Morgunblaðið - 22.01.1969, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.01.1969, Qupperneq 2
2 MORGUNB-LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 19G9. Dæmdur til að greiða nær 13 millj. kr. — í HÆSTARÉTXI var sl. fimmtu- dag kveðinn upp dómur í máii, sem ákæruvaldið höfðaði gegn Þorsteini Þorsteinssyni, sælgætis grerðarmanni, vegna undandrátt- ar á tollvörugjaldi. Mál þetta kom til vegna rannsóknar rann- sóknardeildar ríkisskattstjóra á framleiðlsu og sölu Lakkrísgerð- arinnar Póló og er þetta fyrsta mál þeirrar tegundar, sem Hæsti réttur dæmir í. f héraðsdómi var undandregið tollvörugjald ákvarð að krónur 4.930.032.49 og var Þor steinn samkvæmt því dæmdur til að greiða krónur 14.790.097.47 til Ríkissjóðs íslands, krónur 277.200.00 til Styrktarsjóðs fatl- aðra. Þá var Þorsteinn dæmdur í héraðsdómi til að greiða 20.000 króna sekt og allan sakarkostn- að auk þess, sem hann var svipt- jpramliald á bls. 23 Atvinnumdlanefnd Framhald af bls. 24. var 17. þ. m., hefur verið stofnað Atvinnumálanefnd ríkisins og skipa hana þessir menn: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Dr. Bjarnj Benediktsson. form. Dr. Gylfi Þ. Gíslason Jóhann Hafstein Af hálfu A.S.Í.: Björn Jónsson, Akureyri. Eðvsurð Sigurðsson, Rvík. Óskar Hallgrímsson, Rvík. Varamaður: Guðm. H. Garðarsson, Rvík. Af hálfu V.S.Í.: Benedikt Gröndal, Rvík. Sveinn Guðmundsson, Rvík. Harry Frederiksen, Rvík. Jafnframt hafa samkvæmt framangreindu samkomulagi ver ið stofnaðar atvinnumálanefndir 1 hverju kjördæmi landsins, þó ein sameiginleg nefnd í Norður- landskjördæmi vestra og Norð- urlandskjördæmi eystra: Reykjavík. Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Birgir fsl. Gunnarsson, Rvík. formaður. Björgvin Guðmundsson, Rvík. Af hálfu A.S.Í.: Guðmundur J. Guðmundsson. Guðjón Sigurðsson Daði Ólafsson. Varamaður': Jóna Guðjónsdóttir. Af hálfu V.S.Í.: Ingvar Vilhjálmsson, Rvík. Barði Friðriksson, Rvík. Þorvarður Alfonsson, Rvík. Vesturlandskjördæmi: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Ásgeir Ágústsson, Stykkis- hólmi, formaður. Jósef Þorgeirsson, Akranesi. Af hálfu A.S.Í.: Herdís ólafsdóttir, Akranesi. Guðm. Sigurðsson, Borgarnesi. Elínberg Sveinsson, Ólafsvík. Varamaður: Erling Viggóss., Stykkishólmi. Af hálfu V.S.Í.: Valdimar Indriðason, Akranesi. Zophonías Cesilsson, Grundar- firði. Húnbogi Þorsteinsson, Borgar- nesi. Vestfjarðakjördæmi: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Sjónvorpssímar Stokfchólmi, 21. jannar. NTB. FYRSTU sænsku sjónvarpssím- amir verða teknir í notkun í Stokkhólmi, Gautaborg og Málm ey á þessu ári, að því er dr. Christian Jacobeaus varafram- kvæmdastjóri skýrði frá á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi í dag. í byriun verður aðeins um að ræða tilraunastarfsemi me'ð 15— 20 sjónvarpssíma, sem verða í sambandi hver við annan með sérstöku símasambandi milli borganna þriggja. Síðar er hins vegar gert ráð fyrir því, að neti sjónvarpssíma verði komið upp milli stærri fyrirtækja. Það munu því enn líða mörg ár, unz sjónvarps- símarnir verða algengir á heim- ilum. Samningafundur SAMNINGAFUNDUR var í sjó- mannadeilunni í gær, og hófst kl. 8,30. Stóð hann enn þegar blaðið fór í prentun. Jóhann Árnason, Patreksfirði, formaður. Ágúst H. Pétursson, Patreksf. Af hálfu A.S.