Morgunblaðið - 08.12.1970, Síða 28

Morgunblaðið - 08.12.1970, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1970 Hrúturinu, 21. marz — 19. april. Keyndu að gera þér uppdrátt af verkinu áður en þú byrjar. Nautiö, 20. apríi — 20. maí. Reyndu að treysta eðli þinu fremur en rökfestu. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Reyndu að leita nákvæmra upplýsinga um eignir, Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Opinber málefni ganga betur en þú vonaðir. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Reyndu að verja deginum til þess að gera mynd þína glæstari i ogum mikilvægra aðila. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Reyndu að hafa samband og ná þér í mikilsverða reynslu. Vogin, 23. september — 22. október. Þú eyðir tíma og fé í unga fólkið. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Það mæðir eittbvað á þér núna, og vertu viðbúinn að gefa eitt- vað á milli, ef með þarf, og sjáðu um að það fréttist. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Þú færð fína hugmynd og sameinaðu hana við áformin. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Þú færð fína hugmynd og sameinaðu hana áformunum. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þú gætir vel grætt núna, ef þú gætir vel að þér, Eitthvað mikil- ægt er að æxlast heima fyrir. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Reyndu að vera dálítið stundvís. Þú græðir á góðum hugmyndum ínum. Ekki fyrr en við opinberum, sagði hún einbeitt. — Hvernig gæti ég átt hring og ekki gengið með hann? En hann hafði nú keypt hann, þrátt fyrir bann hennar . . . Ferkantaöur demant- ur. Of stór hugsaði hún og greip öndina á lofti, þegar hann glitr- aði móti henni upp úr öskjunni, — og of fallegur. En þarna var hann nú kominn og henni þótti vænt um hann og gat ekki geng- ið með hann og þorði ekki að hafa hann heima hjá sér. En hún faldi hann undir nær- fötunum sinum, setti hann í tána á inniskó og hafði svo áhyggjur af honum allan daginn í skrif- stofunni. Loksins keypti hún, með ærnum tilkostnaði, of- urlítinn járnskáp, sem hún hafði á náttborðinu og þá fyrst fannst henni sér vera nokkurn veginn óhætt. Hanna, sem hafði glennt upp augun, er hún sá hringinn, sagði eins og satt var, að sterkur inn brotsþjófur gæti hæglega tekið skápinn og hlaupið burt með allt saman. — En hvernig ætti hann að vita, að þetta er peningaskápur? sagði Kathleen. Hanna sagði Paul frá þessu öllu. Hún sagði: — Þú ættir bara að sjá hringinn. Hún er stundum með hann á hendinni heima. Hvert skipti sem húr. ber hönd- ina upp að andlitinu, finnst mér eins og hún sé að éta ís. Já, hann er sannarlega álitlegur. Eitthvað tíu karöt. Æ, fjandinn hafi það, lauk hún máli sínu og hló. — Þetta er bar öfund í mér. Hún gaut til hans augunum, en hann var ekki að hlusta á hana. Allt í einu sagði hann: — Ég er í vandræðum með ann- an þáttinn minn. Og ef ann- ar þátturinn endar ekki vel, verður ekki neitt úr neinu. Já, hugsaði hún gremjulega, það var sýnilegt, að annar þátt- urinn hjá henni sjálfri endaði ekki glæsilega. Hún botnaði ekk- ert í sjálfri sér. Þegar þau Paul höfðu verið skotin hvort í öðru, höfðu þau umgengizt ástina kæruleysislega. pau höfðu ekki varðveitt hana. Þau höfðu verið vitlaus og eyðslusöm — og þeim hafði sjaldnast verið alvara. Það var fyrst eftir síðustu rifrildin, sem stöfuðu af ómerki- legum deiluefnum, en urðu samt hörkuleg, að hún hafði gert sér ljóst, hve mjög hún elskaði hann. Hún hafði reynt eftir föngum að sleppa honum úr huga sínum. Og hún hélt að það hefði tekizt, um þær mundir er honum skaut upp aftur, og vildi bara vera vinur hennar en ekkert meira. En þegar hún sá, að hann var orðinn alvarlega ástfanginn, en þó ekki af henni sjálfri, vaknaöi gamla ástríðan hjá henni ákaf- ari en nokkru sinni fyrr. Og henni fannst hann vera allt öðru- vísi við Kathleen. Kátur og kæru laus á ytra borðinu, en þarna lá einhver þrálát alvara að baki. Samkvæmt hennar eigin lífs- reglum, hefði hún átt að snúa við honum baki fyrir fullt og allt, þegar hún sá, hverju fram fór. En hún gat það bara ekki. Nú ætlaði Kathleen að fara að giftast öðrum, en Paul hélt samt áfram að snúast kring um hana og lét sér á sama standa, hver sá það. Og hér var hún sjálf — Hanna — að reyna að ná í hann aftur, án tillits til þess, hver sæi það, og lét sér jafnvel á sama standa þótt Paul sæi það. Jólin komu og einmitt um helgi og það voru rauð jól. Pat tók