Morgunblaðið - 22.01.1969, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 19©9.
23
Flugvélaræningjar
í þrælkunarvinnu
Brunaverðir að störfum í Xrésmiðaverkstæði Slippfélagsins.
Eldur í trésmíðaverk-
stæði Slippfélagsins
Montreal, Kanada, 21. jan.
(AP).
DAGBLAÐIÐ „Xhe Montreal
Star“ skýrir frá því í dag að ekki
sé öllum flugvélaraeningjum jafn
vel tekið á Kúbu. Segir blaðið að
ef ræningjamir séu ekki pólitísk.
lr flóttamenn, hljóti þeir að jafn-
aði fimm ára vist í vinnubúðum
við komua til Kúbu.
- RÁÐHERRAR
Framhald af hls 1
því við að þar í landi væri fjölda
threyfing, sem ynni að nýrri upp-
reisn. „Það má með fullri vissu
segja að andspænis þeim stormi,
sem bandaríska þjóðin er að
leysa úr læðingi, verða dagar
Nixons í Hvíta húsinu enn erf-
iðari en Johnsons," sagði Pek-
ingútvarpið.
í Moskvu er Nixon sakaður
um að hafa leitt hjá sér að minn
ast á alþjóða deilumál í ræðu
sinnj við embættistökuna. í
„Izvestia", málgagni stjórnarinn-
arinnar, er grein eftir fréttarit-
ara blaðsins í Washington, og
fagnar 'hann því að Nixon hafi
heitið því að stjórn hans skuli
ávalt vera reiðubúin að ræða
málefnin við fulltrúa annarra
(ríkja. Hins vegar segir fréttarit-
arinn að Nixon hafi ekki minnzt
á brýnustu vandamálin, eins og
árásarstyrjöld Bandaríkjanna í
Vietnam eða deilur Araba og
Gyðinga.
Frönsk blöð eru yfirleitt vin-
samleg í garð Nixons, en flest
þeirra segja þó að heimurinn bíði
eftir aðgerðum. Sum vestur-
þýzk blöð eru einnig varkár í
dómum sínum. Þar kemur einn-
ig fram það álit að Nixon ætti
ekki eingöngu að helga sig al-
þjóðamálum, heldur þyrfti hann
að lyfta Grettistaki heima fyrir.
Þannig segir til dæmis frjáls-
lynda blaðið „Frankfurter Runds
chau“: „Það væri voðalegt ef Nix
on yrði meira ágengt erlendis,
en heima fyrir. Hann verður að
græða sárin í sínu eigin landi.“
„Dagens Nyheter" er áhrifa-
mikið blað í Stokkhólmi, og seg
ir um nýja forsetann: „Bilið hef-
ur breikkað í Bandaríkjunum, en
Nixon reynir að halda því fram
að hann — maðurinn sem kos-
inn var með litlum meirihluta
atkvæða — sé kjörinn til að sam
eina þjóðina." Sænska íhalds-
blaðið „Svenska Dagbladet" er
vingjarnlegra og segir: „Margt
bendir til þess að óskir Nixons
um frið í Víetnam fái að ræt-
ost.“
Meðan blöð og stjórnmálamenn
erlendis voru að vega og meta
nýja forsetann í Bandaríkjun-
um, einbeitti Nixon sér að því
að taka við stjórnartaumunum,
og reyna að láta forsetaskiptin
ekki hafa áhrif á daglegan rekst-
ur mála í Washington. Þótt hann
hafi verið á dansleikjum og ekki
gengið til náða fyrr en klukkan
hálf þrjú í nótt, fór hann á fæt-
ur klukkan sjö að vanda, snæddi
hafragraut, og drakk appelsínu-
safa og kaffi eins og venjulega,
en var kominn til skrifstofu sinn-
ar klukkan hálf átta. Var þá eng
inn starísmanna hans mættur,
því þeir höfðu einnig verið að
skemmta sér kvöldið áður. Rætt-
ist þó fljótlega úr því, og síðdegis
í dag sat nýi forsetinn fund með
öryggisráði Bandaríkjanna.
