Morgunblaðið - 04.09.1969, Síða 12

Morgunblaðið - 04.09.1969, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPT. 196® "Últgeíandi H.f. Árvafcur, Eeykjavóik. Fxamkvœmdiastj óri Hiaraldur Sveinsaen. Œtitstjórar Sigurður Bjamaaen írá Vigíur. MattMas Jdhannessfön. Eyjólfur Konráð Jónssion. Bitstjómarfulltrúi Þorbjöm. Guðtaundsson. Fréttaistjóri Bj.öm Jóliannsson'. Auglýsingiaisitjióri Arni Garðar Kristinsson. Eitstjórn og afgneiðsla Aðalstrœti 6. Sótai 10-100. Auiglýsingar Aðaílstrœti 6. Sími 22-4-80. Adcriftargjald kr. 150.00 á mánuði innanlands. I lausasjöiu kr. 10.00 eintakið. SKÓLAKERFID OG NÁLARAUGAÐ TVTefnd sú, sem menntamála- ráðherra skipaði í sum- ar „til þess að gera tillögur um, með hvaða hætti sé nú þegar í haust hægt að opna þeim, sem staðizt hafa lands- próf og gagnfræðapróf, fleiri námsleiðir en þeir eiga nú kost á“ hefur lokið störfum. Morgunblaðið hefur skýrt frá helztu tillögum nefndarinnar, sem eru spor í rétta átt. Með þeim hefur verið sprengt skarð í landsprófsstífluna, öll starfsemi gagnfræðaskólanna gerð markvísari og boðið upp á fjölbreyttara nám í fram- haldsskólunum. Þróunin stefn ir góðu heilli í þá átt, að landsprófið sé ekki nálar- auga, unglingarnir úlfaldinn. Að vísu er í álitsgerð náms- brautanefndar einkum lögð áherzla á að nám þeirra, sem standast landspróf geti orðið fjölbreyttara. En menn hljóta að staldra við leiðirnar fram hjá því. Þannig veitir sam- ræmt gagnfræðapróf með meðaleinkunn 6,0 rétt til inn- göngu í framhaldsdeild. Og í álitsgerðinni segir ennfremur að „nefndin telur eðlilegt og mælir með því, að landsprófs mönnum með 3. einkunn verði ráðlagt að fara í gagn- fræðadeild næsta vetur, en að því námi loknu geti fram- haldsdeild talizt þeim nýt og heptug menntabraut.“ Þetta er viturlegt ákvæði og merkt nýmæli, ef það verður ekki til þess að lengja óeðlilega mám unglinganna. A. m. k. er það góð, raunar nauðsynleg varaskeifa í skólakerfinu. Þannig geta þessir nernend- ur, ásamt öðrum, tekið ákvörðun um framtíð sína á heppilegri aldri en verið hef- ur, til dæmis farið inn í menntaskóla eftir tveggja ára nám í framhaldsdeildum gagnfræðaskólanna. Þannig verður landsprófið ekki eina leiðin inn í menntaskólana, svo að dæmi sé tekið. Þetta ákvæði á eftir að koma mörgum, velgefnum en seinþroska unglingum til þess þroska, sem efni standa til. Það og annað í álitsgerðinni, sem gengur í sömu átt, á eft- ir að létta mörgum ungling- um róðurinn, minnka áhyggj- tu* foreldra og láta þjóðfélag, sem má af engum einstaklingi sjá, uppskera eins og til er sáð. Námsbrautanefnd á því þakkir skildar fyrir meira víð- sýni, en fólk á að venjast, þegar „ábyrgir“ aðilar hafa rætt um skólamál undanfarin ár, og einkum ber að þakka henni snögg handtök. Þá er einnig ástæða til að fagna því, að sett hafa verið bráða- birgðalög um stofnun tveggja ára framhaldsdeilda við gagnfræðaskólana, strax í haust. En síðar verður slíkum deildum væntanlega bætt við fleiri skóla, t.d. mennta- og kennaraskóla. En þá er líka að standa svo að þessu þjóð- nytjamáli i vetur, að ekki verði bent á framhaldsdeildir þessar sem víti til varnaðar. Þá yrðu hröð handtök of dýru verði keypt. Stundum hefur verið rætt um það, að þeir sem róttæk- astir hafa þótt í skólamálum hafi á fátt nytsamlegt bent. Þeir hafi einkum rifið niður. Kannski má það til sanns vegar færa. En ætii þeirra hlutverk hafi ekki verið fyrst og síðast að benda á veilurn- ar, láta öðrum og færari sér- fræðingum eftir að marka leiðirnar. Hitt má samt full- yrða, að ýmislegt í álitsgerð 'námsbrautanefndar hefur ver ið ofarlega á blaði hjá leikum sem lærðum