Morgunblaðið - 21.02.1968, Síða 26

Morgunblaðið - 21.02.1968, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1968 FH sigraði í slagsmálaleik við Drengjameist- aramót íslands DRENGJAMEISTARAMÓT Is- lands i frjálsíþróttum innanhúss fór fram í íþróttasal Barnaskóla Kópavogs á vegum Ungmennafé- lagsins Breiðabliks sunnudaginn 18. 2. sl. Leikstjóri var Magnús Jakobsson. Hástökk með atrennu M Dreng j ameistari: 1. Elías Sveinsson ÍR 1,76 2. Hróðmar Helgason Á 1,69 3. Stefán Jóhannsson Á 1,64 4. Ágúst Þórhallsson Á 1,59 Langstökk án atrennu M Drehgjameistari: Ásgeir Ragnarsson ÍR 3,04 2. Elías Sveinsson ÍR 2,95 3. Kristj. Sig. Kristjánss. Á 2,94 4. Jón Þórarinsson ÍBV 2,88 Hástökk án atrennu M Drengjameistari: Fri,ðrik Þór Óskarss. ÍR 1,57 2. Elías Sveinsson ÍR 1,55 3. Ásgeir Ragnarsson R 1,42 4. Þorvaldur Baldurs KR 1,26 Þrístökk án atrennu M Drengjameistari: Asgeir Ragnarsson ÍR 9,04 2. Elías Sveinsson ÍR 9,01 3. Friðrik Þór Óskarss. ÍR 8,74 4. Kristj. Þór Kristjánss. Á 8,57 Jóhann Vilbergs og Árdís sigruðu TVÖ glæsileg skíðamót voru haldin hér í nágrenni Reykja- víkur um siðustu helgi. Þessi mót eru svo köiluð Punktmót, en fyrstu menn hljóta punkta, sem gefur þeim möguleika að fá gott rásnúmer á landsmóti Mót þessi voru Skálafellsmót, stór- svig háð á laugardag, Hamragils mót, svig, haldið á sunnudag. Þátttakendur voru skráðir frá ísafirði, Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri, Húsavík og Reykja- vík, félögunum ÍR, KR, Ar- manni og Víking. Skálafellsmót, stórsvigskeppni, hófst kl. 3 e.h. — Keppendur mættu ekki frá ísafirði, Akur- eyri og Húsavík. Veður var gott, en slæmt skyggni. Brautin var um 1600 m löng með 40 hliðum, hæðarmismunur 32 m. Ólafur Nílsson, KR, lagði brautina af mikilli snilld. Mótsstjóri var, Hilmar Steingrímsson og mótið fór í alla staði vel fram. ÚRSLIT Karlaflokkur Sek. 1. Jóhann Vilbergss. R 126,2 2. Þorb. Eysteinss. R 129,8 3.—4. Knút Rönning R 130.4 3.—4. Arnór Guðbjartss. R 130,4 Kvennaflokkur Sek. 1. Árdís Þórðard. Sigluf. 79,3 2. Hrafnh. Helgad. Rvík 79,7 Hamragilsmót, svig. Keppend- ur voru þeir sömu og fyrri dag- inn að viðbættum keppendum frá Isafirði, Akureyri og Húsa- vík. Brautarstjóri var Valdimar Örnólfsson og lagði hann braut- ina, sem var 600 m löng með 47 hli'ðum, fallhæð 270 m. Veður var hlýtt, snjókoma og slæmt skyggni. Brautarstjóri var Sig- urjón Þórðarson. Verðlaunaaf- hending fór fram í skíðaskála ÍR að lokinni keppni. Jóhann Vilbergsson. ÚRSLIT, SVIG 1. Hafsteinn Sigurðsson ísafirði, 47,9 57,4 99,3 sek. 2. Magnús Ingólfsson Akureyri, 49,3 51,4 100,7 sek. Framhald á bls. 27 Víking 16:15 EF lýsa ætti leik FH og Víkings í fyrrakvöld með einu orði yrði það orð SLAGSMÁL. Ef frá eru skildar fyrstu mínútur leiksins voru stöðugar hrindingar og pústrar af beggja hálfu, sem náði hámarki með hreinum slagsmálum Jón Hjaltalíns og Auðuns Óskarssonar. Ekki var annað að sjá. en Jón ætti upp- tökin að þessum átökum, en það réttlætir ekki aðgerðir Auðuns, Dómarinn