Morgunblaðið - 22.01.1969, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.01.1969, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 196«. Jónfríður Halldórs- dóttir — Minning f dag verður jarðsett frá Hafn arfjarðarkirkju Jónfríður Hall- dóradóttir, sem lézt að heimili sínu 16. þ. m., 86 ára að aldri. Með Jónfríði er gengin merk og göfug kona, sem mun verða minnisstæð öllum er hana þekktu, ekki sízt okkur sem vor- um svo heppin að eignast henn- ar traustu vináttu sem aldrei brást og var okkur svo mikils virði. Jónfríður var fædd að Grund um í Kollsvík við Patreksfjörð 22. okt. 1882. Var hún yngst 9 bama hjónanna Halldóru Hall- dórsdóttur og Halldórs Ólafsson ar er þar bjuggu þá. Hún ólst upp í foreldrahúsum í stórum hópi mannvænlegra systkina, sem nú eru öll látin. Ung að ár- um kynntist hún ungum og efnr- legum Hafnfirðingi, Sigurjóni t Konan mín Dagbjört Bjarnadóttir Efstasundi 32 andaðist á Vífilsstöðum þ. 19. þ. m. Kristján Jóhannesson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær dóttir mín og móð- ir okkar Sigríður Þórisdóttir (Agga) andaðist 20. janúar á Land- spítalanum. Þórunn Rögnvaldsdóttir Þórir og Þórunn Hjallaveg 52. t Konan mín Elín Guðmundsdóttir frá Kalmannstungu í Höfnum andaðist í Landsspítalanum 20. þessa mánaðar. Ketill Ólafsson. t Maðurinn minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, Helgi Jónsson fulltrúi, Réttarholtsvegi 43, lézt að heimili sínu mánudag- inn 20. jan. 1969. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lára Valdadóttir, böm, tengdaböm og barnaböm. t Útför konunnar minnar Steinvarar Jóhannesdóttur frá Svínavatni fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. janúar kl. 10,30 f.h. Pétur Ágústsson. Gunnarssyni frá Gunnarsbæ i Hafnarfirði. Þau giftust 13. ág. 1905 og bjuggu fyrst á Patreks- firði, en fluttust hingað til Hafn arfjarðar árið 1907 og bjuggu lengst í húsinu að Hverfisgötu 45. Jónfríður og Sigurjón eignuð ust 9 börn. Eina dóttur misstu þau nýfædda, og önnur dóttur þeirra, Stefanía, sem var búsett á Siglufirði, lézt í blóma lífs- ins árið 1940. Börn þeirra, sem lifa móður sína, eru öll búsett í Hafnarfirði og Reykjavík, nema ein dóttir sem býr á ísafirði. Barnabörn þéirra eru 27 og barnabarnabörn 29. Sigurjón lézt 16. maí 1967, en Jónfríður bjó áfram í húsi þeirra í sambýli við Harald, yngsta son sinn og fjölskyldu hans. Var sú sambúð mjög til fyrirmyndar og naut Jónfríður hlýju og ást- úðar Haraldar og hans ágætu konu, Klöru Guðmundsdóttur, og samvistanna við börn þeirra, sem ávallt sýndu ömmu sinni skilning og nærgætni. Fyrir það vilja börn Jónfríðar þakka við leiðarlok, og telja þau sig aldrei geta launað þá ómetanlegu um- hyggju Ástúðlegra samband móður og barna hef ég aldrei þekkt, og finnst mér viðhorfi tengdabarna Jónfríðar bezt lýst með orðum einnar tengdadóttur hennar, sem sagði um hana fyrir fáeinum ár- um. „Ef ég ætti eina ósk börn- um mínum til handa, myndi ég óska þess að ég mætti verða þeim eins og hún er okkur öll- um.“ Við sem höfum lifað mesta alls nægtatímabil þjóðarinnar á und anförnum áratugum, getum ekki gert okkur ljóst hversu mikið þrekvirki það var, að koma upp stórum barnahópi á fyrstu tug- um þessarar aldar, þegar skort- urinn stóð nálega við hvers manns dyr. Þetta tókst Jónfríði og Sigurjóni með miklum mynd arbrag, og lagði Jónfríður manni sínum lið með ráðum og dáð, og stundaði oft hverja vinnu sem t Maðurinn minn og faðir okk- ar Gísli Gíslason frá Lambhaga, til heimilis að Álfheimum 19, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. þ.m. kl. 13,30. Hólmfríður Björgvinsdóttir og börn. t Útför Ólafs J. Sigurðssonar, Tjarnarbraut, 3, Hafnarfirði, sem andaðist að Sólvangi