Alþýðublaðið - 05.06.1930, Side 3
ALÞtÐUBIí AÐIÐ
8
Skilningur lærðra manna.
Hér fara á eftir próf-spurn-
ingar og p róf-verkefn!i, í sögu Is-
lendinga og mannkynssögu handa
13 og 14 ára unglingum, sem eru
að taka próf inn í fyrstu deild
Reykjavíkur mentaskóla. —
Halda uppeldisfræðingar vorir,
að ungmenni þessi séu þegar orð-
in doktorsefni? —
1. Hvað hafa þjóðir hér í álfu
sérstaklega lært af Egiptum
hinum fornu?
2. Hver voru hin þjóðkunnustu
stórhýsi í Egiptalandi hinu
forna? Eru þau enn við lýði?
Og þá hvar í landinu?
3. Hver var víðátta Grikklands
í fornöld? Hver voru þá
helztu ríkin þar í landi og
hvert var skipulag þeirra?
4. Nefnið hið helzta, sem menta-
þjóðir vorra tima eiga að
þakka Heilenum.
5. Nefnið helztu goð Hellena og
þjóðhetjur og segið dálítið
deili á þeim.
6. Hverja atvinnuvegi lögðu
Hellenar einkum stund á?
Nefn nokkrar helztu nýlendur
þeirra í Evrópu og Litlu-
Asíu.
7. Skýr frá _starfsemi Sókratesar
í ættborg hans og skoðun
hans á goðum Hellena.
8. Skýr stuttlega frá herför
Alexanders mikla til Persa-
lands, um hver lönd hann
fór og hvernig herferðinni
lauk.
9. Stéttir manna í Róm, og
helztu embættismenn þar
eftir að lýðveldið komst á,
og skýr lítils háttar frá
störfum þeirra.
10. Skýr stuttlega frá viðureign
Rómverja við Miðjarðarhafs-
löndin og endalok hennar.
11. Borgarastyrjaldir í Róm á 1.
öld f. Kr. Foringjar þeirra
og endalok.
12. Keisarastjórn hefst í Róm.
Nefn nokkra hina helztu keis-
ara og stjórnarskrár þeirra.
13. Nefn helztu ríki og þjóðir í
Vesturevrópu um 600 e. Kr.
14. Grein stuttlega frá landvinn-
ingum Karls mikla, víðáttu
ríkisins og friðarstarfsemi
hans.
15. Kenning Móhameds og út-
breiðsla hennar.
16. Grein frá 2 helztu krossferð-
um og foringjum þeirra.
17. Víldng Norðurlandaþjóða.
18. Skýr stuttlega frá helztu
uppgötvunum og landafund-
um í lok miðalda.
19. Helztu trúarstyrjaldir hér í
álfu eftir siðasldftin.
20. Loðvík 14. Styrjaldir hans og
landsstjórn.
21. Gústaf Vasa Svíakonungur og
helztu niðjar hans.
22. Landvinningar og stjórn Pét-
urs mikla.
23. Styrjaldir og stjórn Friðriks
mikla.
24. Frelsisstrið Norðurameríku-
manna og úrslit þess.
25. Bændaánauðin í Danmörku
úr lögum numin. Afleiðingar
þess.
26. Skifting Póllands og viðreisn
þess á vorum dögum.
27. Tildrög stjómarbyltingarinn-
ar miklu.
28. Napóleon yfirkonsúll. Land-
vinningar hans þá og land-
• stjórn.
29. ítalía verður eitt ríki og
helztu rnenn, sem að því
unnu.
30. Grein frá helztu framförum
í eðlisfræði, náttúrufræði og
læknisfræði á öldinni sem
leið, og nöfnum þeirra
manna, sem mest kveður að
í þeim greinum.
31. Jón Sigurðsson á þjóðfund-
inum.
32. Verzlunareinokunin leidd í
lög á Islandi, afnumin að
nokkru leyti, afnumin til
fulls (hvar og hvenær).
33. Magnús Stephensen og bóka-
útgáfur hans.
34. Olfljótslög (Olfljótur). Al-
þingi sett á stofn (hvar og
hvenær).
35. íslendingar kristnaðir, og
helztu forgöngumenn þess.
36. Fyrstu íslenzkir biskupar og
biskupsstólar.
37. Erfðahylling og einveldi tek-
ið upp hér á landi. (Kópa-
vogsfundurinn.)
38. Stjórnarskráin 1874. (Þjóðhá-
tíðin 1874.)
39. Eggert Ólafsson og Bjarni
Pálsson. Ferðalög þeirra og
rannsöknir hér á landi.
40. Guðbrandur biskup Þorláks-
son.
(Þau börn, sem hafa lesið ls-
landssögu Jónasar Jónssonar, riti
úm þau verkefni, sem sett eru í
sviga, en þau, er lesið hafa ís-
landssögu Boga Melsted, riti um
svigalausu verkefnin.)
