Morgunblaðið - 03.03.1970, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1'970
11
Mannskaðagil íslenzkrar
háskólamenni ngar
Þau furðulegu tíðindi hafa bor
izt frá Háskóla íslands, að 80%
stúdenta, sem gengu undir upp-
hafspróf í læknadeild (vefja-
fræði og efnafræði) í janúar sl.
(8. og 30, jan. 1970 hafi verið
felldir, — 19 af 24 dæmdir óhæf
ir til læknisfræðináms.
(Til eru mörg mannskaðagil á
íslandi, sem sagt er að einmitt
19 manns hafi hrapað í!).
Þetta unga fólk hafði hingað
til ekki setið í tossabekk, það
hafði yfirleitt glæsilegan náms-
feril að baki, allt frá unglinga-
prófi, landsprófi upp í stúdents
próf, sem sé úrval og námshæfni
þess marg viðurkennd, það er
yfirleitt útskrifað með ágætum
stúdentsprófum, jafnvel dúx er í
þessum hópi.
Stúdentar hafa skýrt nokkuð
frá tilhögun prófanna og mót-
mælt þeim vinnubrögðum, sem
þar voru viðihöfð, jafnt þeir sem
náðarinnar nutu og komust í
gegn og hinir, sem felldir voru.
Alls skrifa 22 undir mótmælin.
Sýnir það manndóm og dreng-
skap þeirra, sem náðu prófinu,
að standa með skólasystkinum sín
um í þessari eldraun, en stundum
hættir mönnum til að draga sig
í hlé, þegar eigin skinni er borg
ið. Ekki efa ég að mótmæli stúd
entanna séu á rökum reist.
Það er alvarlegur hlutur að
vera hrakinn frá námi til þess
ævistarfs sem maður hefur valið
sér í fullri alvöru, eflaust að vel
athuguðu málL Flestir velja það
aðeins einu sinni sjálfviljugir,
enda aðeins ein ævi til ráðstöf-
unar. Það er andleg misþyrming
að vera neyddur til að hætta við
Aðstoðarmaður
Viljum ráða aðstoðarmann á alidýrabú okkar Minni-Vatnsleysu.
Nýtízku íbúð fylgir, gott fyrir kvæntan mann.
Upplýsingar hjá bústjóranum á staðnum, eða Þoryaldi Guð-
mundssyni, Síld & Fisk.
íbúðir i smíðum —
óven/u hagstœð kjör
Höfum fengið í sölu 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir við Hjallabraut.
Ibúðirnar seljast tiibúnar undir tréverk og málningu, sameign
innanhúss fullfrágengin, teppalagðir stigar og hurð inn í íbúð-
ina. Lóðinni verður skilað frágenginni samkv. skilmálum fyrir
fjölbýlishús frá bæjaryfirvöldum.
Heildarverð íbúðanna er sem hér segir:
2ja herbergja kr. 760.000,00
3ja herbergja kr. 890.000,00
4ra herbergja kr. 995.000,00
Af heildarkaupverði þarf kaupandi aðeins að greiða frá sjálfum
sér í peningum, sem hér segir:
af 2ja herbergja íbúð kr. 155.000,00
af 3ja herbergja íbúð kr. 245.000,00
af 4ra herbergja íbúð kr. 330.000,00
og þarf kaupandi aðeins að greiða af því kr. 75 til 150 þúsund
við undirskrift kaupsamnings, eftir því hvaða stærð af íbúð hann
velur sér. Seljandi bíður eftir væntanlegu láni, sem kaupandi
mun fá út á íbúðina frá Húsnæðismálastjórn (veðd. Landsb.
Isl.) nú kr. 545.000,00) og eftirstöðvar lánar seljandi til 4ra ára.
Teikningar fyrirliggjandi á skrifstofunni og allar nánari upp-
lýsingar veitir.
EIGlNiASALAIM
REYKJAVÍK
Þórður G. Ilalldórsson
Símar 19540 og 19191
Ingólfsstræti 9.
sín helgu áíorm, mörg dæmi eru
til, að fólk bíði þess aldrei bæt-
ur. Hver ber ábyrgðina á því?
Einnig má ímynda sér undrun
og vonbrigði foreldra, vina og
annarra vandamanna, sem séð
hefur þetta æskufólk komast til
mikils þroska, styrkt það eftir
mætti og treyst því að það nyti
áfram góðrar handleiðslu hjá
lærimeisturunum, sem er trúað
fyrir því.
Og hefur nokkur reiknað út,
hvað hinn glataði námstími er bú
inn að kosta þetta fólk?
Þessi fallprósenta — 80%, er
svo óeðlileg og óvenjuleg, að
ekki er hægt að viðurkenna
hana rétta.
Það er því krafa vandamanna
þessara stúdenta og allra rétt-
sýnna manna, að yfirvöld
menntamála skipi nefnd óvil-
hallra, sérfróðra manna, sem
rannsaki og dæmi um, hvort
prófverkefnin hafi verið hæfi-
lega þung, miðað við þá kunn-
áttu, sém eðlileg er eftir þann
námstíma, sem er að baki, svo
og „pensúm“, og í öðru lagi,
hvort einkunnir hafi verið gefn-
ar af fullri sanngimi.
Einnig ætti að afnema tíma-
takmarkanir við nám, og í öðru
lagi það ákvæði, að endurtaka
þurfi próf, sem stúdentar hafa
við nám áður staðizt.
Það er nú varla lengur hulið,
hvað veldur læknaskorti á fs-
landi. Meðan Alþingismerin
brjóta heilann um, hvernig leysa
megi og bæta úr læknisleysinu
víða um land, keppast prófessor
ar við að fella stúdenta í lækna-
deild.
f athugasemd Steingríms Bald
urssonar efnafræðiprófessors við
grein læknastúdentanna 22,
birtri í blöðunum 28. febr. s.l.,
finnst ekkert rökstutt svar, sem
hnekkt geti nokkru atriði í
grein stúdentanna eða varpað
geti ljósi á hina furðulegu út-
komu prófanna. En það skal sá
góði maður vita, að væri hann
kennari við einhvem annan
skóla og 80% af nemendum hans
féllu þar á prófi í sérfagi hans,
þá væri slíkur starfsárangur
ekki talinn með felldu og myndi
vissulega verða tekinn til ræki-
legrar athugunar af yfirvöldum
skólans.
Eyrarbakka, 1. marz 1970
Einar Th. Guðmundsson
héraðslæknir.
/"
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
ll
II
II
II
II
II
II
II
II
u
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
v
Orð í tíma
toluð-íslma
17700
Það er á yðar óbyrgð að tryggja öryggi fjölskyld-
unnar. Gleymið því ekki og dragið ekki nauðsynleg-
ar róðstafanir á langinn. f einu símtali getið þér
fengið heimilistryggingu, líftryggingu, slysatrygg-
ingu og hvers konar tryggingu aðra sem yður er
nauðsyn ó. Gleymið ekki að hækka fyrri tryggingar
yðar til samræmis við breytt verðlag.
MENNAR TRYGGINGAR N
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SlMI 17700
w
w
©II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
II
HUNDRAÐ KRONUR A MÁNUDI
Fyrir EITT HUNDRAÐ KRÓNUR á nránuði seljum við
RITSAFN JÚNS TRAUSTA
8 bindi i svörtu skinnliki
Við undirskrift sarrmings greiðir kaupandi 1000 krónur. SÍÐAN 100 KRÖNUR Á MÁNUÐI
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Sími 15434