laugardaginn 18. þ.m. fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaiginn 23. janúar kl. 2 eftir hádegi. Fyrir hönd systkina, Þórunn Sigurðardóttir. t Hjartans þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og systur Áslaugar Guðmundsdóttur Börn, tengdaböm, bamabörn og systur. hægt var að fá után heimilis, á meðan börnin voru í ómegð. Þeg ar heim var kbmið eftir langan og erfiðan vinnudag, tóku heim- ilisstörfin við, og voru þá ekki taldar vökustundirnar og næt ursvefninn oft ekki langur. En þetta fékk hún allt ríku- lega launað á efri árum, með umhyggju elskulegra afkomenda, sem umvöfðu hana ástúð og kær leika og reyndu að létta henni byrðar ellinnar eins og unnt var. Jónfríður var grein af sterk- um og kjarnmiklum stofni óvenju vel greind, ljóðelsk og bók- hneigð og auðgaði anda sinn með lestri góðra bóka, þegar tóm stundir gáfust. Hún var svo lán söm að halda óskertum sálar- kröftum alla ævi, þó að líkams- þrekið væri farið að þverra á síðustu árum. Hún naut þeirr- ar ánægju að eiga sitt eigið heim ili til hinstu stundar og fá að sofna síðasta blundinn í þessu lífi í húsinu, sem hún hafði lif- að og starfað í um áratugi og var henni svo kært. Á þessari kveðjustund er mér þakklæti efst í huga. Ég þakka allar samverustundirnar sem ég átti með Jónfríði, móður- systur minni, og hennar hlýju vináttu, sem ég varð aðnjótandi frá bernsku. Til hennar var ávallt gott að koma, og hjá henni var gott að leita ráða ef vandamál bar að höndum. Nú er hún horfin af þessu tilverusviði, en við sem eftir lifum, geymum minningarnar um líf hennar og starf og á þær ber aldrei skugga Ég sendi ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur og bið sál hennar blessunar guðs á þeirri vegferð, sem hún nú er að hefja í eilífum heimkynnum kær leikans. Hulda S. Helgadóttir. t Hjartans þökk til allra, er sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og jarðarför Halldórs Einarssonar Laugateigi 54. Jóna Jónsdóttir og synir. t Önfirðingar og aðrir velunn arar nær og fjær. Þökkum innilega auðsýnda isamúð og alla vinsemd við andlát og jarðarför Sigríðar Sturludóttur frá Breiðadal. Óskum ykkur allrar bless- unar á nýja árinu. Aðalsteinn Guðmundsson og börnin, FlateyrL Ólöf Bemharðsdóttir og Sturla Þórðarson, Breiðadal. Ingibjörg Úlfarsdótt- ir — Minningarorð HÚN Imba er dáin. Hljóðlát og æðrulaus gekk hún á fund herra síns þegar kallið kom. Ingibjörg Úlfarsdóttir var fædd 13. okt. 1893 áð Fljótsdal í Fljótshlíð. Foreldrar hennar voru Guðlaug Brynjólfsdóttir og Úlfar Jónsson bóndi í Fljóts- dal. Ingibjörg var elzt systra sinna og ein af 15 bömum móður sinnar. Snemma hefur hún þurft að taka til hendi, enda viljug og verklagin við að uppfræða og aðstoða yngri systkin sín. Varla hefur allt verið til staðar sem nú þykir sjálfsagt, en gert var það bezta úr öllu og hópurinn samheldur. En skugga daúðans leggur yf- ir bæinn. Unga móðirin fellur í valinn, deyr af barnsburði. Það er langt til læknis á af- skektum sveitabæ. Hópurinn ver'ður harmi lostinn. Víst hef- ur þá skylduræknin og lipurðin hjá Ingibjörgu komið sér vel. En tíminn græðir öll sár. Úlf- air faðir þeirra kvæntist aftur, ungri og glæsilegri konu, Krist- rúnu Kristjánsdóttur sem býr á Grund og enn er ótrúlega em. Með henni eignaðist hann þrjú böm. Eftir það fer hópurinn í Fljótsdal að dreifast, enda elztu börnin komín á legg og farin að vinna fyrir sér. Ég veit að eng- inn hefur verið svikin af vinn- unni hennar Ingibjargar, enda voru öll þessi systkin vinnusöm og listræn að handbragði. Þann 3. nóv. 1928 giftist Ingi- björg eftirlifandi manni sínum, Guðjóni Þorgfeirssyni, ættuðum úr Landeyjum. Má þá segja að upphæfust hveitibraúðsdagar, sem staðið hafa