Morgunblaðið - 06.06.1969, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1969
kemur um klukkan fjögur.
Andlitið á henni Ijómaði.
— Er þetta ekki dásamlegt!
Ég held ég hafi verið álíka kvíð
in og þú í allan morgun. Lucy
brosti. — En fyrst þetta er allt
í lagi, get ég sagt þér mínar
fréttir.
Ég þóttist alveg vita, hverjar
þær væru, en vildi ekki svipta
hana ánægjunni af að segja mér
þær sjálf.
— Hverjar eru þær, Lucy?
— Hefurðu enga hugmynd um
það?
— Auðvitað ekki, sagði ég,
enda þótt ég vissi vel, hverjar
þær mundu vera. Og það fréttir,
sem ég var viss um, að mundu
gleðja mig.
— Rupert vill giftast mér.
—En indælt! Hvað ég er feg
in.
Lucy skríkti. — Ég er líka
glöð, enda þótt ég hefði aldrei ját
ast honum, hefði ég ekki vitað,
að ég er orðin fullfrísk aftur.
En við ætlum nú samt ekki að
gifta okkur alveg strax, því að
Rupert segir, að ég sé svo ung
UTAVER
GRENStóVEÖ Z2 - 24
»3 0280-322 S2
PINOTEX
fúavarnarefni
Mikið litaval
IMESCAFÉ
)i) er
nútímakciTTÍ
og hafi gott af að kynnast öðr
um karlmönnum, áður en ég á-
kveð mig. Og sælubros færðist
yfir andlitið á henni: — Eins og
ég þurfi þess!
Ég heyrði í bílnum hans Rup-
erts, skömmu eftir Klukkan fjög
ur. Ég var komin út í dyr til
þess að taka móti þeim.
Ég sgaði við Rupert: —
Luey er úti í garði, farðu og tal
aðu við hana. Hún er búin að
segja mér fréttirnar af ykkur.
Rupert leit á mig með dálitl
um kvíðasvip.
— Þú samþykkir þetta þá?
— Vitanlega. Og með gleði.
Bob greip í hönd mér þegar
Rupert var farinn til Lucy.
— Við skulum fara út í þurrk
húsið, sagði hann. — Það er
hvort sem er okkar uppáhalds-
staður. Ég þarf að segja þér frá
öllu, sem gerzt hefur.
Hann hélt fast utan um mig á
leiðinmig þan.gað og sagði: — Nú
eru öll skýin fokin frá sólinni.
Loksins get ég sagt þér með
góðri samvizku, hvað ég elska
þig. Segðu mér, að þú elskir mig
og viljir eiga mig.
Eins og ég þyrfti þess!
Hann kyssti mig og síðan:—
Jæja, þetta er nú einkennileg
saga. Svo virðist sem Angela
hafi gifzt þessum unga manni.
Svo dó hann, núna fyrir nokkr-
um vikum. Þetta var krakkagift
ing og þau stunduðu nám saman.
Hann var sonur ríkra, þýzkra
hjóna og var ómyndugur. Þau
héldu giftingunni leyndri um
stund — og ætluðu að segja for-
eldrum hans frá henni seinna.
En svo lenti hann í hræðilegum
árekstri í einhverjum bílakapp-
akstri og virtist dauður. Hafði
aðallega meitt sig á höfði. Lækn
arnir sögðu, að hanm yrði aldrei
samur maður aftur. Angela var
hrædd og flýtti sér að koma sér
burt.
— Það virðist helzta fangaráð
ið, ef eitthvað bjátar á, gat ég
ekki stillt mig um að segja.
