Morgunblaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 7
MORG-UNiBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUlR 8. DESEMBRR 1970
| ; Völundarhús munu kennd
| við Völund smið, sem sagt er
írá í Eddu og „var hagastur
I maður, svo að menn viti, í
I íornum sögum.“ Við hann er
!, og kennd listasmíð og kölluð
„Völundarsmíð".
! Þessi hús hafa þekkzt hér
á landi frá því i fornöld, eins
i og marka má af gömlum
handritum, þar sem eru
' myndir af þeim, jafnvel allt
frá þvi um 1300. Með ann-
arri mynd frá 15. öld er
skráð þjóðsagan um, hvernig
þessi hús séu til orðin. Þar
segir að dóttir Sýrlands sol-
dáns hafi kennt Egeasi nokkr
um að gera völundarhús, til
þess að geta drepið ófreskju
nokkra, og átti hann að fá
soldáns dóttur að verðlaun-
um fyrir að drepa ófreskj-
una.
Þessi völundarhús, sem
þarna eru myndir af, eru
bæði hringlaga og eru þar 8
hringir hver utan yfir öðr-
um. Á milli hringanna eru
svo þvergirðingar sitt á hvað,
en litlar dyr á hringunum
hingað og þangað. Þrautn er
sú, að þræða sig eftir öllum
hringunum, frá útidyrum inn
í innsta hring án þess að
komast í sjálfheldu. Þetta er
hægt, en vegurinn er villu-
gjarn og krókóttur mjög.
Kaalund telur að íslenzku
völundarhúsin eigi sér fyrir-
mynd í útlöndum, og mun
það rétt vera. Þau eru ekki
upp fundin, á íslandi. Það
var siður erlendis, á fyrstu
árum kirkjusmíða, að höggva
völundarhús í kirkjugólfin,
og áttu þau að vera tákn
þess, hve vandratað er um
villustigu veraldarinnar.
Öll þau völundarhús, sem
nú þekkjast hér á landi, eru
á bersvæði, og er því talið að
þau muni hafa verið gerð
mönnum til gamans og dægra
styttingar. Þó er ein undan-
tekning. Til eru tveir upp-
drættir af völundarhúsum eft
ir séra Sæmund Holm og seg
ir hann um aðra myndina, að
hún hafi fundizt á Islandi,
höggvin á steinstólpa eða
steinkross, og rúnastafir með.
Báðar þessar myndir sýna
hringmynduð völundarhús,
en annars voru þau oftast
íerstrend eða áttstrend.
Kaalund gizkar á, að völ-
undarhúsin hér á landi hafi
verið gerð á 15. og 16. öld,
og munu þau því vera farin
að týna tölunni. Þó getur
Sigurður Vigfússon fornfræð
ingur þess, að hann hafi skoð
að nokkur völundarhús. —
Skammt fyrir innan Fagra-
dalsbæina á Skarðsströnd
gengur nes nokkurt fram í
Gilsfjörð og kallast Þingnes.
Má vera að það dragi nafn
sitt af þvi, að leiðarþing hafi
verið haldin þar forðum. Eyr
in er sendin og fremst á
henni er klettabálkur. Fyrir
ofan hann eru einhver mann
virki og var lengi talið að
það mundu vera dysjar, og
þess vegna hefir þeim verið
umturnað, menn hafa ein-
hvern tíma grafið þar i leit
að haugfé. En dysjar eru það
ekki, heldur brot af völund-
arhúsi, sem hlaðið hefir ver-
ið þarna á eyrinni. Það er
nú óglöggt mjög, en virðist
hafa verið ferstrent.
Uppi á Víkurbarða, sem er
hár hraunkambur milli Djúpa
lónssands og Dritvíkur á
Snæfellsnesi eru enn leifar
af hringmynduðu völundar-
húsi og hefir það verið stórt.
Á sléttri flöt uppi á barðan
um, hefir steinum verið raðað
í 10 hringa og er hver steina
röðin utan við aðra, en þrösk
uldar eru gerðir hingað og
þangað milli hringanna, og svo
eru smáop líka á hringunum
hingað og þangað. Sagt er að
sjómenn í Dritvík hafi hlað-
ið þetta völundarhús, og haft
af því skemmtun í landlegum,
að reyna að rata um það.
Þetta mannvirki er nú mjög
úr sér gengið, steinarnir að
miklu leyti sokknir i jörð. En
vel ætti við, að hresst væri
upp á það, því að hér er
sannarlega um allmerkan
forngrip að ræða.
