Morgunblaðið - 30.01.1968, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 19-68
ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM
KVKMYNPIR
TÓNABlÓ
EINVÍGIÐ
(Invitatlon to a gunfighter)
Mynd þessi segir frá ungum
manni Matt Weaver (George
Segal) sem kemur heim úr
borgarastríðinu í Bandarikjun-
um, þar sem hann hafði barizt
með Suðurríkjunum. Hann
kemst að því að bankastjórinn í
bænum (Pat Hingle) hefur lát-
ið bjóða upp býlið hans og
keypt þa'ð og selt aftur með
gróða. Hann reiðist mjög og
skundar heim til bankastjórans,
þar sem hann særist og er ráðið
eindregið að halda sem fyrst
úr bænum. í þess stað fer hann
á býlið sem hann átti áður, þar
sem kemur til átaka við nýja
eigandann og lætur sá lífið.
Telst nú Weaver vera morðingi
og vilja bæjarbúar hann feigan,
að undantekinni fyrrverandi
kærustu hans, sem nú er gift
öðrum manni og síðri, og einum
Mexicana.
Þetta vefst þó fyrir bæjarbú-
um, enda er þeim annað lagi'ð
en hetjuskapur. Er því einn
sendur út af örkinni til að ná
í Ieigumorðingja. Hann kemur,
en verður skelfingu lostinn,
þegar hann sér annan leigu-
morðingja, og miklu fremri fyr-
ir á staðnum. Sá er leikinn af
Yul Brynner og hafði hann í-
lengzt á staðnum, eftir að hafa
séð fyrrnefnda kærustu, og lit-
izt vel á. Er hann nú ráðinn
til drápsins. En nú kemur skrít-
ið í ljós. Leigumorðinginn er
róman-tískur píanóleikari, vernd
ari ekkna og bágstaddra og að
auki heimspekilega þenkjandi.
Það kemur einnig í ljós að
hann er Suðurríkjamaður og
ætti því að hafa samúð með
Weaver, en þá kemur í Ijós að
hann er sonur konu, sem var
til þess að skera úr um, í eitt
ambátt, og ætti því að vera á
móti Weaver, en þó að hann
ætti eftir þessu að vera á móti
Weaver, er hann það ekki. Ef
þið skiljið þetta ekki, erum við
svipað stödd. Eiginmaður fyrr-
verandi kærustunnar er nú orð-
inn afbrýðisamur, enda Brynn-
er fluttur heim til • þeirra,
Brynner orðinn hrifinn af marg
nefndri kærustu auk þess sem
Weaver er nú innilokaður á bæ
sínum, eða ætti kannske að
segja fyrrverandi bæ sínum, og
hefur aldrei hætt að vera hrif-
inn af kærustunni. Yfir öllum
þessum ósköpum drottnar svo
Brewster bankastjóri, því að
hann á peningana.
Nú má hverjum manni vera
ljóst, sem eitthvað horfir á
kvikmyndir, að þetta getur ekki
gengið, tveir góðir og einn held-
ur lei'ður ástfangnir af sömu stúlk
unni. Það er einfalt að drepa
þann sem ekki er góður og ekki
anna'ð en léttir að því, en nú
verður að drepa að minnsta
kosti einn góðan og þá vandast
málið. Þá hættir þetta að vera
hasar og er orðið drama, sem
endar sorglega.
I lokin gerist kynblandaði
leigumorðinginn (Brynner) á-
kaflega göfugur í aðra röndina,
en djarftækur til kvenna í hina
og vill hafa brott með sér kær-
ustuna, eftir að hafa til þæg-
inda drepið mann hennar. Og
einn góður er drepinn í lokin.
Þetta er vissulega með skelfi-
legustu söguþráðum, sem frá
kvikmyndaiðnaðinum hafa kom-
ið, og bersýnilega er ætlunin að
fást við siðferðileg vandamál
frelsis og jafnréttis, en þær um-
ræður lenda allar í klúðri og
verða svo óskírar, að ekki er
gott að átta sig á hver mein-
ingin er, enda þarf meira en
lítið til a'ð leisa úr hnút atburða
rásarinnar.
