Alþýðublaðið - 05.06.1930, Blaðsíða 2
fl
▲ fiðHft ÐHaHAðlB
Opið bréf
til frú Guðrúnar Lárusdóttur.
Kæra frú!
í dag fékk ég bréf frá aldr-
aðri alpýðukonu austur á Eyrar-
bakka. Þessi kona er góðum gáf-
um gædd, og átti ég oft í deil-
um við hana, er ég var í æsku
heima. Sumt af því, sem hún
deildi við mig um, hefi ég lært
að skílja á aÖra lund en þá, er
ég var kornungur, og svo er
einnig um gömlu konuna. Það
hefir jafnast á milli okkar. Lífs-
reynsla mín,. þött stutt sé, hefir
sýnt mér ýmislegt í öðru ljósi en
ég sá það áður, og framrás tím-
ans og byltingarót nýrrar menn-
ingar hefir felt í rústir margt
það, sem gamla konan áleit ó-
bifanleg sannindi fyrir 10 árum,
já, jafnvel 5 árum.
Ga'mla konan er heit-trúuð og
minnist ég þess, að þegar ég var
á fermingaraldri, benti hún mér
á ýmsa sálma í sálmabókinni og
bað mig læra. Fermingargjöf
hennar til mín var líka sálma-
bók. — En gamla konan hefir alt
af, þrátt fyrir trúar-innileik sinn,
verið hörð í skapi þegar henni
finst lítilmagni órétti beittur, og
því er hún og hefir ávalt verið
jafnaðarkona. Var hún og einnig
sú fyrsta manneskja, sem benti
mér á það, að Kristur var al-
þýðumaður, en ekki yfirstéttar-
maður, að hann var öreigavinur,
en ekki auðvaldsþjónn.
Gamla alþýðukonan austur á
Eyrarbakka er mjög reið í bréfi
sínu til mín. Hún segir, að þér
hafið komið þangað austur og
haldið fyrirlestur í kirkjunni, að í
kirkjuna hafi forkólfar íhalds-
flokksins á Eyrarbakka smalað
„íhaldsfólki", eins og hún kemst
að orði, og að eftir hina svo-
nefndu „guðsþjónustu“ yðar, en
það nafn munu umboðsmenn í-
haldsflokksins hafa gefið fyrir-
iestri yðar, hafi afturhaldskonur
þorpsins haldið kaffigildi yður
tll heiðurs og dásemdar. Og
gamla konan bætir við: „Hún
kemur hingað á þeim tíma, þegar
stjórnmáladeilurnar standa sem
hæst. Hún er i framboði af hálfu
þess flokks, sem þyngst liggur á
herðum fátækra manna. hér
eystra, eins og annars staðar á
landinu. Hvi kemur hún hingað
einmitt nú? Er það af umhyggju
fyrir veáalings heiðingjunum í
Kína? Nei. Hún kemur hingað
til þess að flytja fátækri alþýðu
falsboð alþýðuböðlanna í ''Reykja-
vik, sem vilja aftur fá stjórnar-
taumana í sínar hendur. Já, hún
kemur hingað í kufli kristninnar
til þess að hafa áhrif á deilurn-
ar, sem nú geisa, en undir kufl-
inum hylur hún kutann, sem á
að sundra samtakakeðju fátækra
manna, frelsisþrá þeirra og sjálf-
stæðisviðleitni. Mér ofbýður
hræsnin, því að hún hlýtur að
vita, til hvers verið er að nota
hana. Og nú finst mér eins og
Guðrún Lárusdóttir sé ein af .
þeim, sem gleði myndi verða yfir
á himnum ef hún bætti ráð sitt,
eins og þú sagðir einu sinni um
prestinn okkar. .
Þetta nægir til að sýna hug
gömlu trúuðu konunnar austur á
Eyrarbakka til yðar. En það eru
fleiri en hún, sem framkoma yðar
hefir reitt til reiði. Það eru líka
til alþýðukonur austur í Hrepp-
um, í Vestmannaeyjum, í Garð-
inum og víðar þar, sem þér haf-
ið istigið í predikunarstólinn í
umboði Jóns Þorlákssonar og
Eggerts Claessens.
Ég skrifa yður bréf þetta, frú
mín góð, végna þess, að ég á
svo bágt með að sætta mig við
þá hugsun, að þér vitið, hvað
þér eruð að gera. Mig langar til
að fá það svart á hvitu frá yður
í opinberu blaði.