Í.: Björgvin Sighvatsson, ísafirði. Eyjólfur Jónsson, Flateyri. Ólafur Bæringsson, Patreksf. Varamaður: Pétur Pétursson, ísafirði. Af hálfu V.S.Í.: Ólafur Guðmundsson, ísafirði Jónatan Einarsson. Bolungar- vík. Guðm. Guðmundsson, ísafirði. Norðurlandsk jördæmin: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Lárus Jónsson, Akureyri, for- maður. Þorsteinn Hjálmarsson, Hófsósi Af hálfu A.S.Í.: Tryggvi Helgason, Akureyri. Óskar Garibaldason, Siglufirði. Freyr Bjarnason, Húsa-vík. Varamaður: Jón Karlsson, Sauðárkróki. Af hálfu V.S.Í.: Árni Árnason, Akureyri Stefán Friðbjarnarson, Sigluf. Valur Arnþórsson, Akureyri. Austurlandsk jördæmi: Af hálfu ríkisstj órnarinnar: Gunnþór Björnsson, Seyðis- firði, formaður. Sverrir Hermannsson, Rvík. Af hálfu A.S.Í.: Örn Scheving, Neskaupstað Davíð Vigfússon, Vopnafirði. Björn Kristjánsson, Stöðvar- firði. Varamaður: Hallsteinn Friðþjófsson, Seyð- isfirði. Af hálfu V.S.Í.: Sveinn Guðmundsson, Seyðis- firði. Reynir Zoega, Neskaupstað. Þorsteinn Sveinsson, Egils- stöðum. Suðurlandskjördæmi: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Óli Þ. Guðbjartsson, Selfossi, formaður. Einar Elíasson, Selfossi. Af hálfu A.S.Í.: Björgvin Sigurðsson, Stokks- eyri. Óskar Jónsson, Selfossi. Sveinn Gíslason, Vestmanna- eyjum. Varamaður: Kjartan Guðjónsson, Eyrar- bakka. Af hálfu V.S.Í.: Jón H. Bergs, Reykjavík. Guðmundur Karlsson, Vest- mannaeyjum. Björn Guðmundsson, Vest- mannaeyjum. Reykjaneskjördæmi: Af hálfu ríkisstjórnarinnar: Jón H. Guðmundsson, Kópa- vogi, formaður. Jón H. Jónsson, Keflavík. Af hálfu A.S.Í.: Hermann Guðmundsson, Hafn- arfirði. Ragnar Guðleifsson, Keflavík. Garðar Sigurgeirsson, Garða- hreppi. Varamaður: Maron Björnsson, Sandgerði. Af hálfu V.S.Í.: Ágúst Flygenring, Hafnarfirði. Margeir Jónsson, Keflavík. Pétur Pétursson, Hafnarfirði. 1 Mynd þessi var tekin að Bessastöðum á Þorláksmessu árið 1956, er Richard Nixon, þáverandi varaforseti Bandaríkjanna heimsótti tsland. Með honum í förinnl var William Rogers, sem Nixon hefur nú gert að utanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni. Á myndinni sjást frá vinstri Henrik Sv. Bjömsson, Ólafur Thors, William Rogers, Þórhallur Asgeirsson og Bjarni Benediktsson. (Ljósm.: Pétur Thomsen). Loftflutningar til Biafra stöivaiir Lagos, 21. janúar, AP. DR. AUGUST Lindt, sem hefur yfirstjórn með samræmingu á hjálparstarfsemi Alþjóða Rauða krossins í Vestur-Afríku, hefur ekki enn átt neinar viðræður við sambandsstjórnina í Nigeriu varð andi stöðvun þá, sem orðið hefur á flugi með lyf og matvæii til nauðstaddra í Biafra frá eynni Farnando Po. Skýrði talsmaður sambandsstjórnarinnar frá þessu í dag. Dr. Lindt, sem hefur áður ver- ið sendi’herra Svisslands í Moskvu og yfirmaður hjálparstarfsemi Sameinuðu þjóðanna við flótta- menn, hefur verið í Lagos í fjóra daga. Hann hefur skorað á sam- bandsBtjórnina að fella niður hindranir á næturflugi til Biafra. Enn hafa hins vegar engar form- legar viðræður farið fram, vegna þess að sambandsstjórninni hef- ur ekki verið afhen.t nein opin- ber skrifleg tilmæli frá Alþjóða Rauða