Morgunblaðið - 20.06.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1968
Leiguhúsnæði óskast
Óska eftir 25—40 ferm. góðu húsnæði fyrrr léttan
iðnað sem næst Miðborginni, eða í fjölmennu
íbúðarhverfi.
Tilboð merkt: „Snyrting—jarðhæð — 8279“ sendist
Mbl. fyrir 25. þ.m.
Skrifstofuhúsnæði
í Miðborginni til leigu
Fjögur herb. á jarðhæð í húsi nr. 10 B við Tjarnar-
götu til leigu nú þegar fyrir skrifstofur.
Nánari upplýsingar gefur Birgir ísleifur Gunnars-
son, Lækjargötu 6 B, sími 20628.
Nauðungarupnboð
sem auglýst var í 9., 11. og 13. tbí. Lögb'irtinigablaðis
1968 á híuta í Kteppsvegi 144, þingl. eign Páis Guð-
nmundssonar, fer fram eftir kröfu Bergs Bjamasonar
hdl., Kristins Einarssonar hdl., Gísla ísleifssonair hri.,
Amar Þór hrl., Iðnaðarbanlka fslands h.f., Landsbanka
fslands, Sparisjóðs véLstjóra og Búnaðarbanka ís-
tends, á eigninjii sjálfri, mánuidaginn 24. júná 1968,
kl. 11.30 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Við Reynimel
Til sölu er glæsileg 6 herbergja íbúð á efri hæð í
húsi, sem verið er að reisa við Reynimel. Hæðin
verður seld tilbúin undir tréverk, húsið frágengið að
utan og bílskúr fullgerður. íbúðin afhendist í árs-
byrjun 1969. Allt sér. Örstutt í Miðborgina. Teikning
til sýnis á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.,
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Nýtt — nýtt
Somvyl veggefni
Somvyl klæðning er mjög góð hita- og hljóðeinangrun.
Vönduð vara gott verð
s
Klæðníng hf.
Laugavegi 164 Grensásvegi 22 og 24
Sími 21444 Sími 30280.
I sumar-
leyfið
Danskar terylene regn-
kápur. Þekkt gæðavara.
Rósóttir og mynstraðir
sumarkjólar.
Verð frá 730.— til
1150,— kr.
Tókum upp í dag nýja
sendingu af mjög falleg-
um terylene kjólum,
heilum og tvískiptum.
Tízkuverzlunin
Rauðarárstíg 1,
sími 15077.
Listdansskóli
Þjóðleikkússins
NÝLEGA var í Þjóðleikhúsinu
nemendasýning Listdansskóla
Þjóðleikhússins, þar sem fram
komu yfir 100 nemendur úr skól
anum, allt frá byrjendum og
upp í hálffullorðnar stúlkur
sem lagt hafa stund á ballett í
fjölda ára. Tilgangur sýningar-
innar etr sá, að sýna árangur af
starfi og kennslu skólans.
Það er hægt að horfa á slíka
sýningu og meta frá mörgum
sjónarhornum. Ef skólinn hefði
verið starfræktur í 3-4 ár, hefði
maður farið út úr Þjóðleikhús-
inu af umræddri sýningu, á-
nægðuir og vongóður um skjót-
an árangur í framtiðinni. En þeg
ar á það er litið að skólinn hef-
ur starfað, ekki í 3-4 áir, heldur
hvorki meira né minna en í 16
ár, þá fer nú gleðibylgjurnar
heldur að lægja. Árangurinn eir
í stuttu máli lítill sem engimi og
um greinilega afturför að ræða
hin síðari ár.
Fyrri hluti sýningarinnar var
í formi ballettíma, eins og þeir
fara fram í æfingasal hússins 5
daga vikunnar. Þarna gat að líta
8-9 ára stúlkur, sem sýndu und-
irstöðuæfingar og svo stig af
stigi, þar til kom að elztu og
reyndustu nemendum skólans,
sem sýndu ýmsar samsetningar
af þeim flóknustu og erfiðustu
sporum sem ballettinn á yfir að
ráða. Munurinn á þeim yngstu
og elztu var furðulega lítill hvað
getu snertir, svo lítill, að helzt
leit út fyrir að fyrir einhver mis
tök, eða kannske óvænt veik-
indaforföll, hefðu hálfgerðir
byrjendur verið klæddir uppá í
16870
2ja herb. ný, næstum
fullgerð íbúð á 2. hæð
við Álfaskeið í Hafnar-
firði. Bílskúrsréttur. —
Hagstæð lán áhvílandi.
Útborgun aðeins 200
þúsund.
2ja herb. 8 ára kjallara
íbúð í Vesturbænum. —
Agæt innrétting. Sér
hitaveita.