Olavius getur um völundar
hús hjá Hólmavík við Stein-
grimsfjörð, en óvíst er að
þær rústir hafi fengið að
haldast.
Enn er getið um völundar-
hús á Bildudalseyri og fylg-
ir sú saga, að það sé frá
þeim tíma er Þjóðverjar verzl-
uðu þar á 16. öld, og húsið
sé þeirra handaverk.
Þess er getið, að fyrir
seinustu aldamót hafi ungl-
ingar á Suðurlandi skemmt
sér við að gera völundarhús 1
og voru þau flest ferstrend.
Þessu gamni fylgdi sú saga,
að skessa nokkur hefði rænt
mönnum og geymt þá i völ-
undarhúsi, því að hún taldi
öruggt, að þeir mundu ekki
rata út. En að lokum tókst
einum að komast út, og þá
rataði hann inn aftur og
bjargaði félögum sínum, svo
að skessan greip í tómt er
hún kom heim. Og nú var
það leikur unglinga að kom-
ast inn í völundarhúsið og
bjarga föngum, sem þar áttu
að vera. Stundum voru völ-
undarhús þessi gerð úr sauð
arleggjum, en oftast voru
þau krítuð á borð eða gólf,
eða þá mörkuð i sand. Er því
hætt við, að ekki sjáist minj
ar þeirra lengur, enda mun
nú iangt síðan börn og
unglingar hættu að skemmta
sér við þetta.
Frá
horfnum
tíma
FRÉTTIR
Þessi númer hlutu vinninga í
happdrætti Kvenfélags Ás-
prestakalls 2. desember 1970.
Nr. 153 barnabíll, 356 hekl-
aður dúkur, 381 bíla-ryksuga,
576 batik-lampi, 829 ísterta, 894
karlmannsúr, 1004 hangikjöts-
læri, 1033 bóndabær, 1171 lopa-
peysa, 1509 kvenmannsúr, 1622
brúðurúm, 1798 brúða.
Vinninganna skal vitja í Ás
heimilið, Hólsvegi 17, á mið-
vikudag kl. 2—5 simi 84255 eða
i sima 32195.
Kvenfélag Bæjarleiða
heldur jólafund miðvikudaginn
9. desember kl. 8.30 að Hall-
veigarstöðum. Sýndar verða
blóma og jólaskreytingar.
Kvenfélagið Hrund, Hafnarfirði
heldur jólafund miðvikudaginn
9. desember kl. 8.30. Fundar-
efni: Ávarp, tízkusýning, blóma
skreyting, Glettur syngja, Jóla-
happdrætti.
Kvennadeild
Skagfirðingafélagsins
minnir á jólafundinn í Lindar-
bæ niðri miðvikudaginn 9. des-
ember. kl. 8.30. Jólaminning.
Kokkur frá hóteli kemur og gef
ur góð ráð með jóiamatinn.
Happdrætti. Heimilt er að taka
með sér gesti.
Kvenfélagið Aldan
Jólafundurinn verður miðviku-
daginn 9. desember kl. 8.30 að
Bárugötu 11. Sýnd verður blóma
skreyting frá blómabúðinni
Flóru og konur úr félaginu
sýna nýju tízkuna.
Kvenréttindafélag Islands
heldur jólafund sinn miðviku
daginn 9. desember kl. 8.30 að
Hallveigarstöðum. Á fundinum
verður að venju bókmennta-
kynning, og lesa nokkrir kven
rithöfundar úr verkum sínum.
Kvenfélag Breiðholts
Fundur 9. desember kl. 8.30 í
Breiðholtsskóla. Ingibjörg
Gunnarsdóttir sýnir litskugga-
myndir frá sögustöðum Biblí-
unnar.
VÍSUKORN
Slys
Gráta bilrúður
glóðheitum tárum
grefur sér gröf
í gljáandi stáli
fórnarlamb hraðans.
Jón Oddgeir, 1970.
GRILL OFN BROTAMALMUR
Til söHu, vel með fafinn aimerfsikur girill ofn. Upplýs- • ingar í síma 23269. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreíðsla. Nóatúni 27, stmi 2-58-91,
AKRANES Góffteppahreinsun, húsgagna hrelniS'un. Hreiimisium teppi og húsgögn í iheiimalhúsum og !h;á fyrirtaskju'm næstu diaga. U pplýs'ingar í síma 30697. INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar innrétt- i ingar í hýbýlli yðar, þá teitið fyrst tilboða hjá okkur. — Trésm. Kvistur, Súðavogi 42, símar 33177 og 36699.
