Morgunblaðið - 03.11.1970, Page 17

Morgunblaðið - 03.11.1970, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVBMBBR 1970 17 Frú Sigríður Stefánsdóttir frá Auðkúlu — Minning Fædd 27. nóvember 1903. Dáin 26. október 1970. Hún átti ei til neitt tál né fals hún trúði á dyggðir manna á frelsi og rétt í framsókn alls hins fagra, góða og sanna. Þessar ljóðlinur úr kunnu kvæði Einars Benediktssonar, — eftirmælum hans um frú Jar- þrúði Jónsdóttur, — vil ég gera að yfirskrift minningarorða um kæra frændkonu, frú Sigríði Stefánsdóttur. Finnst mér fara vel á því. Falslausu hjarta unni hún öllum sönnum framförum, með einlæga trú á hið góða í hverjum manni og hinu „sanna, fagra og góða“ gerði hún hærra undir höfði heldur en almennt er á þessum tímum tæknidýrkun arinnar og lífsþægindakeppninn ar. Hún var gædd mörgum þeim kostum, sem gera lifið bjart og farsælt. Hún var vel skapi far- in, átti létt með að blanda geði við flest fólk, kunni vel að um- gangast bæði háa og lága, sá aumur á þeim sem áttu bágt en gerði góðlátlegt gaman að hroka og hégómlegu stærilæti. Hún kunni vel að meta alla sanna og heilbrigða við'leitni til að bæta kjör lítilmagna og fegra lífið að sönnum umbótum. Ættir Sigríðar og æviferill verður rakinn hér af öðrum svo aö ekki gerist þörf að endur- taka það í fáeinum kveðju- og þakkarorðum. Uppvaxtarárin átti Sigriður á fæðingarstað sínum, Auðkúlu, hinu fríða prestssetri við Svína- vatn þar sem afi hennar, faðir og bróðir sátu siðastir presta og eiginmaður hennar tók við þjón ustu eftir að það var lagt niður sem prestakall. Við þennan fallega og farsæla stað voru þær mæðgur, frú Þóra og Sigríður tengdar órofa böndum. En starfs ævi sína dvaldi Sigríður á tveim stöðum, fyrst á Æsustöðum í Langadal í tæpan aldarfjórðung, síðan í Kópavogskaupstað frá 1952. Eftirminnileg verður mér jafn an fyrsta heimsókn mín að Æsu- stöðum, þetta glaðværa og gest- risna menningarheimili, sem prestshjónin, svo ólík sem þau voru, settu á sinn svip, hvort með sínu lagi en gesturinn naut í svo rikum mæli. Sömu sögu munu margir geta sagt um komu sína á þetta kunna prestssetur í þjóðbraut Norðurlands. Það er drjúgur hluti sannrar lífsgæfu að fá að kynnast slíku heimili og njóta þess, sem það leggur fram til uppbyggingar að far- sælu samfélagi fyrir sem flesta einstaklinga. Svo var skipt um svið — flutt I nýtt umhverfi gjörólikt því fyrra, annasamt embætti 1 nýju þéttbýli, ótal verkefni og vanda mál í ört vaxandi byggð blöstu við á hverjum degi. — Og heim- ili Sigriðar og sr. Gunnars tók stakkaskiptum hið ytra, börnin horfin, sum í störf og lífsstöður, önnur út á langar námsbrautir menntunar og sérhæfingar og erill hversdagsins setti svip sinn á hið daglega lif. En í húsi þeirra á hálsinum i Kópavogi ríkti sami andi og var á sínum tima í dalnum nyrðra. Það var andi þeirrar glaðværð- ar og góðvildar, sem húsfreyjan átti svo ríkan þátt í að skapa með hispurslausri hreinskilni og skilningsríku hjarta. Þar var mikill gestagangur, bæði safnað arfólks og vina að norðan og margt barst i tal og ekkl allir á einu máli. Þar var stundin fljót að líða, en Innihald þeirra stunda gaf oft gott og holt vega- nesti til umhugsunar í hvers- dagslífi næstu daga. Ljúft er að rifja upp slíkar minningar og mikið að þakka þegar til