Morgunblaðið - 03.03.1970, Side 30
30
MORG-UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1OT0
Danir unnu ís-
lendinga 19:13
Voru harðari og ákveðnari
ÍSLENZKA liðið sýndi nú betri
leik en gegn Ungrverjum; voru
ákveðnari og voru leikfléttur
þeirra betur útfærðar þó að ekki
nægði það til sigurs. Stökkin
heppnuðust ekki sem skyldi.
Danimir voru betra liðið og
áttu sigurinn skilið, en marka-
munurin var óeðlilega mikill,
eftir gangi leiksins, tvö til þrjú
mörk hefðu verið sanni nær.
Gangur leiksins var sá, að Dan-
ir byrjuðu með boltann og þeg-
ar á 2. mín. skoraði Jörgen Pet-
ersen með snöggu skoti úr hægra
horainu og áttu fleiri slík eftir
að koma. Geir jafnaði fyrir fs-
land með fallegu skoti, en þá
skora Danir þrjú mörk í röð.
Vom þar að verki Graversen og
Heidemann tvívegis. Þá skoraði
Ólafur fallegt mark af línu og
staðan var 4-2. Graversen bætti
siðan stöðuna í 5-2, en eftir það
kom langur kafli í leiknum án
marka. f síðari hluta hálfleiks-
ins skoruðu svo fslendingar 4
mörk gegn 3 mörkum Dananna
og var þvi staða í hálfleik, 9-G.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR.
Á fyrstu minútu síðari hálf-
lieiks skoraði Graversen svo enn
fjrrir Dani, en síðan komn bezti
leikkafli fglendinganna í leikn-
um. Skeimmtileg leikflétta opn-
aði vöm Dananna og Viðar
brauzt inn á línuna og skoraði.
Dómaramir dæmdu hins vegar
vítakast, sem Jón Hjaltalín tók
og skoraði örugglega úr. í næsta
upphlaupi á eftir skoraði Geir
svo glæsilega gegnum þrönga
smugu, er hann fann á vöm
Dananna. Staðan var orðin 9-8
og allt virtist geta skeð. Á 11.
mínútu hálfleiksins fengu Dan-
ir svo vitakast, sem var mjög
strangur dómur og Graversen
skoraði úr en Ágúst svaraði strax
á eftir með marki úr glæsilegu
langskoti og var það eitt fall-
egasta mark lei'ksins. Þegar hér
var komið sögu var greánilegt
að öryggi Dananna íót þverr-
andi. Þeir tóku að skjóta úr lok
uðum fæmm og sendingar mis-
tókust illa, samt kom þó ekki að
sök fyrir þá, því að sama var
uppi á teningnum hjá íslending
um; fjórum sinnum höfðu þeir
tækifæri til að minnka muninn
í 1 mark og eitt sinn gafst opið
tækifæri. En allt mistókst. Á 15.
mínútu hálfleiksins skoraði svo
Petersen á svipaðan hátt og áð-
ur við mikinn fögnuð Dananna
og eftir þetta sigu Danimir svo
smátt og smátt fram úr og spurn
ingin var einungis orðin: Hversu
stórt þeir myndu sigra? Loka-
staðan var 19:13, sem var eins
og fyrr segir, óeðlilega mikill
markamuniur.
fslendingamir voru óheppnir,
eða réttara sagt óöruggir. AU-
mörg skot þeirra vom langt frá
markinu og önnur skot átti
hinn ágæti danski mark-
vörður auðvelt með að verja.
Eitt sinn lenti t. d. skot
Ingólfs í Ólafi Jónssyni á lín-
unmi, breytti stefn.unn i og fór
fram hjá. Þá fengi íslendimgam-
ir eiininig tvívegis á þessum tíma
dauðafæri, sem þeir misnotuðu.
Undir lokin er markamunwinn
fór að aukast aftur, virtust ís-
lendinigarair gripinár nokkri ör-
væmtimigtu og fóm að skjóta úr
lokuðum fæmm og missa bolt-
ain nokkmm sinnum klaufaleiga
til Damanna, sem náðu aftur sínu
létta og hraða spili og nær allt
virtist heppnast hjá þeim.
LIÐIN:
Á liðum íslands og Danmerk-
ur er stigsmunur, en ekki eðlis-
munur, eins og á liði íslands og
Ungverjalands. Danirnir hafa
það fram yfir okkur að þeir em
leikreyndari og harðari bæði í
sókn og vöm.
Danska liðið hefur átt mjög
misjafna leiki í vetur, en þjálf-
un þess hefur stefnt að því að
það nær sínu bezta í HM. Hins
vegar virðast þeir ekki mjög
bjartsýnir á áframhailöið og segja
að vel geti verið að þeir vinni
ekkii fleiri lei’ki í keppninni. Á-
berandi bezti maður þeirra í
þessum leik var Jörgen Peder-
sen, _sem við höfum stundum kall
að íslandsbana. Það var hann
einnig að þessu sinni. Með hraða
sínum og skotfimi setti hann
vörnina hvað eftir annað úr
jafnvægi. En skot hans
em ndkkuð einihæf og
ættu að vera viðráðanleg fyrir
markverði, sem til hans þekkja.