TIL JÓLAGJAFA Hvíldarstótar, skrifborðsstól- ar, imnislkiotsibiorð, fótaislkieimmf ar, vieggih'i'l'liuir og mamgt fteiina. Nýja bólsturgerðin Lauga- vegii 134, símii 16641. KLÆÐI OG GERI VIÐ bólstruð húsgögn. Húsgagnabólstrunin, Garða- stræti 16.'— Agnar ívars. Heimasími í I hádeginu og á kvöldin 14213.
HÁRGREIÐSLUSVEINN LÍTH. IBÚÐ
óskast strax. Upplýsiingar í síma 35396 eftir M. 7 í kvötd. á Meliu'mum ti'l teigu. Upp- lýsingar í s'íma 20652.
TIL SÖLU fros'kman'nsb'úningur, van d - aður með öflu tiliheyraind'i. Upplýsingar ! síma 127 Seyðiisifirði og 17691 Reyfcja- vík. KEFLAViK — NJARÐViK Am erísku r maöur og ístenzlk kona með tvær stúlkur, 6—8 ára, vantar 3ja herb. íbúð f. 1. janúar. Tiilib. tiil afgr. Mbl. f. 15/10 merkt ,,1'búð — 6701",
VEGGHILLUR 12 gierðir nýkomnar. Verð frá 247,00 kr, Blómastengur, miii góltfs og lofts, e'inmiig fyriirf'iggijaindi. Blómaglugginn Laugavegii 30. GÓÐUR MATUR Vinsæl'U hrossaibj'úgun frá Þyfckvabæ. Saltað hrossa- ifcjöt af fullorðnu. Kjötbúðin Bræðraborgarstlíg 16, sími 12125.
HINIR SKEMMTILEGU kristalskertastjakar sem einn ig eru sérlega faftegiir blóma- vasar eru komin'ir eiftur, Blómaglugginn Laugavegi 30. BARNGÓÐ KONA óskast ihállfain dagmn ti'l að gæta barns á öðru ári. Nán- ari upplýsingar í sima 2-65-46.
SAUNA-BAÐ að 1'Oknu dagsverki hressir yður og verndar hei'lsiuna. Leitið tillboða í uppsetmiing'u. Byggir hf, simi 52379. PLÖTUSPILARI Ti'l sölu er ársgamatl, Ktið notaður stereo plötiusipilairi. Tegund BSR Monarcih. Gott verð. Upplýsingar í síma 2-65-46.
Gólfteppi frá öilum heimshomum Ts'intsin -teppi, hamidofin, ind- versik og pensnesik. Sikozk al'U'Har teppi, Ardeb'i'l'-teppi Kenmior og Grovenor o.s.frv. frá Kaispíaihafsströnidium. Byggir hf, sími 52379. NOTIÐ ÞÆGINDIN Verzlið beint úr bifreiðinni. Fjölbreytt úrviail sölus'kála- vöru. Opið 07.30—23.30. Sunmudag 09.30—23.30. Bæjamesti við Miklubraut.
ÍBÚÐ ÓSKAST Kona með tvö böm óskar eftir Kti'Hii í'búð fyrir áramót. Einihver fyrirframg'reiðs'la, ef ósikað er. Upplýsingar í síma 26608. ATVINNUREKENDUR Sparið peminga og tlma, notið símann. Vinnumiðlunin Hverfisgötu 76 sfmi 24514 frá 3—7. Opið 4—6.
STÚLKA EÐA KONA ÞRIGGJA TIL FJÖGURRA
ósikast rnú þegar til starfa í kijötdeild Kostaikijör, Sfcip- holti 37. herbergja íbúð óskast. — Regluseim'i, skilvís greiðs'la. Upplýsingar í síma 23854.
LÆRÐ MATREIÐSLUKONA ósikar eftir atvinmu. Vil'l gjarnan taika að sér að stjórma mötumeyti. Uppl. í S'írna 22150. HEIMAVINNA Ung laiglhent stúlka óskar eft- '«r 'heimavininu. Margt fcemur ti'l greina. Til'b. merkt „Vand- virk 6154" leggii'St inn í afgr. Morgu'nibl. í desiemiber.
HUNDRAÐ KRÓNUR Á MÁNUÐI
Fyrir EITT HUNDRAD KRÓNUR á nánuði seljum rið
RITSAFN JÖNS TRAUSTA
8 bindi i svörtu skinnlíki
Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SlÐAN 100 KRÓNUR Á MÁNUÐI.
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Sími 15434