3ja herb. ágæt jarðhæð
í Heimunum. Sérhita-
veita.
3ja herb. íbúð á 1. hæð
við Safamýri. Vönduð
innrétting.
3ja herb. íbúð á 10. hæð
í háhýsi við Sólheima.
4ra herb. 117 ferm. íbúð
á 4. hæð við Álfheima.
Herbergi í kjallara
fylgir. Skipti á 2ja—
3ja herb. íbúð möguleg.
4ra herb. 117 ferm. íb.
í nýrri 3ja hæða blokk
í Vesturbænum. Sérhita
veita. Óvenj.u vönduð
íbúð.
4ra herb. íbúð á 4. hæð
við Kleppsveg. Sér-
þvottaherb. á hæðinni.
Verð 1100 þús.
skyndi og þeim ýtt inn á sviðið
ásamt heilræðinu, „Guð hjálpar
þeim, sem hjálpa sér sjálfir."
Um þetta er ekki að sakast við
nemendurna sjálfa, sem margir
hverjir búa yfir ótvíræðum
hæflleikum og ættu með góðri
og réttri þjálfun að geta náð á-
gætum árangri, heldur einungia
forráðamenn skólans. Kennslan
er greinilega ekki fullnægjandi.
Seinni hluti sýningarinnar
saman9tóð hins vegar af stutt-
um dönsum, bæði úr klassiskum
ballettum og frumsömdum af
ballettkennara skólains, Fay
Werner og aðstoðarkennara
hennar, Ingibjörgu Björnsdótt
ur. Með tilliti til þess, sem áður
er sagt, er lítið um þennan
hluta sýningarinnar að segja.
Stúlkurnar réðu engan veginn
við þau verkefni sem þeim voru
fengin í hendur — sólódansar úr
Þyrnirósu, Coppeliu o.fl. — og
kom getuleysi þeirra mjög í ljós.
Þarna voru og ýmsir barnadans
ar, sem voru ágætir, fyrst og
fremst vegna þess hve börnin
voru frjáls og skemmtileg, en
það er reyndar flestum böirnum
gefið.
Það kann að vera álitamál,
hvort Þjóðleikhúsið á yfirleitt
að vera að starfrækja ballett-
skóla. Það er ekki og verður
ekki í náinni framtíð neinn
grundvöillur fyrir fullkominn
ballettflokk hér á landL En ó-
neitanlega er gott að geta grip-
ið til boðlegra dansara í sýn-
ingar, þegar með þarf, svo sem
í barnaleikrit, óperur, söngleiki
og einnig ýmis leikrit. En slík-
ir dansarar hafa ekki verið fyr-
ir hendi upp á síðkastið, eins og
sjá má af frammistöðu þeirra t.
d. í Brosandi land. Einnig ætti
að vera hægur vandi að koma
upp einni eða tveimur sj álfstæð-
um ballettsýningingum á ári, og
þá á stóra sviðinu, en ekki því
litla í Lindarbæ, því með sann-
girni er ekki hægt að ætílast til
að þar dansi nokkur maður.
Þjóðleikhúsið hefur tekið þá
afstöðu, að ballettskóli sé bæði
nauðsynlegur og eðlilegur þátt-
ur í rekstri leikhússins og er það
vel. Hins vegar verður þá að
gera þær kröfur, að skólinn full
nægi þeim skilyrðum, sem gera
verður til hans. Það hlýtur að
teljast óeðlilegt eftir 16 ára
starf, að árangurinn sé ekki
betri en raun ber vitni.
Það veldur sífellt vaxandi
undrun, að alltaf skulu vera
fengnir erlendir kennarar til að
starfa við skólann, þar sem hér
er völ á íslenzkum kennurum,
með sízt verri menntun en þeir
kennarar sem fengnir hafa verið
erlendis frá. Þetta er ekki sagt
til þess að kasta rýrð á þá kenn
ara, sem þarna hafa starfað á
undanförnum árum, heldur ein-
falcblega vegna þess, að til þess
að árangur náist, verða að vera
sömu kennararnir um langan
tíma. Ballettnám tekur 10-12 ár,
ef vel á að vera og þar sem hver
kennari hefur sinn sérstaka
kennslumáta, er mjög æskilegt
að nemandinn njóti handleiðslu
sama kennarans. Það er ekki
fyrr en nemandinn er orðinn
nokkurn veginn fullnuma og
fær um að meta sjálfur hvað
honum hæfir, sem æskilegt er
að hann skipti um kennara, og
þá fremur í listrænum en tækni-
legum tilgangi. Það gegnir auð-
vitað öðru máli, í stórum skól-
um, þar sem nemendur flytjast
milli kennara frá ári til árs, því
þar kenna allir eftir sama kerfi
og eru bundnir stíl viðkomandi
skóla.