Yul Bryn ner leikur aðalhlut-
verkið og líkist mest reistum
hesti í göngulagi og framgangi,
og finnst manni að hann ætti
að fnæsa og hneggja um sínar
stóru nasir. Janice Ruler leikur
kæruítuna vinsælu og gerir það
þokalega. Weaver er leikinn af
George Segal, með nokkrum lát-
um og hávaða en án mikilla
tilþrifa.
Aðeins eitt getur talist til tíð-
inda um þessa mynd, sem er
það, að nafn Stanley Kramers
skuli bendlað við svona fram-
leiðslu. Hann ef vanur að fást
vi'ð merkari hluti og gerir það
vonandi framvegis.
Hafnarfjarðarbíó:
SJÖUNDA INNSIGLIÐ
Kvikmynd þessi var gerð árið
1957 og er því orðin meira en
tíu ára gömul. í mynd þessari
reynir Ingmar Bergman að setja
vanda nútímamannsins, stríð og
írú, sem þrátt fyrir allt eru venju
lega erfðiari vandamál en matur
og þekking, upp í dæmisöig.u frá
miðöldum. Þetta mistekst og
verður yfirborðslegt, en það sem
te’kst, er að búa til mjög sér-
kennilega og á köflum frábær-
lega góða kvikmynd, sem ekki
ristir sérlega djúpt.
Bergman er prestssonur að
uppruna, og segist hann hafa
sóW innblástur að mynd þessari
í miðaldamyndir í kirkjum föð-
ur síns. Þetta kemur víða fram,
og notar hann fjölda af fyrirbær-
um, sem eru einkennanidi fyrir
miðaldirnar svo sem svarta
dauða og plágu, taflið við dauð-
ann, dauðinn að höggva lífsins
tré, trúðurinn vitri o.s.frv.
Sagt er frá krossferðariddara
(Max von Sydow), sem kemur
heim úr krossferð, eftir tíu ára
fjarvist, ásamt hestasveini sín-
um( Gunnar Björnstrand), kald-
hæðnum manni en góðlátlegum.
Svarti dauði geisar og fólk er
hrætt. í skógimim hitta þeir Jof
(Nils Poppe), góðlátlegan far-
andtrúð, ásamt konu sinni (Bibi
Anderson) og barni. Aðrar meiri
háttar persónur eru Dauðinn
(Beng't Ekerot) sem teflir við
riddarann um sál hans oig vinnur
að lokum, og Raval (Bertel And-
erberg), presturinn sem hafði
hvatt þá félaga hvað mest til
krossferðarinnar, sem nú kemur
fram sem líkræningi og einnig
sem prestur, sem hvarvetna legg
ur illt til og eykur skelfingu
fólksins í stað þess að róa það.
Efnið er mjög kippótt. Stund-
um torskilið: „Trúin er þjáning.
Hún er eins og að elska ein-
hvern í myrkri, sem svara aldrei I
þegar maður kallar". Stundum !
hljóma setningarnar eins og
Oscar Wilde væri höfundurinn:
„Krossferðirnar eru svo heimsku
legar að aðeins ídealisti hefði
getað fundið upp á þeim“. Og
sumar setningarnar eru komnar
beint úr piparsveinskómedíu
með Jack Lemmon: „Ástin er
verri en svarti dauði. Gallinn við
hana er sá, að maður deýr ekki
úr henni. Hún líður alltaf hjá“.
Myndin er nokkuð yfirborðsleg,
þegar hún fjallar um synd, trú
og dauða, eilíft líf og eilífa tor-
tímingu, hluti sem voru miðalda
manni lifandi vandamál og sann
leikur sem stóð djúpum rótum.
En fyrir Bergmann eru þetta
meira og minna látalæti.