Bob brosti vandræðalega og
þrýsti hönd mína.— Það veit ég,
Á matseölí
dagsins
MAGGI-sveppasúpa
lostætur réttur
Ijúf í hvers manns munni
MUSHROOM
VELOUTÉ
DE BOLETS
MAGGI-
4-1 ICIVIIfit ASSIETTEI
MAGGI-súpur frá Sviss
eru beztar
J
(ílháftk
,#111;
<///jnv
íffI BMMj
\i % 111 f M II
I IEIXtAR]\L\TINN
HEIM
A S KU
BVÐt'R
VBIJR
GLÓDARST. GRÍSAKÓTELEITI ’R
GRIIJAÐA KJÚKLINGA
ROASrr BEEF
GIJ3ÐARSTEIkt LAMB
IIAM BORGARA
DJTJPSTEIKTAN EISK
xuónrlandxbraui /.$ simi 38550
en mundu, að hefði hún verið
kyrr hjá mér, hefðum við aldrei
hitzt . . . En svo að ég haldi
áfram, þá sagði hún ekki orð við
neinn um þessa giftingu sína —
eða hann. Auðvitað hefur hún
haldið, að hann væri dáinn fyrir
mörgum ánum, en einhvern veg-
inn hjaraði hann nú samt, og
það var ekki fyrr en hann var
dáinn, að giftingarvottorðið
fannst í blöðum hans. Ég held
við getum sýknað Angelu af því
að hafa vísvitandi gifzt tveimur
samtímis. Rupert hitti hana í
morgun og hafði upp úr henni
alla söguna. Hún ætlar nú til
Ameríku— það er að segja þegar
hún er búin að kynna sér, hve
mikið hún hefur erft eftir mann
inn sinn. — Bob gretti sig ofur-
lítið — og það verður vonandi
það síðasta, Sem við fréttum af
henni.
Aftur tók hann mig í faðm
sér. Hann kyssti fagnaðartárin
úr augum mínum og kinnum, en
eftir nokkrar mínútur dró ég mig
aftur frá honum.
— Elskan mín, sagði ég. — Ég
verð að segja þér nokkuð. Ég er
skuldug. Ég skulda bankanum
fjögur hundruð pund. Að vísu
er það ekki svo mikið lengur, því
að ég er búin að borga dálítið
af því. . .
Bob lagið hönd fyrir munninn
á mér
— Góða mín, það er brúðar-
gjöfin hans Ruperts til okkar.
Hann sagði mér það á leiðinni
til borgarinnar.
— Rupert? Hvað getur hann
vitað um það?
— Það var hann, sem gekk í
ábyrgð fyrir láninu. Lucy hafði
sagt mér að þú þarfnaðist þessar
ar upphæðar, og þar sem ég átti
ekkert sjálfur, þá bað ég hann
að gera það. Vissi, að hann átti
hægt með það, eins og líka sýndi
sig. En farðu bara ekki að
ausa yfir hann neinu þakklæti,
því að þá verður hann feiminn
og fer hjá sér.
— Enhugsa sér allt, sem
hefur verið að gerast bak við
mig! sagði ég. — Lucy sagði mér
í gærkvöldi, að hún hefði vitað
um málaferlin þín.
— Og hún hefur sjálfsagt líka
sagt þér, hver tildrög þeirra
voru?
— Já, það gerði hún.
— Það var sama daginn, sem
hún sagði mér frá Nick og pen-
ingunum, sagði hann og brosti
við endurminninguna. Við trúð-
um hvort öðru fyrir sínu af
hverju þann dag. En nú skulum
við ekki vera að tala um það.
Við þögðum líka stundarkom.
Seinna, þegar við komum inn,
fundum við Rupert og Lucy í
stofunni.
— Kay kemur ekki í mat í kvöld.
Don hringdi til hennar og hún
ætlar út að borða með honium.
Ég efast um, að ég hafi nokk-
urntíma verið glaðari. Ég leit á
Lucy, á Rupert og loks á Bob.
Og nú var Bob frjáls að því
að gifta sig.
(Sögulok).
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Það reynir talsvert á þolinmæðina hjá þér í dag.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Haltu þig við staðreyndirnar, þótt allt sé á öðrum endanum.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Það borgar sig allaf betur að hlusta en tala. Reyndu að ganga frá
sem mcstu.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þótt þig langi til að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, skaltu
reyna að sitja á þér.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Gættu þess að láta ekki uppi allt, sem þú velzt.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Það reynir talsvert á hæfni þína i dag. Reyndu að sjá málin í réttu
ljósi.
Vogin, 23. september — 22. október.
Vinnuskilyrðin eru erfið í svipinn. Hlýddu ekki á gróusögur.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Þér gefst tækfæri til að ganga frá peningamálum þínum i dag.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Það hvílir mikið á þér, og það eru ýmsir, sem ekki eru nógu
orðvarir. Þú verður síðar feginn því að hafa haldið þér á mottunni.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Ef þú getur miðlað öðrum af þínum friði og rósemi, verður það
ekki sízt þér sjálfum til góðs.
Vatnsberinn, 20 janúar — 18. febrúar.
AHt sem þig langar til að gera í dag er um efni fram, og þér ekki
eins hollt og þú vildir vera láta.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Gættu að misfellu. Þú ert betri í skapinu. Reyndu líka að skilja
sjónarmið annarra.