undanfarin ár, og má þar nefna nauðsyn þess að landsprófið verði ekki allsráðandi um framtíð ungl- inganna á viðkvæmum aldri, nauðsyn sterkari handleiðslu bæði kennara og sérstakra námsráðgjafa, fjölbreyttari möguleika í námi með fleiri kjörsviðum en nú er. Margt hefur verið skrifað og skrafað hér á landi um skóla- og menntamál og er það vel. Árangur af umræð- um þessum er óðum að koma í ljós. Háskólinn hefur verið undir smásjánni undanfarið og vonandi verða þær um- ræður til að vekja menn til umhugsunar um mikilvægi hans í þjóðfélagi okkar. í hon um mætti auka námsbrautir innan núverandi deildaskipt- ingar og án þess gífurlega kostnaðar, sem alltaf er ver- ið að tala um, þegar Háskól- ann ber á góma. Dæmi af handahófi: Kenna má al- menna bókmenntasögu 1 heim spekideild, haffræði og fiski- fræði, auk þjóðfél'agsfræði, stjórnunarfræði og tækni- fræði, eins og nefnd sú sem athugað hefur nýjar náms- brautir í Háskólanum hefur lagt til. Og mætti svo lengi telja, án þess að gera þyrfti róttækar breytingar á núver- andi kennsluháttum í skólan- um eða stórauka fjármagn í því skyni. og kemur í veg fyrir sundrung r Zambíu STJÓRNMÁLAÁSTANDIÐ í Zambíu hefur verið mjög ó- tryggt að undanförnu, og sú hætta vofði yfir, að stjómar- flokkur landsins, Sameinaði þjóðlegi sjálfstæðisflokkurinn (UNIP), flokkur Kenneths Kaunda, forseta, klofnaði og óeirðir yrðu milli hinna ýmsu ættflokka, sem landið byggja. Nú virðist sem Kaunda hafi tekizt, að koma á kyrrð, að minnsta kosti um stundar sak ir. Hefur hann tekið völd- in í eigin hendur í ríkara mæli en áður, og þykir hafa sýnt meiri f-estu og einheitni við að bæla niður óróann, en menn töldu hann húa yfir. Deilurnar hófust eftir kosn ingar innan DNIP 1967, þegar Siimon Kapepwe, sem er af Bemba-ættfloíkknuim, var kjörinm aðstoðairiforiseti í stað Reubens Kamanga, sem ex af öðruim ætfcfloíklki. Þetta rask- aði því jafnvægi milli ætt- flokkanna, sem Kaunda hafði lagt sig í framfcróka við að halda innan stjórmarinnar. — Einnig féll í kosnimgum þess- uim, fjármálaráðherrann Arth ur Wina af Lozis-ættfloklkn- um, seim er næst stærstur í Zambíu, en Beimba-ættflokk- urinn er stærstur. Milkið var rætt um kosm- ingaúrslitin og voru Bembar salkaðiæ uim kasningaisvik. Þótt rannsókn leiddi í ljós, að kosningarnar væiru löglegar, nægði það ekki til að sann færa Lozisa og aðra smærri ættflofcka, og eru þeir enn tor tryggnir í garð Betaba. Kaunda er sjálfur óháður ættflokkarígnium. Hann er fæddur í Malawi, en foreldr ar hans fliuttu til norðurihér- aða Zaimbíu, þair sem auðug- ustu koparnámur landsins eru, og flestir íbúanna eru Bembar. Meðal þeirra aðgerða, sem Kaunda greip til í ágúst sl. til þesis að koma í ve'g fyrir algera upplausn innan stjórn anflokfcsins, var að svipta Kapepwe embætti varajfor- Kenneth Kaunda, forseti. seta. En Kapepwe virtist eklki taka þetta illa upp og hefur lýst því yfir, að hann muni þiggja hvaða stöðu seim Kaunda bjóði honum, þótt hún verði óhjákvæmilega ó- æðri varaforsetiaembættinu. Kapepwe er gamall samistarfs imaður Kaunda, og vinir hans segja, að hann hafi elklki á- huga á forsetaembættinu, en Bembar líta enn á hann siem leiðtoga sinn og talið eir að þeim takist ef til vill að etja honurn út í baráttu gegn Kaunda. Hins vegar er bent á að mörgum yngri mönnum innan stjórnariflo'kksinis þyki 'hinir eldri leiðtogar of hæg- fara. Yngri mennirnir eru flestir betur menntaðir en þeir eldri, og finnst kominn tími til ,að þeir fái aiulkin völd. Þótt frávikning Kapepwe eigi eftir að verða umdeild- ust af aðgerðuim Kaunda, eru hinar mun umifangsmeiri. — Hainn hetfur