Morgunblaðið - 09.01.1969, Qupperneq 28
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFG R EIÐSLA * SKRIFSTOFA
5ÍIVII ID.IOQ
iDírgíitnMa&l^
FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1969
Heimir
fær fyrstu
síldina fyrir austan
HEIMIR SU-100 frá Stöðvar-
firði fékk fyrstu sild ársins,
sem veiðist við Austurland. Skip-
ið sigldi úr heimahöfn á þrett-
ándanum og kastaði á síld aðfara
Góðar
togarasölur
TVEIR togarar seldu erlendis í
gær. Voru það Maí, sem seldi í
Grimsby 108 tonn fyrir 15.132
sterlingspund, og Ingólfur Arnar
son, sem seldi í Aherdeen í gær
og morgun, samtals 196 tonn fyr-
ir 18.167 pund.
í fyrradag lauk togarinn Úr-
anus við að selja í Aberdeen og
hafði hann þá selt 125 lestir fyrir
Í1 þús. pund.
í dag á togarinn Röðull að
selja í Þýzikalandi.
TALSVERÐAR skemmdir urðu á
íbúðarhúsi úr timbri að Hjalla-
vegi 6 í Kópavogi í gærmorgun,
er eldur kom upp í kyndihúsi,
áföstu við húsið. Brann kyndi-
húsið alveg, en miklar skemmdir
urðu á íbúðarhúsinu af völdum
vatns og reyks. Er það óíbúðar-
hæft a.m.k. um tíma.
nótt þriðjudagsins í Breiðamerk-
urdýpi. Heimir fékk 70 tonn í
einu kasti, en veður hamlaði þá
frekari veiðum.
Heimir er fyrsta síldveiðiskip-
ið, sem reynt hefur síldiveiðar
fyrir Austurlandi á nýbyrjuðu
ári. Er ætlunin að Heimir kanni
frekar veiðisvæðið þar fyrir aust
an, en beri slíkt ekki árangur
mun skipið sigla til veiða á Norð-
ursjó.
Eimskipafélag Islands hefur aukið mjög umsvif sín að undanförnu. Félagið er nú t.d. að láta reisa I
mikla vöruskemmu á Faxagarði, og er þessi mynd tekin þar inh í skemmunni. Þá hyggst félagið
reisa vöruskemmu á Akureyri, og nú síðast hefur það ákveðið að láta smíða tvö ný skip,
Eimskip semja í Danmörku
um smíði tveggja skipa
Verða 3600 tonn að stœrð — annað verður frystiskip
í VIÐTALI við Jóhann Haf-
stein, iðnaðarmálaráðherra,
sem birtist hér í blaðinu í dag,
kemur fram, að Eimskipafélag
Islands er nú að semja við
Alborg Værft í Álaborg um
smíði tveggja skipa. í tilefni
af þessu sneri Morgunblaðið
sér til forráðamanna Eim-
skipafélagsins, og fékk þær
upplýsingar, að Óttar Möller,
forstjóri félagsins, væri nú í
Kaupmannahöfn til viðræðna
við forráðamenn skipasmíða-
stöðvarinnar. Væri búist við,
að samningar yrðu undirritað
ir áður en langt um liði.
Skipin, sem Eimskip hyggst
láta smíða, verða 3600 dw-
tonn hvort um sig. Verður
annað skipið frysti'skip (al-
fryst), en hitt hefur 10 þús.
teningsfeta frystirúm, en er að
öðru leyti venjulegt flutninga
ókip. Verð beggja skipanna
fullbúin er áætlað um 31.5
millj. kr. Frystiskipið mun
kosta um 16.7 millj., en vöru-
flutningaskipið um 14.8 milij.
króna. Gert er ráð fyrir að
frystiskipið verði afhent '
apríl—maí 1970, en hitt skip-
ið í september sama ár.
Kísilgúrvinnsla
gengur vel
Kassageröin heldur áfram sending
um á mjólkurumbúðum til Bahrain
VINNSLAN í Kísilgúrverkismiðj -
unni gengur ágætlega, og sam-
kvæmt upphaflegri áætlun. Við
erum komnir yfir byrjunarerf-
iðleikana og ekki virðast nein
vandamál, sem ekki er hægt að
ráða við, sagði Vésteinn Guð-
mundsson, verksmiðjustjóri í sím
tali við blaðið. Sölur af kísi'lgúrn-
um ganga vel og öll framleiðslan
fer héðan jafnóðum.
Spurningunni um það hvort
farið væri að ræða um stækkun
Framhald á bls. 18
Seldi tiskikassa til nágrannalandanna
fyrir á 7 milljónir á s.l. ári
KASSAGERÐ Reykjavikur hef-j og selt þangað 25 lítra mjólkur-
ur sem kunnugt er verið í við- kassa. Samkvæmt upplýsingum
skiptasamböndum við furstadæm Gylfa Hinrikssonar, forráða-
ið Bahrain við Persneska flóann, I manns Pappírsvara, systurfyrir-
TRÚIEKKIAÐ MÁLMIÐNAÐURINN
SKERIST ÚR LEIK
— í baráttunni fyrir aukinni atvinnu
— Ríkisstjórnin hefur veitt málmiðnaðinum
margháttaða fyrirgreiðslu, segir
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráðherra
í viðtali við Morgunbtaðið
Mbl. sneri sér í gær til
Jóhanns Hafsteins, iðnaðar-
málaráðherra, vegna bréfs
Meistarafélags járniðnaðar-
manna, sem birt hefur verið,
þar sem félagsmönnum er
ráðlagt að kanna möguleika
á að selja hluta af vélakosti
fyrirtækja sinna til útlanda
og stjórnvöld sökuð um skiln-
ingsleysi á málefnum þessar-
ar iðngreinar.