Hinir hávöxnu Jörgen Heie-
mann og Hans J. Graversen voru
einnig skeinuhættir og Danirn-
ir spiluðu þann leikinn að láta
þá skjóta. Þá varði markvörður
þeirra Kaj Jörgensen ágætlega.
Það virtist skorta því einhvem
herzlumun að íslenzka liðið væri
gott og sennilega það sem fyrr
segir að það vantar reynslu I
harðri keppni. Leikfléttur og
leikkerfi þess em mörg mjög
skemmtileg, en útfærsla nokkuð
þunglamaleg og svo virðist sem
leikmennirnir álíti nauðsynlegt
að skjóta þegar búið er að keyra
þau í gegn hitt ber þar á milli
með okkur og Dönum þar sem
þeir spila mjög hratt og öruggt
á milli sín, meðan þeir eru að
byggja upp að nýju og leikmenn
þeirra vom tmflaðir af ísl. vöm
inni eða að þeir gáfu ekki skot-
færi.
GEIR HALLSTEINSSON
BEZTUR
Geir Hallsteinsson átti beztan
leik allra íslendinga og fær mik-
ið hrós í frönskum blöðum, þó
er hann engan veginn eins góð-
ur og við höfum séð hann bezt-
Framhald á bls. 19
Hörð barátta undir körfu í leik ÍR og UMFN.
*
IR vann
UMFN 78:57
ÍR-INGAR áttu ekki í miklum | sem varð 44:27 í hálfleik, en loka
erfiðleikum með U.M.F.N. í 1. tölur urðu 78:57 fyrir ÍR.
deild íslandsmótsins í körfuknatt U.M.F.N. slkoraði fyrstu stig
leik. ÍR -ingar tóku strax forustu I leiksins og var Kjartan þar að
Enska deildarkeppnin;
Leeds eykur forystuna
— hefur 2 stig umfram Everton
— stórsigur Chelsea í Coventry
LEEDS UNITED fór létt með
Crystal Palace s.l. laugardag í
ensku 1. deildarkeppninni. Yorks-
hire-félagið vann, 2—0 og skoraði
Mick Jones bæði mörkin sitt í
vorum hálfleik. Leeds tók ekkert
á, og þurfti þess ekki heldur. Fé-
lagið á að leika mun þýðingar-
meiri Ipik annað kvöld gegn belg
ísku m'ísturunum Standard Liegé
í Evrópubikarnum.
Everton átti í mun meiri erfið-
leikum gegn Forest í Nottingham.
Leikurinn varð jafntefli, 1—1.
Fyrir Forest skoraði Ingram í
fyrri hálfleik, en Royle tókst að
jafna fyrir Everton í þeim síðari.
Chelsea fór til Coventry og sigr
aði mjög sannfærandi, 3—0. Mörk
in skoruðu Baldwin í fyrri hálf-
leik, en Webb og hinn 18 ára
Hudson í síðari hálfleik. Eftir sig-
urinn í Liverpool er Derby
County nú komið upp í 4. sæti í
deildinni. Framherjar Derbys,
Hennessey, McFarland og Mackay
voru lykilmennirnir að þessum
sigri. Skozki framkvæmdastjórinn
hjá Liverpool, Bill Shankly
„sparkaði" þremur löndum sínum
úr Anfield-liðinu fyrir laugardags
leikinn, þeim Lawrence í mark-
inu, miðverðinum Yeates og mið-
herjanum St. John, en allir þessir
leikmenn hafa átt fastan sess i
Liverpool-liðinu síðan 1962, þegar
að félagið komst upp úr 2. deild.
Liverpool tapaði, 0—2 og mörk
Derbys skoruðu Hennessey og
O’Hare í sitt hvorum hálfleikn-
um.
í Stoke mættust heimamenn og
Manchester United í skemmtileg-
um leik, sem lauk með jafntefli,
2—2. Skotmenn Manchester Utd.
voru sérstaklega hittnir í þessum
leik, en enski landsliðsamrkvörð
urinn Gordon Banks, varði „allt“
fyrir Stoke og sýndi enn einu
sinni að hann er bezti markvörð-
ur Englands. Sartori og Morgan
(vít.) skoruðu fyrir United, en
Smith og Burrows fyrir Stoke.
Pearce og Chivers skoruðu fyrir
Tottenham í Newcastle, en Mc-
Namee fyrir heimamenn.