þvi móður sína og systur og Kathleen í bílinn sinn og ók til Placid, þar sem nógur var snjórinn. Kathleen hefði nú heldur kosið gamaldags jól í ibúðinni heima hjá þeim, en það vildi Pat ekki heyra nefnt á nafn. Hann vildi hafa fjörugt um jólin og nóg af gestum. Auk þess vildi Carmela þetta líka og það mátti ganga út frá því sem visu, að það yrði nóg af ungum mönnum í klúbbnum. Þau fóru þvi og lögðu af stað á aðfangadagsmorgun, og Pat ók sjálfur en Garman kom á eftir með bíl frú Bell, fullan af jólagjöfum. Kannski var þetta nú eins gott, hugsaði Kathleen. Hún saknaði foreldra sinna afskap lega. Hún gæti hringt til þeirra á skipinu. . . og það gerði hún og hafði mikla ánægju af að heyra til þeirra. Nú gat hún óskað þeim gleðilegra jóla. Hún sagði þeim, að hún væri í Placid í jólaboði, en móðir hennar spurði kvíðin: — Ertu kvefuð, Kathleen? og hún brýndi raustina og sagði: — — Ekki nokkra vitund, ég var bara að gráta ofurlitið. Já, kannski var það eins gott að vera bara innan um tóma ókunnuga. . . dást að stóra, ópersónulega jólatrénu og blóm fléttunum, sem hún hafði ekki hjálpað móður sinni að hengja upp. Og gleyma því, að þetta voru fyrstu jólin síðan hún fæddist, sem hún hafði ekki fundið sokk á arinhillunni. Pat var örlátur á jólag.iafirn- ar — hún fékk armband með safirum í og ferðatösku — Það er fyrir brúðkaupsferðina okk- ar, sagði hann. Frú Bell gaf henni nærföt' og ofurlitla smá- mynd af Pat, málaða eftir mynd, sem hún átti af honum sex ára gömlum, með hrokkið svart hár og leiftrandi blá augu. Carmela gaf henni sokka og kyssti hana. Sjálf hafði hún eitthvað handa öllum, fallegt vindlinga- veski úr silfri handa Pat, hanzka og fallega nælu handa Molly, og púðurdós handa Car- melu. Og svo hafði hún haft með sér jólagjafirnar, sem henni höfðu verið sendar heim til Hönnu. Hanna hafði gefið henni handtösku frá Eloise, og svo kom stór böggull frá Paul. Hún ætlaði ekki að trúa sín- um eigin augum, þegar hún opn aði þennan böggul og upp úr honum kom innbundið eintak af „Engu glatað." Framan á hafði hann skrifað: — „Ég trúi þvi enn, elsku Kate.“ — Hvað er þetta? sagði Pat. Hún sýndi honum það. — Þú verður að lesa það. . . það ætti að vera næstum eins gott til lestrar og á sviðinu. En hann hefði ekki átt að vera að gefa mér það. Pat yppti öxlum. — Mér finnst þetta hálf-hégómleg gjöf, finnst þér ekki? — Nei, sagði hún. — Það finnst mér ekki. Það var kominn einhver kuldi milli þeirra og Molly varð þess vör. Þegar hún kom inn í her- bergi Kathleen um kvöldið, spurði hún: — Hvað er að hjá þér og drengnum ? — Ekkert. Ekki annað en það, að Paul McClure gaf mér hand rit af leikritinu sínu og Pat lík- aði það ekki. — Leikritið? spurði Molly brosandi. — Nei, gjöfin. Hún rétti hand- ritið að Molly. — Þú sást það ekki, var það? Þá skaltu lesa það. Þú verður hrifin af því. Molly fór með það með sér og skilaði því aftur um morguninn. Hún sagði alvarleg: — Þetta er gott leikrit, Kath leen. Ég þykist nú ekki hafa neitt vit á svona hlutum, en þetta kom mér til að gráta og gerði mig stolta af að vera venjuleg mannvera. Hvað hefur hann skrifað síðan? — Mjög lítið. Jú, það hefur gengið vel hjá honum, en ekk- ert þessu líkt. — Eruð þið Pat orðin sátt aftur? — Vitanlega. Þetta var ekkert að marka. — Hann er afbrýðlsamur, sagði Molly í aðvörunartón, — Það eru allir karlmenn af Bell- ættinni. Þú skalt vara þig á þvi, Kathleen. Svo fóru þau á skauta og óku á sleða og fengu sér langa gönguferð um snæviþaktan skóginn. Svo var dansað og þama komu snotrir piltar úr há skólanum, og Carmela gerði þrjá þeirra dauðskotna í sér og var ánægð yfir þvi. Þetta höfðu verið ágætis jól, sagði hún. Þau sneru svo aftur til borg- arinnar og vinnunnar, og á gamlárskvöld fóru Kathleen og Pat út að halda áramótin hátíð leg. Hann spurði hana, hvert hana langaði til að fara og hún sagði að sér væri alveg sama, en þá datt henni í hug staður, sem Hanna hafði einhvern tíma nefnt, og sagði: — En að fara í Frumskóginn? Þetta er nýr staður og sagður skemmtilegur, og ég hef aldrei komið þangað. Hann lyfti brúnum. — Það hef ég heldur ekki. En svo hló hann og kipraði saman augun. — Já, því ekki það? sagði hann. Þau borðuðu og fóru í leik- hús og síðan í Frumskóginn, þar sem allt var fullt af kókós- pálmum, og bananatrjám ogfjör ugasta hljómsveit í allri borg- inni. Kathleen var i nýja Eloise kjólnum sínum, sem henni hafði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.