Morgunblaðið - 30.01.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.01.1968, Blaðsíða 21
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1968 21 Fjárlagafrumvarp Bandaríkjanna lagt fram: Halli á f járlögum áætlaður átta milljarðar - Tœpir 26 milljarðar dollara eiga ao fara til Víetnamsfyrjaldarinnar WasJiington, 29. jan. — NTB-AP JOHNSON Bandaríkjaforseti, lagði í dag fram fjárlagafrum varp sitt fyrir fjárhagsárið 1968—69 og eru niðurstöðu- tölur þess 186.1 milljarður dol'lara. Mjög er undir því komið, hvort fjárlagafrum- varp þetta nái fram að ganga, að þingið samþykki fyrri til- lögu hans um 10% aukaskatt. Útgjöld til hersins eru ráð- gerð 79.8 milljarðar dollara. Hafa þau aldrei verið hærri og á þetta rót sína að rekja til styrjaldarinnar í Vietnam. Forsetinn varar við því í fjárlagafrumvarpinu, að svo kunni vel að fara, að eftir sjö blómleg ár í bandarísku efnahagslífi kunni að fylgja önnur sjö mögur, ef þingið samþykkir ekki tillögur hans um aukna skatta. Gert er ráð fyrir, að tekjurnar, og er skattaaukningin reiknuð þar með, muni nema 17‘8.1 millj- örðum dollara fyrir fjárhagsárið, sem byrjað 1. júlí. Hallinn á fjár- lögunum er reiknaður 8 milljarð ar dollara, en á núverandi fjár- bagsári er hann reiknaður 19.8 milljarðar. Forsetinn lagði hins vega áherzlu á, að án aukaskatts- ins mun hallinn verða nær 2,0 milljarðar dollara. — Við efna- hagsástand, þar sem þegar ríkir greinileg þensla, mun slíkuir halii á fjárlögum 1968—69 auka mjög á verðbólgutilhneigingu, segir í fjárlagafrumvarpinu. Það voru enn hernaðarútgjöld- in, sem sýndu mesta hækkun allra liða fjárlagafrumvarpsins, en síðan komu útgjöld til heil- •brigðismála, útrýmingar atvinnu leysis og félagsmála, sem saman- lagt sýndu næstmestu hækkun- ina. - BAUNSGÁRD Framh. af bls. 1 þriggja flokkanna við hann, en Krag naut aðeins fylgis eigin flokks og SF. Sömuleiðis lagði íhaldsflokkurinn á það áherzlu við konung, að flokkurinn styð- ur frjálslynda ríkisstjórn borg- araflokkanna með Hilmar Bauns gárd sem f or s æt i s ráðWerra. Baunsgárd varð samstundis við tilmælum konungs og hóf viðræður við stjórnmálaforingj- ana. Hann talaði við þá eftix stærð flokka þeirra og var því Jens Otto Krag fyrstur. Krag ítrekaði við BaunsgSrd, að skil- yrði fyrir samstarfi væri að hann héldi áfram embætti for- sætisráðherra, og eftir áð Bauns gárd hafði ráðgazt við annan helzta foringja RV, Karl Skytte, var því tilboði eindregið hafn- að og minnt á að RV hefði lýst því yfir fyrir kosningar, að þeir mundu ekki ganga til samstarfs við Sósíaldemókrata. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma má gera ráð fyrir, að Baunsgárd tilkynnti von bráð- ar um gang viðrræ'ðnanna og sömuleiðis hverjar verða lykt- ir málsins. Þó að samvinna tak- ist með borgaraflokkunum þremur er álitið, að þeir þurfi og nokkurn tíma til að ganga frá stefnuskrá væntanlegrar ríkisstjómar. Búizt er við til- kynningu Baunsgárd innan ör- fárra daga. Nýja þingið kemur saman hinn 6. febrúar. Ti'l þess að gera frumvarpið eins aðgengilegt og unnt er fyrir hina mörgu í þinginu, sem spara vilja, hefur forsetinn lagt fram tillögur um, að dregið verði úr útgjöldum til geimferða, land- búnaðar, skipabygginga og haf- rannsókna. Hann leggur hins veg ar til ,að útgjöld til atvinnubóta, baráttunnar gegn afbrotum, fjölskylduáætlana, heilsuvernd- ar, menntamála og til þess að hreinsa andrúmsloftið og vatnið í stórborgunum, verði aukin. Forsetinn gerir ráð fyrir, að eðlilegur vöxtur ríkisteknanna verði um það bil 11.5 milljarðar dollara, samanborið við aukn- ingu núverandi fjárhagsárs, sem á að nema 10.4 milljörðum. Þetta mun gera betur en að nægja til þess að vega upp á móti eðlilegri hækkun útgjalda samkv. fjár- lagafrumvarpinu. —• Þess vegna munu allar tekj ur vegna aukaskatta þeirra, sem tillögur eru lagðar fram urn, og hraðari g.jaldheimta á félaga- skatti