vísaði báðum leik- mönnum út af í tvær mínút- ur, en spurningin er hvort ekki hefði verið rétt að lofa leik- mönnum þessum að kæla í sér blóðhitann leikinn út, Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar, að FH skyldi ekki skora nema 1 mark fyrstu 20 mínútur í leik, en svo var í þessum. Víkingar voru stöðugt 1 sókn og skoruðu á þessum tíma 7 mörk. Menn voru farnir að velta því fyrir sér hvort sagan úr leik Hauka og Fram ætlaði að endurtaka sig. En þá fóru FH ingar að síga á, og í hálfleik skildu aðeins þrjú mörk að — 9:6 fyrir Vík- ing. Þegar um 8 mín. voru liðnar Einar Magnússon fær kaldar móttökur hjá FH-mönnum. af síðari hálfleik náðu svo FH- ingar að jafna 9:9 og náðu for- ystu mest þremur mörkum nokkrar mínútur fyrir leikslok. Á síðustu mínútunum voru svo lætin í hámarki. Jón Hjaltalín skorar úr víti 14:16 og FH miss- ir boltann aftur til Víkings sem sækja og dómarinn dæmir mjög vafasamt vítakast á Kristfófer FH-markmann. Aftur skorar Jón úr vítinu og munurinn var orðinn eitt mark 15:16. Á síð- ustu augnáblikum leiksins, náðu svo Víkingarnir boltanuim aftur og brunuðu fram. Varð þá Jón Hjaltalin fyrir því ó- happi að detta og missa frá sér boltann og þar með möguleik- ann á jafntefli. f raun og veru ætti ekki að hróisa liðunum fyrir þennan leik, þar sem handknattleikuT virtist ekki sitja í fyrirrúmi. FH-ingar verðskulduðu þó sig- ur, og segja má að þeir hafi ekki verið upphafsmenn átak- anna, en gáfu samt þaT hvergi eftir og svöruðu ríkulega í sömu mynt. Langbeztu menn liðsins voru Páll Eiríksson og Auðunn Óskarsson. Páll fékk það erfiða hlutverk að taka Jón Hjaltalín úr umferð, og skilaði hann því það vel, að Jón skoraði eftir það ekkert mark, nema úr víta- köstum. Þess má einnig geta að Páll fékk enga áminningu fyrir grófan leik, en oft er hætta á slíku fyrir þá sem eru í þvi hlutverki að taka mann úr um- ferð. Ennfremur skoraði Páll falleg mörk. Auðunn átti góðan varnarleik og var drjúgur í sókn inni. Það eitt spillti fyrir hon- um að láta skapið hlaupa með sig í gönur. Minna bar á þeim bræðrum Geir og Erni í þess- um leik en oft áður. Kristófer stóð í markinu lengst af og varði oft með ágætum. Víkingar mega bíta í það súra epli að vera enn á botninum í deildinni með aðeins eitt stig. Þá skyldi samt enginn bóka þá sem fallið í 2. deild. I raun og veru standa þeir toppliðunum ekki langt að baki, en festu skort ir í leik þeirra og of mikið bygg ist upp á þeim Jóni og Einari. Víkingar eiga yfirleitt mjög prúðmannlega leiki, og þess vegna kom manni nokkuð á ó- vænt sú grimmd sem þeir sýndu í þessum leik. Hlutskipti Jóns Hjaltalín er orðið mjög erfitt, þar sem hann er tekinn úr um- ferð í hverjum leiknum af öðr- um. í þessum leik sýndi hann Fram tryggði stöðu sína með sigri gegn Val 14:13 FRAMARAR bættu stöðu sína enn í íslandsmótinu í handknatt leik í fyrrakvöld, en þá unnu þeir Val með 14 mörkum gegn 13 í mjög jöfnum leik. Má raun ar segja, að Framarar hafi ver- ið heppnir að fara með bæði stigin