krossinum, að því er tals- maður sambandsstjórnarinnar skýrði frá, og vegn.a þesis að Nigeriumenn hefðu ekki fengið Úr sýningu Grímnis á Allra meina bót. Hólmarar í leikferö um Borgarfjörð — LEIKFÉLAGIÐ „GRÍMNIR“ í Stykkishólmi hefur að undan- förnu sýnt gaman-söngieikinn „Allra meina bót“ eftir þá Pat- rek og Pál, með tónlist Jóns Múla Árnasonar, fimm sinnum í Stykk ishólmj ,og haft aðrar fimm sýn- ingar í nærsveitum á Snæfells- nesi og í Dölum. Hefur sýning- unni verið prýðilega tekið, og aðsókn verið góð. Nú um helgina heldur leikfé- lagið sýningar í Borgarfirði, þær fyrstu í Borgarnesi á laugardag klukkan 3 og 8,30 síðdegis, og síðan að Logalandi á sunnudag kl. 4. Fimm manna hljómsveit leik- ur undir sýningunni, og stjórnar henni séra Hjalti Guðmundsson sóknarprestur í Stykkishólmi, en hann leikur einnig á píanóið. — Leiks'tjóri er Sævar Helgason frá Keflavík. Aðalhlutverk eru þannig skip- uð að Njáll Þorgeirsson leikur dr. Svendsen, Jón Sv. Pétursson Andrés oft-skorna, Friðrik R. Guðmundsson leikur Pétur, Jós- afína Pétursdóttir Höllu, og Gunnleifur Kjartansson leikur Stórólf Stórólfsson leynlögreglu- mann. neina skýrslu frá aðalræðis- manni sínum á Fernando Po, eyju, sem er um 160 km úti fyrir strönd Austur-Nigeríu. Alþjóða Rauði krossinn hætti næturflugi til Biafra fyrir einni viku, er . ríkisstjórn Mið-Afríku Guineu, sem Farnondo Po tilheyr ir, hindraði Rauða krossinn í að flytja eldesneyti til Biafra, en en það nauðsynlegt til að dreifa þeim birigðum, sem þangað ber- ast. Sagði stjórn Mið-Afríku Guineu, að herinn í Biafra not- færði sér þetta eldsneyti. Talsmaður sambandsstjórnar- innar í Nigeriu sagði, að sam- bandsstjórnin gæti engin áhrif haft á Mið-Afríku Guineu og gaf til kynna, -að bannið við elds- neytisflutningunum ætti að nokkru rót sína að rekja til nýju ríkisstjórnarinnar þar, er tók við stjórn landsins í október sl. af nýlendustjórn Spánverja, ennýja stjórnin væri þeirrar skoðunar, að hún hefði engan hag af sam- komulagi því, sem gert hefði ver- ið við Rauða krossinn, áður en landið varð sjálfstætt. Ófær siglingur- leið að Horni FLOGIÐ var í gær í ísathugun- arflug á siglingarleið fyrir Vest- firði að Horni. Var veður mjög óhagstætt. Norður og norðvéstur af Kópa nesi, 2—8 sjómílur eru þrír hættu legir ísjakar á reki. í mynni ísafjarðar, um 10 sjm. NV af Deild, er stórt svæði þakið ísjökum, og liggur þaðan misjafnlega þétt íshrafl fyrir Straumnes, þéttur ísrani, land- fastur, teygir sig um 3 sjm. í NV frá Straumnesi. Allmikill ís er landfastur við Kögur og ganga ísflákar þaðan út frá landi og í áttina að Straumnesi. Dreifðir ísjakar eru þaðan og allt aust- ur fyrir Horn. Siglingarleiðin, Straumnes að Horni, virðist alófær í myrkri, enda er talsverður sjór og mikil hreyfing á ísnum frá Straum- nesi fyrir Kögur. Einna greið- færast virðist vera að sigla, um 2—5 sjm. undan landi, frá Straum nesi að Kögri, en síðan nær Horn bjargi. Veður var mjög óhagstætt til ískönnunar á svæðinu. (Frá Landhelgisgæzlunni). Kjósarsýsla AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kjósar- sýslu verður haldinn í Hlégarði, fimmtudaginn 30. jan. kL 21.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.