verða til þess, að minnka hallann á fjárlögunuim. Á einn eða annan hátt verða skattar okk ar þyngri en áður. Við getum valið á milli skattaálagningar af handahófi og samkvæmt dutlung um tilviijananna, sem er sam- fara og hefur í för með sér dýr- tíð, vaxtahækkanir og ef til vill enn meiri halla á fjárlögum, en það fæli í sér ógnun um fjár- hagslegt vanmegunartíma'bil i kjölfar uppgangstíma'bilsins eða við getum hins vegar valið leið á'byrgðarinnar, sagði forsetinn í ræðu sinni í þinginu. Tæpir 26 milljarðar til Víetnam-styrjaldarinnar Útgjöld til hernaðarþarfa verða aukin um 3.3 milljarða dollara upp í 79.8 milljarða. Af þessu eiga 25.8 milljaðar að ganga til styrjaldarinnar í Víet- - VARÐ NÆR UTI Framh. af bls. 28 upplýsingum héraðslæknisins liggur maðurinn nú þar með lungnabólgu, auk þess sem hann er kalinn á höndum. Hann er þó talinn úr allri lífshættu. Inflúensufaraldur geisar hér á Þingeyri og er svo víða, að öli fjölskyldan liggur rúmföst. Hef- ur héraðslæknirinn, Guðmundur Steinsson, átt langan starfsdag að undanförnu, en hann gegnir líka Flateyrarhéraði, þar sem flensan er að stinga sér niður þessa dagana. Héraðsskólinn á Núpi hefur ti] þessa sloppið við inflúensuna, en þar stunda nú nám um 150 ung- lingar. Af fjórum bátum, sm gerðú eru út héðan, liggja tveir bundn ir við bryggju vegna veikinda skipshafnar. Af sömu ástæðum var þorrablóti Slysavarnadeildar- innar Varnar frestað um óákveð inn tíma, en venjan er að halda þorrablót fyrsta laugardag í þorra. Á sl. ári komu hingað 138 brezkir togarar og það sem af er þessu ári, hefur 31 togari komið hingað, ýmist til viðgerðar eða vegna veikinda einhvers af áhöfninni. Er sjúkraskýlið nú yfirfullt og dveljast fjórir Bretar í gistihús- inu Höfn, þrír vegna kals á hönd um. —O— Hér hefur verið mikið vetrar- ríki síðan um áramót og vegir oft illfærir vegna klaka og fann- kyngis. — Hulda. nam. Síðan hernaðaraðgerðir fóru að aukast í Víetnam 1965, sýna tölur, að styrjöldin hefur kostað Bandaríkin 76.3 mi'lljarða dollara. Ekki eru taldar með þær varúðarráðstafanir, sem fram- kvæmdar hafa verið síðan njósna skipið „Pueblo“ var hertekið af Norður-Kóreumönnum, en John- son forseti hefur látið kalla í herinn 14.000 manns úr varaliði landsins, eftir að 'búið var að semja fjárlagafrumvarpið. Að því er snertir efnahagsað- stoð til vanþróaðra ríkja, fer for- setinn fram á aukna aðstoð við þau ríiki, sem eru reiðubúin til þess að hjálpa sér sjálf. Án þess að láta andstæðinga sína á þingi aftra sér, en þeim tókst að láta skera þennan lið núverandi fjár- laga svo niður, að upphæð hans er hin lægsta í 20 ár, fór forset- inn nú fram á 750 millj. dollara hækkun á þessum fjárhagslið á komandi fjárhagsári. Útgjöld til aðstoðar við önn- ur ríki er einnig gert ráð fyrir að verði lægri en nokkru sinni fyrr. Johnson fer fram á 2.5 millj arða dollara í efnahagsaðstoð og 540 milljónir dollara í hernaðar- aðstoð. í fyrra var tillaga hans uim rúmlega' 3,2 milljarða dollara á þessum lið skorinn niður atf þinginu næstum um einn millj- arð. Nokkrar skemmdir urðu á verkstæði Landleiða h.f. á Gríms- staðaholti, þegar eldur kom þar upp í fyrrakvöld. Engir bíl- ar voru inni í verkstæðinu, en eldurinn kom upp í raf- magnstöflu í austurgafli þess. Verkstæðið er timburklæddur braggi og var nokkur eldur í klæðningunni þegar slökkvi- liðið kom á vettvang. Slökkvistarf gekk greiðlega og tók um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Borgarastyrjöld í Grikklandi fari herstjórnin ekki frá innan skamms — segir Andreas Papandreu Bonn, 29. janúar — NTB HINN Iandflótta gríski stjórn- málamaður, Andreas Papan- dreou, sagði í viðtali, sem birt- ist í vestur-þýzka blaðinu „Frankfurter Rundschaú* í dag, að það muni vafalaust koma til borgarastyrjaldar í Grikklandi, ef núverandi herstjórn þar verði ekki steypt sinnan kamms. — Eina leiðin til þess að kom- ast hjá