Morgunblaðið - 20.06.1968, Blaðsíða 18
TSTOFUVÉLAF H
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1966
Deildarh j ákrunarkonustaða
Staða deildarhjúkrunarkonu við handlækninga-
deild Landspítalans er laus til umsóknar. Staðan
veitist frá 1. september n.k. Laun samkvæmt úr-
skurði Kjaradóms. Umsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist til stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 15.
júlí 1968.
Reykjavík, 18. júní 1968.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Orðsending frá kostningasjóði
stuðningsmanna
dr. Kristjóns Eldjórns
Fyrir hönd kosningasjóðs leyfi ég mér að
vekja athygli stuðningsmanna um allt
land á því, að verulegt fé vantar enn í
kosnningasj óðinn til að standa undir
óhjákvæmilegum útgjöldum.
Við höfum sent ýmsum samherjum
beiðni um aðstoð og viljum þakka hinar
ágætu undirtektir. En að sjálfsögðu höf-
um við engan veginn náð nema til lítils
hluta þess mikla fjölda, sem vill taka þátt
í kostnaðinum með okkur.
Það eru mjög eindregin tilmæli okkar
til allra stuðningsmanna, að þeir leggi
eitthvað af mörkum — minnugir þess að
margt smátt gerir eitt stórt.
Vinsamlega leggið smáupphæðir í póst-
inn eða komið þeim til okkar á aðalskrif-
stofuna að Bankastræti 6.
F. h. kosníngasjóðs stuðningsmanna
dr. Kristjáns Eldjárns,
Ragnar Jónsson.
ÖLL SKRIFSTOFUTÆKI A EI N U M STAÐ
cn
Í
#—»
X
w
H
O
C
<
Þ3'
f
Eina kúluvélin í heimi
ifí
x
x
<
■K
>
D
O
H
w
X
Ifí
D
x
o
H
ifí
D
l
co
IBM kúluvélin er ritvél:
★ án stafleggja og án vagns
■k með fisléttum áslætti
★ með ásláttargeymslu
auk flestra annarra kosta rafritvéla.
IBM kúluvélin
k er mjög fyrirferðarlítil.
SÝNISVÉL Á STAÐNUM.
%
ÖLL
SKRI FSTOFUVELAR H.F.
SKRIFSTOFUTÆKI Á E I V U M ST
Hverfisgötu 33
Sími 20560. Pósth. 377.
X
Ul
H
O
*d
I
X
N
w
X
Xfí
H
O
I
fe
x
N
I
HH
•d
cn
8
I
X
A Ð
Húsmæðruskólu
Beykjav. slitið
— 197 ndmsmeYjar
í skólanum í vetur
HÚSMÆÐRASKÓLA Reykjavik
ur var sagt upp 6. júní. í vetur
stunduðu 197 námsmeyjar nám
við skólann, þar af voru 40 í
heimavist.
Handavinnusýning skólans var
um hvítasunnulhelgina og var
fjölsótt að vanda.
Hæstu einkunnir hlutu:
Erna Jóna Arnórsdóttir, Kópa
vogi, 9,39.
Helga Karlsdóttir, Reykjavík,
9,35.
Þórdís Pálsdóttir, Reykjavík,
8,66.
Þær hlutu allar verðlaun,
fagrar silfurskeiðar með merki
skólans.
Auk þeirra hlutu verðtaun úr
„Minningarsjóði Margrétar Þor-
láksdóttur“ þær Hrafrihiidur
Garðarsdóttir, Reykjavík, og
Hildigunnur Þorsteinsdóttir,
Eystri-Sólheimum, Mýrdal. Carl
Permin í Kaupmannaihöfn veitti
fögur verðlaun fyrir snilldar
handibragð í útsaumi og hlaut
þau Hólmfríður Alexandersdótt-
ir, Siglufirði. Vefnaðarverðlaun
skólans fékk Marta Ormsdóttir,
Reykjavík. Úr „Minningarsjóði
Guðrúnar Kristjánsdóttur“ eru
árlega veitt verðlaun fyrir bezta
aihliða handavinnu og hlaut þau
að þessu sinni Guðrún Ágústa
Sigurbertsdóttir, Hafnarfirði. Þá
hlaut Sigríður Kristín Snorra-
dóttir, Blönduósi, verðlaun fyrir
framúrskarandi ástundun. — Úr
„Minningarsjóði Ólafíu Hjördis-
ar Sverrisdóttur“ voru tvenn
verðlaun veitt fyrir háttprýði.