baka er litið. Og nú er þessi mæta kona kvödd hinztu kveðju. Lifið hafði verið henni gott og gjöfult og það var gæfa hennar að verja gjöfum þess til að auðga líf ann arra, bæði skyldra og vanda- lausra. Hún var manni sínum styrk stoð í starfi, hún var börn um sínum góð móðir og hún átti vináttu og virðingu sóknarbarna í ríkum mæli. En dauðinn var kröfuharður skuldheimtumaður og það er ein af hinum áleitnu spurningum hversvegna hún, sem hafði stráð óblandinni gleði, björtum vonum og falslausri samúð á veg lífs- ins skyldi þurfa að bíða dauð- ans i langri og þrautamikilli raun. Með þökk er hún kvödd af fjölmennu frændliði um leið og samúðarkveðja er flutt ástvfn- um hennar öllum. G. Br. Prestskonan í Kópavogi er lát in og með henni gengin mikil mannkosta kona, sem verða mun ógleymanleg þeim er henni kynnt ust. Frú Sigríður Stefánsdóttir var Húnvetningur, dóttir Stefáns prófasts á Auðkúlu í Svínavatni og síðari konu hans, frú Þóru Jónsdóttur. Áð Sigríði stóðu merkar ættir og traustar, sem aðrir, mér fróð- ari munu eflaust rekja. Hitt get ég fullyrt, að hún var enginn ættleri. Hún var glæsileg atgjörviskona, sem bjó yfir mik- illi andlegri og líkamlegri reisn og æðruleysi. Mannskilningur hennar var óvenju næmur og hjartahlýjan ósvikin. 1 sporum hennar gréru því blóm góðvild- ar og vinsemdar, hvar sem þau lágu. Heilbrigt lífsviðhorf, eðlis- læg hjálpfýsi og umburðarlyndi var sá jarðvegur sem þau uxu upp af. Enginn skyldi þó álykta, að frú Sigriður hafi ekki haft sinar ákveðnu skoðanir né hikað við að segja meiningu sína, þegar henni þurfa þótti. Hún var ekki værukær i hugsun og forðaðist ekki að taka afstöðu til manna og málefna, til þess var réttlæt- iskennd og leit að hinu sama í hverju máli of ríkir þættir í fari hennar. Henni var ekkert mannlegt óviðkomandi. En henni var lagið að segja meiningu sína af þeirri óvenjulegu hreinskiptni og slíku hispursleysi, sem ó- gjarnan vekja andstöðu. Oft ræddum við saman og vor um síður en svo alltaf sammála. En einmitt þessi eiginleiki henn- ar að vekja eMkii vi'ðóniælainidainin til andstöðu, varð þess valdandi, að samræðurnar 'leiddu oft til gagngers endurmats míns á því, sem um var rætt. Barn að aldri sá ég Sigriði í fyrsta sinn. Það var á sólhýrum sumardegi við guðþjónustu í Ból staðarhlíðarkirkju. Hún var þá ung kona, nýlega gift sóknar- prestinum okkar sr. Gunnari Árnasyni. Barnsleg hrifning mín af frú Sigríði við fyrstu sín, var óbland in. Mér fannst hún þá yndisleg- asta kona sem ég hafði augum litið og ég held hreint að mér finnist það ennþá. Þá, og ætíð síðar skynjaði ég í fari hennar, þessa ólýsanlegu persónutöfra, sem aðeins fáum út völdum hlotnast í vöggugjöf. Sem unglingur dvaldi ég um vetrarskeið á heimili þeirra hjóna á Æsustöðum i Langadal. í þá daga var menntunaraðstaða sveitaunglinga vægast sagt erfið og oft í öfugu hlutfalli við náms löngun þeirra. Oft hlupu þá prestarnir undir bagga og studdu þessa unglinga „fyrsta fetið“ til framhaldsnáms eftir barnaskóla, svo var og í þetta sinn. Við vorum þarna tvær ungl- ingsstúlkur um mánaðarbil og nutum veru okkar á heimili ungu prestshjónanna í ríkum mæli. Þó minntist ég þess, að við vor um svolítið feimnar við prestinn og vildum gjarna standa okkur vel i timunum hjá honum og fyr ir gömlu