bogarastyrjöld er að mínu áliti sú, að herstjórninni verði steypt af stóli og að raun- verulega frjálst og lýðræðislegt stjórnarfar komizt á að nýju í Grikklandi, sagði hinn 49 ára garnli Papandreu í viðtalinu. Hann kvaðst vera þeirrar skoðun ar, að herstjórnin hefði látið hann lausan úr fangelsi og látið hann fara úr landi fyrr í þess- um mánuði í því skyni, að friða almenningsálitið í heiiminium, en einnig til þess að sýna eigin styrk._ — Ég vona samt sem áður, að ég fái tækifæri til þess að sanna það fyrir herstjórninni, að hún gerði mikla skyssu, þegar hún ákvað að láta mig fara burt frá Grikklandi, sagði Papandreu. í sambandi við setningu fund- ar þingmannanefndar Evrópu- ráðsins á morgun, sendi Papan- dreu í dag frá sér áskorun í París til jíkja Vestur-Evrópu um, að veita aðstoð við að koma aft- ur á lýðræði í Grikklandi, á með an enn væri tími til stefnu til þess að gera það á friðsamleg- an hátt. Fundurinn mun á morg- un ræða um það, hvort víkja eigi Grikklandi úr Evrópuráðinu, en í því eru 18 ríki. Papandreu sagði í yfirlýsingu sinni, að hann gæ'ti ekki nóg- samlega lagt áherzlu á þá hættu, sem væri því fylgjandi ,að gríska herstjórnin sitji í valdastóli um langan tíma og sagði, að gríska þjóðin myndi ekki sætta sig við það, að núverandi herstjórn héldi áfram að vera við völd. - LEITAR HÆLIS Framh. af bls. 28 þjónustu. Hann hafði áður gegnt herþjónustu í þrjú ár, m.a. var hann alllengi á ís- landi. í gærniorgun sneri Banda- ríkjamaðurinn sér til útlend- ingaeftirlitsins og leitaði hæl- is á Islandi sem pólitískur flóttamaður. Tók hann fram, að hann væri andvígur stefnu Bandaríkjastjórnar í Víet- nam. Skýrsla xitlendingaeftirlits- ins var send dómsmálaráðu- neytinu síðdegis í gær og er hún þar nú til athugunar. - INNFLUENZA Framh. af bls. 1 urinn breiðst út í slíkum mæH, að fjölda skóla hefur orðið að loka, sökum þess að svo margir, jafnt kennarar sem némendur, hafa sýkzt, að ekki er unnt að halda kennslunni áfram. í mörg- um fyrirtækjum er allt að 15% starfsfólksins fjarverandi vegna veikinnar. Prófpredikun CAND. theol. Brynjólfur Gísla- son flytur prófpredikun sína í dag, þriðjudag, kl. 6 í kapellu Háskólans. - SH OG SÍS Framh. af bls. 1 hvort þetta þýddi afnám um- búðabannsims. Formaður stjóm- ar SH, Gunnar Guðjónisson, svaraiði því tíl að svo væiri. Þorsteinn Arnalds tjáði Morg unblað'imu í gær, að útigerðar- ráðis væri að ákveða, hvort farilð yrði fram á bætur fré SH vegma umbúðabanns þann tíma, sem Tiðinm er. Morgunbliaðinu barst ei.nnig í gæir fréttatillkynning frá Sjávair afurðadeild SÍS um fund fram- kvæmdastjóra frystihúsa inniam þeirra samtaka. Tilkynningin er svohljóðandi: „Funduir framkvæmdastjóra hiraðfryst'ilhúsa á vegum SfS, halldinn í Reykjavfk 29. janúar, 1968, samþykkir eftirfarandi: TiTboð ríkiisstjórnarinnair til hraðfrystiiðmaðarins eirns og það liggur nú fyrir er ófullnægj andi og getuir f'undurinn því ekki fallfet á það ðbreytt. Hinsvegar vill fundurinn samþykkja til- boðið sem umræðuigrund'völl fyr ir rekstur á vetrarvertíð 1968 og kýs 3ja manna nef.nd til þess að næða við ríkisstjórnina urn viss ar breytingar, sem funiduriiwi samþykkir sérstaklega. Mun nefndin síðan taka af- stöðu til m.áísins eftir að heyrzt hefur um undirtektdir ríkis- stjórnarinnar um umbeðnar breytin.ga.r, og kallia framkvæmda stjórana aftuir saman til fund- ar, sjlái hún ástæðu til. Fundurinn samþykkir að heimila þeim frystihúsum, sem tellja sér það fært að hefja rekstur. að gera það í trauisti þess, að ríkisstjórnin sjái sér flært að verða við óskum fund- arins í meg'inatrið’um“. RITSTJORN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA SÍMI 10*100 Konu - traustum og góðum ferðafélaga býðst ferðalag með ráðsettum manni til suðlægari landa. — Tilboð greini síma og allt sem nánast, merkt: „Njáll 113 — 5214“ sendist blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.