„Ég vil alls ekki vera ó-
svífinn við yður, því að til þess
hefi ég enga ástæðu, en mig
langar þó til að spyrja yður
nokkurra spurninga, sem ég óska
að þér svarið.
Hvort ferðist þér nú um sveitir
og þorp í þeim tilgangi að vinna
auðvaldsflokknum héf í Reykja-
vík fylgi eða til þess að safna
fé til heiðingjatrúboðsins í Kína?
Ef þér ferðist til heilla heið-
ingjatrúboðsins, stendur yður þá
á sama með hyaða meðulum þér
komið kristninni á?
Og því spyr ég yður: Hvort er
það auðvaldsflokkurinn, sem
greiðir ferðakostnað yðar, eða
trúboðsfélögin?
Hvers vegna haldið þér að
auðvaldið hér í Reykjavík hafi
boðið yður annað sætið á lista
sínum?
Haldið þér, að það hafi gert
það af einskærri umhyggju fyrir
áhugamáíum yðar, kristniboðinu
ií Kíná og afkomu Bjarma?
Haldið þér ekki að yður hafi
verið boðið sætið vegna þess, að
þér eruð þektar sem trúuð mann-
eskja og auðvaldið hélt að það
gæti veitt atkvæði á yður, ef þér
yrðúð agnið á önglinum?
Hvað haldið þér að þér gætuð
gert í Ihaldsflokknum til að efla
kristnina i landinu og kristilega
meðferð á fátækri alþýðu?
Hvað haldið þér að þér gætuð
gert til að íhaldið færi að berj-
ast fyrir marsiúðarmálum þeim,
sem alþýðan ber fram, en auð-
valdið berst -gegn ?
Getið þér fengið afnuminn
sveitarflutning? — Þér þekkið
verk íhaldsins!
Getið þér afnumið berklaibúð-
irnar hér í Reykjavík, sem skoð-
anabræður yðar leigja okurleigu?
Getið þér fengið íhaldið til að
hækka barnsmeðlögin úr 270 kr.
á ári, svo að ómálga börn þurfi
ekki enn að fæðast í þennan
krjstmi heim til hélvízkrar líð-
unar ?
Getið þér knúð íhaldið til að
vera með almannatryggingum,
svo að örorka gamalmenni, sem
slitið hafa kröftum sínum í jrágu
þessarar kristnu þjóðar, þurfi
ekki að svelta heilu hungri, mæð-
ur þurfi ekki að örmagnast úr
áhyggjum og sorg, þegar drott-
inn hefir krafið heimilin um einu
stoðina, og vinnuþrællinn þurfi
ekki að svelta í kulda þá daga,
sem ekkert er að gera í þessu
ríka landi ?
Getið þér fengið íhaldið til að
vera með í því að knýja stjórn-
ina til að hækka kaup vegavinnu-
og brúargerða-manna, sem vinna
verkin, sem Tíminn er alt af að
skrifa um að séu farin að tala?
Viljið þér ábyrgjast, að íhalds-
flokkurinn verði með styttingu
vinnutíma á togurum?
Viljið þér'ábyrgjast, að íhalds-
flokkurinn verði með afnámi
barnaþrælkunar, skólagjaldanna
o. s. frv.?
Ef til vill hafið þér sett aftur-
haldinu skilyrði þegar þér leyfð-
uð að draga yðar kristna kufl
að hún á flaggstöng auðvaldsins,
og ef svo er: Hver og hvar eru
skilyrðin ?
Hvað er það í starfsemi auð-
valdsflokksins, sem þér getið
samrýmt kristilegu framferði? —
Hvað er það? Ég spyr yður: Eru
það kosningasvikin í Hnífsdal?
Er það ríkislögreglubarátta þess?
Er það bæjarfógetamálið? Er það
gjöfin úr Thorkilliisjóðnum? Er
það sjóðþurðin í Brunabótafélag-
inu, sem íhaldsstjórnin vissi um?
Er það barátta þess gegn stytt-
ingu vinnutímans?; Er það and-
spyrna þess gegn afnámi réttar-
missis vegna sveitarstyrks, af-
námi sveitarflutnings o. s. frv.?