Vestnr-Shaftafellssfsla
og ibuar hennar.
Drög til lýsingar á ís-
lenzku þjóðlífi, mótuðu
af skaftfellskri náttúru,
sett fram af 40 fulltrúum
skaftfellskrar alþýðu. •—
Björn O. Björnsson bjó
undir prentun og gefur
út.
Bráðabirgðaávöxtur aiþýðu-
hreyfingar í Skaftafellssýslu, er
gengur út á það að lýsa útlífi
allrar alþýðu í sýslunni nú á
dögum og eins langt aftur í tím-
ann og menn muna. Bókfesta
þjóðlíf, sem er á hverfanda hveli
—' í þeim tilgangi, að þjóðin öðl-
ist meiri hug á að týna ekki
hollustuáhrifum þeim, sem hún
hefir átt við að búa af hendi
náttúru lands sins, þó að lífs-
formin breytist. Til þessa vilja
Skaftfellingar leggja frarn ómak,
50 asara. 50 anra.
Elephant-cinarettur.
Ljáffengar og kaldar. Fást aZls staðar
I heildsoln h|á
Tóbaksverzlan íslands L f.
Fornsalan
er flntt af Vatnsstig 3
i Aðalstræti 16, sími 1089.
Mfólkurbú
Flóamanna.
Útsala fyrir Vesturbæínn á Vesturgötu 17.
Smjör, Ostai, 3 teg., Rjómi, Nýmjólk, Sbyr, Áfir, Unðanrenning.
Kemur daglega nýtt á markaðinn.
Allskonar brauðvörur frá Björnsbakaríi.
Sendisveinn óskast nú þegar.
Mjólku'búðin Vesturgötu 17
SÍmi 864.
og þvi er komin svo að segja al-
menn hreyfing á í sýslunni um
að lýsa þjóðlífsatriðum þessum
eins og þau gerast þar í héraði.
Er það tíg trú forgöngumann-
anna, að með þessu móti verði
lagður ómissanlegur hluti af
grunninum undir vísindalega
rannsókn á * íslenzkri þjóð og
sambandi hennar við land sitt.
Alþingishátíðina nota Skaftfell-
ingar sem tilefni til að gera al-
þjóð heyrinkunnugt þetta mál-
efni, sem sprottið hefir upp í
skauti skaftfellskrar alþýðu. Ham-
ingjuóskir sínar til þjóðarinnar
innibinda þeir í bókinni, sem þeir
hafa skrifað á nóttunni eftir að
vorannir hófust. Þeim þykir. að
vísu leiðara að verða að gera
ráð fyrir, að ritgerðirnar og ann-
ar undirbúningur bókarinnar und-
ir prentun sé ekki eins vandaður
og verið liefði, ef þeim hefði fyr
í hug komið að gefa út hátíðar-
rit sitt. En þeir vona, að þetta
megi á hægara veg virða vegna
þess, að fyrir viðbragðsflýti
þeirra og trú beri þeir giftu til
að benda þjóð sinni á nýja og
heilladrjúga leið til aukinnar
þekkingar á sjálfri sér og landi <
sínu — á hátíðlegum tímamótum.
Þó að Skaftfellingai- í heild
standi bak við bókina, hefir það
orðið að innbyrðis samkomulagi
með þeim, að einn þeirra gefi
bókina út, nfl. höfundur hreyfing-
arinnar, sr. Björn 0. Björnsson
í Ásum í Skaftártungu. Hefir
hann í ekkert horft til þess að
frágangur ritsins verði í smáu
sem stóru hátiðlegur, enda notið
til þess mikillar greiðvikni Isa-
foldarprentsmiðju, er préntar
bókina, og ljósmyndara. Myndir
verða um 70, yfirleitt störar,
sumar á héilsíðu. Kápuna hefir
Kjarval teiknað af mikilli alúð;
er hann Skaftfellingur að ætt og
fæðingu. Einnig er a titilblaði
kápunnar litprentað skjaldarmerki
Skaftafellssýslu, eins og þeir
Kjarval og sr. Björn hafa hugsað
sér það.
Verði ágóði af sölu bókarinnar
gengur álitlegur hluti hans, eftir
þ\d hversu selst, til þess aö
lækka verð aðalritsins, sem að
forfallalausu er væntanlegt innan
tveggja ára og vonast er til að
verði alpýðubók, heppileg til að
lesa (en ekki læra) í skólum.
Bókin verður til sölu á Þing-
völlum á hátíðinni, verði hún
komin út þá. Annars verður tek-
ið á móti áskriftum á Þingvöllum
1 um hátíðarleytið. Effir það verð-
ur hún seld í skrifstofu ísafold-
arprentsmiðju og ekki annars
staðar í Rvík. Til sölu verða 500
eintök afls. S.