Morgunblaðið - 20.06.1968, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1998
~7==*0fLA££/KJUV
Rauðarárstlg 31
Sími 22-0-22
* ^ SÍM« 1-44-44
mnwoiR
&ó&z>@ec(gcz,
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BILALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Efti. lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
NÝIR VW 1300
SENDUM
StMI 82347
50 KRÓNA
VELTAN
vinsamlega gerrð
skil í dag
Skrifstofa stuðningsmanna
G. T„ Pósthússtræti.
mnnmm
Litli ferðaklúbburinn
er tekinn til starfa á ný. —
Kotnið og kynnizt starfsemi
klúbbsins í skrifstofunni að
Fríkirkjuvegi 11 á fimmtudög
um milli kl. 8 og 10. Munið
eftir að næsta ferð verður
helgina 29.—30. þ. m.
Stjórnin.
'k Séra Jónas Gíslason
og störf hans
Enn eitt bréf hefur borizt
um prestsembættið í
Kaupmannahöf n:
Nokkuð hefur verið raett og
ritað um prestsembættið í
Kaupmannahöfn og ég verið
hlutlaus hlustandi og lesandL
í nýafstöðnu ferðalagi kom
ég inn í sjúkrahús í Kaup-
mannah. til að vitja sjúklings,
sem þar lá. Er ég hafði setið
góða stund hjá sjúklingnum,
kom hjúkrunarkona inn með
nokkru fasi og spurðL hvort
séra Gíslason væri hér, en svo
var ekki. „Hann hlýtur þá að
koma brá'ðum“, sagði hún um
leið og hún snaraðist út.
Skömmu síðar kom íslending
urinn inn úr dyrunum til að
vitja sama sjúklings og ég.
Sá var þá að bíða fars heim
með konu sína, sem mátti nú
fara úr sjúkrahúsinu eftir „höf-
uð-höggningu.“
t samtalinu kom 1 ljós, að
tvaer konur höfðu gengið undir
sams konar aðgerð og menri
þeirra fengið loforð fyrir flug-
fari heim, en nú átti að breyta
því vegna þess, aíð erfitt var að
koma sjúkrakörfum fyrir í vél-
inni vegna þrengsla, og allt var
í uppnámi í sjúkrahúsinu.
Hjúkrunarlið og aðstandend-
ur voru sárir og bitrir yfir því,
að svo skyldi eiga að fara með
rúmliggjandi sjúklinga, sem
voru búnir að búa sig undir að
fara heim til barna og vina,
eftir mjög tvísýnair aðgerðir.
Og nú vantaði séra Gíslason.
Það var spenna og órói 1
öllum, að mér virtist og þetta
augnablik var eitthvert undar-
legasta augnablik sem ég hefi
upplifað.
HLJÓÐFÆRI
TIL SÖLIJ
Notuð píanó, orgel, harmoni-
um. Hohner-rafmagnspían-
etta. Besson-básúna, lítið raf-
magnsorgel og notaðar har-
monikur. Tökum hljóðfæri í
skiptum.
F. Bjömsson, sími 83386
kl. 14—18.
Annars vegar beiskja, von-
leysi og kuldi í gaTð flugfélags-
ins, sem vildi breyta ákveðn-
um flugtíma og hins vegar
spenna yfir því að ná ekki í
séra Gíslason, sem allir virtust
nú binda vonir sníar víð.
Rétt í þessu kom séra Jónas
Gíslason, og mörg andlit ljóm-
uðu. Allt virtist breytast á
samri stundu og allir virtust
samfærðir um, að nú yrði mál-
um bjargað.
Ég gekk léttstígur heim og
ég naut þess fögnuðar sem
koma sóra Jónasar vakti í sjúk-
rahúsinu.
Mér var hann og starf hans
að mestu ókunnugt, en þarna
birtist mer skír, ógleymanleg
mynd, sem færði mér fuiivissu
um það, að starf hans fyrir
sjúka og vanmegnuga er ómet-
anlegt.
Þessi stutta dvöl mín í sjúkra
húsinu sannfærði mig um það,
að þess er brýn þörf að slíkt
starf, sem séra Jónas Gíslason
hefur unnið, samhlfða prests-
verkum, sé unnið, og sennilega —
yrði vandfundinn maður, sem
stæði honum jafnfætis, hvað þá
næði lengra en hann.
Það væri mjög óráðlegt að
leggja prestsstarfið í Kaup-
mannahöfn niður og vil ég því
skora á ráðamenn á því sviði
að kynna sér málið vandlega,
svo a’ð til slíkra óhappa komi
ekkL
Fari séra Jónas Gíslason frá
embætti sínu í Kaupmanna-
höfn verður eftirmönnum hans
vandi á höndum.
Reykjavík 17. júni, 1968,
Magnús Sigurðsson
skólastjórL
^ Borgir og býli
tölusett
„Zippy“ skrifar:
Fyrir nokkrum árum tók
póststjórnin hér í Reykjavík
upp á því að hluta bæjarhverf-
in niður með bókstafs- (bók-
stafa-) merkingu, og var þetta
ágæt viðleitni, greinilega dönsk
að uppruna — eða nánar tiltek-
ið frá Kaupmannahöfn. Kerfið
náði ekki fótfestu, var yfirleitt
ekki notað, og kom því ekki að
gagni.
Nú tíðkast í auknum mæli er-
lendis, að borgir sem hverfi séu
merkt tölum, sem annað hvort
er skotið framanvið eða aftan-
við borganöfn (fylkjanöfn), Ld.
1200, 3000, 8000 o.s.frv., sé mið-
að við Sviss, og er þá miðað
við borgimar (Genf, Bern
Zúrich), en 1201, 3008, 8024, svo
að eithvað sé tiltekið sem dæmi,
á þá við hverfi innan borganna
(eða útborgir).