Þau hlutu þær Helga Sigurðar-
dóttir, Keflavík, nemandi í
heimavist og Ragnheiður Gunn-
arsdóttir, Hafnarfirði, nemandi
í dagskólanum. Viðurkenningu
fjrrir umsjónarstörf fékk Marta
Jónsdóttir.
Við skólauppsögn voru fjöl-
margir gestir viðstaddir þar á
meðal ýmsir afmælis áxgangar.
Fyrir hönd 25 ára nemenda
kvaddi sér hljóðs frú Kristrún
Hreiðarsdóttir og færði skólan-
um gjöf í „Minningarsjóð Ragn-
hildar Pétursdóttur“, sem ætl-
aður er til listaverkakaupa. í
þann sjóð báxust einnig gjatfir frá
5 ára heimavistarnemendum,
sem Guðrún Haraldsdóttir af-
henti, og frá 5 ára dagskólanem-
um, sem Sigríður Ásgeirsdóttir
mælti fyrir. Fyrir hönd 10 ára
heimavistarnemendu talaði Hall
fríður Magnúsdóttir og afhenti
gjöf í „Minningarsjóð Ólafiu
Hjördísar Sverrisdóttlr". — Þá
færðu 10 ára dagskólanemendur
skólanum fagrar gjafir, en orð
fyrir þeirra hönd höfðu þær Hall
dóra Guðmundsdótti og Ragna
Rósmundsdóttir.
Þá kvaddi sér hljóðs Hólmfríð
ur Alexandersdóttir og færði
skólanum fagra krystalsskál frá
nemendum, sem brautskráðust
nú.
Meðal gesta var frú Hullda Stef
ánsdóttir fyrrv. skólastjóri, flutti
hún snjalla ræðu og árnaði skól
anum heilla.
Að lokum ávarpaði frk. Katrin
Helgadóttir, skólastjóri náms-
meyjar, bað þeim blessunar og
sleit Húsmæðraskóla Reykjavík
ur í 27. sinn.
Allir viðstaddir þágu að lok-
um veitingar í skólanum.
PACER STAR
er lang-ódýrasta
ljósprentunarvélin
á markaðnum.
Verð aðeins kr. 3.084.oo
Ljósprentar alla liti á skömmum tíma, hvort sem
um er að ræða prent, vélritun eða skrift.
€lisli cJ. olofínsen i/
VESTURCÖTU 4S SÍMAR: 1Z747 -16647
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða til sýnis
föstudaginn 21. júní 1968 kl. 1 — 4 í porti bak við
skrifstofu vora Borgartúni 7:
LAND ROVER ................... árg. 1965
WILLYS, skúffubifr........... — 1964
MOSKVITCH, fólksbifr......... — 1966
VOLVO LAPPLANDER ............. — 1963
HANOMAG, torfærubifr......... — 1966
BEDFORD, vörubifr., 6 tonna, 4x4 — 1964
BEDFORD, vörubifr., 3 tonna . . — 1965
Bedford bifreiðarnar eru til sýnis hjá Land-
græðslu ríkisins, Gunnarsholti.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, sama dag kl. 4.30 e.h. að viðstöddum bjóð-
endum.
Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
G1 ugga tjaldaefni
úr dralon.
Stóresefni
úr terrelín með blúndu og einnig blýþræði.
Breidd 120 til 3 metrar.
Eldh úsglugga-
tjaldaefni
VJJ.K., Vesturgötu 2.