Morgunblaðið - 09.01.1969, Síða 8

Morgunblaðið - 09.01.1969, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1969. r VÍÐKUNNASTI Norðmaður- inn síðan Fridtjov Nansen leið, vorið 1930, er látirm. — Trygve Lie varð bráðkvadd- ur á giatihúsi uppi á Geilo 30. desember. Hann varð 72 ára. Mikið ævistarf liggur eftir þennan herðabreiða afreks- mann. I norskum þjóðmálum mun framtíðin að vísu telja nokkra samtíðanmenn hans honum fremri, svo sem C. J. Hambro, en í alþjóðamálum gegndi hann því hlutverki að skipuleggja starfsemi Samein- uðu þjóðanna sem aðalritari þeirra frá stofnun og fram til marz-mánaðar 19&á. Og fyrir það starf vei'ður hans lengst minnzt, bæði heima og erlend- is. Starfsferill hans hófst fyrir nær 50 árum, eða 1919 er hann varð ritari norska verka- mannaflakksins, en þrem ár- um síðar varð hann lögfræði- legur ráðimautur Verkamanna sambandsins (Landsorganisasj onen) og þótti takast vel að ráða fram úr þeim mörgu vandamálum er á atvinnuleys isárunum miklu steðjuðu að. Hann varð landskunnur sem slyngur lögfræðingur og lag- inn samningamaður. Og þegar Joh. Nygaardsvold mynda’ði stjóm sína 1935 þótti Lie sjálf- sagður til að verða dómsmála- náðherra. En vorið 1939 varð haran verzlunarmálaráðherra og þegar birgðamálaráðuneyt- ið var stofnað skömmu síðar, vegna yfirvofandi stríðshættu, tók hann að sér stjórn þess og var það honum að þakka, að Norðmenn voru tiltölulega vel birgir að flestum nauðsynjum þegar landið var hernumið, vorið eftir., Hemámsdaginn flýði stjóm in frá Osló, fyrst til Elverum og þaðara norður í land aUt til Tromsöy og loks til Englands. Nygaardsvold tók fulltrúa frá andstöðuflokkunum imn í stjóm sína og í nóvember 1940 til stríðsloka, og sömuleiðis í varð Trygve Lie utanríkis- ráðherra hinnar nýju stjómar, stjórn þeirri sem Einar Ger- hardsen myndaði sumarið 1945 og haustið sama ár. En í febrúar 1946 skeðu þau miklu tíðindi, að Trygve Lie varð fyrir valinu sem aðalrit- ari hins nýstofnaða alþjóða- sambands — UNO. Það vakti athygli að maður frá smáþjóð skyldi kjörinn til þess að stjóma hinu nýja heimssam- bandi, en stórveldin munu hafa litið svo á að tryggast væri uppá sambúðina að rit- arinn væri ekki úr þeirra hópi. Og Norðmenn höfðu, þótt hemumdir væm, lagt ó- metanlegan skerf til sigursins, því floti þeirra var lífæðin í samgöngunum milli Ameríku og Evrópu. Fyrsta kjörtímabil aðalrit- arans rann út 2. febr. 1951. — Hafði furðu lítið verið um á- rekstra innan UNO framan af, en í júní 1950 hófst Kóreu- styrjöldin. Trygve Lie taldi það beina skyldu UNO að Tryggve Lie í Reykjavík í ársbyrjun 1965. Trygve Lie fallinn í valinn skerast i leikinn og binda enda á þessa styrjöld. En fyrir það féll hanra í ónáð hjá Rúss- um. Þegar Öryggisráðið skyldi stinga upp á aðalritara næsta kjörtímabils, haustið 1950, neituðu Rússar að mæla með Trygve Lie. Þessvegna komu engin meðmæli frá Öryggis- ráðinu, þó að yfirgnæfandi meirihluti þess vildi endur- kjósa Lie. — En Alþjóðasam- bandsþingið endurkaus hann með 51 atbv. gegn 5, en þó aðeins til þriggja ára, eða hálfs kjörtímabils. Lie gerði ítrekaðar tilraun- ir til að ná samvinnu við Rússa. en þáð tókst ekki. Segir Lie greinilega frá þessu í bók sinni „Syv ár for freden“. — Loks taldi hanra áraragurslaust að reyna lengur, og sagði af sér embættinu í marz 1953, en Dag Hammarskjöld tók við. — En UNO ber margar minjar um árin sem Lie sat við stýrið þar. Hann vann þar brautryðj andastarf og skipulag sam- bandsins er í mörgum grein- um hans verk. — Það mun ekki hafa þótt viðeigamdi að Trygve Lie tæki að sér opinbera stöðu imdir eins og hann hvarf heim til Noregs aftur. En hanra var einn þeirra manna, sem aldrei gat setið auðum höndum. — Hann var aðeins 57 ára er hann sagði skilið við UNO og enn 1 fullu fjöri að áhuga og starfsþreki. Og nú fór hann að skrifa bækur, sem voru að mestu leyti ævisaga hans, því að margt hafði hann upplifað. En 1955 var hann skipaður fylkismaður í Osló og Akers- hus en sinnti þó jafnframt rit störfum og stjómin gerði hann að fjárhagslegum ráðunaut sínum. Og þegar Kjell Holler iðnmálaráðherra baðst lausn- ar 1963 varð Lie eftirmáður hans og haustið 1963, er Einar Gerhardsen myndaði stjórn á ný, eftir stutta tilveru Lirag- stjórnarinnar, varð Lie iðn- málaráðherra þar og síðar verzlunarmálaráðherra þang- að til Gerhardsensstjórnin sagði af sér 1965. Síðan hélt hann áfram að skrifa. Af þeim bókum sem hann lét frá sér fara