Hitt liggur í augum uppi, að
Listdansskóli Þjóðleikhússins
getur ekki borið kostnað af
mörgum kennurum, tveimur til
þremur í mesta lagi og þá verða
það að vera þeir sömu um lang-
an tíma. Erlenda kennara er
aldrei hægt að fá tid að binda
sig hér, nema takmarkaðlant
tíma.
mál þannig, að fullmenntaðir
Fyrir nokkrum árum stóðu
kennarar fundust ekki hér á
landi og þá varð aS leita bjarga
erlendis. Nú er til fólk, bæði
starfandi erlendis og hér heima,
sem aflað hefur sér fullkominn-
ar menntunar, við beztu skóla
sem völ er á eriendis og er ekk-
ert því til fyrirstöðu, að ein-
hverjir úr þessum hópi verði
fengnir tiil að taka við skólan-
um. Síðan er alltaf hægt að fá
kennara og kóreógrafa erlendis
frá, um stuttan tíma í senn, til
að hleypa inn nýjum straum-
um, svipað því og gert er með
erlenda leikstjóra, söngvara,
hljóðfæraleikara o.s.frv.
Með þessu einu móti nær List-
dansskóli Þjóðleikhússins slík-
um árangri, að Þjóðleikhúsinu
og nemendum skólans sé sómi
að.
Hlíf Svavarsdóttir,
ballettdansari.
— Úr ýmsum áttum
Framh. af bls. 16
Austurá (East River) og brýrn-
ar yfir hana. New York höfn og
skýjakljúfaona á neðxi hluta Man_
hattan.
Brooklyn-hæðirnar hafa verið
eftirsótt íbúðarhverfi i meira en
eina og hálfa öld vegna stað-
setningar þeirra og útsýnisins.
Hemlock skógurinn — Hann
er í Bronx hverfinu og er eini
staðurinn í borginni sem er hinn
sami í dag og hanrn var þegair
Indíánarnir réðu þar ríkjum.
Skógurinn nær yfir 100 ekrur og
þar má finna fjölmargar trjáteg-
undir.
Fulton fiskmarkaðurinn —
Hann er meðfram Austurá við
endann á Fulton stræti og á
ndkkrum bryggjum sem teygja
sig út í ána frá neðri hluta
Manhattan-eyjar, Þetta er stærsti
he'iidsöiumarkaður með fisk á
Atlantshafsströndinni. Þar er
mest um að vera frá kl. 4—8 að
morgni, þegar fiski'bátarnir koma
inn til að landa aflanum. Þarna
eru einnig ágætir veitingastaðir,
sem hafa upp á margs konar
sjávarrétti að bjóða.
Virkin í Central Park — í
norðurenda Central Park eru
hæðir, sem Bretar hertóku og
víggirtu á dögum Frelsisstríðs-
ins. Þegar styrjöldin brauzt út
árdð 1812 va,r óttazt að Bretair
kæmu aftur og þá voru byggð
þar virki. Gömul fallbyssa í
Clinton-virkinu beinist að þeim
stað, þar sem Bretar gengu á
land í Frelsisstríðinu.
Kerrumarkaðimir — í gamla
daga fór mikill hluti af verzlun-
inni , New York fram í kerrum
og vögnum. Flestir þessir kerru-
markaðir hafa horfið af sjónar-
sviðinu, en nokkrir eru þó enn
við lýði. Stærsti þeirra er við
Orchard Street. Þar eru seldir
ávextir, grænmeti, pottar og
pönnur, kj>úklingar, vefnaðarvör-
ur, búsáhöld af ýmsu tæi og jafn
vel kjólar. Andrúmsloftið er lík-
ara því sem ríkir á basar í Mið-
austurlöndum heldur en í banda-
rískri stórborg. Markaðirnir eru
opnir á sunnudögum vegna þess
að þeir eru í hvefum, þar sem
mikið er um Gyðinga.
Staðir þeir, sem getið er hér
að framan og eru eftirlæti New
York-búans, eru allir skammt frá
miðri Manhattan-eyju. Það er
auðvelt að komast til þeirra með
neðanjarðarlest eða strætisvögn-
um. Það er enginn aðgangseyrir
greiddur að þeim nema skemmti-
ferðaskipunum.
Þeir ferðamenn, sem áhuga
hafa á þessari hlið New York-
i borgar, geta fengið ókeypis leið-
arvísir og kort ef skrifað er til
New York Convention and
i Visitors Bureau, 90 East 42nd
Street, New York, N.Y. 10017.
(Frá Upplýsingaþjónustu Banda-
isnna).