Þjóðverjar notuðu þetta líkl.
einna fyrstir á meginlandinu,
en nú hafa jafnvel Danir tekið
upp slíka merkingu, og í
Ameríku er talan fyrir aftan
borgar- (fylkis-) nafnið. Er
þetta til mikils hagræðis, enda
nefnt „Zip Code“ („hraðlyk-
ill"), „Leitzahl“ („leiðslu“- leið
ar-) tala“) eða þ.u.l.
Þá er alþjóðaskammstöfunum
landa einnig oft skejrtt framan
við töluna, og allt er þetta ætl-
að til flýtisauka og / eða til
rafeindagreiningar á ákvörðun
arstað póstsendinga.
Þvi nú ekki að reyna þetta
hér á landi, m.a einnig með
þvi að merkja býli til sveita á
sama hátt? Það mætti byrja
smátt, en fikra sig svo áfram.
Hverfum fjölgar með stækk-
andi bæjum, og mörg býlin hér-
lendis bera sama nafn.
Svo er það með „GIRO“-kerf
ið til hagkvæmra sendingar á
peningum aðila á milli. Hafi
menn s.n. „GIRO“-reikning,
kostar slík þjónusta erlendis
sendandann ekkert. Þar er það
póstþjónustan, sem annast
þetta, og alltaf liggur inni það
mikið fé (á vöxtum), að það
greiðir kostnaðinn.
Banki einn hefur nú tekið
þetta upp hér á landi, en í slíkri
starfsemi er hvorki komin á
þetta reynsla né heldur, að kerf
ið verið eins „algilt" á þann
hátt, eins og fram hefur komið
við fyrirspurn um framkvæmd
„GIRO“-kerfis vfðkomandi
banka.
Nú er „allt“ að komast á
gatakort sem númer. Nafnnúm-
er, fæðingamúmer o. s.frv., —
þetta eru líklegast nútímafram-
farir, sem fólk á eftir að átta
sig betur á og skilja mikilvæg-
ið.
Hugleitt hér, ef einhver vildi
hugleiða þetta nánar, t.d. póst-
stjórnin.
„Zippy“.
* Sendum Biafra-
mönnum skreið
Stefán Sigurðsson skrifar:
Vinsamlegast birtið eftir-
farandi grein fyrir mig:
Misjafnt höfumst við að; á 2.
bls. blaðs yðar hinn 11. þ. m. er
birt frétt um stórfellda skreið-
argjöf Norðmanna fyrir milli-
göngu norsku þjóðkirkjunnar
til hungraðra íbúa Biafra og
þeirra landssvæða, sem harðast
hafa orðið úti í styrjöld þar.
Ennfremur er þess getið, að
fleiri þjóðir leggi þessu bág-
stadda fólki lið, og frá þvi
greint, að íslenzkt skip muni
flytja björgina til hinna þurf-
andL — Eru fréttir þessar hin-
ar gleðilegustu og mættu fleiri
þjóðir en Norðmenn, Danir,
Svíar, Englendingar og Þjóð-
verjar, leggja eitthvað til hjálp
ar.
Ef ég man rétt hafa komið
fram í dálkum yðar uppástung-
ur um skreiðargjafir til Biafra-
manna og er mér kunnugt um,
að margir fögnuðu þeim tillög-
um.
Hvað höfum við íslendingar
gert fyrir það fólk, sem á und-
anförnum árum hefir keypt
þann hluta fiskframleiðslu okk
ar, sem verstur hefir verið og
óseljanlegur öðrum (Afríku-
skreið)?
Svar við þessari spurningu er
að finna á 31. síðu fyrrgreinds
blaðs yðar (11. þ. m.) undir
fyrirsögninni: „Skreið til Níg-
eríu‘‘.
Upphaf fréttar þessarar hljóð
ar svo: „Samlag skreiðarfram-
xeiðenda hefir nýlega lokið við
að semja um sölu skreiðar til
sambandshersins í Lagos. Enn
hefir ríkisstjórnin í Lagos þó
ekki veitt innflutningsleyfi til
almennrar verzlunar‘‘ (undir-
strikun mín). — Síðar er í Ijós
látin von um frekari viðskipti.
Hvað er að gerast? — Jú,
með sölu skreiðar til sambands
hersins í Lagos, erum við að
styrkja stjórnina þar í því að
eyða Biaframönnum, okkar
beztu viðskiptavinum i Afríku
árum saman, en útrýming
þeirra hefir verið kerfisbund-
in, styrkt aðstoð utanaðkom-
andi stórvelda, sem telja sig
eygja einhvern hag í því, að
Biaframönum, sem af flestum
er talin ágætasta þjóð Afríku,
verði svipt frelsi og niður
drepin.
Er enginn umkominn þess að
koma i veg fyrir hneykslið?
Vill þjóðkirkja íslands og
eða ríkisstjórn ekkert til þess
gera að koma í veg fyrir glæp-
irwi?
Væri okkur ekki nær að
rétta frelsisþráandi þjóð, með
því að seðja sárt hungur Biafra
manna, hjálparhönd, eftir okk-
ar litla mætti og með því forða
okkur frá skömm og ihneisu?
Ég skora á alla velhugsandi
menn, að taka höndum saman,
og afmá skömm okkar, og rétta
hinum nauðstöddu hjálpar-
hönd.
Stefán Sigurðsson,
tryggir yður vandaðri vöru, meira úrval
og lægra verð en aðrir geta boðið.
Munið einkunnarorð vor:
IJrval, gæði9 þjónusta
Laugaveg 26
r>o
Simi-22900
□m
Okkar mikla sala