Á morgun, miðvikudag, kem-
ur nýja ríkisstjórnin saman í
„Austurherbergi" Hvíta hússins,
og þar sverja ráðherrarnir 12 em-
bættiseiða sína. Hefur öldunga-
deild þingsins samþykkt skipan
ellefu þeirra í embætti, en á eft-
ir að taka ákvörðun um Walter
Hickel, fyrrum ríkisstjóra í Al-
aska, sem á að taka við em-
bætti innanríkisráðherra. Er
þess vænzt að skipan hans hafi
verið staðfest áður en ráðherr-
arnir sverja eiða sína á morgun.
Blaðið kveðst hafa þessar upp-
lýsingar sínar aftir háttsettum
aðilum í alþjóða flugmálum, sem
segi að yfirvöld á Kúbu hafi
nána samvinnu við svissneska
sendiráðið í Havana um mál flug
vélaræningjanna, en sendiráð
Sviss annast einnig málefni
Bandaríkjanna á eynni. Kanna
yfirvöldin, í samráði við sendi-
ráðið, skjöl flugvélaræningjanna
og leita staðfestinga á frásögnum
þeirra.
Árangurinn er sá, segir „The
Star“, að um helmingur þeirra,
sem ænt hafa bandarískum flug-
vélum, og neytt þær til að fljúga
til Kúbu, hefur verið dæmd-ur
til hámarksr-efsingar samfcvæmt
gildandi lögum þar í la-ndi. Hinir,
sem rænt ha-fa bandaríkum flug-
hla-upa úr landi af stjórnmála-
ástæðum, fá hins vegar góðar
móttökur.
Heimildir kanadíska blaðsins
hafa það eftir talsmönnum sviss-
neska sendiráðsins í Havana að
yfirvöldin þar í borg hafi komizt
að ra-un um að a. m. k. 18 flug-
vélaræningjar ha-fi verið glæpa-
eða vandræðamenn. Hafa þeir
allir verið dæmdir til þrælkunar-
vinnu á sykurekrunum með öðr-
um pólitískum föngum og glæpa
mönnum.
„The Star“ segir að yfirvöld á
Kúbu hafi ekki viljað skýra frá
þessum staðreyndum, því þar
með skýrði þau umheiminum frá
að sumir þeirra, sem flýja Banda
ríkin geri það ekki vegna
óánægju með ríkjandi stjórnar-
far.
- TÉKKÓSLÖVAKÍA
Framhald af bls X
sá mynd af honum í blaði og
fékk þá taugaáfall. Er hún nú í
sjúkrahúsi, segir blaðið.
Blómum prýddir fánar blakta
nú á opinberum byggingum í
Prag. Þá var haldin einnar mín-
útu þögn til þess að minnast
dauða Palachs, sem framdi sjálfs
morð til þess að mótmæla rit-
skoðun í landinu og hernámi
Rússa.
SEGIR SVOBODA AF SÉR?
í dag skýrðu blöð ýtarlega frá
því, sem gerzt hafði í landinu og
lögðu áherzlu á áskorun Ludviks
Svoboda forseta um að reyna að
koma í veg fyrir harmleik fyrir
þjóðir Tékkóslóvakíu. í Prag er
það álit mangra, að ræða Svo-
boda bendi til þess, að hann
hyggist segja af sér embætti sínu,
ef stjórn landsins fær ekki full-
an stuðnings fólksins í landinu.
í dag bárust fréttir um marg-
víslegar aðgerðir vegna dauða
Palachs í mörgum borgum Tékkó
slóvakíu, svo sem Bratislava,
Brno, Plzen, Usti nad Labem,
Ceske Bodojovice og Ostrava.
Blað sósíalistaflokksins, Svo-
bodne Slovo, skýrði í dag með
stórum fyrirsögnum frá kröfum
þeim, sem stúdentar hafa bonð
fram, þ.e.a.s. að fram fari þegar
í stað lýðræðislegar kosningar til
þjóðþingsins og tékkneska þjóð-
arráðsins, 14. flokksþing komm-
únistaflokksinis verði kallað sam-
an, haldið verði áfram efnahags-
endurbótum í landinu og að veitt
ar verði upplýsingar um raun-
verulegt efnahagsástand lands-
ins. Þar að auki krefjast stúdent-
ar afnám allrar ritskoðunar og
þess, að sovézka áróðursblaðið
„Zpravy" verði bannað.
Pólska fréttastofan PAP skýrði
í dag stuttlega frá dauða Palachs.
