Morgunblaðið - 03.08.1969, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.08.1969, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 196® ( - FRAMLEIÐSLAN Framhald af bls. 13 tækinu SIAB sem sá um bygg- ingarframkvæmdir í Straums- vík. — Nú starfa ég hér við móttöku á keráli og ofnagæzlu, sagði Bjarni, — og mundi segja að þetta væri hið ágætasta starf. Vel borgað Haukur Eiríksson úr Hafnar firði sagðist hafa starfað næst áður í Fiskiðjuverinu í Hafnar firði, og sagði þetta miklu skemmtilegri vinnu. Hann starf ar við álsteypuna og ofngæzlu — Þetta er líka vel borguð ptor&imÞIa&ife RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLÁ'SKRIFSTOFA SÍMI 1D.10Q vinna, miðað við vinnutímann, sagði Haukur. Þrifaleg vinna Þá tókum við tali Sigfús Svav arsson úr Hafnarfirði, sem starf ar að því að færa álið milli kerskála og steypuskála. Sig- •fús sagðist hafa starfað áður í fiskvinnu hjá Ingólfi Flygenr- ing. — Ég hafði eiginlega stundað fiskvinnu, frá því að ég byrjaði fyrst að vinna, sagði Sigfús, — en það er tilbreytni í þessu. Þetta er fremur róleg og þrifaleg vinna. Lyftaramaður Að lokum hittum við svo Braga Antonsson, úr Hafnar- firði. Hann sagðist hafa starf- að áður hjá verktökunum sem byggðu skálana. — Mér líkar þetta starf ágætlega, sagði Bragi og aðspurður um hvert verk- efni hans væri í verksmiðjunni sagðist hann vera lyftaramað- ur og æki hann hleyfum og börrum frá steypuskálanum og inn í vörugeymsluna. i H Álbarri á sögimarborðinu Litmyndir á pappír á 2 dögum Verölækkun!! Með sjálfvirkum vélum frá Kodak getum við framkallað hér heima á hagkvæmu verði, l. flokks litmyndir á pappír eftir KODACOLOR filmu — og á aðeins tveimur dögum. Kodak filmur — Kodak gæði. HANS PETERSEN H.F. BANKASTRÆTI 4 SÍMI 20313

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.