Þó að Greaves komist ekki í
aðallið Tottenham, er hann ávallt
i fréttunum. Hann skoraði 3 mörk
með varaliði Tottenham gegn
Birmingham á laugardag. Manch.
City tók það heldur rólega gegn
Ipswich og vann á einu marki
skorað úr vítaspyrnu af Francis
Lee, í fyrri hálfleik. Manchester
City leikur til úrslita í deildar-
bikarkeppninni n.k. laugardag á
Wembley gegn West Bromwich
Albion, sem léku á heimavelli
gegn nágrannafélaginu Wolver-
hampton. Leikurinn, sem var æsi-
spennandi endaði með jafntefli,
3—3 og jafnaði Albion þrisvar
sinnum. Fyrir Úlfana skoraði
O’Grady og Curran 2, en Astle og
Suggett 2 fyrir Albion. Þessum
skemmtilega leik verður sjónvarp
að hér n.k. laugardag. Whitham
skoraði bæði mörk Sheffield
Wednesday gegn Bumley og er
þetta annar sigur Yorkshire-fé-
lagsins í röð og hefur það nú loks
ins komist af þotninum í 1. deild,
en þar hafa þeir verið síðan 25.
okt. s.l.
í 2. deild tapaði Huddersfield
nú fyrsta skipti síðan 13. des., en
það var Millwall, sem lagði Hudd
ersfield að velli, 1—0 í London.
Kitchener skoraði í síðari hálfl.
Strax eftir 2—0 skoraði Martin
úr vítaspyrnu fyrir Blackbum
Rovers, en Sheffield United lét
það ekki á sig fá og sigruðu, 2—1
í Blackburn. Fyrir Sheffield skor
uðu Woodward og Currie. Bridges
og Marsh með 2 mörk hvor,
negldu enn einn í „líkkistu"
Aston Villa í London, þar sem
Q.P.R. vann á heimavelli 4—2.
Fyrir Villa skoruðu Anderson
(vít.) og Chatterley.
í leik Luton gegn Brighton upp
hófust þvílík skrílslæti að annað
eins hefur ekki sézt í „bílaborg-
inni“ um dagana
ÚRSLIT í ensku deildaikeppn-
inni um síðustu helgi urðu sem
hér greinir:
Framhald á bls. 19
verki, en ÍR-ingar jöfnuðu strax
og tóku forystu. ÍR lék mjög góð
an sóknar'leik, og leikaðferðir
þedrra beppnuðuist oft alveg, enda
vörn U.M.F.N. ekki sem sterk-
ust. Eini leilkmaður U.M.F.N. sem
eitthvað kvað að var Barry, og
skoraði hann mikið í fyrri hálf
leik með sínum stórfallegu
stökkskotum, au(k þesis hirti
hann fjölda frákasta í vörninni.
— En ÍR-ingar breilkkuðu bilið
jafnt og þétt og í hálfleilk var
staðan 44-27, ÍR í hag.
í seinni hálfleilk notaði IR
skiptimenn sína óspart og var
leikurinn nú jafnari. ÍR-ingar
hafa nú endurheimt Sigmar
Karlsson, sem verið hefur erlend
is í vetur. — f seinni hálfleilk
gætti Sigmar Barrys mjög vel,
enda er Sigmar einn af okkar
sterkustu varnarmönnum. Leikn
um laiulk síðan með sigri ÍR,
78:57.
Liðin: f liði ÍR var nú Þor-
steinn beztur og er óðum að ná
sínu bezta. Vakti t.d. mikla at-
hygli hvemig hann blakaði bolt
anum ofan í körfuna hvað eftir
annað, eftir misheppnað skot
liðsins. Éiinnig áttu góðan leik
þeir Birgir, Sigmar, Kristinn,
Gunnar, Skúli og Tómas. — Agn
var mjög óheppinn með sdcot sín
í þessurn leik. Annars virðist lið-
ið í framför og verður gaman að
sjá það móti KR um næstu helgi.
U.M.F.N.: í liðinu var aðeins
einn leikmaður, Barry, sem lék
samkvæmt getu. Eru skot hans
og stíll mjög skemmtileg og hitt
inn er hann vel. Kjartan, Jón,
Hi.lmar og Brynjar eru leikimenn
sem allir geta meira. Liðið hef-
ur loikið leikjum sínum í mót-
inu og hlaut 6 stig. En staðan í
mótinu er þannig, að 3 eða 4
lið gætu orðið neðst með 6 stig.
Stigin: ÍR: Birgir 17, Þor-
steinn 15, Agnar 10, Jón 8, Krist
inn og Skúli 6 ihvor, aðrir minna.
U.M.F.N.: Barry 20, Jón 11,
Kjartan 9, Hiimar 8, aðrir
minna.
Ágætir dómarar í þessum ledk
voru Kristinn Stefánsson og Er-
lendur Eysteinsson.
G. K.