Morgunblaðið - 22.01.1969, Síða 1
24 SÍDUR
17. tbl. 56. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vietnam-viöræöur
hefjast á laugardag
París, Saigon og Hong Kong,
21. jan. (AP-NTB)
• Fulltrúar Bandaríkjanna við
Vietnam-viðræðurnar í París
skýrðu frá því í dag að fyrsti við-
ræðufundur fulltrúa Bandaríkj-
anna, Suður-Vietnam, Norður-
Vietnam og „Þjóðfrelsisfylking-
arinnar“, stjórnmálaarms Viet
Cong hreyfingarinnar, yrði hald-
inn á laugardag í París
• í Saigon hafa sendiherra Banda
ríkjanna, Ellsworth Bunker, og
Alexis Johnson, sérlegur fulltrúi
Nixons forseta, rætt við Thieu
forseta og fleiri ráðamenn um
friðarviðræðurnar.
í Hanoi skýrði málgagn stjóm-
ar Norður-Vietnam frá því í dag,
að eina ieiðin til friðar í Vietnam
væri að samþykkja marg-ítrek-
aðar kröfur Norður-Vietnam og
Viet Cong um brottflutning alls
herliðls Bandaríkjanna, eyði-
leggingu allra erlendra herstöðva
í Suður-Vietnam, endursamein-
ingu Norður- og Suður-Vietnam
og afskiptaleysi erlendra aðila af
stjórnmálum landsins.
í tilkynningu bandarísku full-
trúanna í París segir að fundur
hafi verið ákveðinn á laugardag
eftir innbyrðis viðræður allra
aðila. Henry Cabot Lodge, sem
kom til Parísar í gærkvöldi til
að taka við forustu bandarísku
sendinefndarinnar, hefur þegar
átt einkaviðræður við Pham
Dam Lam sendilherra Suður-Viet
nam. Sagði hann í daig að 'hann
vildi að viðræður hæfust sem
fyrst, en sjálfsagt hefði verið að
bíða komu Nguyen Cao Kys vara
forseta Suður-Vietnam, sem ekki
er væntanlegur frá Saigon fyrr
en á fimmtudag. Ky varaforseti
Framhald á bls. 23
Frú Nguyen Thi Binh, formaður samninganefndar „Þjóðfrelsisfylkingarinnar" (Viet Cong) við
Parísarviðræðumar um frið í Víetnam, veifar til áhorfenda um leið og hún gengur til fundar
þar í borg sl. laugardag.
Vigreiiii
unglingor
Godtháb, Grænlandi, 21. jan.
— NTB —
LÖGREGLAN í bænum Jak-
obshavn við Disko-flóa á
Vestur-Grænlandi lenti í ó-
venjulegum erfiðleikum á
mánudag. Fjórir unglingar
tóku sér stöðu rétt utan við
þéttbýlið og beittu skotvopn-
um til að meina bæjarbúum
að hreyfa sig utandyra. Héldu
þeir uppi skothríð á bæinn og
lömuðu þannig alla umferð í
nokkrar klukkustundir.
Lögregluþjónn og ung
stúlka særðust í skothrið ungl
inganna.
Það var ekki fyrr en um
kvöldið að lögreglunni tókst
| að handtaka fjórmenningana.
Voru þeir búnir litlum tal-
stöðvum (labb-rabb-tækjum),
og voru í sambandi við lög-
reglumennina allan tímann,
en neituðu öllum áskorunum
um að leggja niður vopn og
gefast upp.
spenna í Tékkósldvakíu
Jan Palach mun hvíla á viðhafnarbörum
síðan jarðsettur í heiðursgrafreit
Ungverskur námsmaður gerir
sams konar sjálfsmorðstilraun
en
Prag, 21. janúar. NTB-AP.
• Mikil spenna ríkir í Tékkó-
slóvakíu í dag eftir sjálfs-
morð stúdentsins Jans Pal-
achs og sjálfsmorðstilraun
verkamannsins Josefs Hlava-
tys, sem hann gerði á sama
hátt og Palach, þ.e. með því að
bera eld að sjálfum sér, eftir
að hann hafði hellt yfir sig
benzíni. Þá hendir allt til
þess, að stjórnmálaástæður
hafi einnig legið að baki
sjálfsmorðstilraun ungverska
námsmannsins Sandors Bau-
ers, sem jós benzíni yfir sig
og bar síðan eld að sér á
tröppum þjóðminjasafnsins í
Búdapest. Hafði Bauer fest
stórt skilti á brjóst sér, þar
sem á stóð: „Niður með her-
námsliðið“, þ.e. sovézka her-
liðið, sem er í Ungverjalandi.
Er líðan Bauers mjög slæm
Ráðherrar Nixons sverja
embættiseiða sína í dag ■
og hann talinn í lífshættu.
# Lík Jans Palachs, sem var
21 árs, er hann lézt, verður
látið hvíla á viðhafnarbörum
í anddyri Karlsháskóla á föstu
dag, en líkbörur hans verða
síðan fluttar til heimspeki-
deildar háskólans á laugar-
dag, þar sem Palach var nem-
andi. Síðan verður lík hans
flutt til heiðurskirkjugarðs-
ins í útborginni Vyserrad, þar
sem það verður jarðsett við
hlið mestu tónskálda, rithöf-
iinda og mcnntamanna lands-
ins.
