Morgunblaðið - 19.10.1968, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. OKTÖBER 1968
JF
Islenzkan handbolta skortir
helzt skipulag og reynslu
— segja dönsku handbolfamennirnir
Og nú eiga Framarar að
mœta þeim í dag kl.3.30
I DAG leika dönsku handknatt-
leiksmeistararnir frá HG gegn
Frana og á morgun gegn úrvals-
liði sem landliðsnefnd velur. —
Þetta verða siöustu leikir dönsku
meistaranna, en marga mun fýsa
að sáá þá í viðureign við þessi
lið, ekki sízt eftir FH-ingum
tókst að knésetja þá svo eftir
minnilega sem raun varð á. At-
hyglí skal á þvi vakin að leik-
tima hefur verið breytt. Leikur
inn við Fram verður kl. 3,30 e.
h. í Laugardalshöllinni, en leik-
urinn á morgun verður kl. 4 síð
degis.
Dönsku leikmennirnir l&ta mjög
Vel af ílandsferðinni. Þeir fóru
í glampandi sól austur að Gull-
fossi og voru mjög hrifnir af því
Vetrurstorf
frjólsíþrótto-
deildor KB
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD KR
hefur hafið vetrarstarf sitt og
eru æfingar á þriðjudögum,
fimmtudögum og iaugardögum.
Aðalþjálfari er óhannes Sæm-
undsson en með honum margir
aðrir m.a. Valbjörn Þorláksson
og Úlfar Teitsson.
Á þriðjudögum er æft í KR-
húsinu. Drengir og sveinar frá
7.45 til 8.35 og fullorðnir kl. 8.35
til 9.25.
Á fimmtudögum er æft í KR-
húsinu. Stúlkur kl. 7.45—8.35 og
fullorðnir frá 8.35—9-25.
Á laugardögum er svo sameig-
inleg æfing allra flokka í Laug-
ardalshöllinni.
Ryun
beztur
DNDANKEPPNI 1500 m. fór
fram í gærkvöldi. Heimsmethaf-
inn Jim Ryun sigraði örugglega
í sinum riðli, hljóp á 3:45.7 mín.
sem var bezti tíminn, er náðist
í undankeppninni. Keinó sigraði
einnig í sínum riðli, hljóp á 1:46,9
min.
Arne Kvalheim frá Noregi var
eini Norðurlandabúinn, sem
komst áfram í undanúrslit. Hann
hljóp í sama riðli og Ryun, varð
fjórði á 3:47.4 mín. Annars var
þetta svartur dagur fyrir nor-
rænu millivegalengdarhlaupar-
ana, ýmist vegna þess að þeir
höfðu hreinlega ekki getu á borð
við keppinauta sína, eða þá þeir
gerðu þvílíkar taktískar skyss-
ur, að þeir hreinlega sprengdu
sig.
ferðalagi. Þó sumir þeirra hafi
margoft komið hér áður, hefur
það ætíð verið um miðjan vetur
og ferðalög útilokuð. Þetta opn-
aði þeim því ný kynni af íslandi,
sem þeir hrifust af.
Nokkir liðsmennirnir hafa ver
ið spurðir um álit þeirra á ísl.
handknattleik og fara svör þeirra
hér á eftir:
Ummæli nokkurra leikmanna
H.G. og þjálfara þei'rra eftir leik
inn við F.H.
Gert Andersen fyrirliði:
íslenzkir handknattleiksmenn
hafa alltaf verið mjög harðir og
duglegir, en núna síðustu árin er
hægt að sjá framför hvað teknik
ag skipulag snertir. Ég tel Jón
Hjaltalín ykkar lang hættuleg-
asta mann, en bræðurnir Geir og
örn eru fekniskastir. Dómararnir
Karl og Msgnús eru góðir að
minum dómi og dæmdu leikinn
við F.H. mjög vel.