út úr viðureigninnL Vals- menn verðskulduðu fyllilega jafntefli, ogfengu reyndar gull- ið tækifæri til að jafna á síð- ustu sekúndum leiksins. Þegar um 1 mínúta var til leiksloka var staðan 14:12 fyr- ir Fram. Þá skoraði Hermann fyrir Val, rneð fallegu skoti. Fram hóf sókn, en miisstu bolt- ann aftur til Vals. Upphóf'st þá rnikill darraðardans. Framarar brutu á Valsmönnum og auka- kast var dæmt. Upp úr því að hinum megin á vellinum stóð Sigurður Dagsson, algjörlega frír. En félagar hans heyrðu ekki köll hans og þvi for sem fór. [ Leikurinn var allan tímann I mjög jafn, nema helzt fyrstu 20 mínúturnar, en þá var staðan 4:1 fyrir Fram. Er líða tók á hálfleikinn jöfnuðu Valsmenn og í leifchléi var staðan 7:6 Fram í vil. í síðari hálfleik hafði Fram yfirleitt eitt til tvö mörk yfir, fram á síðustu mínútu, sem áð- ur er lýst. Bæði liðin sýndu í leik þess- um góðan og skemmtilegan handknattleik, og sérstaklega átti Valur góðan dag, sennilega einn sinn bezta í mótinu. Varn- ít liðanna stóðu sig vel, svo sem iág markatala gefur til kynna. Sigurbergur lék með Fram og batt hann vörn liðsins saman og var henni mikils virði. Þorsteinn Björnsson stóð sig vel í Fram- markinu, en til stóð að setja hann í „straff" fyrir agabrot. Hefði það sennilega verið ör- lagaríkt fyrir Fram að gera það í þessum leik. I liði Fram áttu aúk Þor- steins, Þeir Guinnlaugur og Ing- ólfur góðan leik, svo og Sig- urður Einarsson, sem ætíð er mjög skeinuhættur vörnum and stæðiniga sinna. Mörk Fram skoruðu Guðjón 5 (öll úr vítaköstum), Gunnlaug ur 2, Ingólfur 2, Sigurður Ein- arsson 2, Björgvin 1, Gylfi Jófh. 1 og Arnar 1. Valsmenn áttu nú einn sinna beztu leikja í mótinu, og virð- ist svo sem að þeim fari stöð- ugt fram. Möguleikar þeirra á íslandsmeistaratitlinum eru enn fyrir hendi og því miiklu að keppa fyrir þá. Bergur Guðna- son átti mjög góðan leik, svo og Gunnstein og Hermann, sem var þó um of skotgráðugur. Markmennirnir Finnbogi og Jón stóðu báðir vel fyrir sínu. Mörk Vals skoruðu: Bergur 4 (2 úr vítaköstum), Hermann 3, Stefán 2, Gunnsteinn 2, Jón Karlsson 1 og Sigurður Dags- son 1. Dómari í leiknum var Reynir Óiafsson og dæmdi mjög vel, enda leikurinn prúðmannlegur, þrátt fyrir jafna keppni. — stjl. mikið öryggi í vítaköstum, en naut sín fyrir utan það lítið, þar sem hver hreyfing hans var vöktuð. Einar Magnússon skoraði flest mörk Víkinga, og sýndi það í þessu-m leik, að hann getur lát- ið hart mæta hörðu. Dómari í leiknum var Sveinn ! Kristjánsson og missti hann snemma tökin á honum. Ekki verður hann þó sakaður um að hafa dæmt öðru liðinu í vil, en ósamræmi var í dómum hans um hvaða brot réttlættu víta- köist og hvar aðeins aukaköst. Mörk FH skoruðu: Páll 4, Auðunn 4, Örn 2, Geir 2, Árni 2, Birgir 1 og Einar Sigurðsson 1. Mörk Víkings: Jón 7 (6 úr vítaköstum), Einar 5, Rúnar 1, Jón Ólafsson 1 og Rósmundur 1. — stjl. Gylfi Jóhannsson í færi, en St efán Sandholt fær bjargað fyrir Val.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.