sjálifur tekið öll völd innan stjórniamflokfcsins í siinar ihendur með því að leysa upp miðstjórnina. Hann hefur bannað verfciföll, bund ið laun, þjóðnýtt koparnám- ur, sam voru í eigu erlendra fyrirtsekja, og sjálfur gegnir hann nú, auk fonsetaembættis ins, eimbætti varnanmálaráð- herra, utanrikisráðherra og félagsmálaráðhehrra, og einn ig 'hefur hann með höndum yf irstjórn framleiðslumála og samgöngumála. SHefur Kaunida breytt alger lega um stefnu varðandi stjórn landsins. Fram til þessa, hefur hann verið fús til að deila völdunum með samráðherrum sínum og frem ur uimgengizt þá sem kerunari en stjórnandi. Þótt fonsetan- um sé það þvert um geð, hef ur hann orðið að viðurkenna að hann á fáa stuðningsmenn í þeinri viðleitni, að útrýma öllum ættflokkaríg og efla framifarir í landinu. Mennirnir, seim nú skipa stjórnina ásamt Kaunda, eru þeir sömu og aðstoðuðu hann í frelsisbaráttiu landsins, en margir þeirra hafa að und- anförnu notað uppruna sinn sem tæki í baráttunni fyrir aulknum völdum og alið með Framhald á hls. 14 Þá hefur framhaldsskóla- 'stigið og þröskuldurinn ó- nauðsynlegi, landsprófið, ver- ið til rækilegrar umræðu og drepið á barniaskólastigið. Þar er margt enn ógert. Ekkert hús stendur til lengdar, án góðrar undirstöðu. í barna- og uinglingastiginu er margt sem til bóta horfir. Nú er að snúa sér að því, ásamt öðrum þáttum fræðslu kerfisins t.d. stöðu Kennara- skólans í framtíðinni. Ef ætl- unin er, sem er tvímælalaust rétt stefna, að breyta honum í kennaraháskó'la, er nauð- synlegt að gera sér glögga grein fyrir framtíðarhlut- verki hans, og starfs'skiptingu nýs kennarahásikóla og Kenn- araskólans, eins og honurn verður markaður bás. Ekki má breytimg Kennaraskólans í kennaraháskóla verða til þess, að þrengja aftur náms- brautimar, gera landsprófið aftur að óþarfa hrndrun til góðrar menntunar. Sú stað- reynd, að gagnfræðaprófið hefur nægt inn í Kennara- skólann hefur ekki eingöngu orðið til að yfirfylla hann, heldur hefur þessi glæta, í annars úreltu skólakerfi, orð- ið mörgum efnilegum ungl- ingum hvatning til að afia sér meiri og betri menntunar. Það getur varla orðið þjóðfé- laginu til falls, þegar fram í sækir! En allt verður þetta vænt- amlega athugað niánar og í réttu samhengi í álitsgerð nefndar þeirrar, sem nú end- urskoðar fræðslulögin. Ekki er ástæða til annars en ætla, að sú nefnd hafi víða sjón til allra átta í skólakerfinu, og takist að benda á leiðir til að losa það úr þeirri sjálfheldu, sem það hefur verið í. Er þess að vænta að ný fræðslulög verði sett hið fyrsta, þar sem víðsýni ríkir og nútímaleg af- staða; þar sem í senn verði 'lögð áherzla á opnari niáms- 'leiðir og meira samræmi milli einstakra námsstiga. Tillögur námsbrautanefndar og við- brögð ríkisstjórmarinnar við þeim lofa góðu um farsæla lauisn þessa máls, sem er eitt hið miki'lvægasta hér sem annars staðar nú um stundir. Og landsmenn allir munu fylgjast rækilega með þróun þess. FURÐULEG YFIRLÝSING ¥ Ttanríkisráðherra Svía, ^ Torsten Nilsson, lýsti því yfir í Mbl. í gær, að at- burðirnir í Tékkóslóvakíu væru innanríkismál. Þetta er furðuleg yfirlýsing, sem full ástæða er til að utanríkisráð- herra Svía skýri betur. Hvern ig er hægt að líta á hernaðar- lega árás 5 ríkja á sjötta rík- ið sem innanríkisimál. Með þessum ummælum segir Tor- sten Nilsson í raun og veru ekki annað en að það væri innanríkismál Svía ef eitt- hvert stórveldanna réðist á þá. Ef svo óskiljanleg við- horf mó'ta stefn'U Svíþjóðar í utanríkismálum eiga íslend- ingar litla samleið með Sví- um í þeim málum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.