Ég verð að segja að ég hef allt-
af orðið jafn undrandi í hvert
skipti þegar ég kern hingað hvað
keppnisskapið er gífurlegt bæði
hjá liðsmönnum og áhorfendum
og ég get sagt með vissu að ekk-
ert erlent lið getur heimsótt ykk-
ur og verið öruggt um sigur, ís-
lendingar eru tdl alls visir. Það
eina sem ykkur vantar er reynsla
á erlendum vettvangi.
Palle Nilsen (Jésu):
íslenzkur handknattleikur er
mjög góður, en mér finnst oft
harkalega brotið þegar það skipt
ir engu máli, og boltinn er hvergi
nálægur. Geir og Örn Hallsteins-
synir eru beztir af þeim sem ég
hef séð. Karl og Magnús eru
mjög góðir dómarar. íslenzkan
handknattleik virðist vanta nokk
uð skipulaig ag taktiskan leik, en
íslenzkir leikmenn eru hreifan-
legustu handknattleiksmenn sem
ég ihef séð.
Bent Morteinsson markvörðurinn
frægi:
Hallsteinsbræður skjóta óút-
reiknanlega og eru beztu skot-
mennirnir ykkar. Hvað leikinn
við F.H. snertir tel ég hann hafa
verið góðan, nokkuð grófan og
mundi ég halda að ef Karl hefði
ekki verið annar dómarinn hefði
leikurinn endað með slagsmálum.
Ykkar beztu menn eru mjög góð
ir og tel ég þá í sarua klassa og
beztu menn topp þjóðanna í hand
knattleik. Ég er svo hrifinn af
landinu að ég ætla að koma hing
að eitthvert sumarið og vera
minnst einn mánuð.
Geir Hallsteinsson var bezti maður á vellinum í leik FH og
HG í fyrrakvöld. Hér sézt Geir framkvæma vítaspyrnu. Ljósm.
Sv. Þorm.
Frúuleikfimi ÍR
ÍR hefur ákveðið að gangast fyr-
ir frúaleikfimi í vetur eem und-
anfarna vetur. Verður leikfimdn
X Langholtsiskóla og hefst í næstu
viku. Vegna mikillar þátttöku
eru þíátttakendur vinisamlega
beðnir að láta skrá sig mánudag-
,inn 21. október í síma 37382.
Kennari verður Aðalhedður
Helgadóttir.
Hausthöggleikur
hjú GR
GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur
efnir í dag til „hausthöggleiks"
á velli sínum við Grafarholt.
Hefst keppnin kl. 1.30 í dag og
verða leiknar 12 holur með for-
gjöf. Vænta forráðamenn þess að
félagsmenn fjölmenni til þess-
arar keppni.
Ársþing KSÍ
ÁR9ÞING KSÍ verður haldið 23.
og 24. nóvember n.k. og verð-
ur hús Slysavarnafélagsins á
Grandagarði fundarstaðurinn.
Þingið verður sett kl. 2 á laugar-
daginn 23. nóv.
8,90 m í langstökki
MÖRG eru þau orðin hin „ein-
stæðu afrek“ sem unnin hafa ver
ið í Mexikó á Olympíuleikunum.
En afrekið sem unnið var í gær
kom þó flestum íþróttaunnend-
um heims úr jafnvægi, þrátt
fyrir að þeir hafi fengið góða
æfingu í að taka móti stórfrétt-
um í þrístökkskeppninni og
reyndar fleiri greinum. Sett var
heimsmet í langstökki og hið
nýja met er 8.90 metrar — átta
metrar og nítíu sentimetrar.
Eldra heimsmetið var 8.29 m, en
Beamon átti þó betra afrek, 8,36,
sem beið staðfestingar.
Það var hinn ungi Bandaríkja
maður Bob Beamon sem þetta
„einstæða" afrek vann. Gerði
hann það snemma í úrslitakeppni
langstökksins. Ekki er vitað um
afrek annarra keppenda eða röð,
en eitt er þó vitað með vissu nú.