Það sem bezt er um myndina
er kvikmyndunin, sem er hreint
snilldarverk. Kvikmyndatöku-
maðurinn gerir ekki mynd-
ina einn, en án þessa ágæta
manns, hefði þessi mynd varla
nokkurn tíma orðið neiW lík
því sem hún er. Leikur er
án undantekninga' góður. Nils
Poppe leikur trúðinn og er upp-
Iýstur af in-nri gæðum hins
sanna manns, sem metur inni-
hald lífsins meira yfirborði.
Bibi Anderson, sem leikur konu
hans, gerir það vel, en hlutverk-
ið gefur ekki tækifæri til að slá
í gegn, eins og hlutverk hennar
í Persona. Max von Sydow leik-
ur riddarann af eins'takri ró og
tekst að gæða þessa persónu ör-
yggi hinnar sterku vonar, þrátt
fyrir efasemdir og þreytu. Gunn-
ar Björnstand leikur hestasvein-
inn. Háir það honum nokkuð, að
allt hlutverkið er úr samræmi
við myndina og er þar raunveru
lega nútímamaður á ferð, eftir
'talsmáta og framgangsmáta.
Nú kann ýmsum að finnast ég
fara óblíðum höndum um þessa
kvikmynd, umfram það, sem ég
myndi gera um aðrar síðri. Þetta
er að vissu leyti rétt Það er
ekki hægt að mæla allar kvik-
myndir með sömu mælistiku og
út frá sömu sjónarmiðum. Sum-
ir gefa stjörmur og aðrir gefa
aðrar einkunnir, en ef setja
mætti svo að ég væri að gefa
stjörnur, þar sem hæst væri gef-
ið sex, myndi ég gefa þessari
mynd fimm. Ég segi þetta til að
fyrirbyggja misskilning. Berg-
mann gerir þannig hluti og fæst
við þannig efni, að ekki verður
komizt hjá því að krefjast mik-
ils. Það er táknrænt, að gaUarnir
sem ég hef bent á, eru ekki í
sjálfri tekninskri gerð myndar-
innar, heldur er um að ræða ai-
varlega veikleika í heimspekileg
um og siðferðilegum grundvelli
efnisins.
Nýtízku blómaborð
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Rósin, Aðalstræti. Alaska,
Blómið, Austurstræti. Michel-
sen, Suðurlandsbraut. Hús-
gagnahöllin. Bólstrun Harðar
Péturssonar, Laugavegi. Hús-
gagnagerðin, Hverfisgötu 125.
Híbýlaprýði, Hallarmúla. Hús-
gagnaverzlun Austurbæjar.
í KEFLAVÍK:
Húsgagnav. Gunnars Sigur-
finnssonar.
AKRANESI:
Húsgagnaverzlunin Vestur-
götu 52.
TRÉTÆKNI S.f.
2ja og 3ja herb. íbúðir
Til sölu eru skemmtilegar 2ja og 3ja herbergja
íbúðir í sambýlishúsi á góðum stað í Breiðholts-
hverfi. Seljast tilbúnar undir tréverk og sameign
úti og inni frágengin. Húsið er nú að verða fok-
helt, en íbúðirnar afhendast 1. ágúst n.k. Ágætt út-
sýni. Teikning til sýnis á skrifstofunni. Hagstætt
verð.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími 14314.
Kvöldsími 34231.
11
Fimmtugur í dcg:
Úlahir E. Úlnfsson
knupfélœgsstjóri
VESTUR í Geiradalshreppi í
Austur-Barðastrandasýslu gerast
í dag þau tíðindi að einn af höfð-
ingjum héraðsins, Ólafur E.
Ólafsson, kaupfélagsstjóri í
Króksfjarðarnesi, á fimmtugs-
afmæli. Hann er maður vaskur,
myndarlegur á velli og drengi-
iegur, eins og hann á kyn til.
Fæddur er hann að ValShamri í
Geiradalshreppi, sonur Ólafs E.
Þórðarsonar og Bjarneyjar S.
Ólafsdóttur, hins ágætasta fólks.
Lifir frú Bjarney enn við háan
aldur og býr hjá Ólafi syni sín-
um og konu hans.
