Morgunblaðið - 08.01.1971, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.01.1971, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1971 Mikill munur á frjósemi þorsks og síldar SIGFÚS Alexander Schopka er ungur fiskifræðingur, sem lauk doktorsprófi frá háskól- anum í Kiel í Þýzkalandi í júnímánuði sl. Fjallaði dokt orsritgerð hans um frjósemi fiska — þorsks, síldar og hrognkelsa í Norður-Atlants hafi og bar hann saman frjó- semi sömu tegunda í Norður sjó og Eystrasalti. Sigfús vinn ur nú að rannsóknum á þorski hjá Hafrannsókna- stofnuninni og er nýlega far inn í fyrstu ferð rannsókna- skipsins nýja, Bjama Sæ- mundssonar. Við spurðum Sigfús fyrst að því hvemig hann hefði framkvæmt rann- sóknir sínar og hagað gagna- söfnun til undirbúnings dokt orsritgerðinni. Hann svaraði: — Ég athugaði hvernig eggjafjöldinn og eggstærðin sjálf breyttist með stærð fisksins og aldri. Eggstærðin er breytileg innan hverrar tegundar og seiði úr stórum eggjum hafa stærri kviðpoka og nærast þar af leiðandi lengur á honum. Lengra kvið pokastig getur því brúað lengra erfiðleikatímabil í fæðuöflun. Ennfremur eru seiðin stærri, þegar þau þurfa sjálf að fara að afla sér fæðu. Þannig stuðla stærri egg að því, að seiðin séu hæf ari til lífsbaráttunnar. Egg- stærðina og eggjafjöldann nota ég svo sem mælikvarða á frjósemi fisksins. —- Við gagnasöfnun safn- aði ég eggjastokkum úr hrygnum, sem ekki voru al- veg komnar að hrygningu, til þess að tryggja, að öll egg væru fyrir hendi og var mér því unnt að ákvarða eggja- fjöldann nákvæmlega. Til þess að komast sem næst end anlegri stærð eggjanna safn aði ég svo fullþroska eggjum úr hrygnandi fiskum. Eggin þurrkaði ég siðan, þar eð mis mikið vökvainnihald þeirra getur villt mjög sýn um raun verulega stærð. — Hvaðan safnaðirðu sýn- um? '— Ég safnaði þorski, síld og hrognkelsum við ísland og ennfremur síld og þorski í Norðursjó og Eystrasaltí með innbyrðis samanburð tegunda í huga. Öll síldaregg voru talin í teljara, þegar þau höfðu verið hreinsuð og hert á kemiskan hátt. Þá var þeim dælt í gegnum glerpípu, sem hafði sama þvermál og eggin. Ljós féll á glerpípuna og þegar eggin fóru um hana rufu þau geislann til fótó- sellu og fluttist þá teljari um eitt skref við hvert egg. Þó að teljarinn telji nokkur egg á sekúndu og það taki um eina klukkustund að telja egg úr einni vorgotsíld, þá getur slík talning tekið a.m.k. 10 sólarhringa úr stórum og frjósömum þorski. Ef ég hefði því talið hvert einasta þorskhrogn, væri ég ekki enn hálfnaður með að vinna úr gögnunum. Ég tók því það ráð að telja um 20 til 30 þús. egg, þurka þau og vega. Afganginn þurrkaði ég svo og vó og fann heildarfjölda eggjanna út frá þyngdarhlut fallinu. — Er mikill munur á frjó- sem þorsks og síldar? — Jó, það er reginmunur á frjósemi þorsks og síldar. Eggjafjöldi þorsksins stendur í réttu hlutfalli við þyngd hans og eggstærðin er óháð stærð fisksins. Hjá síld hins vegar vex eggjafjöldinn hrað ar en þyngd hennar, svo að stóru síldarnar hafa hlutfalls lega fleiri hrogn en litlu síld amar. Sem dæmi má nefma að íslenzk vorgotsíld, sem vegur að meðaltali um 200 g hefur um 25 þús. egg, en helmingi þyngri síld af sama kyni hefur um 70 þús. egg — eða nær þrefalt fleiri. Enn- fremur breytist eggstærð síld arinnar með stærð hennar þaninig, að stóru síldamar hafa stærri hrogn en smásíld arnar. Þetta hvort tveggja þýðir að hlutur eggjastokks- ins í heildarþyngd síldarinn- ar fer vaxandi með stærð hennar, m.ö.o., að stóru ein- staklingarnir eru miklu frjó samari. Eggjastokkur í hrognkelsi hins vegar er um þriðjungur af heildarþygnd fisksins. Þrátt fyrir það er grásleppan ekki ýkja frjósamur fiskur — þar er eggjafjöldinn frá 70 til 200 þúsund egg. — Hvernig er frjósemi þeirra síldarstofna, sem þú rannsakaðir innbyrðis hátt- að? — Hún er ósköp breytileg, eftir því hvaða hafssvæði um er að ræða og hvenær hrygn ing fer fram. Segja má að í Atlantshafi sé alltaf ein- hver síldarstofn að hrygna árið um kring. T.d. er síldar stofn við sunnanvert írland að hrygna um þessar mundir og er því svonefnd vetrargot síld. Hér við ísland hrygna tveir