Stökkbrautirnar i Mexikó hljóta
að vera ótrúlega góðar.
Toomey tók forystu í tugþraut
Tugþrautarkeppni Mexikóleik-
anna hófst kl. 4 í gær eftir isl.
tima en var stutt á veg kominn
er blaðið fór í prentun. Banda-
rikjamaðurinn Bill Toomey tók
forystuna þegar í upphafj er
hann hljóp 100 m á 10.4 sekúnd-
um og þá forystuu jók hann í
langstökkinu, sem hann vann
einnig 7.87 m.
33 menn hófu keppni í þraut-
inni og Valbjörn Þorláksson með
al þeirra. Auk hans eru Svíinn
Lennart Hedmark og Daninn
Steen Schmidt-Jensen með í
þrautinni einir Norðurlandabúa.
Steen Schmidt hljóp 100 m á
10.9 en Valbjörn Þorlákason og
Lennart Hedmark á 11.1 sek. Það
gefur 780 stig.
Eins og fyrr segir var Toomey
í sérflokki á 10.4 en næstir komu
Herunter Austurriki og Kirst A-
Þýzkalandi á 10.5. Heimsmethaf-
inn í þrautinni, V-Þjóðverjinn
Kurt Bendler hljóp, á 10.7.
Bandaríkjamennirnir hinir,
þeir Rick Sloan og Tom Waddell
Arsenal í mál
v/ð Estudiantes
ESfTUDIANTES, argentínska
knattspyrnuliðið, sem varð
heimsmeistari félagsliða eftir sig
urinn yfir Manch. Utd. hafði í
hyggju að leika tvo aukaleiki.
Hafði bæði Arsenal og Birming-
ham City gert samning við fé-
lagið um leiki, en skyndilega til-
kynntu fararstjórar liðsins, að
liðið væri á förum og héldi heim
um ítaliu. Sögðu þeir að forseti
Argentínu hefði skipað svo fyrir
að liðið léki ekki fleiri leiki þar,
en kæmi heim.
Liðið hafði viðkomu i Milano
og mun leika við Inter-Milan í
dag, laugardag. /
Arsenal og Birmingham City
hafa nú í hyggju að krefja Arg-
entínumennina skaðabóta fyrir
samningsrof.
Sagði framkvæmdastjóri Ar-
senal að seldir hefðu verið miðar
að leiknum fyrir 4000 sterlings-
pund er salan var stöðvuð og
félagið myndi krefjast greiðslu
útlagðs kostnaðar og tapaðs á-
góða og reka sitt mál gegnum
enska knattspyrnusambandið.
hlupu á 11.2 og 11.3 sek.
1 langstökkinu var röð efstu
manna þe&si:
1. Bill Toomey 7.87.
2. Avilov Sovét.
Walde A-Þýzkal. 7.64.
4. Kirst A.-ÞýzkaL 7.61.
5. Bendlin V-Þýzkal. 7.56.
6. Wadell USA 7.47.
7. Tiedtke A-ÞýzkaL 7.46.
Lennart Hedmark og Steen
Sohmidt-Jensen settu báðir pers-
ónulegt met í langstökki, stukku
7.29 og 7.17 m. Valbjöm stökk
6.76 m.
Röð efstu manna eftir tvær
greinar var þessi:
1. Toomey 1953 stig.
2. Kirst 1875.
3. Bendlin 1812.
4. Diessl Austurríki 1784.
5. Avilov Sovét. og
Walde V-ÞýzkaL 1777.
7. Rein Aun Eovét. 1754.
8. Sassel A-Þýzkal.
9. Tietke A-Þýzkal. 1741.
10. Djourov Búlgaríu 1729.
Jensen var í 13. sæti með 1683
og Lennart Hedmark í 14. sæti
með 1659.
Valbjöm hafði 1550 stig, en
ekki vitum hvar í röð hann var,
en samkv. ofangreindu líklega
um miðja röð.