Var þar sagt, að sjálfsmorð hans
hefði fengið öflum fjandsamleg-
um sósíalismanum tilvalið tæki-
færi til þesis að efla starfsemi
sína. Sagði PAP, að dauði Pal-
achs hefði vakið spennu hjá fólki
í Tékkóslóvakíu, en fréttastofan
skýrði í stuttu máli frá mótmæla
göngunni, sem fram fór í Prag í
gær.
Moskvublaðið Pravda skýrði
einnig stuttlega frá dauða Pal-
achs samtímis því, sem greint
var frá áskorunum yfirvalda í
Tékkóslóvakíu til fólks um að
koma fram með ró og sýna still-
ingu. Sagði Pravda, að öfl fjand-
samleg sósíalismans reyndu að
notfæra sér þennan atburð í ögr-
unarskyni.
MIKIL ÓLGA f BÚDAPEST.
Samkvæmt fréttum frá Búda-
pes>t hefur lögreglulið haft
strangt eftirlit með háskólan-
um þar síðan á mánudag og
ennfremur hefur lögreglulið
verið við aðra skóla þar í borg.
Er sagt, að mikil spennan ríki
í borginni yfir því, sem gerzt hef
ur, og að ungverskir stúdentar
vinni nú markvisst að því að
fylgja fordæmi stúdenta í Tékkó
slóvakíu með því að krefjast auk
inna áhrifa á innanríkismál í
landinu.
í frétt ungversku fréttastofunn
ar segir, að Sandor Bauer, sem
er 17 ára, hafi tvisvar sinnum
áður reynt að fremja sjálfsmorð,
en fréttastofan skýrði ekki frek-
ar frá því, að því undanskildu
að það hefði gerzt fyrir tveimur
árum.
- FALSAÐI
Framhald af bls. 24.
Hrauni, þar sem hann afplánaði
dóm fyrir ávísanafals. Var mann-
inum sleppt áður en hann hafði
afplánað þá refsingu sína til fulls
auk þess sem hann átti inni ann-
an dóm fyrir ávísanafals upp á
meira en eitt ár.
Á þessum þremur vikum, sem
maðurinn fékk að ganga laus,
komst hann yfir ávísanahefti frá
nokkrum peningastofnunum og
notaði þau sem að framan grein-
ir.
Maður þessi situr nú aftur aust
ur á Litla-Hrauni og afplánar
fyrri refsingu sína og mun hann
með þessu hafa bætt eitthvað við
dvalartíma sinn eystra.
- MORÐIN
Framhald af bls 1
ið í skyn í gærkvöldi, að pólitísk
ar hvatir kynnu að liggja að
baki morðunum, en þeir, sem
mor'ðingjanna leita, hafa ekkert
viljað láta hafa eftir sér í þá
átt.
Hermennirnir þrir, sem myrtir
voru, voru skotnir, þar sem þeir
lágu í svefnpokum sínum í litlu
varðhúsi við skotfærageymsluna.
Einn þeirra, sem eftir lifði hlaut
bæði skotsár og var jafnframt
stunginn. Skýrði hann frá því,
að tveir menn hefðu ráðizt á sig,
sennilega á aldrinum 20—25 ára
og hefðu þeir verið í khakijökk-
um með herfatasniði. Þetta eru
einu upplýsingarnar, sem leitar-
menn morðingjanna hafa við leit
ina að þeim, en hún er einhver
sú umfangsmesta í sögu Vestur-
Þýzkalands.
ELDUR kom upp í trésmíðaverk-
stæði Slippfélagsins við Mýrar-
götu snemroa í gærmorgun, og
varð þar mikill reykur.
Nokkrar skemmdir munu hafa
orðið þar.
Slökkviliðinu barst tilkynning
um eldinn kl. 6.36, og var sagt
að mikinn reyk legði út úr slipp-
húsinu. Þegar slökkviliðið kom
á staðinn, kom í ljós að reyk-
urinn var í trésmíðaverkstæði
hússins. Þar hafði vélsög hitn-
að gífurlega, og brennt sig nið-
ur úr trégólfi, sem klætt er yfir
- VIETNAM
Framhald af bls 1
hefur verið formaður viðræðu-
nefndar Suður-Vietnam, og verð-
ur það áfram, en hann þurfti að
bergða sér heim til viðræðna við
Thieu forseta.
Viðræðurnar í Saigon í dag
voru haldnar í forsetahöllinni, og
var Ky varaforseti viðstaddur.