— Hvað viljið þér segja um
efni þessa bréfs, iðnaðarmálaráð
herra?
— Ég get látið ásakanir stjórn
ar Meistarafélagsins í garð stjórn
valda um „skilningsleysi, ráð-
leysi og getuleysi“, liggja á milli
hluta. Ég hef ekki trú á, að þess-
ar ásakanir eigi mikinn hljóm-
grunn hjá meðlimum félagsins,
þótt sjá megi á skrifum Tímans
og Þjóðviljans, að þær hljóta
góðar undirtektir þar.
Hins vegar er það gáleysi og
ábyrgðarleysi stjómar þessa fé-
lags miklu alvarlegra, að ráð-
leggja félagsmönnum a'ð kanna
hvort ekki væri nauðsynlegt að
draga fyrirtæki saman og selja
hluta af vélakosti þeirra til út-
landa til þess að forða eigna- , _
tjóni í þeim erfiðleikum, sem við
blasa. Mér eru þessar tiltektir
með öllu óskiljanlegar svo og
það, að skrifstofa félagsins hafi
ekki öðrum þarfari störfum að
gegna en að undirbúa sölulista
yfir iðnaðarvélar, sem sendir
yrðu fyrirtækjum, sem annast
sölu notaðra véla í ýmsum lönd-
um.
Nú standa yfir viðræður milli
fulltrúa verkalýðssamtakanna,
vinnuveitenda og ríkisstjórnar-
innar um atvinnumálin og hvað
hægt sé að gera með samstilltu
átaki til þess að tryggja atvinnu-
öryggi og forða atvinnuleysi. Ég
trúi því ekki, að meðlimir Meist-
arafélags járniðnaðarmanna sker
ist úr leik í þeirri baráttu, sem
miðar til atvinnuaukningar,
þegar þjóðin hefur orðið fyrir
svo miklu áfalli, sem raun ber
vitni, þótt félagsstjórnina hafi
hent þau afglöp að senda frá sér
umrætt bréf.
Jóhann Hafstein
— Hafa staðið yfir einhverjar
deilur milli iðnaðarmálaráðuneyt
isins og Meistarafélagsins?
— Síður en svo. Ég hetf sem
iðnaðarmálaráðherra haft náin
samskipti á mörgum sviðum við
meðlimi félagsins og félagið hef-
ur oft leitað til ráðuneytisins og
vinsamleg samskipti verið þar á
milli. Fulltrúar málmiðnaðarins,
bæ'ði atvinnurekendur og laun-
þegar komu til fundar við mig
hinn 30. okt. sl. til þess að ræða
ýmis vandamál, sem fyrir lágu
Framhald á b)s. 27
tækis Kassagerðarinnar, verður
þessum viðskiptum haldið áfram,
og kvað Gylfi þau fara vaxandi,
alltaf yrði skemmra á milli send-
inga.
Gylfi gizkaði á, að á sl. ári
hefði Kassagerðin sent um 10
þúsund kassa til þes'sa staðar,
og væru sendir um 2 þúsund
kassar á tveggja mánaða fresti,
sendingar hefðu þó farið upp í
3.500 kassa.
Hann sagði ennfremur, að stöð-
ugt bærust fyrirspurnir um fram
leiðslu KassagerðaTinnar frá ýms
um öðrum löndum, t. d. frá Norð
urlöndunum, Póllandi og Þýz-ka-
landi. Fyrirtækið hefði þó ekki
getað sinnt þessum fyrirspurn-
um sem skyldi, þar sem það
hefði þurft að kaupa poka, sem
notaðir væru við framleiðslu á
mjólkurhyrnum frá Bandaríkjun
um. Nú væri Kassagerðin á hinn
bóginn nær tilbúin að taka sjálf
að sér framleiðslu pokanna, því
að nauðsynlegar vélar væru
komnar til landsins og hefði að-
eins staðið á húsnæði. Gæti
Kassagerðin nú farið að sinna
fyrirspurnum frá þessum lönd-
um, enda væri samkeppnisað-
staða Kassagerðarinnar orðin
Framhald á hls. 18
Heybruni í Kjós
VART varð við eld í fjóshlöðu
á bænum Hjalla í Kjós litlu eft-
ir hádegi í gær. Menn á nálægum
bæjum fóru bóndanum á Hjalla
til hjálpar og var heyinu rutt úr
hlöðunni. Urðu talsverðar
skemmdir á heyinu, en ekkert
tjón mun hafa orðið á hlöðunni
sjálfri.