varð „Syv Sr for freden“ víðkunn- ust, enda er hún í rauninni saga UNO fyrstu sjö árin. En ævisaga hans er öðrum þræði stjórnmálasaga Noregs í nær hálfa öld. — Trygve Lie var or'ðum og sæmdarmerkjum hlaðinn og 1966 var hann sæmdur „Borg erdádsmedaljen i gull“, en það er mesti sómavottur sem Nor- egur getur sýnt sonum sínum. Annað sýnir kannske betur hve mikillar virðingar Trygve naut erlendis: Hann var heið- ursdoktor 25 háskóla í Evrópu og Ameríku. — John Lyng utanríkisráð- herra segir svo, um Trygve Lie látinn: „I mörg ár fóm- aði Trygve Lie ríkum persónu leika sínum og óþreytandi at- hafnaorku í þágu ættjarðar- innar. Sem utanríkisráðherra á erfiðum styrjaldarárunum tryggði hann landi voru veg- legan sess meðal frjálsra lýð- ræðislanda . . . Með starfi sínu sem a’ðalritari UNO vann hann sér virðimgu og álit um allan heim og varpaði ljóma á land okkar. Fráfall hans mun vekja djúpa sorg, ekki að eins hjá vorri þjóð heldur víða um veröld, þar sem hans verð ur minnzt sem djarfs tals- manns laga og réttlætis í sam búð þjóðanna. — Utför hins fræga sonar norsku þjóðarinnar var gerð á þrettánda dag jóla og fór fram á ríkisins kostnað. — Ralph Bunche vara-aðalritari var þar viðstaddur fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna. Sk. Sk. ' Staðfest lög Á RÍKISRÁÐSFXINDI á gamlárs- dag staðfesti forseti íslands eftir- greind lög: (1) um ráðstafanir í sjávarút- vegi vegna breytingar gemgis ís- lenzkrar krónu. (2) um breyting á lögum nr. 82/1967, um Bjargráðasjóð ís- landis. (3) um breyting á lögum nr. 7/1967, um námslán og náms- styrki. (4) um breyting á lögum nr. 49/1(967, um skólakostnað. (5) um heimild fyrir ríkis- stjómina til a ðstaðifesta fyrir ís- lands hönd breytingar á og við- auka við stofnskrá Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. (6) um breyting á lögum nr. 54/1960, um verðlagsmál. (7) um ráðlstaffanir vegna Iand- búnaðarins í samhandi við breyt ing á gengi íslenzkrar krónu. (8) um breyting á lögum nr. 29/1964 um ferðamál. (9) um eiturefni og hættuleg efni. (10) um breyting á lögum nr. 33/1967, um bráðabirgðahreyting á lögum nr. 55/1962, um kjara- samninga opinberra starfsmanna. (11) um breytirag á lögum nr. 63/1968, um tollskrá o.fl. og (12) fjárlög fyrir árið 1969. Þá voru ennfremur gefin út bráðabirgðalög um breyting á lögum nr. 29/1956, um atvinnu- leysistryggingar, og bráðabirgða- lög um heimild fyrir ríkisistjórn- ina til lántöku vegna Vestfjarða- áætlunar og Norðurlandsáætlun- ar. Ennfremur voru staðfestar á fundinum ýmsar affgreiðlslur, er farið hötfðu fram utan fundar. Áramót í blíð- skaparveðri Neskaupstað, 4. jan. SÍÐAN í gærkvöldi hefur verið hér snjóbylur og 8 atiga froat. Bábarrair eru að búa sig á ver- tíð og er einn búinn að láta skrá sig, en hann fór ekki út í gær vegna veðurs. Ætlunin er að allir bátarnir verði gerðir út héðan i vetur og leggi upp heima. Yfir hátíðamar var bezta veð- ur, sem hér hefur komið lengi, og voru jólin friðsæl og ánægju- leg. Á gamlársikvöld var logn og 5 srtiga hiti. Þróttur hafði eiraa srtóra hreranu irani á Sandi. Var kveikt á bálkestinum kl. 8 og voru þar áreiðanlega 400—500 manns í kring í góða veðrinu. Oddsskarð hefur alltaf verið færrt fnarn að þessu,_ en nú vaxð það að lokast. — Ásgeir. Nómskeið í leiklist LEIKFÉLAG Reykjavíkur efnir til þriggja mánaða námskeiðs í undirsrtöðuatriðum leiklistar núna í ársbyrjun 1969. Kennarar og kenmslugreinar verða: Undirstöðuatriði lieiiktúlkunar: kennari Steindór Hjörleifsson. Framsögn: Kenraari Sveinm Einarsson. Líbamsrækit: Kennari Liljia Hállgrímsdóttir. Kennt verður í Tjarnarbæ seinni hluta dags eða að kvöldi til. Námskeiðið hefsit föstudag- inn 10. janúar og atendur fram til 1. apríl. Fréttatilkynning. AUGLYSIHGAR SÍMI 22.4*80 HEIMDALLUR - ÚÐINN ÁRAMÓTASPILAKVÖLD ÁRAMÓTASPILAKVÖLD SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANN A í REYKJAVÍK VERÐUR f KVÖLD 9. JANÚAR KL. 20.30 í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU. 1) SPILUÐ FÉLAGSVIST. 4) DREGIÐ f IIAPPDRÆTTI. 2) ÁVARP: Formaður Sjálfstæðisflokksins Glæsilegir vinningar. dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. 5) SKEMMTIATRIÐI: Kristín Magnús, leik- 3) SPILAVERÐLAUN AFHENT. 6) kona, Collin Russcll, ballettmeistari. DANS. Ilúsið opnað kt. 20. — Lokað kl. 20.30. — Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma. SKEMMTINEFNDIN.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.