafi verið langt inn-
an landihelgislínu, og að áhöfnin
'hafi unnið að njósnum þar. Áð-
ur hafði skipið verið við njósnir
í landhelgi Kína og Sovétríkj-
anna ,sagði röddin.
Aðspurður hvort aðgerðir
áhafnurinnar hafi verið fjand-
samlegar og hvort líta mætti á
áhöfnina sem árásaraðila, svar-
aði „Bucher“: — Já, já, ég við-
urkenni. Ég hef enga afsökun
fram að færa. Njósnir okkar eru
hreinar árásaraðgerðir og glæp-
þeÍT fyrrnefinidu að semja um
stefnu sína í utan ríikismáiuim.
Ekki heffiur enn verið kveðinn
upp endanlegur úrskurður um
þingsætafjölda Vinstri sósía-
lista. Við endurtalmimgu kom í
ljós, að þeir mundu fá fjögur
uppbótarþingsæti en mál þetta
er fa-rið í sérstaka nefnd og verð
ur hugsamlega talið enn á ný,
áður en það er tiil lykta leitt.
samlegt brot á alþjóðalögum.
í óstaðfestum fregnum frá
Indlandi, þar sem Alexei Kosy-
gin, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, er á ferð, er það haft eftir
talsmanni ráðherrans, að sov-
ézka stjórnin 'hefði áhuga á að
fá Pueblo og áhöfn þess leyst
úr haldi. Sagði þessi talsmaður,
að ef bandaríska stjórnin viður-
kenndi að Pue'blo hefði verið
innan landhelgislínunnar við
Norður-Kóreu, gæti sú játning
mjög auðveldað tilraunir til að
leysa skipið úr haldi.
BREIÐA YFIR ÖGRANIR
Ekki enu þessar fregnir frá Ind
landi alveg samhljóða fregnum
frá Moskvu þar sem sagt er, að
sovézka stjórnin 'hafi nú endur-
tekið þau fyrri ummiæli sín, að
hún hafi ekki áhuga á að að-
stoða Bandaríkjastjórn við aS fá
skipið leyst. Moskvublaðið
Pravda, málgagn kommúnista-
flokksins, birtir í dag grein um
Pueblo-málið eftir Boris Strelni-
kov, sérfræðing blaðsins í mál-
um er varða Bandaríkin. Segir
þar, að Bandaríkin hafi kvatt
Örygigisráð Sameinuðu þjóðanna
saman til þess að breiða blæju
hræsninnar yfir ögranir Pueblo.
„En jafnvel mennirnir í Was-
hington trúa því ekki sjálfir að
þeim takist að blekkja fulltrú-
a-na í Öryggisráðinu," segir
Strelnikov.
Hann segir að Pueblo hafi ver
ið siglt af yfirlögðu ráði inn í
landhelgi Norður-Kóreu í þeirri
von að taka skipsins vekti öldu
„yfirborðs-ættjarðarástar" í
Bandaríkjunum sem bolaði á
brott hrópunum gegn aðild lands
ins að styrjöldinni í Vietnam.
f Bretlandi styðja blöðin yfir
leitt Bandaríkin í þessu máli.
Þannig segir til dæmis Daily
Telegraph í dag: „Ef Bandarík-
in ákveða að grípa til einhverra
flotaaðgerða, ættu Bretar að
veita þeim takmarkalausan stuðn
ing.“ The Times segir: „Banda-
ríkjamenn (og aðrir, þar' á með-
al við sjálfir) viðurkenna ekki
lögmæti stjórnarinnar í Norður-
Kóreu. Þeir telja hana, réttilega,
einræðisstjórn sem erlend öfl
hafa þröngvað upp á norðurhluta
landsins. Bandaríkin hafa samið
um vopnahlé í Kóreu, annað
ekki . . . Deilur um réttindi á
hafi úti skipta ekki máli, því
ekki má reikna með því að stjórn
in í Norður-Kóreu viðurkenni
laga- og siðferðisreglur".
Vökull hf. með umboð fyrir
Firestone barða á Islandi
í GÆR boðuðn forráðamenn
Vökuls h.f. fréttamenn á sinn
fund í tilefni af því, að fyrir-
tækið tók formlega við söluum-
boði yrir Firestone hjólbarða hér
lendis. Þessvegna eru hér á
landi í svipinn Mr. C. F. Mason,
aðalsölustjóri fyrir Evrópu og Hr.
E. V. Olesen, sölustjóri fyrir
Norðurlönd, 'hjá Firestone Inter-
national Company í Akron, Ohio.
' Harvey S. Firesone stofnaði
The Firestone Tire and Ru'bber
Company 3. ágúst árið 1900 og
ihefur ásetningur hans um að láta
vörugæði vera höfuðatriði og að
al áhugaimál fyrirtækisins ávallt
haldizt síðan, þótt nú sé önnur
kynslóð tekin við rekstri félags-
ins. Fyrsti varningurinn, sem
Firestone framleiddi, voru
gúmmibarðar á hestvagná, en síð
an hefur margt breytzt.
Þegar Henry Ford tók svo til
við að framleiða bifreiðar í De-
troit, breyttist framleiðsla Fire-
stone sjálfkrafa og í dag eru
75% framleíðslunnar hjá þeim í
gúmmi, en 25% er.u stál- og
annar iðnaður. Þeir eiga verk-
smiðjur víðsvegar um heim og
yfirleitt, þegar þeir fela erlend-
um fyrirtækjum söluum'boð sín,
þá velja þeir nokkuð traust fyrir
tæki, og kjósa síðan að þróast
með þeim, fremur en að fá ein-
staklingum að óreyndu umboð-
in.
Firestone er eitt af elztu
hjólbarðamerkjum hérlendis, og
um tíma mest seldu barðarnir
ihér. Vegna verðlags, hafa aðrir
aðilar haft 'hagkvæmari skilmála
hérlendis um tíma, en þar sem
Firestone er lang mest selda teg-
undin á Norðurlöndum, hafa for
ráðamenn þess fyrirækis erlend-
is ákveðið, að leggja aðaláherzlu
á íslenzka markaðinn og er verð
þegar orðið samkeppnisfært frá
verksmiðjunum í Hamborg,
Sviss, London, Svíþjóð og Noregi.
Vökull h.f. mun til að byrja
með leg.gja aðaláherzlu á hjól-
barðasölu, en síðar mun ætlunin
að færa út kvíarnar og bjóða
fleiri Firestone vörutegundir, ef
vel gengur.
Fyrstu sendingarnar af Fire-
stone-hjólbörðum er,u þegar
komnar til landsins og eru nú til
sölu hjá umboðinu, Hjólbarðan-
um h.f. og Aðalstöðinni h.f.,
Keflavík.
Sækið sumaraukann
Frá haustnóttum til vordaga er unnt að
sækja sumaraukann með því að fljúga með
LOFTLEIÐUM vestur til Ameríku eða
suður til Evrópu og halda þaðan, þangað
sem sólin skín allan ársins hring.
Lág vetrarfargjöld og langt skammdegi
freista til ferða allan veturinn, en einkum
er þó heppilegt að sækja sumaraukann með
LOFTLEIÐUM á tímabilum hinna hag-
stæðu vor- og haustfargjalda, 15. marz—
15. maí og 15. september—31. öktóber, en
þá er dvalarkostnaður í sólarlöndum víðast
hvar minni en á öðrum árstímum.
ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN 0G HEIM
LOFTLEIÐIS LANDA MILLI
L
WTLEIÐIR