Fyrst ræddi Thieu forseti við
Alexis Johnson, og síðar við Ells-
worth Bunker sendiiherra og
fjóra aðra starfsmenn banda-
ríska sendiráðsins. Johnson hef-
ur ferðazt um Suður-Vietnam
undanfarna viku og ræddi þar
við innlenda leiðtoga, auk þess
sem hann hefur átt fundi með
Ellsworbh Bunker sendiherra og
Creighton W. Abrams hershöfð-
inigja, sem er yfirmaður banda-
rísku hensveitanna í Suður-Viet-
nam. Sagði Johnson við frétta-
menn í dag að loknum viðræð-
um við Thieu forseta að hann
mælti ekki með neinni breytingu
á stefnu Bandaríkjanna varð-
andi Vietnam. Hann kvaðst álíta
að þróun mála þar í landi hefði
miðað í rétta átt, en neitaði að
segja nokkuð um hugsanlegan
brottflutning bandarískra her-
manna þaðan.
í Hanoi segir blaðið Nhan Dan,
málgagn stjórnarinnar, að saga
viðræðnanna í París sanni það að
málstaður Norður-Vietnam og
,,Þjóðfreisisfylkingarinnar“ hafi
borið sigur af hólmi í Vietnam.
Segir blaðið að í sambandi við
viðræðurnar hafi loks tekizt að
neyða Bandaríkin til að hætta
skilyrðislaust öllum loftárásum á
Norður-Vietnam. Þegar þeim
áfanga var náð, var næsta verk-
efni tekið fyrir, segir blaðið, og
„það tók 2% mánuð að neyða
Bandaríkin til að samþykkja
óskipt hringborð, sem sannar að
viðræðurnar eru fjórhliða, og að
„Þjóðfrelsisfylkingin" er eini
sanni fulltrúi suður-vietnömisku
þjóðarinnar".
steingólf, en holrúmið á milli er
fyllt með spónum. Þar leyndust
neistar, og þurftu slökkviliðs-
menn að rífa upp stóran hluta
trégólfsins til að komast fyrir
eldinn. Slökkvistarf stóð í klukku
stund.
- DÆMDUR
Framhald af bls. 2
ur ævilangt leyfisbréfum iðju og
tollvörugerðar.
Hæstiréttur staðfestí ákvæði
héraðsdómsins um sektarupphæð
sviptingu réttinda og málskostn
að en lækkaði greiðslurnar til
Ríkissjóðs og Styrktarsjóðs fatl-
aðra þannig, að Þorsteinn skal
greiða krónur 12.677.266.40 til
Ríkissjóðs og 237.636.00 til Styrkt
arsjóðs fatlaðra. Þá var Þorsteini
gert að greiða kostnað af áfrýj-
un málsins.
Dóminum her að fullnægja
með aðför að lögum.
- CARMANIA
Framhald af bls 1
var við, að skipið yrði sett I
þurrkví, en ekki var vitað enn
um, hve miklar skemmdir hefðu
orðið á því.
Áður en þremur dráttarbátum
tókst að draga Carmaniu af rif-
inu, þar sem skipið strandáði,
voru 471 farþegi, sem í skipmu
voru og 202 manna áhöfn þesis,
flutt yfir í annað skip. Carmania
var í 12 daga siglingu og strand-
aði um 18 klst. eftir að skipið
hélt úr höfn í Fort Lauderdale i
Florida. Carmania er eign Cun-
ard-skipafélagsins.
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 22
— Hvernig lýst þér á lands-
leikina?
— Spánverjarnir eru fljótir og
snöggir leikmenn, en hafa ekki
yfir miklum skyttum að ráða.
Það er efcki gott að segja hvernig
fer, nái þeir góðri byrjun. En ég
er mjög bjartsýnn á að við vinn-
um þessa leiki. Við ættum að
minnsta kostí að geta það.
Ingólfur Óskarsson tók þátt I
báðum landsleikjunum við Spán-
verja í fyrravor og átti stærstan
þátt í sigri í síðari leiknum, og
skoraði þá 7 mörk. Fyrri leikur-
inn fór fram utanhúss í miklum
hita og töpuðu íslendingar hon-
um með miklum mun. Sagði Ing-
ólfur að aðstæðurnar í þeim leik
hefðu verið svipaðar og ef viS
byðum nú Spánverjunum að
ieika úti hérlendis í frosti og
kulda.