síðan, meðan bæði lifðu. Þau bjuggu fyrstu árin í Vestmannaeyjum og eign uðust þar tvö börn og ólu upp að einhverju leyti hið þriðja, sem Guðjón hafði eignazt áður en hann kvæntist. Síðan fluttu þau til Reykjavíkur og hafa lengst af átt indælt heimili að Sundlaugavegi 26. Nú ha-fa verið höggvin stór skör'ð í þennan fríða og kjam- góða hóp, sem ein fegursta sveit íslands fóstraði upp af sterkustu stofnum íslenzkra bændahöfð- ingja. Ættarmótin leyna sér ekki. Þrautseigja, æðruleysi, iðni og ættrækni um umfram allt hjartahlýja. Hún Ingibjörg var óspör á sporin þegar hún vissi um einhvem sjúkan og van sælan. Það þekkti ættfólk henn- ar vel. Og alltaf kom hressandi andblær með henni inn úr dyr- unum. Það eru fleiri börn en hennar eigin barnabörn sem sakna nú vinar. Mjúku, hlýju hendurnar hennar hafa strok- ið margt tárið af votum hvarmi. Hressilegi rómurinn hennar svipt burtu kvíða og áhyggjum. Já, það eru margir sem geta þakk- að fyrir saimferðina á liðnum árum. Ég votta Guðjóni, börnum hans, tengdabömum og barna- börnum innilega samú’ð mína. Friður Guðs umvef ji sálu hinn- ar látnu í landi lifenda. Oddrún Pálsdóttir. Sigurjón skipstjóri (Hinzta kveðja frá Norðlend ingum.) Fyrir 3 árum síðan var þess víða minnst, fyrat og fremst í ís- lenzkum og frakkneskum blöð- um, að þá voru liðin 30 ár síðan hafrannsóknarskipið franska Pouxqoi Pas forst með allri áhöfn að einum háseta undanteknum, sem bjargaðist með undraverð- um hætti, í aftaka suðvestan stormi á Mýrum. Meðal þeirra sem fórust var hinn heimskunni vísindamaður Charcot. Aftakaveður þetta gekk yfir allt landið — og þá einnig yf- ir hafsvæðið út af Norðurlandi Haustið 1936 stunduðu yfir 100 síldveiðiskip reknetaveiðar frá Siglufirði. Voru skip þessi frá 12 tonnum og vart yfir 50 tonn að stærð. Að kveldi hins 16. september lét síldveiðifloti þessi úr höfn. (Einn var þó sá skipstjóri, sem ekki ieizt á veðurútlitið, Dúi Guðmundsson, ættaður úr Fljót- um. Fórst hann á stríðsárunum með skipi Óskars heitins Hall- dórssonar, útgerðarmanns, „Jarl- inum“) Þessa sömu nótt skall það af- takaveður á sem grandaði Pour- qoui Pas — svo sem áður getur. í þessum náttúruhamförum fórst v.b. Þorkell máni frá Ól- afsfirði með 5 manna áhöfn — og var þar enginn til frásagnar. Meðal þeirra báta, sem köst- uðu netum þessa nótt út af Siglufirði var v.b. Einar frá Ak- ureyxi. Lennti áhöfn þessa báts, Einarsson — Minning 5 menn að tölu, í mesta lífs- háska með því að vél bátsins stöðvaðist og reyndist ókleift, að koma vélinni í gang. En það varð guðslán þessarar áhafnar, að togarinn Garðar, skipstjóri Sigurjón Einarsson, bar þar að og hóf þegar björgunartilraun með áhöfn sinni. Er skemmst frá því að segja að með snarræði og sjómennskukunnáttu tókst þeim Sigurjóni og áhöfn hans að koma taug yfir í Einar og bjarga áhöfninni, 5 mönnum, svo sem áður getur um borð í tog- arann Garðar. Þegar undir morgun leið fór storminn að lægja en hauga- sjór hélzt fram eftir degi. Á öruggri siglingu Garðars að landi, með vélbátinn Einar í eft- irdragi kom hann að vélbátnum Brúna frá Siglufirði. Var þessi bátur einnig með bilaða vél og þurfti á aðstoð að halda. Tókst togaranum Garðari einnig að koma taug yfir í Brúna, en ekki þótti ráðlegt, eins og á stóð, að freista þess, að flytja áhöfn milli skipa. Þannig var þá ástatt út af Hellunni þegar sá harmleikur gerðist, að tveir af áhöfn Brúna, vélstjóri og háseti drukknuðu. Vélskipið Dronning Alexand- rine bar þar að, á vesturleið frá Akureyri og réðst hinn látni heiðursdrengur, Emdal skipstjóri, eflaust af einskærri góðmennsku í það að veita Brúna aðstoð. Vegna sjólöðurs og ókunnugleika var honum þvl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.