Morgunblaðið - 15.10.1969, Síða 4
4
MORGUNIBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR lö. OKTÓBER 1060
wfBUffBIH
BILALEIGÁ
HVEIIFISGÖTU 103
VW SendtferðabifráÖ-WH 5 manna-VW svefnvagn
VW 9mamra-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sím/14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
MAGIMÚSAR
4KIP«OtTl21 sima«21I90
eftír lokun »lml 40381
Brota-jórn
og
brota-mdlmor
kaupum við hæsta verði.
Borgartúni.
að BEZT
er að
auglýsa í
Morgunblaðinu
0 Borgfirzkt áttaskyn
og nútíðarsögn"
Fyrir nokkru var rætt við
Helga Haraldsson bónda á Hrafn
kelsstöðum í sjónvarpsþætti. Þar
lýsti hann m.a. þeirri skoðun
sinni, að Snorri Sturluson væri
höfundur Njáls sögu. Þessari
skoðun til stuðnings nefndi hann
m.a. áttatáknanir og sögn í nútíð.
Tveimur dögum síðar birtist
þriggja dálka frétt á baksíðu
Tímans með fyrirsögninni: „Borg
firzkt áttaskyn og nútíðarsögn
benda á höfund Njáhi“. Er x frétt
inni vitnað til sjónvarpsviðtals-
ins við Helga og segir m.a. á
þessa leið:
„Helgi kvaðst byggja skoðun
sína td. á áttamiðunum Njáluhöf-
undar. í Njálu segir: „vestur í
Dali, austur á Rangárvelli, suður
í Engey og Laugarnes." Þessar
línur skerast vitanlega í Borgar-
firði, sagði Helgi. Nefndi hann
einnig dæmi um eftirleitir og
nákvæma staðháttalýsingu, sem
enginn n,ema maður I Borgar-
firði hefði getað skrifað.
Þá benti Helgi á, að því hefði
verið slegið föstu, að Njála hefði
verið skrifuð eftir daga Snorra.
Vitnaði Helgi til ættartölu úr
Njálu til að hrekja það mál. Var
hér um að ræða ættartölu Sæmund
ar fróða. Þar segir: Valgarður
grái og Úlfur örgoði. Úlfur ör-
goði var faðir Svarts, faðir Loð-
mundar, faðir Sigfúsar föður Sæ-
mundar fróða. Síðan segir: „En
frá Valgarði gráa er Kolbeinn
ungi.“
Síðan sagði Helgi. Þarná segi
ég að standi skýrum stöfum í
NjáJu að Snorri hafi skrifað
hana. Þessa setningu hefur eng-
inn sett þarna nema Snorri
Sturluson. Þegar hann er að
skrifa Njálu er hann í málaferl-
um við Kolbein unga út af arf-
inum eftir Hallberu, en Kolbeinn
ungi var tengdasonur Snorra. Er
rétt lýst gráglettni Snorra að
skjóta því inn í Njálu, að Kol-
beinn ungi væri kominn af Val-
garði gráa, þvi það er svívirð-
ing á Kolbein. Og skiptir líka
miklu sögnin: KOLBEINN ER.“
Q Gersamlega haldlaus
rök
Þannig segir m.a. í Tímafrétt-
inni um þessa uppgötvun á höf-
undi Njálu. Fleira drap höfund-
ur á I þættinum þessu máli til
stuðnings, en þau rök voru tæp-
ast veigameiri en þessi. Rann-
sóknir fræðimanna á Njáls sögu
rakti Helgi ekki, nema hvað
hann vék aðeins að skoðunum
Barða Guðmundssonar.
Þegar nánar er hugað að þess-
um rökum, sýnir það sig að þau
eru gersamlega haldlaus og
meira en það. Um Njáluhöíund
er vitað, að hann hefur stuðzt
við mergð heimilda, er hann
samdi sögu sína og úr einni
slíkri heimild gat hann haft hár-
nákvæmar lýsingar á því hvern-
ig skipað er í leitir á hvaða af-
rétt sem vera skal á landinu. Auk
þess gat hann með viðtöium við
menn úr öðrum byggðarlögum
aflað sér nákvæmra staðfræði-
legra þekkinga um hvaða lands-
lag sem var. Áttatáknanir og
landslagslýsingar skera því
aldrei úr um höfund, enda þótt
slíkt geti verið öðrum upplýs-
ingum til stuðnings, þegar kann-
að er, hver kunni að vera höf-
undur ákveðins verks.
0 Er Þorbjörn höfundur
Njálu?