prófastsekkjunni, tengdamóður hans, bárum við óttablandna virðingu. En á kvöldin, þegar unga prestskon- an kom inn til okkar að bjóða góða nótt og rabba við okkur ef tími var til, þá var öll feimni á bak og burt og við, fyrr en varði farnar að masa og hlæja á okkar eðlilega hátt. Hamingj- an góða, hvað við fengum stund um ótamin hláturköst og hlátur Sigriðar bergmálar ennþá í huga mínum éins og ljúft undirspil. Skömmu síðar flutti ég burt af æskustöðvunum og sá þau hjón örsjaldan, þar til þau fluttu suð ur og settust að I Kópavogi. Mér var það fagnaðarefni að hitta þau fyrir að nýju, kynnast ágæt um börnum þeirra og koma á heimili þeirra, þar sem andi æskustöðvanna sveif yfir vötn- unum. Mér fannst ég á vissan hátt komin heim. — Og nú er skarð fyrir skildi. Hjartkær Sigríður, and- látsfrégn þin barst mér til eyma á björtum kyrrum haustmorgni og þótt ég að vísu ætti þeirra tið inda von, þá kiknaði ég samt undan þessu höggi staðreynd- anna og fannst rökkva úti og inni. Ég veit það er barnalegt af mér að geta ekki sætt mig við að vita þig ekki lengur lifandi meðal okkar, eiga þig ekki leng ur vísa á þinum stað. Geta ekki framar blandað við þig geði og sótt til þín þá skemmtan og upp- örvun, sem ætíð var vis ef sam- funda við þig varð auðið. Við þessi vegamót vil ég þakka þér fyrir allt sem þú varst okkar heimabyggð, þar sem ykk ar hjónanna mun lengi verða minnzt. Og að lokum, heyri ég getið ágætrar konu, mun ég ævinlega minnast þín. Heim að Digranesvegi 6, til mannsins þíns og barnanna ykk- ar, sendi ég kveðju án orða. Lára Gunnarsdóttir. Sigríður min. Nú ert þú horf- in af sjónarsviðinu á þessari jörð, en þó svo sé, verður þú mér alltaf sú sama og þú áður varst, önnur móðir. Ég átti því láni að fagna, að kynnast þér I bernsku þar sem við vorum bæði fædd og uppal- in á sömu slóðum, þó að jökul- vatnið Blanda skildi á milli heim ilanna, Auðkúlu og Botnastaða. Um ætt þína ætla ég ekki að fjalla. Þú varst prestsdóttir og síðar prestskona. Meðfæddur aðalsbragur þinn leyndi sér ekki. Mér er þungt innanbrjósts þegar ég skrifa þessar fátæklegu línur og veit varla á hvað skal minnast. Hrós eða lof veit ég, að þú vildir aldrei heyra, það vel þekki ég þig, enda voru við nágrannar um 14 ára skeið nú á seinni ár- um og sáumst oftast daglega á þeim tíma. Auk þess var ég svo vikum skipti ef ekki mánuðum á heimili ykkar hjóna nú síðustu ár eftir að halla tók undan fæti hjá mér og var alltaf jafn vel tekið, hvernig sem á stóð. Fæ ég aldrei fullþakkað þér, hvern- ig þú reyndist mér þegar á móti blés. Þú reistir þér sjálf á lífs- leið þinni þann minnisvarða, sem hvorki „mölur né ryð fá grand- að.“ Um aðsetursskipti þín óttast ég ekki, því að þannig hafðir þú búið í haginn sjálf. — Meira ætla ég ekki að segja. — Vertu sæl, elsku Sigríður mín, og þökk fyrir allt. Að lokum sendi ég eftirlifandl Framhald á bis. 18 wm «H0 m Hver leggur ekki metnað sinn í að hafa heimili sitt vistlegt og þægilegt, heimilis- fólki til ánægju og gleði? Á ferðalögum er ekki síður ánægjulegt að búa vistlega og þægilega. Hótel eru heimili þeirra sem þar dvelja. Við leggjum metnað okkar í að búa sem bezt að gestum okkar, þannig að dvöl þeirra verði sem ánægjulegust. HEIMIIl ÞEIRKA EB REYKJAVIK GISTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.