Morgunblaðið - 24.01.1969, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969.
„Þoiromotur þyhir mér — þjóðlegur og góður“
TÓLFTA þorrann í röð býður veitingahúsið Naust nú gestum sínum upp á þorramat, fram bor-
inn í trogum. Að venju hefur Ib Wessman, yfirmatsveinn Naustsjns, haft veg og vanda af þorra-
undirbúningnum. Fréttamönnum gafst í fyrradag kostur á að bragða á fjölbreyttum þorramat
Naustsins og er óhætt að fullyrða, að enginn, sem blótar þorraá Nausti, mun verða fyrir
vonbrigðum.
„Klúbbur 20“ fyrir
unga fólkið —
— fjölþœtt félagsstarf fyrirhugað
Magnús Eggertsson
EINS og getið hefur verið um
í fréttum tók hópur ungs fólks
sig saman í nóvember sl. og
stofnaði klúbb, sem hlaut nafnið
„Klúbbur 20“.
Stofnendur Klúbbs 20 eru úr
ýmsum skólum borgarinnar og
einnig ungt fólk, sem er komið
út í atvinnulífið. Flestir með-
limir eru á aldrinum um og yfir
tvítugt. Næsta skemmtun
Kiúbbs 20 er í kvöld í Las Veg-
as.
Ástæðan til þess að Klúbbur
20 var stofnaður var sú að
mörgu ungu fólki þótti of þröngt
Skipaður aðstoðar-
yiirlögregluþjónn
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum sl. þriðjudag að
skipa Magnús Eggertsson, aðal-
varðstjóra, aðstoðaryfirlögreglu-
þjón rannc'knarlögreglunnar.
Magnús Eggertsson fæddist 8.
marz 1907 að Hjörsey í Hraun-
hreppi
Hann gekk í Reykjavíkurlög-
regluna 1. janúar 1930 og var
strax skipaður varðstjóri í götu
Jögreglunni. Rannsóknarlög-
regluþjónn varð hann 16. maí
1941 og varðstjóri þar nokkru
síðar.
Aðalvarðstjóri rannsóknarlög-
reglunnar varð Magnús 1. júlí
1963.
Landhelgisnefndin
hlustar á rök manna
LANDHELGISNEFNDIN, er
skipuð var til að gera tillögur
varðandi framtíðarlausn land-
helgismálsins hefur að undan-
förnu haldið fundi úti á landi.
Hafa nefndarmenn, sem eru þeir
Guðlaugur Gíslason, Jón Ár-
mannsson, Lúðvík Jósepsson og
Jón Skaftason haldið fundi, en
einn nefndarmanna, Sverrir Júl
íusson, er veikur. Eru þeir bún-
ir að halda fundi á Reyðarfirði,
Akureyri og Sauðárkróki og
komu heim í gær.
í dag héldu þeir svo aftur af
stað, til Stykkishólms og verð-
ur fundur þar síðdegis. Mbl. náði
snöggvast tali af Guðlaugi Gísla-
syni í gærkvöldi. Sagði hann að
fuddirnir hefðu verið vel sóttir
og farið vel fram. Hefði verið
rökrætt málefnalega frá báðum
hliðum, og bæði þeir sem eru á
móti og með skýrt mál sitt.
Guðlaugur sagði, að nefndin
væri að ferðast til að afla sér
upplýsinga og hlusta á rök manna
og stefni að því að skila áliti
sem fyrst.
um í því skemmtistaðavali, sem
helzt er um að ræða fyrir fólk
á aldrinum um tvítugt. Vildi
þetta unga fólk standa fyrir
stofnun klúbbs, sem hefði ekki
aðeins á dagskrá sinni til
dæmis er það áform forráða-
manna Klúbbs 20 að efna til
ýmissa kynninga á skemmtunum
klúbbsins þar sem m. a. væru
tónlistarkynningar, bókmennta-
kynningar, sérstök skemmti-
kvöld, þjóðlagakynningar og svo
hvaðeina, sem meðlimum kynni
að detta í hug til þess að efla
félagsstarfsemina.
Klúbbur 20 heldur skemmti-
fundi hálfsmánaðarlega og hafa
verið haldnir þrjár skemmtanir,
en sú fjórða er í kvöld í Las
Vegas.
Klúbburinn hefur fengið inni
fyrir starfsemi sína a- m. k.
fyrst um sinn í Las Vegas.
Klúbbur 20 er opinn öllu
ungu fólki og eru allir velkomn
ir, sem hafa áhuga á þessum
málum.
Kjósarsýsk
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Kjósar-
sýslu verður haldinn í Hlégarði
fimmtudaginn 30. janúar og
hefst hann kl. 20.00.
