Morgunblaðið - 22.01.1969, Síða 11

Morgunblaðið - 22.01.1969, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1»60. 11 Jón Jónsson, jarðfrœðingur: Saga eldfjalls — Heklueldar eftir Sigurð Þórarinsson ÞJÓðAR Heklueldar eftir Sig.Þ Núna skömmu fyrir jólin kom út á vegum Sögufélagsins merki legt rit eftir Sigurð Þórarins- 8on. Þetta rit hefur algera sér- stöðu meðal bóka haustsins, og má líta á það sem jólabók fé- lagsins. Það er athyglisvert og að minni hyggju harla einstætt að slíkt fræðirit, sem hér er um að ræða, skuli koma út meðal jólabókanna og tel ég að við get um verið dálítið stoltir af, því það skal þegar tekið fram, að Heklueldar Sigurðar Þórarinsson ar sóma sér vel meðal jólabóka ársins. Bókin er, eins og höfundur get ur í stuttum eftirmála, að efni til í megin dráttum sú sama og út kom á vegum Vísindafélags- ins í fyrra. Sú bók var rituð á ensku og ætluð fyrst og fremst erlendum fræðimönnum. Án efa er ritið fært í ís- lenzkan búning til þess að gera tþað aðgengilegt íslenzkri al- þýðu, sem löngum hefur verið fróðleiksfús og lagt af mörkum drjúgan skerf til íslenzkra nátt úrufræða. Á höfundur og útgef andi miklar þakkir skilið fyrir, því enda þótt margir hér á landi lesi nú orðið enska tungu, má ætla að flestir utan sérfræðinga hiki nokkuð við að lesa hina ensku útgáfu. Eftir inngangsorð um rann- sóknir öskulaga almennt og stutta lýsingu á fjallinu, tekur höfundur til við að rekja gos- sögu Heklu frá fyrstu tíð ís- landsbyggðar. Ekki lætur hann þó við það sitja að kanna út- hreiðslu þeirra öskulaga, sem frá Heklu eru komin, heldur dregur hann Inn í söguna aðrar eldstöðvar og öskulög frá þeim, og kemst með því móti að mikil- vægum niðurstöðum. Gossaga Heklu hverfur okk- ur aftur í móðu forsögunnar, en með rannsókn öskulaga hefur tekizt að rekja hana nokkrar aldir aftur í tímann. Að þessu er stuttlega vikið á bls. 10 í rit- inu. Hefði það gjaman matt vera meira, en vonandi kemur það á sínum tíma. Út frá öskulagarannsóknum telur Sigurður að Katla muni hafa gosið um árið 1000, þó ekki sé þess getið í heimildum. Senni- lega eru enn ekki öll kurl kom- in til grafar varðandi það mál, en víst er, að kafli sá um Kötlu- gos nálægt árinu 1000 sýnir vel hvert svið höfundurinn spannar yfir, allt frá náttúrufræði yfir heimildagagnrýni til skáldskap ar. Hefur margur mátt una við minna. Erlendar og innlendar heim- ildir um fyrstu gos Heklu eft- ir landnám eru rafetar og metn- ar. Að sjálfsögðu eru erlendar heimildir þýddar, en frumtexti sumra er þó einnig tekinn með. f bók sem þessari hefði að skað lausu mátt sleppa því, sérstak- lega hinum langa latínutexta á bls. 27—28. Skráðar heimildir ber höfund ur svo saman við niðurstöður löskulagarannsóknanna. Út frá íþví hefur tekizt að leiða að því sterk rök, að söguleg gos Heklu séu ekki eins mörg og hingað til hefur verið talið. Samkvæmt eld fjallasögu Thoroddsens ættu gosin nú að vera orðin 19, en Sigurður fækkar þeim um fimm og verður ekki annað séð, en að það sé á mjög traustum gnunni byggt. Af þessu má sjá, hver nauðsyn er á heimildagagn rýni og á samanburði skráðna heimilda við náttúrufræðilegar rannsóknir. Er rit þetta hinn glæsilegasti vottur um frjóan ár angur af þessum tvíþættu rann- sóknum. Af eðlilegum ástæðum eru heimildir um hin fyrstu Heklu- gos eftir landnám ekki fjölskrúð Sig. Þórarinsson. ugar, enda þótt sum gosanna hafi orðið landi og lýð örlaga- rík. Skal í því sambandi sér- staklega getið gossins 1104, en ljóst er nú orðið, að það gos lagði Þjórsárdal í eyði, svo að