Morgunblaðið - 08.12.1970, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.12.1970, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1970 JÓLABÆKUR0 ÍSAFOLDAR Eitt líf. Ævisaga Barnards, laeknis- ins sem fyrstur græddi nýtt hjarta í dauðvona sjúkling og varð i einum svip frægasti og umdeildasti læknir allra tíma. Verð kr. 700.00 + ssk. Sjáðu landið þitt. Ferðapistiar og minningaþættir hins óvæga og umdeilda rithöfundar Magnúsar Storms I fylgd ýmissa þjóðkunnra samferðamanna með ívafi hvers kyns þjóðlegs fróðleiks. Verð kr. 540.00 + ssk. Grúsk. Greinar um þjóðleg fræði eftirÁrna Óla. Grúsk I kom út 1964 og hlaut góðar viðtökur. Grúsk I og II er kjörbók allra sem þjóðlegum fræðum unna. Verð kr. 600.00 + ssk. Huldufólkssögur, þjóðsögur Jóns Árnasonar í útgáfu ísa- foldar, myndskreyttar af Halldóri Péturssyni listmálara. Engin jólabók er börnum hollari lestur. Verð kr. 400.00 + ssk. Val og venjur í mat og drykk. Leiðbeiningabók eftir yfirkennara frægasta hótelskóla heimsins. Bók, sem hver einasti ferðamaður, fyrsta flokks veitingamaður og allar hús- mæður þurfa að eignast. Verð kr. 520.00 + ssk. Gamla Reykjavík, eftir hinn landskunna rithöfund og blaða- mann Árna Óla. Hefur um langt skeið verið uppseld, en birtist nú I nýrri útgáfu. Verð kr. 600.00 + ssk. Þar sem elfan ómar. Litrík þjóð- leg skáldsaga frá tímabili eldri kyn- slóðarinnar. Lesið um tlma sem aldrei koma aftur í lýsingu Jakobs Jónassonar skálds. Verð kr. 445.00 + ssk. Landið handan landsins. Guð- mundur Daníelss. er löngu kunnur sem einhver mikilvirkasti höfundur sem nú er uppi. Þetta er tilþrifa- mikil skáldsaga um kynslóð milli- striðsáranna. Verð kr. 460.00 + ssk. í Ijósmálinu. Ný Ijóðabók eftir Einar Braga. Einar er viðurkenndur sem eitthvert fágasta og lýriskasta skáld Islands í dag. Óskabók allra Ijóðvina. Verð kr. 350.00 + ssk. Þrjú hjörtu. Jack London var alla tíð ævintýramaður. Flestar skáld- sögur hans eru sprottnar upp úr persónulegri reynslu hans sjálfs. Ósvikin ævintýrabók. Verð kr. 360.00 + ssk. Mannlegar verur. eftir Raymond Firth. Þýðing E. J. Stardal. Bók um frumstæðar þjóðir, kynþáttafor- dóma, félagslíf vanþróaðra þjóða og hin erfiöu lífskilyrði frumstæðrar menningar. Verð kr. 360.00 + ssk. Bátur á reki. Skemmtileg og spennandi saga um litlu börnin sem rak til hafs á opnum báti. Þessi bók er sérstaklega hentug skólum sem annast lestrarkennslu. Verð kr. 125.00 + ssk. Horfin ský. Fyrsta Ijóðabók hins kornunga skálds, Ómars Halldórz- zonar. Jólabók Ijóðunnandi æsku- fólks, eftir fulltrúa hinnar uppvaxa- andi kynslóðar. Verð kr. 300.00 + ssk. Ástalíf. Þessi bók kom út fyrir þrjátlu árum og vakti mikla athygli því að mönnum þótti farið frjálslega með efni sem þá var einungis talið til feimnismálanna. Verð kr. 265.00 + ssk. Skólapiftar á smyglaraskútu. Spennandi saga um ævintýri skóla- stráka í sumarleyfi og viðureign þeirra við smyglara. Óskabók allra þróttmikilla drengja. Verð kr. 180.00 + ssk. Ljóðmæli. Ljóðabók Guðrúnar Magnúsdóttur frá Klukkufelli. Úrval Ijóða, sem Freysteinn Gunnarsson hefur valið. Kjörbók Ijóðelskandi kvenna. Verð kr. 325.00 + ssk. Börn á ferð og flugi. Úrvals- kaflar úr barnasögum eftir Kára Tryggvason. Barnasögur hans eru flestar löngu uppseldar enda hafa þær notið mikilla vinsælda. Verð kr. 220.00 + ssk. Læknar á fslandi. Ein merkasta fræðibók, sem komið hefur út hin síðari ár. Þar er sögð saga læknis- fræðinnar á íslandi fram á vora daga, auk fullkomins læknatals. Verð kr. 2300.00 + ssk. t(ií' fíita Dísa á Grænalæk. Þessi frábæra barnabók kemur nú út í þriðja sinn og er ekki vafi á að hún verður yngstu lesendunum jafn kærkomin sem fyrr. Verð kr. 135.00 + ssk. Þrjársögur um Siggu og skessuna góðu. Bækur handa yngstu lesend- unum, samdar af smábarnakennara sem veit hvernig sögur á að velja handa yngstu lesendunum. Verð kr. 70.00 hvert eintak + ssk. BISAFOLD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.