Það tók þau tvo
daga og tvö bréf
— að taka ákvörðun um framtíðina
Þær eru margar sógurnar um
unga Iækninn, sem fær fal-
legu læknisdótturina — og
ein slík er eiginlega að ger-
ast því að á laugardaginn op
inberuðu Michael Ranson,
skipslæknir á brezka eftir-
litsskipinu Duncan og Katha-
rína Úlfsdóttir Gunnarsson-
ar læknis á ísafirði trúlof-
un sína.
Það lá nú samt við að ekk-
ert gæti orðið úr trúlofun í
bili, því að Duncan, sem kom
inn til Reykjavíkur í fyrri
viku fór út fyrr en áætlað
'hafði verið og þá var Katha
rína á leið til Reykjavíkur
með Esju. Kom hún hingað
snemma morguns og — ekk-
ert skip. En viti menn, fram
kom bilun í Duncan og skip
ið varð að snúa við og er
lagzt var að bryggju í
Reykjavík stóð Katharína á
bryggjunni til að taka á móti
Michael sínum. Daginn eftir
opinberuðu þau trúlofun
sína.
„Brezku eftirlitsskipin
koma oft inn á ísafjörð, þeg-
ar þau eru hér við land“,
segir Ranson skipslæknir, en
tíðindamaður Morgunblaðsins
hitti hjónaefnin snöggvast að
máli í gær. „í nóvember s.l.
er ég var á eftirlitsskipinu
Malcolm komum við inn á ísa
fjörð og þar hitti ég Kate —
og það tók okkur ekki nema
tvo daga og tvö bréf að taka
ákvörðun um framtíðina".
„Svo að við höfum ekki
þekkzt ýkjalengi", segir
Katharína, en hún er rann-
sóknarstúlka á sjúkrahúsinu
á ísafirði. Þangað koma oft
brezkir sjómenn, slasaðir eða
sjúkir og eins og menn minn
ast var sjúkrahúsið og starfs-
... svo kem ég til ísaf jarðar
ur — ekki satt?
fólkið þar í heimsfréttunum í
fyrra, er Harry Eddom lá
þar.
„Þegar búið verður að gera
við skipið förum við út — og
ég vona að við komum til
hitta hann pabba þinn“ seg-
ir skipslæknirinn og snýr sér
að unnustunni. „Ég get varla
sagt að ég hafi hitt hann“.
„En 3. nóvember flýg ég
til Noregs og fer þar um
borð í eftirlitsskipið „Galet-
ea“, en ég hef alls 6 eftir-
litsskip á minni könnu og er
til skiptis um borð í þeim.“
„Ef Duncan hefði ekki orð
ið að snúa við, hvenær hefð-
uð þið þá hitzt næst?“
„Það er ómögulegt að vita.
'Ég verð ekki við íslands-
strendur aftur fyrr en
kannski næsta haust. En þú
kemur út í vor og hittir fjöl-
skyldu mína og svo kem ég
til ísafjarðar í sumar og við
giftum okkur — ekki satt?“,
segir skipslæknirinn ungi og
horfir hugfanginn á unnust-
una, sem að sjálfsögðu sam-
þykkir allt.
„Og síðan?“
„Ætli ég taki ekki Kate
með mér til Hong Kong eða
einhvers annars staðar þar
austur frá. Ég er búinn að
vera eitt ár í sjóhernum og
á eftir fjögur. Mig langar til
þess að vera um tíma í Aust-
urlöndum, en þegar þessi
fjögur ár eru liðin setjumst
við að í Bretlandi. Ég er frá
Bristol — það er falleg
borg“.
„Hvað segir fjölskyldan í
Bristol?"
„Ég hef ekkert heyrt enn.
Ég skrifaði strax á sunnu-
dag, en það hefur enginn póst-
ur komið síðan. En auðvitað er
hún ánægð".
í sumar og við giftum okk-
Álto bótar fó að veiða í
soðið handa Reykvíkingum
í GÆR veitti verkfallsnefnd sjó-
manna undanþágu fyrir 8 báta,
tii að þeir gætu farið út og veitt
í soðið handa borgarbúum. Leit-
uðu fisksalar til nefndarinnar
laust eftir hádegi í gær og var
bátunum veitt leyfið. Er það
bundið því skilyrði að bátarnir
rói frá Reykjavík og landi í
Reykjavík og fiskinum verði öll-
um dreift frá einum stað og
skipt á milli fisksalanna.
Leyfið er bundið við ákveðna
báta, en þeir eru Jökull, Kári
Sólmundarson, Guðrún Lára,
Garðar, Aðalbj örg, Hafnarberg,
Þórir og Fróði.
Hafa einhverjir þeirra væntan
lega róið í gærkvöldi, svo von
verður á nýjum fiski aftur.