Ólafur lauk verzlunarprófi við
Samvinnuskólann árið 1936.
Vann síðan hjá SÍS til ársins
1938, en þá gerðist hann starfs-
maður Kaupfélags Króksfjarðar.
Síðan hefur hann starfað sam-
fleytt í þágu ættarhéraðs síns og
heimabyggðar. Kaupfélagsstjóri
ýarð hann árið 1943. Hefur hann
lengstum orðið að búa við erfið
starfsskilyrði í þrönguim húsa-
kynnum. En fyrir nokkrum ár-
um reisti Ka-upfélag Króksfjarð-
ar nýtt og glæsilegt verzlunanhús
rétt við þjóðbrautina vestur
sýsluna. Með þeirri framikvæmd
batnaði bæði aðstaða fólksins,
sem þarna verzlar og starfsfólks
fyrirtækisins. Fagnaði Ólafur því
mjög. Man ég, hve glaður og feg-
inn hann var er hann sýndi mér
þessi nýju og fallegu húsakynni.
Ólafur 'hefur gegnt ýms.um
trúnaðarstörfum í þágu sveitar
sinnar og héraðs. Hreppstjóri
hefur hann verið síðan árið 1956
og formaður skólánefndar frá
1952.
Bjartsýni, áhugi og góðvild eru
höfuðeinkenni Ólafs í Króks-
fjarðarnesi. Hann ann ættarhér-
aði sínu heils hugar og vill hag
þess og ibúa þess sem beztan og
traustastan. Veit ég ekki annað
en að hann njóti almennra vin-
sælda, þótt einstök innanbéraðs-
mál geti valdið ágreiningi þar í
sveit, eins og víðast annars stað-
ar.
Það er ávallt ánægjulegt að
koma í Króksfjarðarnes á heim-
ili kaupfélagsstjórahjónanna, Ól-
afs og frú Friðrikku Bjarnadótt-
ur, og hins mannvænlega barna-
hóps þeirra. Sérstæð gestrisni,
höfðingsskapur og alúð mótar
þar allar móttökur og viðmót
fólksins.
f baráttunni fyrir framfara-
málum héraðsins er ólafur hinn.
liðtækasti. Er gott að eiga við
hann samvinnu, sakir sanngirni
Oians og heilinda.
Starfssaga þessa heiðursmanns
og góða drengs verður ekki rak-
in hér frekar að sinni. Hann er 1
blóma lífsins eins og fimmtugir
menn eru yfirleitt. Framundan
er starf og barátta í þágu fag-
urra sveita og myndarlegs fólks.
Vinir Ólafs í Króksfjarðarnesi
árna honum, hinni ágætu konu
hans og fjölskyldu, allra iheilla
og hamingju á timamótum, með
þökkum fyrir liðinn tíma.
S. Bj.
Verzlunarstjóri
óskast fyrir nýja sérverzlun í Miðbænum. Æskilegt
að hann geti skrifað ensk og dönsk verzlunarbréf.
IJppl. um menntun og fyrri störf óskast sendar Mbl.
merktar: „Reglusamur 5212“.
Trésmiður óskast
Ungur duglegur trésmiður (má vera réttindalaus)
óskast til iðnaðarstarfa í nágrenni Reykjavíkur.
Lítil íbúð í nýju húsi fylgir starfinu.
Aðeins reglusamur, ábyggilegur maður kemur til
greina. Sendið upplýsingar um fyrri störf þar sem
leita má eftir meðmælum. Tilboð sendist Mbl. fyrir
hádegi á föstudag merkt: „Útsjónarsamur — 5213“.
Nauðimpruppboð
Eftir kröfu Jóhanns Þórðarsonar, hdl., og Inn-
heimtu ríkissjóðs verður húseignin Narfakot í
Njarðvíkurhreppi, þinglesin eign Christian Lillie,
seld á nauðungaruppboði, sem háð verður á eign-
inni sjálfri fimmtudaginn 1. febr. 1968, kl. 4.00 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 63, 65. og 67. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1967.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.