Morgunblaðið - 28.06.1969, Blaðsíða 12
12
MORGUN'BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 196®
Sigurvegarar í töltkeppninni.
Nr. 1 Annemaría Damen á leirljósum fflæsihesti, Svan að
nafni. Er hann sonur Lýsings frá Voðmúlastöðum. Hágengur
brokktöltari. Hlaut 59 stig og íslenzkt beizli. (Heiðursverðlaun frá
Ingólfi Jónssyni, landbúnaðarráðherra).
Nr. 2 Bruno Podlech frá Bonn á brúnum gæðingi, Öðni að
nafni, alhliða ganghesti af Svaðastaðastofni. Hlaut 53 stig.
Nr. 3 Frú ílrsúla Becker frá Saarbrúcken á glóvindótta og bles-
ótta stóðhestinum, Hrappi frá Garðsauka. Hlaut 51 stig og heið-
ursverðlaun frá landbúnaðarráðherra Islands, „Silfurskeifuna“ fyr-
ir að sýna þaraa bezt töltandi stóðhest. Er Hrappur hágengur og
tölthraður glæsihestur. Hlaut í heimahaga á íslandi á tryppisárum
sínum nafnið „Hrappur" — með rentu. — Eftir að konur og ungl-
ingar í Saarbriicken hafa haft hann í umsjá sinni og þjálfun í
nokkur ár, væri rétt að gefa honum nafn að nýju. Mætti hann nú
heita „Ljúfur“. Hrappur er sonur Helga-Blesa frá Selfossi, en hann
var sonur Geysis frá Stóru-Giljá og Hrannar Jóns Pálssonar, næst
beztu hryssu iandsins á Þingvallasýningunni 1950. Mest líkist
Hrappur afa sínum, Geysi, þeim harðsnúna glæsihesti og lundvið-
kvæma stórbokka með húnvetnsku fasi.
Sigurvegarinn á 800 metra sprettfæri á stökki var Wolfgang Berg
á hestinum Gáska.
A myndinni sést vel, hversu Þjóðverjum þykir vænt um faxið á
íslenzku gæðingunum. Menn sjást fella tár yfir útskornum eyrum
(mörkuðum með eyrnamörkum), sem standa upp úr slikum faxa-
fossum.
Knapinn, Wolfgang Berg, verður sýningargestum á þessu móti
ógleymanlegur í sambandi við atvik, sem þarna gerðist og komu
fleiri við þá sögu. Ulrich Marth hafði gefið taminn reiðhest til
verðlauna á móti þessu. Var dregið í lok mótsins um vinnanda úr
um það bil 100 skráðum knöpum, sem þarna sýndu hesta eða tóku
þátt í keppni. Fyrst kom upp númer frú Úrsúlu Becker (sjá 2.
mynd og 8. mynd). Þegar frúin veitti hestinum móttöku tilkynnti
hún, að hún ætti þá þegar svo marga hesta, að hún gæti varla
.Jleiri blómum á sig bætt“, hefði auk þess svo mikið yndi af
Hrapp, að hún mætti helzt ekki elska fleiri gæðinga í bili. Þar með
gaf hún hestinn til þess næsta og bað Einar Oddsson, sýslumann
frá Vík í Mýrdal, að draga aftur. Þarna var gefinn hestur, sem
ekki er ofmetinn á DM 4000,— (þ. e. 88,000,— ísl. krónur).
Næst kom upp númer Wolfgangs. Hannn er fátækur piltur, en
mikill hestamaður og tamningamaður. Hafði hann þjálfað um tima
einmitt þennan reiðhest, sem um var dregið, og hafði hann feng-
ið mikla ást á honum. Gekk drengur að hesti sinum þrútinn á svip,
vafði örmum um hálsinn á gangvaranum og hágrét af gleði. Þarna
umhverfis sýningarsvæðið stóðu eigi færri en 1000 manns. Það
grétu allir og fór enginn dult með tárin sín.
1 stökkkeppninni gekk á ýmsu. Hér liggja þrír í haug.
ÞYZKA
ÞAÐ er orðinn fastur liður í starf
semi eigenda íslenzkra hesta í
Þýzkalandi að halda landskeppni
í töltreið og öðrum reiðmennsku-
íþróttum á hvítasunnuhelginni ár
hvert. Mótin verða æ fjölbreytt-
ari með hverju ári sem líður og
áhorfendafjöldinn vex stöðugt.
Mót, sem haldið var um síð-
ustu hvítasunnuhelgi, hófst á
föstudegi með töltreiðarnám-
skeiði. Á laugardag var margvis-
leg forkeppni, en aðalsýningar-
dagarnir voru sunnudagur og
mánudagur.
Talið er, að alls um 3000 manns
hafi sótt mótið hcim, og þegar
mannfjöldinn var mestur, hafa
verið samankomin þarna í Aegidi
enberg um 2000 manns. Mótið
var haldið á vegum „félags eig-
enda og ræktenda íslenzkra
hesta“, sem stofnað var á sl. ári,
en þá klufu eigendur íslenzkra
hesta sig út úr Pony-klúbbnum,
sem starfað hefur síðan 1958, þar
sem þeir telja sig ekki eiga sam-
leið með eigendum annarra smá
hestakynja, en hestar af þeim
kynjum eru aðallega notaðir sem
barnahestar, eru bæði fíngerðir
og veigalitlir.
f sambandi við þetta tölt-
keppnismót í Aegidienberg var
stofnað Evrópusamband félaga
íslenzkra hestaeigenda. Félags-
samtökin, sem þetta samband
stofnuðu, voru frá Austurríki,
Walter Feldmann frá Áegidienberg sigraði á skeiði á vekringnum
Blakk (af Svaðastaöastofni). Hljóp hesturinn 150 m sprettfæri á
hreinu skeiði á 16,2 sekúndum.