Morgunblaðið - 22.11.1969, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓV. 1069
Til fundarins í Arbæjarhverfi komu um 80 Sjálfstæðismenn. Myndin sýnir
hluta fundargesta.
Frá stofnfundi Hverfasamtaka Sjálfstæðismanna í Breiðholtshverfi.
Yfirlitsmynd af stofnfundinum
í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Geir Hallgrimsson I ræðustól. en honum á hægri hönd situr fundarstjórinn Aðalsteinn Guðjohnsen og á
vinstri hönd Svavar Gests. sem gegndi fundarritarastörfum. (Myndir Mbl.: Kr. Ben.)
Á fundunum hefur m. a. farið fram kjör í stjómir samtakanna og sést
hér frá atkvæðatalningu.
1300 stofnendur 8 hverfasamtaka
SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykjavík hafa nú stofnað
8 hverfasamtök í hinum ýmsu hverfum borgarinn-
ar og eru stofnendur þeirra um 1300 talsins. Nú er
eftir að stofna tvö hverfasamtök og verða stofn-
fundir þeirra um næstu helgi, á laugardag í Laug-
arneshverfi og sunnudag í Háaleitishverfi.
Á fimmtudagskvöld í síðustu viku voru stofnuð
hverfasamtök Sjálfstæðismanna í Breiðholtshverfi.
Voru um 60 manns á þeim fundi. Fundarstjóri var
Magnús L. Sveinsson en fundarritari Magnús Ein-
arsson. í stjóm voru kjömir Ólafur V. Guðmunds-
son, Óskar Friðriksson og Sigurður Ágúst Jensson,
en í varastjórn Birna Brynleifsdóttir og Jón Rúnar
Ragnarsson.
Sl. laugardag voru svo stofnuð hverfasamtök í
Árbæjarhverfi og voru stofnendur um 80. Fund-
arstjóri var Jón Hnefill Aðalsteinsson, en fundar-
ritari Margrét Einarsdóttir. í stjórn voru kosnir
Árni Magnússon, Margrét Einarsdóttir og Skúli
Möller. í varastjóm voru kjörnir Jón Ásgeirsson og
Hörður Felixson.
Á sunnudaginn var stofnuðu um 200 stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins hverfasamtök í Smá-
ibúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Fundarstjóri
var Aðalsteinn Guðjohnsen, en fundarritari Svavar
Gests. í stjórn voru kjörnir Gísli Jóhannsson, Arn-
finnur Jónsson og Eysteinn Helgason. í varastjórn
Jarþrúður Maack og Ottó Októsson.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, hefur ávarpað
alla stofnfundina, en einnig hafa þeir Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jóhann
Hafstein, varaformaður flokksins, flutt stutt ávörp.
Allir hafa þessir menn svarað fyrirspurnum á fund-
unum ásamt borgarfulltrúum og alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Fundarstjóri á Arbæjarfundinum var Jón Hnefill Aðalsteinsson. kennari
og fundarritari frú Margrét Einarsdóttir. A myndinni er einnig Hörður
Einarsson, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna.
Bomar fram fyrirspumir.
Atkvæði talin af krafti á fundi Sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi.