Morgunblaðið - 22.01.1969, Page 3

Morgunblaðið - 22.01.1969, Page 3
MORGUNBILÁÐIÐ, MIÐVfKUDÁGÚR 22. 'JÁNUAR'iVöÁ 3 Dönsku skáldin á norrænu bókasýningunni í gær: (frá v.) Inger Christensen, Jörgen Gustava Brandt, Klaus Rifbjerg og Benny Andersen. DÖNSKU skáldin Klaus Rif- bjerg, Inger Christensen, Jörgen Gustava Brandt og Benny Andersen koma fram á tveimur dönskum skemmti- kvöldum, sem Norræna húsið efnir til. Er hiS fyrra í kvöld og hið siðara á morgun og hefjast þau bæði kvöldin kl. Þessi kumru, ungu skáld munu lesa upp úr eigin verk- um og fleira verður til skemmtunar. Aðgangur er öll um heimilL — Plastfilmutæki Framhald af hls. 24. af ritstjórum hins kunna banda- ríska tæknirits „Plastic Tecnolo- gy“, en hann sagði við Jón á fjölsóttri kynningu á tækinu í Bandaríkjunum fyrir skömmu eftirfarandi or'ð m.a.: ,,Þú hefur liklega getað þetta af því að þú vissir ekki að þetta var ekki hægt.“ Mörg heknsþekkt fyriirtæki hafa á undanförnum árum gert tilraunir á þessu sviði tækja, en ekki náð þeim árangri, sem náðst hefur með tæki Jóns. Á fjölsóttri kynningu á plast- filmutæki Jóns í Bandaríkjunum fyrir skömmu komu 112 sérfræð- ingar frá 55 helztu fyrirtækjum á þessu sviði í Bandaríkjunum og létu sérfræðingar svo um mælt að þetta tæki Jóns væri ein mesta tæknibylting á þessu sviði sl. 10 ár. Jón hefur sótt um einkaleyfi á tæki sínu í 18 löndum og „Iceator cooling sytem“, tækið sem hefur valdið heimsbyltingu á sviði plastfilmuframleiðslu og er fundið upp og smíðað af ís- lendingnum Jóni Þórðarsyni framleiðslustjóra á Reykjalundi. hann hefur þegar fengið leyfið í: Bandaríkjunum, Frakklandi, Belgíu og Ítalíu. Er mjög mikil- vægt að einkaleyfið er veitt í Bandaríkjunum, en þar mun hið nýja fyrirtæki Norwic Corpora- tion framleiða tækið fyrir alla Ameríku og Japan. Norwic Corporation er staðsett í Cali- forníu og eigendur þess eru Ey- steinn Þórðarson bróðir Jóns og norska fyrirtækið Alfsen og Gunderson. Forstjóri fyrirtækis- ins er Eysteinn Þórðarson. Nonska fyrirtækið Thorsen patent bureau í Osló hefur séð um það fyrir Jón að sækja um öll einkaleyfin, eh forstjóri þess fyrirtækis er Niklai Alfsen, einn ■af eigendum Alfsen og Gunder- son. Fyrirtækið Alfsen og Gund- ersen hefur um 130 verkfræðinga í sinni þjónustu. Það hefur kostað mikið fé að tsækja um að fá einkaleyfi á fram leiðslu þessa merkilega plast- filmutækis Jóns, en í lok þessa mánaðar hefst framleiðsla á þessu tæki í 3 stærðum í Banda- ríkjunum en er þegar hafin í Nor egi fyrir Evrópumarkað. Þessar 3 tækjastærðir munu kosta í Bandaríkjunum frá 6—-11 þús. dollara. Tæki Jóns er hægt að nota við framleiðslu á filmu frá 20 cm. — 2 metra. Stærðarmis- munur á þessari framleiðslu eins og hún er í dag er 8 cm — 10 metrar. Plastfilmutæki Jóns Þórðarsonar hefur alla mögu- leika til þess að breyta stærðum að hægt sé að framleiða upp í 10 metra breiða plastfilmu með mis munandi þykkt. Bandaríska fyrirtækið Davis- Standárd, sem sér um dreifingu í a.m.k. eitt ár á tæki Jóms í Ameríku og Japan lagði inn pönt un hjá Norwic Corporation fyrir 260 þús. dollara. Jón sagðist aðspurður telja, að það hefði verið tæknilega mögu- legt að setja upp verksmiðju hérlendis til þess að framleiða plastfimutæki hans, en til þess hefði þurft 10-15 milljónir, en málið hefði nú runnið svona. Plastfilmutæki Jónis hefur ver- ið auglýst fnjög upp að undan- förnu í þekktustu tækniblöðum Bandaríkjanna og ýmis tæknirit hafa skrifað greinar um tæki Jóns, þar sem greint er frá þeirri byltingu, sem