síldarstofnar, vorgots- síld í marz og apríl og sum- argotsild aðallega í júlí. f norðanverðum Norðursjó hrygnir svo haustgotsíld að- allega í júlí. í norðanverðum Norðursjó hrygnir svo haust gotsíld í september og októ- ber. Almennt gildir að vetrar og vorgotsíld hrygna tiltölu- lega fáum eggjum en stórum, en sumar- og haustgotsíldar hrygna fleiri eggjum en smærri. Þótt egg haustgot- síldarinnar séu smærri nægir það þó ekki til þess að vega á móti fjöldanum, sem hrygnt er, svo að þesisar síld ar eru frjósamari en vorgot- síldarnar. Vetrargotsíldarnar eru því frjósamastar, þar sem þær hafa stærstu hrognin. — Hvernig stendur á þess um mismun eftir árstíðum? — Hér er lxklega um aðlög un að umhverfinu að ræða. Til þess að klak fisktegundar megi heppnast, er nauðsyn- legt að seiðin nái sem fyrst í fæðu þegar kviðpokinn er uppurinn — ella verða þau hungurmorða. Aðalfæða síld arseiða eru krabbalirfur, sem nærast á þörungasvifi og það nær að magni til hámarki í tempruðu beltunum tvisvar á ári, þ.e. vor og haust. Skömmu síðar fylgir svo há mark krabbalirfanna og því eru þessir árstímar hagkvæm astir fyrir hrygningu sildar- innar. Vetrargotsildarnar hafa stærstu eggin af því að það er langt í dýrasvifshá- markið og því nauðsynlegt að kviðpokanæringin endist sem lengst. Síldar sem hrygna svo rétt fyrir hausthámark þurfa litla kviðpokanæringu og eru eggin því smá. — Hvað um frjósemi þorsk stofnanna? — Þorskurinn við ísland og í Norðursjó er jafnfrjó- samur. Bæði er stærð eggj- anna og fjöldi svipaður. Hins vegar er þorskurinn í Eystra salti næstum helmimgi frjó- samari en hinir tveir stofn arnir. Hann verður miklu fyrr kynþroska og nær þann ig forskoti. Samtal við dr. Sigfús A. Schopka, fiskifræðing, um rannsóknir hans á viðkomu nytjafiska í NA-Atlantshafi Rann- Islandi — Nú skiptir eggjafjöldi milljónum hjá þorski, en að eiins þúsund hjá síld. Hvernig stendur á þeim mismun? — Síldin hrygnir við botn og egg hennar klekjast þar, en hrogn þorsksins eru svif læg, þ.e. svífa uppi í sjónum. Þau hrekjast fyrir vindi og straUmum og geta auðveld- lega lent inn á svæði, þar sem skilyrði til klaks eru ó- heppileg og farast þau því forgörðum í stónim stíl. — Fjöldinn er því nauðsynlegur til þess að viðhalda tegund- inni. — Hvaða áhrif hafa fisk- veiðar á viðkomu fiskstofns? — Um það hefur verið mik ið deilt meðal fiskifræðinga og þá einkum, hvort sam- band sé milli stærðar hrygn ingarstofns og niðjafjöldans. Hefur oft reynzt erfitt að sýna fram á slíkt samband. Stór hrygningastofn þarf ekki að gefa af sér sterkan árgang, en getur gert það. Sömuleiðis getur lítill hrygn ingarstofn gefið af sér góðan árgang. Hér skipta nefnilega skilyrði umhverfisins — sjáv arins — miklu máli. Ef þau eru hagstæð, hitastig og straumar hag9tæðir og nóg áta fyrir hendi, þá má búast við góðum ár- gangi. Við tölum þá oft um gott árferði í sjónum. Ég er svo þeirrar skoðunar, að ef árferði er gott, þá gefur stór hrygningarstofn af sér betri árgang en lítill hrygn- ingarstofn. Með þetta í huga reiknaði ég í framhaldi af frjósemirannsóknunum út hvaða áhrif , sókn hefði á viðkomumöguleika fiskstofns. Það eru til stærðfræðileg lík ön, sem sýna hvernig stærð fiskstofns breytist með sókn inni í hann og er þá stærðin oftast miðuð við þyngd stofnisins, t.d. í smálestum. Á sama hátt má reikna út, hvernig eggjafjöldi hrygn- ingarstofns breytist með sókn inni í hann. Hjá þorski minnkar eggjafjöldinn með vaxandi sókn í réttu hlut- falli við stærð stofnsins í þyngd, en hjá síld minnkar eggjafjöldinn hraðar en stærð Stofnsins í þyngd við aukna sókn, þar sem frjósemin vex hraðar en þyngd síldar innar, eins og ég gat um áð- ur. Þetta má túlka svo, að viðkoma síldar sé í rauninni viðkvæmari fyrir veiðiskap en viðkoma þorsksins. Hins vegar eru sveiflur í frjósem- inni frá ári til árs, en orsak- ir þeirra eru lítt þekktar. Vitað er að fæðuöflunin skiptir þarna nokkru máli, því að fóðurtilraunir hafa leitt í ljós, að ef dregið er úr ætisgjöfinni í lengri tíma þá minnkar einnig frjósemin — sagði dr. Sigfús A. Schopka að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.