• Líðan Josefs Hlavatys er
mjög alvarleg og læknar gera
sér litlar vonir um að bjarga
líii hans.
I dag stóð fólk í hópum á
Wenceslastorginu í Prag og
skrifaði nöfn sín undir samúðar-
kveðjur til móður Palachs. Þá
hafa blaðamenn í Tékkóslóvakiu
krafizt þess, að útfarardagur
hans verði gerður að degi þjóð-
arsorgar. Samkvæmt fráisögn
blaðsins Svobodne Slovo í Prag,
höfðu yfirvöld ekki skýrt frú
Palaoh frá sjálfsmorði sonar
hennar sl. fimmtudag. Fékk hún
fyrst að vita um það, er hún
Framhald á bls. 23
Carmania kom-
in ó flot
Newport News, Virginia,
21. janúar. AP.
SKIPIÐ Carmania, sem var'ð
fyrir skemmdum í sáðustu viku,
er það strandaði fyrir utan San
Salvadoreyju, kom til Newpont
News til viðgerðar í dag, Búizt
Framhald á bls. 23
Moröin í V-Þýzka-
landi eru óupplýst
— Lágu pólitískar hvatir að baki þeim?
Washington, 21. jan.
(AP-NTB).
FYRSTI starfsdagur Richards M.
Nixons forseta Bandaríkjanna
hófst snemma í morgun. Var
forsetinn mættur til skrifstofu
sinnar klukkan hálf átta þrátt
fyrir vökunótt, en hann sótti í
gærkvöldj sex dansleiki í höf-
-uðborginni þar sem stuðnings-
menn fögnuðu embættistöku
‘hams.
Ræðu þeirri, sem Nixon flutti
við embættistökuna, hefur verið
misjafnlega tekið. Margir hafa
tfagnað friðarboðskap nýja forset
íans, en aðrir tekið honum með
•varúð og sagt að bezt væri að
'bíða aðgerða áður en dómur er
npp kveðinn.
1 Brezik blöð voru einna lofsam-
•legust í dómurn sínum um ræðu
Nixons. Þannig segir „The Sun“
sem fylgiir Verkamannaflokknum
að málum: „Það verður að meta
það við Nixon að hann meinar
það sem hann segir, og mun
reyna að ná því marki, er hann
hefur sett sér. Ef hann aðeins
kemst eitthvað áleiðis að því
marki, verður hann merkur for-
seti.“
íhaldsblaðið „Sketch“ segir:
„Friðarorð. Öll lönd, sem skýla
sér undir hernaðar-regnhlíf
Bandaríkjanna, ættu að taka und
ir þessi orð.“ Íhaldsblaðið „Daily
Mail“: „Fyrirætlanir hans liggja
ljósar fyrir — að draga úr styrj-
öldinni i Vietnam, og nota féð,
sem við það sparast, til að draga
úr erjum innan BandaTÍkjanna.
Daily Mail álítur að varkárt
raunsæi Nixons geti aðeins orð-
ið sambúð Bretlands við Banda-
ríkin til góðs.“
Harold Wilson forsætisráð-
herra Bretlands kom fram í sjón
varpi í dag og minntiát þá á emb
ættistöku Nixons. Kvaðst hann
álíta að Nixon hefði tekið við
embætti sínu með viðeigandi von
í brjósti og viðeigandi varúð. —
Einnig sagði Wilson aðspurður
að hann færi á næstunni til Was-
hington til viðræðna við Nixon,
en vildi ekki segja nánar hve-
nær.
Peking-útvarpið Skýrði frá
embættistökunni, og sagði að
Nixon væri nýr leiðtogi aftur-
halds-hernaðarklíkunnar banda-
rísku. Sagði útvarpið frá mót-
mælagöngu, sem farin var í Was-
hington á sunnudag, og bætti
Framhald á bls. 23
Lebach, Vestur-Þýzkalandi,
21. janúar. NTB.
MENN úr vestur-þýzku lögregl-
unni og leyniþjónustunni héldu
í dag áfram leitinni að morðingj
um þriggja ungra fallhlífarher-
manna, sem myrtir voru við skot
færageymslu eina í Lebach að-
faranótt mánudagsins, en hafa
ekki orðið neins vísari svo
öruggt sé um morðingjana né
heldur um ástæðuna fyrir morð-
unum. Tveir aðrir hermenn voru
særðir alvarlega í þessari hrotta
legu árás, sem vitneskja fékkst
fyrst um í gærmorgun, er skipta
átti um vörð við skotfærageymsl
una.
Árásarmönnunum tókst aðeins
að hafa á brott með sér tvær
skammbyssur og þrjá rifla fyrir
utan um 1000 skot. Þessi vopn
tilheyrðu hermönnunum, sem
voru á verði við skotfærageymsl-
una, sem lá afsíðis um 20 km frá
frönsku landamærunum.
1 útvarpi og sjónvarpi var gef-
Framhald á bls. 23