það veldur í þess- ari framleiðslu. Heildarverðmæti á framleiðslu plastfilma í Bandaríkjunum sl. ár nam um 1000 milljónum punda. Á meðan Norwic Corpo- ation hefur verið að koma starf- semi isinni í gang hefur fyrirtæk- ið flutt inn plastfilmutæki se,m hafa verið framleidd í Noragi. Sveintojörn Jónsson gat þess á blaðamannafundinum, að líklega væri það engin tilviljun að hug- vit Jóns væri á sviði uppfynd- inga, því að eiginlega væru snið- ugheít inn á milli ættgeng í hans ætt. Til gamans gat hann þess, að langafi Jóns, isem einnig hét Jón Þórðarson og var sjómaður í Hrísey, hafi sem stráklingur fengið að beita hálft bjóð hjá kunninigjum sínum, sem þeir síð- an lögðu fyrir hann og drógu. Um þennan hring fer kælingin utan á plastbelginn. Eifct sinn var öll beita uppurin, þegar Jón kom í beituskúrinn, en hann hljóp þá út á tún og tíndi þar fíflablóm, sem 'hann síð an beitti á hvern krók. 'Sá eini sem hafði fisk á hverjum krók var Jón Þórðanson, langafi Jóns uppfyndingamanns. ICEATOR COOLING SYSTEM er íslenzk uppfinning, fundin upp af Jóni Þórðarsyni fram- leiðlustjóra að Reykjalundi. Þar hefur tækið verið í notkun í þrjú ár. Hann hefur sótt um einkaleyfi á tækinu í 18 löndum, og hetfur nú þegar fengið leyfi í nokkrum þeirra. Árið 1967 voru undirritaðir samningar milli hans og verk- fræðifyrirtækisins Alfsen og Gunderson A/S í Osló um einka leyfi til framleiðslu og sölu á tækinu í Evrópu. Á sl. ári undirritaði Jón samn- ing við bandaríska fyrirtækið NORWIC CORPORTION, um sömu réttindi í Ameríku og Jap- an. NORWICH CORPORATION, Sunnyvale, Californíu var stofn- að á sl. ári af bróður Jóns, Ey- steini Þórðarsyni og norska fyr- irtækinu Alfsen og Gunderson A/S. Eysteinn er forstjóri fyrir- tækisins. Aðalframleiðsla þess verður ICETOR COOLING SYST EM, en verksmiðjan tekur til starfa í lok þessa mánaðar. Verksmiðjuhús Norwic Corporation, sem mun innan skamms hefja framleiðslu eingöngu á tæki Jóns Þórðarsonar. ICEATOR COOLING SYSTEM er nú að koma á markað í Evrópu og Ameríku. Eins og fram hefur komið í fréttum, fór fyrsta kynn ing á ICEATOR fram á plastsýn ingunni í Osló í september í haust. Þar vakti tækið mjög mikla athygli, og var af flestum talið það eftirtektarverðasta á sýningunni. Tæknitímarit sem skrifuðu um það að lokinni sýn- ingunni, töldu að það myndi valda byltingu í filmuframleiðslu. í nóvember sl. var svo ICEA- TOR COOLING SYSTEM sýnt í fyrsta sinn vestan hafs. Það var á mikilli plastsýningu í Chicago, þar sem það vakti álíka athygli og í Osló. NORWIC CORPORATION hef ur samið við eitt þekktasta plast- vélafyrirtæki Bandaríkjanna DAVIS-STANDARD, CONN. um dreifingu og sölu á ICEATOR COOLING SYSTEM í Bandaríkj- unum og Canada. í a.m.k. eitt ár. í desemberbyrjun 9. des sl. héldu NORWIC CORPORATION og DAVIS-STANDARD, kynn- ingu á ICEATOR COOLING SYSTEM, þar sem tækið var sýnt í fullum gangi. Þessi kynn ing fór fram í Connecticut í verk smiðju DAVIS-STANDARD. Þátttaka varð mjög mikil. Alls komu 112 manns frá 55 fyrir- tækjum úr 19 ríkjum Bandaríkj anna og þar að auki frá Canada. Öll stærstu fyrirtæki Bandaríkj- anna á þessu sviði sendu fulh trúa sina. T.d. sendi DU PONT um sjö verkfræðinga sína. UNI- ON CARBID sendi svipaða tölu Einnig sendu stórfyrirtæki, eins og DOW CHEMICAL, GOODY- EAR, INTERNATIONAL HARV- ESTER, MOBIL OIL, SINCLAIR OIL, GULF OIL, svo einhver séu nefnd, sérfræðinga sína til að kynna sér tækið. Forráðamenn DAVIS-STAND ARD höfðu orð á því að líklega væri þetta einsdæmi, að tæki vekti svo