Er það baráttá þess gegn rétt-
látri kjördæmaskipun ? Er það
löggilding Magnúsar Krossaness-
ráðherra á sviknum mælikerum?
Er það Skildinganessmálið? Er
það andspyrna auðvaldsins gegn
öllum framfara-, mannúðar-, rétt-
lætis- og menningar-málum okk-
ar litlu þjóðar? — Hvað er það?
Ég spyr yður, sem auðvaldiÖ hef-
ir sett upp í Morgunblaðsglugg-
ana og predikunarstólana og
sagt: Lítið á! Þessi kristna sál
er okkar sál! Þetta góðmannlega
andlit er okkar innri maður! Ég
spyr yður.
Þér verðið að skilja það, frú
mín góð, að við lifum á alvöru-
tímum. Öllu gömlu, sem ekki
dugar, er kastað burtu. Fólkið
vex upp úr fortíðinni. Það berst
áfram áfanga af áfanga, áfram
mót meiri fulfkomnun, meiri
mannúð, menningu og þroska.
Þér verðiþ að skilja það, að á
slíkum tímum verða oft hörð á-
tök milli hinna dauðu afla og
nýju aflanna. Mannfélagslíkaminn
verður að losa sig við eiturefnin.
Og eiturefnin þekkjum við. —
Þér eruð í flokki afturhalds-
manna, dauðu aflanna. Eruð þér
bölsýnar? Er það virkilega svo,
að þér sættið yður til lengdar
betur við bölsýni íhaldsmanna en
bjartsýni jafnaðarmanna ? Eða
trúið þér því ekki, að jafnaðar-
menn séu bjartsýnir? Þeir trúa
því, að mönnunum sé fátt ómátt-
ugt, bara ef þeir læra að skilja
þarfir hver annars. Að minsta
kosti ætti þeim að takast að ‘
korna sér saman í þessi 60—80
ár, sem þeir lifa hér á þessari
jarðarkúlu. Þeim ætti að takast
það. En þeim hefir ekki tekist
það vegna þess, að flokksbræður
yðar hafa æst til ófriðar og
blóðsúthellinga í hvert skifti, sem
þá vantaði markaði fyrir afurðir.
þær, sem kreftar vinnuhendur ör-
eiga-verkamanna, -kvenna og
-barna sköpuðu í kolsvörtum
verksmiðjum þeirra.
Þér verðið að athuga það, frú,
að reiði gömlu trúuðu konunnar
á Eyrarbakka gegn yður er rétt-
lát, vegna þess, að:
Stjórnmálabarátta alpýdunnar
er henni naudsyn, sem sprottin
er af neyd og áhyggjum. Bar-
áttan er afkvœmi pess pjódskipu-
lags, sem pér hafid lánað yður.
til að verja. Þess vegna berst al-
þýðan sleitulaust. þar til réttur-
inn hefir sigrað, hvað svo sem
auðvaldið gerir til að villa á sér
heimildir, hvaðan svo sem flugu-
menn koma, — því að þér þekkið
það, að þótt kirkjunni og auð-
valdinu hafi tekist að láta Gali-
lei afneita kenningum sínum um
að jörðin snérist um sólina, þótt
þeim hafi tekist að brenna Sa-
vanorola, Jóhann Húss og Mich-
ael Servet, þá hefir þessurn tveim
öflum ekki tekist að drepa alla.
brautryðjendur og framfaramenn
mannkynsins.
Nú er vaxinn upp nýr braut-
ryðjandi, sem engurn tekst að
yfirstíga, jafnvel þótt talað værí
gegn honum af öllum predikun-
arstólum heimsins.
Þessi brautryðjandi er: afpýð-
an sjálf —, pví að alpýðan sjálf
er sinn eiginn brautryðjandi.
Viljið þér nú ekki fara að
hugsa um þessi mál?
4. júní.
Yðar einlægur
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson.
Flotamálasamningarinn.
Lundúnum, (UP), 5. júní FB0
Frá Washington er símað: Hoo-
ver Bandarikjaforseti hefir til-
kynt, að öldungadeild þjóðþings-
ins muni stáðfesta Lundúna-flota-
málasamninginn á yfirstandandi
Þingi- _____________
Þrælatökin.
Alþýðunnar bera bak
bognað getur tíðum
þegar íhalds-þrælatak
þrengir að báðum síðum.
Hafliði Nikulásson..