Hitt atriðið, að nútíðarsögnin
um Kolbein hafi eitthvert sönn-
unargildi er í raun og veru jafn
fráleitt. Þar gæti allt eins verið
um að ræða stirðnað form úr
eldra handriti, sem höfundur
Njálu hefði af vangá sett í sína
bók athugasemdalaust. Að full-
yrða að Snorri sé höfundur
Njálu með þessum röksemdxxm er
þvi út í bláinn og minnir á, er
gamansamur maður sló því fram,
að höfundur Njálu hefði heitið
Þorbjörn. Hann rökstuddi mál
sitrt með eftirfarandi orðum Njáls
sögu, en þar segir á þessa leið:
„Lýsingarváttar Marðar gingu
þá at dómi og kváðu svá at orði,
at annarr talði vætti fram, en
báðir guldu samkvæði, at —
Mörðr nefndi Þórodd í vætti, en
annan mik, en ek heiti Þor-
björn“ ... “
Samkvæmt þessum orðum varp
aði áðumefndur maður þvi fram
í gamni, að höfundur Njálu héti
Þorbjöm. Og vissulega hafði
hann ekki minna til síns máls
en Helgi á Hrafnkelsstöðum með
Snörra og öllu meira.
0 Hvenær Njála er rituð
Hitt er svo annað mál, að
Njáls saga hefur verið ítarlega
rannsökuð af mönnum, sem til
þess eru sérstaklaga færir. Að öll
um öðrum ólöstuðum mun hik-
iaust mega telja prófessor Einar
Ól. Sveinsson fremstan í flokki
Njáluskýrenda. í formála fyrir
sögunni í flokki íslenzkra forn-
rita kemst hann þannig að orði,
er hann hefur fjallað um ritald-
ur hennar:
„Niðurstaða þessa kafla er sú,
að sagan sé vissulega frá síðari
hluta 13. aldar. Handritin mæla
móti því, að hún sé öllu yngri
en frá 1285. Mannanöfn og rit-
tengsl mæla með því að hún sé
ekki rituð fyrr en eftir lok þjóð
veldisins. Svo framarlega sem
skilningur minn (og annarra) á
lögfræðinni er réttur, er sagan
yngri en útkoma Járnsíðu (1271),
og helzt hefðu þau lög átt að
hafa verið hér í gildi nokkur ár.
Nú mætti vera, að söguritarinn
hefði ekki Lagt fræðilega stund á
þjóðveldislögin, meðan þau giltu
en hefði síðan fengið einhver
kynni af Járnsíðulögunum. Þá
fer hann að reyna að setja sig
inn í Grágás um leið og hann
skrifar söguna, en nám hans er
komið allt of skammt, og verður
lögfræði hans því gölluð, og inn
í blandast ýmislegt frá samtíðinni,
sem er honum kunnara. Með
þessu virðist mér mega skýra
þetta mál. En þá væri eðlilegast
að hugsa sér, að ekki væri byrjað
að skrifa söguna löngu fyrir
1280."
Laus staða
Staða yfírlæknis við Elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang er laus
til umsóknar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni upplýsingar um
námsferil og fyrri störf. Ráðgert er að staðan verði veitt
frá 1. janúar 1970. Umsóknarfrestur er til 22. október n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Vélstjórar Akureyri og nágrenni
Vélstjórafélag íslands heldur fund fimmtudaginn 16. þ.m.
kl. 21 að Hótel Varðborg.
Mjög áríðandi félagsmál á dagskrá.
Vélstjórar fjölmennið.
STJÓRNIIM.
Söngtólk
Kór Hafnarfjarðarkirkju óskar eftir nokkrum góðum söngrödd-
um. Upplýsingar gefur formaður kórsins Haraldur Sigurjóns-
son kaupmaður Hverfisgötu 45. sími 50545 og Organleikari
kirkjunnar, símar 50914 og 52704.
Frá Háskóla Islands
ARLEG SKRÁNING allra stúdenta Háskólans fer fram frá
16. til 23. október n.k. Skráningin nær til allra stúdenta Há-
skólans, annarra en þeirra, sem voru skrásettir sem nýstú-
dentar á s.l. sumri. Við skráningu skulu stúdentar afhenda
stúdentaskirteini frá síðasta ári, svo og Ijósmynd, að stærð
35 x 45 mm. Skráningargjald er kr. 1000.—.
Vymura vinyl-veggfóður
ÞOLIR ALLAN ÞVOTT
UTAVER Grensásvegi 22-24
SÍmÍ 30280-32262