mikla athygli. Undir tektir allra þessara manna voru mjög góðar. Einnig var á kynningu þessari kynnt nýtt tæki, sem- Jón Þórð- arson hefur konstruerað (hann- að). Þetta er eins konar viðbót- artæki við ICEATOR, svokallað- ur kælihringur, sem kælir plast filmuna að utanverðu, og er nokk uð frábrugðinn því sem áður er þekkt, og hefur Jón sótt um einka leyfi á honum líka. Þessu kæli- tæki er ætluð að vinna með ICEA TOR-num, og gaf það mjög góða raun á kynningunni hjá DAVIS- STANDÁRD, og vakti mikla at- hygli. Eins og fyrr er sagt, hafa tæki þessi í sameiningu hlotið nafnið ICEATOR COOLING SYSTEM." STAKSTEIHAR Magnús og Eðvarð deila Augljóst er af viðbrögðum kommúnistablaðsins við sam- komulaginu um aðgerðir í at- vinnumálum, að djúpstæður á- greiningur er kominn upp milli tveggja þingmanna kommúnista um þetta mál, þeirra Eðvarðs Sigurðssonar formanns Dagsbrún ar og Magnúsar Kjartanssonar, ritstjóra kommúnistablaðsins. I forustugrein blaðsins sl. sunnu- dag segir svo um samkomulagið: „Enn eru settir á svið „samning- ar“ um jafn sjálfsagðan hlut og þann, að ríkisstjómin drattist til að útvega nokkurt fé til tafar- lausrar atvinnuaukningar . . . . Lítils virði hafa „loforð" þessar- ar ríkisstjórnar verið og „sam- komulag“ hennar við alþýðusam- tökin . . . Ætla mætti að alþýðu- samtökin fái brátt annað þarfara að starfa en þátttöku í leiksýn- ingu af því tagi, sem frumsýnd var í Alþingishúsinu á föstudag M * .Arangur af bardttu verkalýðs- b reyf ingar innar'- í gær birti kommúnistablaðið hins vegar viðtal við Eðvarð Sig- urðsson, alþingismann kommún- ista og einn helzta verkalýðsleið- toga þeirra og kveður þar við nokkuð annan tón. Eðvarð segir m.a.: „Hér er um að ræða árang- ur af baráttu, sem verkalýðs- hreyfingin hefur háð; þetta sam- komulag hefði ekki verið gert ef verkalýðshreyfingin hefði ekki haft frumkvæðið og beitt sér fyrir því. f stórum dráttum er samkomulagið í samræmi við þá stefnu, sem mörkuð var á síðasta þingi Alþýðusambands- ins“. Þá er Eðvarð spurður að því, hvort hann geri sér góðar vonir um skjótan árangur af starfi atvinnumálanefndanna og svarar hann á þessa leið: „Auð- vitað gerum við það; annars hefð um við ekki gert þetta samkomu- lag.“ ..Nafntogaðir menn d fundi'- Magnús Kjartansson hefur hins vegar ekki viljað láta þessi um- mæli Eðvarðs standa einn dag án andsvara. Hann lýsir með þess- um orðum starfi Eðvarðs Sigurðs sonar og annarra að undanförnu til þess að útrýma atvinnuleys- inu: „Á sama tíma og atvinnu- leysingjum fjölgar um mörg hundruð á viku hverri, þar til heildarfjöldinn var talinn í þús- undum, birtu fjölmiðlunartækin daglega fréttir um að nafntogað- ir menn sætu á stöðugum fund- um“. Þessar tilvitnanir í Eðvarð Sigurðsson og kommúnistablaðið sýna glögglega að mikill ágrein- ingur er í röðum kommúnista um þessi mál. Hin mismunandi af- staða Eðvarðs og Magnúsar á sér þó einfaldar orsakir. Eðvarð er kjörinn foringi þúsunda verka- manna í Reykjavík. Á honum hvílir sú ábyrgð að standa að aðgerðum, sem leitt geta til nægr ar atvinnu. Það hefur hann gert með því að eiga aðild að sam- komulaginu um atvinnumál. Magnús Kjartansson þarf hins vegar ekki að hafa áhyggjur aX slíkum hlutum. Honum hefur ekki verið falið neitt forustuhlut verk í þágu reykvískra verka- manna. Hann situr í sínum stól og dundar við það að ýta undir misklíð og deilur í þjóðfélaginu. Hann er eins og púkimi á kirkju- bitanum — fitnar á ósætti og á- greiningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.