ekki hefur þar byggð risið síð- an. Með hjálp öskulagarann- sókna og fornleifarannsókna í Þjórsárdal hefur tekizt að færa sönnur á þetta. f ritinu er svo rakin saga Heklugosanna þannig, að fyrst er getið skráðra heimilda og gildi þeirra metið. Síðan er tek- inn vitnisburður öskulaganna og útbreiðsla þeirra og þykkt sýnd á korti fyrir hvert gos. Loks er rúmmál gosmalar reiknuð. Að síðustu er mjög stutt ágrip, þar sem aðalniðurstöður varðandi gosið eru dregnar saman. Ekki er mér kunnugt um að svo hafi verið áður gert í hérlendu fræði riti, er erlendis er þessi háttur yfirleitt hafður þegar um vís- indalegt efni er að ræða. Er óneitanlega handhægt að geta gripið í þetta og fengið aðal- niðurstöður án mikillar fyrir- hafnar. Frásögn Sigurðar er yfirleiitt ljós og liðleg, þó nokkuð beri á óþarfa málalengingum, og ekki kann ég við orðatiltæki eins og að Hekla sé „jarðfræði- saga þjóðar lega STAÐSETT, o. s. frv. (bls. 9) því ekki segir þetta staðsett meira en hið gamla góða er. Mikill ofvöxtur hefur á síð- ari árum hlaupið í þetta orð og væri þörf á að setja því nokkur sveltumál. Mér finnst að Sigurður nái þó ekki verulega flugi í frásögn- inni fyrr en hann kemur að lýs- ingu síðasta Heklugossins, þar sem hann var sjálfur áhorfandi, en þar eru sumar lýsingarnar líka með ágætum. Hefði einnig sá kafli mátt vera lengri, því ekki kæmi mér á óvart þó hann ætti eftir að grípa hugi ekki síst ungra lesenda og beina á- huga þeirra að þeirri. heillandi fræðigrein, sem við nefnum jarð fræði, og að dásemdum og mikil leik íslenzkrar náttúru. Ekki éfast ég um, að þessi bók eigi eftir að verða „klass- isk“ meðal íslenzkra jarðfræði- rita á sama hátt og sum af fyrri verkum sama höfundar þegar eru orðin, en þar á ég við dokt- orsritgerð hans og rigerðasafn- ið um Vatnajökul, en í því á Framhald á bls. 15 Svend Hansen og Hafsteinn Guðmundsson. Á12 málum í 250 þús. eintökum — Forstjóri Árbókar í heimsókn ÁRBÆKUR í litum um helztu fréttaviðburði hvers árs hafa um þriggja ára skeið komið út hér á landi. Eins og lesendur bláðs- ins munu minnast, er hér um að ræða alþjóðlega útgáfu, en aufe þess hefur íslenzkur kafli fyljg't þeim árbókum sem hér hafa verið gefnar út. Árbækur þessar eru gefnar út af fyrirtækinu Diana Bildreportage, sem hefur aðsetur í Svíþjóð, Danmörku og Sviss. Alþjóðlega útgáfan var stofnsett árið 1946, en frá 1962 hefur bókin verið gefin út í lit- um. Forstjóri Diana Bildreportage, Svend Hansen, hefur dvalizt hér á landi undanfarna daga. Hittu fréttamenn hann að máli á Hótel Sögu í gær ásamt þeim Hafsteini Guðmundssyni, Gísla ÓlafS- syni og Birni Jóihannssyni, sem standa að íslenzku útgáfu Ár- bókarinnar sem kunnugt er. Sagði Hansen, að upplag útgáf- unnar væri nú um 250 þúsund og síðasta ár hefði bókin komfð út á 11 málum, en á næsta ári bætist spænska við. Til stæði að fjalla nokkuð itarlega um ein hvern heimsviðburð árlega og yrði i næstu árbók fjallað um Ólympíuleikana á 32 síðum, en einnig stæði til að Dr. Barnard ritaði kafla um hjartagræðslu. Bókin er prentuð í Sviss og er alþjó'ðleg útgáfa væntanleg á markað 10. marz n.k. Útgáfan með íslenzka sérkaflanum er hins vegar ekki væntanleg fyrr en í maí, en það er raunar all- miklu fyrr en verið hefur undan- farin ár. Hansen gat þess, að síðasta ár hefði Frakkland byrjað með franskan kafla og voru getgátur um, að þeir hefðu tekið hug- myndina frá íslendingum, sem til þess tíma höfðu verið einir með sérkafla. Árbókin hefur einkarétt á myndum, sem þar birtast og get- ur stundum þurft að gjalda þær aUdýru ver'ði. Gat Hansen bess. að dýrasta mynd sem keypt hefði verið, væri frá brúðkaupi Jacque line og Onassis. Sú mynd vaæ seld á jafnvirði 24.000 íslenzkra króna. Vinnslukostnaöurinn í landi er ekkert hégómamál sjómönnum — segir Guðm. H. Oddsson form. Oldunar AÐALFUNDUR Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar var haldinn 17. janúar. Guð- mundur H. Oddsson var endur- kjörinn formaður, ritari var kjörinn Hróbjartur Lúthersson, en gjaldkeri Guðjón Pétursson og meðstjómendur þeir Har- aldur Ágústsson, Guðmundur Ibsen og Ingólfur Stefánsson. Eftirfarandi tillögur og álykt- anir voru samþykktar á fund- inum: Tekih skuli upp kennsla í hagnýtri fiskifræ’ði við Stýri- mannaskólann. Fundurinn fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar að leita útboða í smíði skuttogara og er það von fundarmanna, að þeirri ákvörðun verði fylgt eft- ir..... Unnið verði að því við borg- arstjómina að leigusamningur Eimskips fyrir skerhmur sínar á hafnarbakkanum í Vesturhöfn- lnni, sé ekki endurnýjaðúr, þar sem fiskibátarr.ir hafi brýna þörf fyrir aukið athafnasvæði þax. Fiskvinnslustöðvum sé fækk- að, rekstri þeirra hagrætt, nýt- ing þeirra bætt og starfsemi þeirra samræmd, þar sem sýnt sé, að samkeppni þeirra leiði ekki til hærra fiskverðs heldur þvert á móti. Rekstur fisk- vinnslustöðvanna er lagður til grundvallar fiskverðinu og óhagkvæmur rekstur þeirra lækkar því fiskverðið til sjó- manna. Stjórninni var falið að semja ýtarlega greinargerð fyr- ir þessari tillögu. Sjómannasíðan sneri sér til formanns Öldunnar, Guðmundar H. Oddssonar og bað hann að fara nokkrum orðum um þessa tillögu til skýringar. Hann sagði: í lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins er gert ráð fyr- ir þvi, að fiskverð sé ákveðið með hliðsjón af markaðsverði erlendis pg vinnslukostnaði inn- anlands. Vinnslukostnaðurinn í landi er því ekkert hégómamál sjómönnum, heldur hefur stór- kostleg áhrif á afkomu þeirra. Sjómenn hafa eJrki neitt að ráði Guðmundur H. Oddsson láti’ð hagræðingu, kostnað eða nýtingu í vinnslunni og dreif- ingunni til sín taka, en eins og þessi tillaga ber vott um, er hér að verða stefnubreyting. í öllu vinnslukerfinu blasa við fjöl- margir vankantar, sem sjómenn hljóta að krefjast að lagaðir verði ef þeir eiga að borga reikninginn. Málum er þannig háttað, eins og alþjóð veit, að sjómenn fá orðið í sinn hlut a'ðeins fisk- sporðinn, en það eru a'ðrir sem hirða bolinn. Það kerfi, sem við notum, hvetur ekki eða að minnsta kosti ekki nægjanlega, til aukinnar hagræðingar og nýtingar í iandi við löndun, vinnslu og dreifingu. Sjómenn sætta sig ekki lengur við að heimtað sé af þeim að borga reikninga, sem þeir telja að séu of háir vegna margvísslegs sleifarlags í rekstri frystihúsa og vinnslustöðva og er þessi ályktun aðeins undanfari þess sem koma skal, sem sé þess, a'ð sjómannasamtökin í landinu komi sér á fót stofnun, þar sem reiknað er út á vegum sjó- manna sjálfra, hvað geti talizt normal rekstur og hvað ekki. Sjómenn una því ekki lengur að skattframtöl frysti- og vinnslustöðva séu aðalviðrnið- un um verðlagningu fisksins til þeirra. Með þessu er ekki verið að vefengja skattframtölin, heldur hugsa sjómenn sér að neita að greiða rekstrartap, sem veröur vegna sleifarlags eða stjórn- leysis í rekstrinum. Til þess að geta sett fingurinn á gallann, verða sjómannasamtökin að hafa sérfróða menn í þjónustu sinni og „tékka“ á reikninginn, sem þau fá árlega. Ásgeir Jakobsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.